Þjóðviljinn - 30.12.1989, Qupperneq 12
Árið hófst eins og því fyrra lauk fyrir botni Miðjarðar-
hafs: með ófriði. Uppreisn palestínskra íbúa á vest-
urbakka Jórdanar og Gaza-svæðinu héldu áfram
að mótmæla hernámi ísraels þriðja árið í röð. Eru
fallnir nú orðnir á sjöunda hundrað í uppreisninni.
Austar í Asíu lauk brottflutningi sovéskra hermanna
frá Afganistan f febrúar. Flestir áttu von á því að
stjómin í Kabúl færi fljótlega halloka fyrir upp-
reisnarmönnum en það fór á aðra leið. Andófsöflin
eru sundruð og hafa ekki getað sameinast í barátt-
unni gegn stjóminni.
f Líbanon blossaði þrálátur innaniandsófriður upp á
fyrri hluta árs og kostaði 850 manns lífið á árinu.
Meðal hinna föllnu var forseti landsins, Rene Mu-
awad, en hann sat aöeins sautján daga á forseta-
stóli, komst þangað fyrir tilstilli friðarsamkomulags
sem Arababandalagið hafði forgöngu um í nóvem-
ber. Arftaki Muawads, Elias Hrawi, nýtur stuðnings
arabískra íbúa landsins en kristnir menn sætta sig
ekki við yfirráð hans.
í Kambodju lauk hemámi Víetnama sem staðið
hafði f áratug. Síðustu hermennirnir fóru í septemb-
er en þrátt fyrir samningaumleitanir hefur ekki náðst
samkomulag um framtíðarskipan í þessu stríðs-
hrjáða landi milli stjómvalda í Pnom Penh og
skæruliða Rauðra khmera, Síhanúks fursta og fé-
laga.
sunnanverðri Afríku urðu þau
tíðindi helst að Namibía hlaut
stjórnmálalegt frelsi eftir langvar-
andi ólöglegt hernám kynþátta-
stjórnarinnar í Suður-Áfríku. í'
kosningum sem fram fóru í nóv-
ember hlaut frelsisfylkingin
SWAPO hreinan meirihluta þing-
sæta en þó ekki nógu mikinn til
að geta ráðið úrslitum um
stjórnarskrá sem landið fær á
næstunni.
Suður-Afríku sjálfri uröu líka um-
skipti því þar lét harðlínumaður-
inn P.W. Botha af embætti for-
seta en við tók F.W. de Klerk.
Hefur de Klerk breytt verulega
um stefnu gagnvart svarta meiri-
hlutanum, aflétt nokkrum verstu
ákvæðum kynþáttalaganna og
sleppt leiðtogum Afríska þjóðar-
ráðsins (ANC) úrfangelsi. Þó sit-
ur Nelson Mandela enn inni.
(búar Frakklands og raunar margir fleiri héldu upp á það að þann 14.
júlí voru liðin 200 ár síðan franska stjórnarbyltingin hófst með áhlaupi
franskrar alþýðu að Bastillunni, hinu illræmda fangelsi Parísar. Haldið
var upp á afmælið með miklum skrautsýningum og bravúr að frönsk-
um sið og fátt til sparað.
Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdanefndar Evrópubanda-
lagsins, hefur verið mikið í sviðs-
Ijósinu vegna þess yfirlýsta
markmiðis EB að koma á svon-
efndum „innri markaði" árið
1992. Samningaviðræður eru
hafnar milli EB, EFTAog annarra
ríkja sem ekki vilja láta útiloka sig
frá mörkuðum EB. Þessar um-
ræður hurfu þó nokkuð í skugg-
ann af atburðum sem urðu í
Aústur-Evrópu þegar líða tók á
árið. Hin nýju öfl sem komin eru til
valda austar í álfunni sækja nú
fast að ríkjum Vestur-Evrópu um
margskonar samstarf.
