Þjóðviljinn - 30.12.1989, Síða 13
Erlendur
annáll
1989
Þaö var í Póllandi sem skriöan fór
af stað. Þar tókst samkomulag
milli stjórnvalda og Samstöðu í
aprílmánuði um framtíðarskipan
mála í landinu. (júní var kosið til
þings og í september tók kaþól-
ikkinn Tadeusz Mazowiecki við
embætti forsætisráðherra.
Myndaði hann fyrstu ríkisstjórn-
ina í Austur-Evrópu sem ekki laut
forystu kommúnistaflokks.
Ungverjar höfðu þegar á vordögum byrjað að klippa gat á jámtjaldið
sem hefur skilið að Austur- og Vestur-Evrópu frá stríðslokum. (októ-
bermánuði lagði kommúnistaflokkur landsins sjálfan sig niður og
stofnaði í hans stað krataflokk sem lítur á norræna sósíaldemókrata
sem sína helstu fyrirmynd. Boðaðar hafa verið frjálsar kosningar í
Ungverjalandi næsta ár.
í T ékkóslóvakíu gáfust gömlu stalínistarnir upp eftir fall múrsins og létu
Vaclav Havel, Dubcek og félögum þeirra í andófinu eftir völdin. Næstu
daga kepptust ríki Varsjárbandalagsins við að biðja íbúa landsins
afsökunar á innrásinni í ágúst 1968. Nú eru uppi raddir um að stofna
einskonar verndarsvæði fyrir gamla stalínista í Tékkóslóvakíu líkt og
gert var með indjána í Norður-Ameríku. Þar geta þeir verið í friði með
sitt miðstjórnarvald og Rude Pravo og um leið stuðlað að bættum
efnahag landsins með því að vera aðdráttarafl á erlenda ferðamenn.
DER SPIEGEL
DAS VOLK SIEGT
Þeir sem helst notfærðu sér götin sem Ungverjar gerðu á járntjaldið
voru Austur-Þjóðverjar sem hrönnuðust vestur fyrir svo skipti orðið
hundruðum þúsunda. Á sama tíma fjölgaði stöðugt á vikulegum mót-
mælafundum sem haldnir voru gegn einræði Erichs Honeckers og
félögum hans í villuhverfinu Walchsee. Þegarfundarmenn voru orðnir
liðlega kvartmiljón sagði Eiríkur af sér. Við tók Egon Kranz sem reyndi
að bjarga leifunum af flokksveldinu, en hann varð einnig að gefast upp
eftir fáar vikur. Að kvöldi 9. nóvember rann upp sú sögulega stund
þegar sjálfur Berlínarmúrinn lét undan þrýstingi fólksins og næstu
daga og vikur dönsuðu sameinaðir íbúar Berlínar og sungu meðan
alþýða og yfirvöld beggja borgarhluta tóku höndum saman um að
brjóta múrinn niður. Skömmu fyrir jól var umferð leyfð um Branden-
borgarhliðið og nú er búið að ákveða að selja grjótið úr múrnum á
almennum markaði. Ágóðinn rennur til mannúðarmála.
Þegar allt þetta var um garð gengið hittust leiðtogar stórveldanna,
Bush forseti Bandaríkjanna og Gorbatsjov forseti Sovétríkjanna, að
máli í úfnum sjó úti fyrir ströndum Möltu. Þeir voru í fínu skapi og
göntuðust við fréttamenn. Er haft fyrir satt að vel fari á með þeim og er
búist við töluverðum tíðindum í samskiptum stórveldanna á næstunni,
meiri niðurskurði herafla og öðrum friðaraðgerðum. Að fundinum
loknum lýstu þeir yfir formlegum endalokum kalda stríðsins og er
vonandi að það sé rétt.
Varla var Bush búinn að jafna sig eftir volkið á Miðjarðarhafi þegar
hann sendi drengina sína gráa fyrir járnum inn í smáríkið Panama. Þar
hröktu þeir herstjórann Noriega frá völdum og leituðu hans hús úr húsi
í höfuðborginni. Kváðust þeir vilja ná honum og láta hann svara til saka
fyrir eiturlyfjabrask. Þrátt fyrir mikinn liðsafla tókst Noriega að smjúga
úr greipum þeirra og leita hælis í sendiráði Páfagarðs. Innrás Banda-
ríkjanna var fordæmd um allan heim þótt ekki teldist ástæða til annars
en að harma hana í íslenska utanríkisráðuneytinu.
Eiturlyfin sem Noriega á að hafa braskað með koma frá Kólumblu þar
sem eiturlyfjabarónar hafa verið að færa sig upp á skaftið á undanföm-
um árum. (haust sáu stjórnvöld í landinu sitt óvænna og lýstu stríði á
hendur barónunum. Ríkti ógnaröld í landinu um nokkurt skeið en svo
virðist sem stjórnvöldum hafi tekist að valda kókaíniðnaði landsins
nokkrum búsifjum.
Valdaafsal kommúnistaflokka
Austur-Evrópu hefur alls staðar
farið fram með einkar friðsam-
legum hætti - nema í Rúmeníu.
Þar siguðu Ceausescu-hjónin ör-
yggissveitum sínum á mann-
fjölda sem mótmælti ógnarstjórn
þeirra. Úr því varð mikið blóðbað
sem yfirmönnum hersins blöskr-
aði. Slóst herinn í lið með alþýð-
unni og setti hjónin af. Öryggis-
sveitirnar héldu áfram að berjast
og á örfáum dögum féllu tugþús-
undir manna í valinn. Þá dró her-
inn þau hjón fyrir rétt, dæmdi þau
til dauða og tók þau af lífi á jóla-
dag.
Móðir náttúra hefur verið í heldur
mildara skapi þetta árið en oft
áður. Að vísu varð nokkuð öflug-
ur jarðskjálfti í San Francisco
sem mældist rúm 7 stig á Ric-
hterkvarða. Betur fór en á horfð-
ist með mannfall því aðeins 67
fórust í skjálftanum. Þónokkurt
eignatón varð, húsið á myndinni
iækkaði til að mynda úr þremur
hæðum í eina.
Við strönd Alaska varð eitt mesta
mengunarslys sögunnar þegar
stórt olíuskiþ strandaði með þeim
afleiðingum að olía úr því þakti
um 1.300 km strandlengju. Á
mengaða svæðinu lifa margar
sjaldgæfar dýrategundir, td. sæ-
oturinn sem aðeins telur 10.000
dýr í öllum heiminum. 875 otrar
fundust útleiknir eins og sést á
myndinni en líffræðingar óttuðust
að mun fleiri hefðu farist. Mikill
málarekstur varð út af ábyrgð
eigenda skipsins, olíufélagsins
Exxon, á þeim spjöllum sem
urðu. Er ekki enn sóð fyrir
endann á honum.
Laugardagur 30. desember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 13