Þjóðviljinn - 30.12.1989, Síða 15
Seiðskratti
Þjóðviljans
Spáir fyrir
um árið
1990
Árið 1990 verður enginn eftir-
bátur þess árs sem var að líða
hvað varðar stóra og viðburðar-
mikla atburði. Bandarísk
stjórnvöld munu beita Panama-
aðferðinni strax í byrjun árs til að
tryggja áhrif sín í heiminum. ís-
land verður fyrir valinu og hefst
spilið strax í janúar með því að
CIA kemur þeim „upplýsingum“
til bandarískra fjölmiðla að ferð-
atöskur tveggja íslenskra ráð-
herra séu fullar af hættulegu og
ólöglegu hvalkjöti, þegar þeir
ferðist í opinberum erindagjörð-
um. Málið fær fyrst litla athygli
en nær hámarki þegar sendiherra
Bandaríkjanna er rekinn heim
eftir að hafa mótmælt hækkun
framfærsluvísitölunnar í viðtali í
Vikunni. Þá kemur Bush forseti
fram í sjónvarpi í apríl eða maí og
krefst þess að íslensku ráðherr-
arnir verði dregnir fyrir dóm í
Bandaríkjunum fyrir stórfellt
smygl á hvalkjöti.
Uppreisn í
Bandaríkjunum
En ráðherrarnir sleppa við að
þjóta á náðir kaþólsku kirkjunn-
ar á íslandi undan bandarískum
dátum, vegna þess að ókyrrð fer
vaxandi í Bandaríkjunum strax í
marsmánuði. Þar í landi mun
hreyfingu sem kennir sig við glas-
nost og perestrojku vaxa ört fisk-
ur um hrygg og krefjast umbóta.
Um tíma lítur út fyrir að Bush sé
að missa tökin á stjórn landsins,
sérstaklega eftir að hundruð þús-
unda mótmælenda taka sér ból-
festu fyrir fram Hvíta húsið. Á
elleftu stundu munu hins vegar
vinir bandaríkjastjómar, kfn-
versk stjórnvöld, senda helstu
sérfræðinga sína í aðgerðum gegn
mótmælendum til Bandaríkjanna
og mótmælin verða kæfð niður á
einum degi, sennilega um miðjan
maí.
Ríkisstjórnin mun eiga rólega
daga framan af ári. Hún kemst
fyrst verulega í sviðsljósið þegar
hugarflugsnefnd Júlíusar Sólnes
biðstofuráðherra og áhugamanns
um stofnun umhverfisráðuneytis,
skilar niðurstöðum sínum. Mesta
og jákvæðustu athyglina fær til-
laga nefndarinnar um byggingu
Höfða-húss í hverju kauptúni, til
að efla ferðamannaiðnað í
landinu. Málið fellur hins vegar
um sjálft sig um mitt sumar þegar
magnaðar deilur blossa upp í
Leikarafélaginu um það, hver
skuli fara með hlutverk Höfða-
draugsins í hverju húsi fyrir sig.
Áhugaleikfélögin á landsbyggð-
inni gera kröfu til þess að skipa í
hlutverkið en því hafnar leikara-
félagið en samþykkir þó eina
undanþágu, um að Stefán Val-
geirsson fái hlutverkið í Norður-
landskjördæmi eystra og rökstyð-
ur félagið undanþáguna með því
að þar sé fagmaður á ferð.
Sviptingar halda áfram að eiga
sér stað í fjölmiðlaheiminum.
Ríkið mun á næsta ári hefja rekst-
ur annarrar sjónvarpsstöðvar og
því halda úti rás 1 og rás 2 í út-
varpsrekstri og Stöð 1 og Stöð 2 í
sjónvarpsrekstri. Þetta byrjar
með því að ríkið fellst á að veita
Stöð 2 ábyrgðir á lán en þegar
líða tekur á árið kemur í ljós að
ekki stendur steinn yfir steini í
rekstri stöðvarinnar og verður
hún því þjóðnýtt að fullu. Að
öllum líkindum verður Marteinn
Mosdal settur sjónvarpsstjóri yfir
báðum stöðvum og flokkur hans
Ríkisflokkurinn gengur til sam-
starfs við ríkisstjórnina. Krafa
Marteins um að frjálsar kosning-
ar verði aflagðar næsta áratuginn
á meðan efnahagsmálunum verði
kippt í liðinn eykur hróður hans
enn meira, þannig að hann verð-
ur upptekinn við fyrirlestarhald í
útlöndum allan seinnihluta árs-
Varaflugvöllur
alheimsins
Um tíma lítur út fyrir að ríkis-
stjórnin ætli að springa á vara-
flugvallarmálinu. En Jón Baldvin
kemur með óvæntan leik þar sem
hann vísar til slagorða forystu-
manna Alþýðubandalagsins um
„nýja heimsýn“ og leggur til að
flugvöllurinn verðu 10 ferkíló-
metrar í stað 3.000 metra langur.