í íran tókst Ajatolla Ruholla Khomeini að æsa upp lýðinn oftar en einu
sinni. Fyrst var það í febrúar þegar hann kvað upp dauðadóm yfir
ensk-indverska rithöfundinum Salman Rushdie fyrir guðlast og níð um
spámanninn Múhammeð í bókinni Söngvar Satans. Svo var það í júní
þegar karlinn kvaddi þennan táradal. Þegnum hans varð svo mikiö um
andlát hans að þeir töfðu útför hans með því að rífa líkklæðin af líkinu
og velta líkbörunum. Eftir nokkurt þóf tókst þó að koma karlhólkinum í
gröfina og síðan hefur verið blessunarlega tíðindalítið frá íran.
Þótt ártalið 1989 verði etv. ekki skráð jafnstóru letri og ártalið 1789 á
spjöld sögunnar verður það þó með réttu kennt við frelsi, jafnrótti og
bræðralag. Að vísu lofuðu atburðir austur í Kína ekki góðu. Þar settust
stúdentar og aðrir frelsisunnendur að á Torgi hins himneska friðar í
Peking, reistu sér frelsisstyttu að amerískri fyrirmynd og kröfðust
lýðréttinda kínverskri alþýðu til handa. Eftir nokkurra vikna þóf tók
öldungaveldið sem haldið hefur um stjórnartaumana síðan í bylting-
unni fyrir 40 árum af skarið og sigaði hersveitum sínum á fólkið. Varð
úr því mikið blóðbað sem kostaði fjölda fólks lífið. Eftir fylgdu svo
miklar hreinsanir og aftökur sem vöktu óhug alls umheimsins.
Það mun hafa verið heimsókn Gorbatsjovs hins sovéska til Kína sem
hrattfrelsisbylgjunni af stað þarílandi. Heimafyrir átti Gorbi hins vegar
í talsverðum erfiðleikum. Umbæturnar sem hann hefur staðið fyrir
hafa enn ekki skilað sér í bættum efnahag landsins, þvert á móti hefur
ástandið farið versnandi. Á árinu kom margoft til verkfalla vegna hins
bága efnahagsástands auk þess sem fjölmörg þjóðarbrot hafa haft
uppi háværar kröfur um aukið sjálfstæði. Eystrasaltsríkin hafa smátt
og smátt sótt í sig veðrið og losað um tengslin við miðstjórnina í
Moskvu, um tíma var mas. rætt um aðild þeirra að Norðurlandaráði.
Þessi barátta hefur verið friðsöm en það er ekki hægt að segja um
baráttu Grúsíumanna, Moldavíubúa, að ekki sé minnst á blóðugar
deilur Aserbajdsa og Armena út af héraðinu Nagorno-Karabak.
Norski Framfaraflokkurinn undir forystu Carl I. Hagens var helsti
sigurvegari kosninganna í Noregi í september. Úrslitin voru hagstæð
flokkunum yst til vinstri og hægri því auk Hagens fögnuðu félagar
Sósíalíska vinstriflokksins góðum sigri. Gro Harlem Brundtland for-
sætisráðherra varð að segja af sér og við tók minnihlutastjórn þriggja
borgaraflokka sem nýtur velvildar Hagens.
í kosningum sem haldnar voru á
Indlandi í nóvember mátti Rajiv
Gandhi forsætisráðherra bíta í
það súra epli að tapa meirihluta á
þingi. Er þetta í fyrsta sinn í
marga áratugi sem Kongress-
flokkurinn er í minnihluta á ind-
verska þinginu.
( Moskvu voru gerðar miklar
breytingar á stjórnkerfi landsins í
anda perestrojku. Einn liðurinn í
þeim var kosning til nýs þjóð-
þings þar sem frambjóðendur
Kommúriistaflokksins fengu víða
háðulega útreið. Margir þek-
ktustu andófsmenn Sovétríkj-
anna náðu kjöri á þingið, þeirra á
meðal Andrej Sakharov. Stóð
hann í harðri rimmu við Gorbat-
sjov og fleiri um afnám forræðis
Kommúnistaflokksins yfir so-
vésku þjóðlífi þegar hann lést af
hjartaáfalli í desember. Var hans
minnst um allan heim sem mikils
andans jöfurs og samvisku so-
vésku þjóðarinnar.
12 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 30. desember 1989