Þjóðviljinn - 30.12.1989, Síða 6
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ólafur Gíslason
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Olga Clausen
Afgreiðsla:@’68 13 33
Auglýsingadeild:@68 13 10-68 13 31
Símfax:68 19 35
Verð: í lausasölu 140 krónur
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Málgagn sósíalisma, þjóðfreisis og verkalýðshreyfingar
Síðumúla 6, 108 Reykjavík
4
Um áramót
Það ár sem nú er senn liðið var mikð byltingaár. Þjóðir
Austur-Evrópu héldu upp á tvö hundruð ára afmæli
frönsku byltingarinnar með eftirminnilegum hætti. Valds-
einokun kommúnistaflokkanna hrundi í hverju landinu af
öðru, og þeir atburðir, sem urðu með skjótari hætti en
nokkurn varði, gerðust friðsamlega og án blóðsúthellinga
nema í Rúmeníu.
Heimurinn er um margt annar en áður. Járntjaldið
fræga rifnar í tætlur og miklir möguleikar opnast á greið-
um samgöngum milli fjölskyldna í því „Evrópuhúsi", sem
er orðið snar þáttur í pólitísku málfari tímans. Kalda stríðið
er úr sögunni og þar með forsendur hernaðarbandalag-
anna, sem hafa setið yfir kosti smærri þjóða, skipað þeim
á bás og sagt þeim að hafa hægt um sig þar sem þær
væru niður komnar, annars væru þær að „hella vatni á
myllu andstæðinganna".
Vettvangur frelsisins hefur stækkað að miklum mun.
Því var einatt haldið fram hér á Vesturlöndum, að mikill
eðlismunur væri t.d. á herforingjaeinræði í Rómönsku
Amríku og flokksalræði í Austur-Evrópu. Einræðisherr-
arnir yrðu skammlífir, völd þeirra takmörkuð í yfirborði
þjóðfélagsgerðarinnar. Aftur á móti væri hið kommúníska
flokksræði svo algjört og altækt - drægi saman á einni
hendi pólitískt vald og hervald, efnahagslegt vald og hug-
myndafræðilegt - að þjóðfélög sem lytu slíku valdi gætu
eiginlega ekki breyst og síst með friðsamlegum hætti.
Atburðir ársins afsönnuðu þessa kenningu með ótví-
ræðum hætti. Það kemur á daginn að heimur allur er
breytanlegur, ekkert ástand mun vara að eilífu, engin
þjóð er dæmd fyrir fullt og allt til ákveðins hlutskiptis.
Söguleg nauðhyggja erá undanhaldi. Og möguleikarnar
sem þá opnast svo margir reyndar, að það er ekki nema
von að marga sundli: hvar skal byrja, hvar skal standa?
Verkefni Islendinga á liðnu ári voru náttúrlega öllu
hvunndagslegri. Við héldum áfram að bregðast við á-
standi sem kreppti að okkur og átti rætur að rekja til
mikillar óráðsíu í efnahagsmálum í góðæri því sem
næstliðin ríkisstjórn spilaði illa úr. Sem og til þess að við
höfum blátt áfram gengið of hart að fiskimiðum okkar.
Ýmislegt hefur vel tekist eða sæmilega í björgunarað-
gerðum, annað erenn undirspurningarmerkjum. Um leið
berja upp á hjá okkur erfiðar spurningar sem varða mögu-
leika okkar sem sjálfstæðrar smáþjóðar: hvernig verður
tengslum okkar við markaðsheildirnar stóru háttað?
Tekst okkur á næstunni að ná samningum við Evrópu-
bandalagið sem tryggja góð viðskipti við það, án þess að
við séum nauðugir viljugir dregnir inn undir yfirþjóðlegt
vald og missum úr höndum okkar forræði yfir þeim auð-
lindum sem er forsenda marktæks sjálfstæðis okkar? Á
næsta ári verðum við fyrst og síðast um það spurð, hvort
við viljum nýta okkar hefðir og aukið olnbogarými frelsis til
að leita eigin leiða, eða hvort við ætlum að láta okkur
nægja að beygja okkur undir nýja sögulega efnahags-
nauðhyggju, láta okkur berast með straumi í þeirri hlé-
drægu von að hann muni ekki færa okkur í kaf.
Þjóðviljinn óskar lesendum sínum og landsmönnum
öllum farsæls komandi árs.
ÁB
Djass
Sveifla
í Rauða-
gerði
Sex djasshljóm-
sveitirmeð tónleika
klukkan 3 ídag.
Margir fremstu djass-
arar landsins koma
fram
I dag klukkan 15 verður haldin
djasshátíð á vegum Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna í sal
félagsins að Rauðagerði 27, þar
sem Ingvar Helgason var áður
Djassararnir sem koma fram á tónleikunum í dag voru á æfingu á fimmtudag.
Jim Smart Ijósmyndari Þjóðviljans kíkti á æfinguna og tók þessa mynd.
með bflaumboð sitt. Á hátíðinni
munu koma fram sex hljómsveitir
sem eru skipaðar mörgum af
landsins fremstu djasstónlistar-
mönnum og stendur sveiflan yfir í
tvær klukkustundir.
Hljómsveitirnar sem koma
fram eru Tómas R. Einarsson og
félagar, Tríó Guðmundar Ing-
ólfssonar, Ellen Kristjánsdóttir
og flokkur mannsins hennar,
Andrea Gylfadóttir ásamt hljóm-
sveit Carls Möllers, Kvartett
Reynis Sigurðssonar og Friðriks
Karlssonar og Tentett FÍH, sem
kom fram fyrir skömmu og Iék
undir stjórn finnska tónskáldsins
Jukka Linkola. Saxafónleikarinn
Halldór Pálsson verður sérstakur
gestur hátíðarinnar en hann starf-
ar sem tónlistarmaður í Svíþjóð.
Pétur Grétarsson verður kynnir
en allur ágóði tónleikanna rennur
til uppbyggingar tónleikaaðstöðu
félagsmanna.
-hmp
a---------------
Aramótaveöriö
annaf^þurrtUr sunnan °9 su^austanátt og víðast frostlaust. Slydda eða súld á suðvestur- og vesturlandi, en
Gamlársdagur
Veður á gamlársdag: Suðaustanátt og milt veður um allt land. Súld eða rigning við suður- oq austurströndina
þurrt annars staðar. M
Nýjársdagur
Á nýjársnótt snýst vindátt til suðvesturs og kólnar, fyrst vestanlands, með éljum á suður- og vesturlandi.
Léttskýjað norðan og austanlands þegar kemur fram á nýjársdag. Frost verður á bilinu 0-4 gráour.
6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 30. desember 1989