Með þessu segir utanríkisráð-
herra að flugvöllurinn muni geta
tekið á móti geimskipum hvaðan
sem er úr sólkerfinu og þannig
verði ísland fyrsti lendingarstað-
ur vitsmunavera utan úr
geimnum og þar af leiðandi glæsi-
legur fulltrúi hins „nýja heims“.
Á meðan ríkisstjómin glímir
við hugarflug Júlíusar og manna
hans ásamt hótunum um að vera
dregin fyrir dóm í Bandaríkjun-
um fyrir smygl á hvalkjöti, magn-
ast slagurinn fyrir sveitarstjóm-
arkosningarnar. Sjálfstæðismenn
notfæra sér deilumar og formað-
ur Sjálfstæðisflokksins reynir að
blanda sér í málið með því að
benda á að ef sjálfstæðismenn
fæm einir með völd væri hægt að
fá bandaríska herinn til að reisa
varaflugvelli um allt land, álver
yrði byggt í hverjum hreppi og
viðræður hefjast við bandaríska
sendiherrann um að ríkissjóður
Bandaríkjanna greiði allar
skuldir þjóðarinnar. Þessi leikur
sjálfstæðismanna rennur út í
sandinn þegar deilurnar um hval-
kjötssmyglið magnast við Banda-
ríkjamenn og tekur meirihluti
þjóðarinnar afstöðu með smygl-
urunum.
Davíft
dulbýr sig
Sveitarstjómarkosningarnar í
Reykjavík snúast upp í deilur
Davíðs Oddssonar við Ólaf
Ragnar Grímssón. Ólafur neitar
að mæta Davíð í sjónvarpseinvígi
f marsmánuði og fer borgarstjór-
inn þá að vera þaulsetinn á þing-
pöllum, þar sem hann kallar
stöðugt fram í ræður fjármálaráð-
herra. Guðrún Helgadóttir lætur
henda borgarstjóranum úr húsi
og krefjast þingverðir þess á eftir
að hún biðji þá afsökunar fyrir
vikið. Guðrún verður ekki við
þessu og ákveða þingverðir þá að
láta sem þeir taki ekki eftir því
þegar borgarstjórinn dulbýr sig
sem þingmann, sennilega sem
Aðalheiði Bjamfreðsdóttur sem
einhverra hluta vegna verður
ekki mikið á þingi um þetta leyti.
Aðalheiður á ættir að rekja til
huldufólks og því erfitt að fylgja
henni fram í tímann. Á meðan
Davíð dulbýr sig sem Aðalheiði,
verður hún sennilega í fundaher-
ferð um landið með Júlíusi Sólnes
undir slagorðinu „með logandi
ljósi“ og mun ferðin farin til að
leita uppi fylgismenn Borgara-
flokksins, sem eins og fyrri dag-
inn verða í felum út allt árið og
eins langt og Seiðskrattinn sér.
Þegar Seiðskrattinn horfir til
veðurs út næsta ár sér hann fyrst
ekki út úr augunum fyrir lægðar-
flækjum. í janúar, febrúar og
mars verður aftaka leiðinlegt
veður með miklu fannfergi og
kuldum. Hafís verður mikill bæði
fyrir Norður- og Austurlandi
þannig að göngufæri myndast til
Færeyja. En upp úr miðjum maí
fer verulega að hitna í veðri og
nær veðurblíðan hámarki í jún-
ímánuði þegar Elísabet II. Eng-
landsdrottning kemur til landsins
í opinbera heimsókn, þannig að
eftirrétturinn bráðnar á diskum
hinna tignu gesta sem verða að
snæða undir berum himni vegna
viðgerða á Bessastaðastofu.
Sumarið verður með eindæmum
gott og haustið verður milt, nema
hvað stöðugar rigningar verða á
Vopnafirði í ágúst, september og
október og standa vísindamenn
fyrst um sinn ráðþrota gagnvart
þessu fyrirbæri. Snemma í nóv-
ember kemur aftur á móti í ljós
að um er að kenna einhverjum
tilraunum sem Sovétmenn eru að
gera á Kólaskaga.
Enn fallegastir
Einstakir fslendingar verða
ekki mikið í sviðsljósi heims-
pressunnar á árinu 1990. Einhver
mun hins vegar slá í gegn í nýrri
fegurðarsamkeppni sem haldin
verður á Miami í Flórída fyrir 70
ára og eldri og uppfinningamaður
ættaður úr Húnavatnssýslu kemst
á forsíður heimsblaðanna fyrir
uppfinningu sína á sérstökum
gleraugum sem auka eiga
mönnum bjartsýni. Það kemur
þó ekki til af góðu að þessi upp-
finningamaður fær athygli
heimsins, því kastljós heims-
pressunnar beinist fyrst og fremst
að fyrsta einstaklingnum sem
prófar hin nýju gleraugu, en áhrif
þeirra eiga eftir að koma veru-
lega á óvart og gætu reynst afdrif-
arík þar sem sá sem bregður gler-
augunum fyrstur upp er í áhrifa-
stöðu.
Þegar nær dregur-seinni hluta
næsta árs dregur.æ.'meira þoku
fyrir augu Seiðskrattans. Hann
sér þó grilla í eitthvert stórmenni
sem er komið hingað í óvenju-
legum erindagjörðum. Sýnist
Seiðskrattanum Gorbatsjof vera
þama á ferð í Höfða og kemur
tvennt til greina um erindið.
Annað hvort er Gorbatsjof að
semja um framtíð Evrópu við
aðra þjóðarleiðtoga eða hann er
kominn til íslands til frambúðar
og mun þá fá Höfða sem sitt að-
setur. Ef sú er raunin þá hafa um-
bótatilraunir hans mistekist og
hann verið hrakinn úr landi en
mjög tvísýnt er um framtíð Sovét-
forseta í leiðtogasæti.
Sparkað eins og öðrum
Hvað Seiðskrattinn sagði um 1989
Seiðskrattar eiga framtíð sína
undir duttlungum samtíðarinnar
eins og aðrar verur. Hér á Þjóð-
viljanum hefur alltaf verið talað
um Seiðskrattann með ákveðn-
um greini, eins og aðeins sé til
einn Seiðskratti en því fer fjarri.
Seiðskrattinn hverju sinni er val-
inn úr samfélagi Seiðskratta sem
allir bera óákveðinn greini. Sá
þeirra sem þykir skyggnastur fær
síðan þann heiður að fá ákveðinn
greini og verða um leið helsti
málsvari Seiðskratta í áramóta-
blaði Þjóðviljans.
Sá Seiðskratti sem spáði fyrir
um líðandi ár hafði lagt Þjóðvilj-
anum til þjónustu sína um nokk-
urt skeið. En þegar æðstaráð
Seiðskratta fór yfír spádóma hans
fyrir árið 1989 ákváðu þeir allir
sem einn að sparka honum, og þá
upp á við eins og öllum góðum
mönnum. Nýr Seiðskratti heldur
nú á veldissprotanum og spáir
fyrir um atburði ársins 1990.
En hvað varð Seiðskrattanum
gamla að falli? Byrjum fyrst á því
sem hann gerði vel. Hann spáði
því að eftir fremur milda vetur
fyrir árið 1989, kæmi snjóþungur
vetur og ófærð yrði meiri en elstu
menn hefðu í minni. Þá sagði
Seiðskrattinn að veðrið myndi
valda vandræðaástandi á höfuð-
borgarsvæðinu. En svo fór skratt-
anum að förlast því hann spáði
asahláku fyrir vorið og þjóðvegir
færu víða um land í sundur.
Landsmenn vita hins vegar að
veturinn síðasti stendur enn og
fraus saman við yfirstandandi
vetur.
Árni Johnsen átti að leika lyk-
ilhlutverk á árinu. Seiðskrattinn
sagði hann koma inn á þing fyrir
Þorstein Pálsson og gerast ein-
dreginn stuðningsmann ríkis-
stjórnarinnar. Vissan sannleik
má finna í þessum spádómi,
vegna þess að Þorsteinn Pálsson
gerðist óvæntur stuðningsmaður
ríkisstjórnarinnar fyrir skömmu
með því að leggja fram van-
trausttillögu á ríkisstjómina, sem
reyndist stjórninni eins og stór
happdrættisvinningur.
Þá sagði Seiðskrattinn að
Kvennalistinn myndi óska form-
legrar aðildar að ríkisstjórninni í
byrjun marsmánaðar og krefðist
minnst tveggja ráðuneyta. Það
var nú eitthvað annað því
Kvennalistinn hefur styrkt sig í
sessi sem kvennadeild Sjálfstæð-
isflokksins undir slagorðum um
stéttleysi, Kvennalistinn er flokk-
ur kvenna í öllum stéttum, konur
eru stéttlausar og eiga ekkert
sameiginlegt nema kynið.
Kvennalistinn átti hins vegar ekki
að fá aðild að ríkisstjóminni sam-
kvæmt orðum Seiðskrattans, því
þar var ekkert sæti laust eftir að
Óli Þ. Guðbjartsson hafði fengið
samgönguráðuneytið og Júlíus
Sólnes iðnaðarráðuneytið í byrj-
un febrúar. Bjartsýni Seiðskratt-
ans á inngöngu borgara reyndist
aðeins of mikil því þeir komu
ekki til liðs við stjómina fyrr en á
haustmánuðum og eitthvað
mnnu ráðuneytin til í kollinum á
honum.
Það sem gerði nú eiginlega út-
slagið með stöðu Seiðskrattans
var að hann sagði íslendinga
loksins fá alvöru eldgos þegar
Hekla tæki að mmska á
haustmánuðum.
Laugardagur 30. desember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 15