Þjóðviljinn - 30.12.1989, Side 25
BRIDDS
—
Ólafur
Lárusson
Annáll 1989 og
maður ársins
Frá upphafi bridgeþáttar í Þjóö-
viljanum, hefur umsjónarmaður út-
nefnt bridgemann ársins, í lok hvers
árs. Aðeins ein regla hefur gilt í þess-
um efnum; sami maðurinn er aldrei
valinn tvisvar (þó oft megi segja að
ástæða hafi verið til þess). Þeir sem
umsjónarmaður hefur útnefnt, hafa
allir lagt eitthvað af mörkum til fram-
gangs og eflingar á bridge. Ýmist með
þátttöku sinni í keppni eða framlagi í
félagslegum efnum hreyfingarinnar.
Frá upphafi hafa eftirtaldir hlotið
útnefningu þáttarins:
1977: Skúli Einarsson
1978: Ásmundur Pálsson
1979: Þórarinn Sigþórsson
1980: Örn Arnþórsson
1981: Stefán Guðjohnsen
1982: Jón Baldursson
1983: Guðmundur Páll Arnarson
1984: Guðmundur Sv. Flermannsson
1985: Guðmundur Kr. Sigurðsson
1986: Sigurður Sverrisson
1987: Hjalti Elíasson
1988: Björn Theodórsson
1989: ?
Og bridgemaður ársins 1989, er
Agnar Jörgensson.
Það er vel við hæfi að Agnar hljóti
þessa útnefningu, nú í enda þessa
áras, sem fremsti keppnisstjóri okkar
í dag. Maður, sem öll úrslitamót hvfla
á, meira og minna. Dugnaður hans og
ósérhlífni er löngu þekkt úr hreyfing-
unni og fræg er sagan þegar Alan
Sontag kvaddi Agnar eftir eina
Bridgehátíðina og bað að heilsa
bróður hans (?), sem Sontag taldi að
hefði verið meðstjórnandi Agnars í
þeirri spilamennsku. Slík er yfirferðin
og hamagangurinn.
Hættu þessum hlaupum Agnar og
til hamingju með útnefninguna. Og
gleðilegt nýtt ár, til þín og fjöl-
skyldunnar.
Bridgeárið 1989 hófst með Reykja-
víkurmóti í janúar. Sigurvegari varð
sveit Flugleiða, eftir úrslitaleik með
sveit Sigurðar Vilhjálmssonar. í sveit
Flugleiða voru: Jón Baldursson, Val-
ur Sigurðsson, Aðalsteinn Jörgensen,
Ragnar Hermannsson og Ragnar
Magnússon.
Þá tók við árleg Bridgehátíð, með
þátttöku sex erlendra para, með sjálf-
an Zia Mahmoud í fararbroddi. Sveit
hans sigraði á Flugleiðamótinu á
Bridgehátíð. í tvímenningarkeppni á
hátíðinni sigruðu nýbakaðir Evrópu-
meistarar, þeir Jan Fucik og Fritz Ku-
bak, en 2. sæti náðu Hermann og
Ólafur Lárussynir.
íslandsmeistarar kvenna í sveita-
keppni varð sveit Estherar Jakobs-
dóttur, en auk hennar spiluðu í
sveitinni: Valgerður Kristjónsdóttir,
Anna Þóra Jónsdóttir, Hjördís
Eyþórsdóttir, Kristjana Steingríms-
dóttir og Erla Sigurjónsdóttir.
íslandsmeistarar í yngri flokki spil-
ara varð sveit Matthíasar Þorvalds-
sonar, en auk hans spiluðu í sveitinni
Hrannar Erlingsson, Júlfus Sigur-
jónsson og Ari Konráðsson.
Þá var komið að íslandsmótinu í
sveitakeppni. Allt stefndi t' öruggan
sigur hjá sveit Flugleiða, en í síðustu
umferðinni lá sveitin illa fyrir Modern
Iceland (6-24) og þar með varð sveit
Pólaris efst. f sigursveitinni voru:
Karl Sigurhjartarson, Sævar Þor-
björnsson, Guðmundur Páll Arnar-
son, Þorlákur Jónsson, Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn Arnþórsson.
Sveit Flugleiða varð í 2. sæti, en sömu
spilarar skipuðu sveitina og sigraði
Reykjavíkurmótið. í 3. sæti varð svo
sveit Modern Iceland, en hana
skipuðu: Ólafur og Hermann Lárus-
synir, Magnús Ólafsson, Jakob
Kristinsson, Guðni Sigurbjarnason
og Jón Þorvarðarson.
fslandsmótið í tvímenning var
einnig afar skemmtilegt og undir lok-
in áttu ein 4-5 pör kost á sigri. Aðal-
steinn Jörgensen og Ragnar Magnús-
son reyndust sterkastir á loka-
sprettinum og unnu þarna sinn fyrsta
titil í íslandsmótinu í tvímenning.
Næst yngsta par frá upphafi, sem það
gerir (aðeins Sigurður Sverrisson og
Skúli Einarsson 1977 eru yngri). f 2.
sæti, eftir góða frammistöðu, urðu
fsfirðingarnir, Arnar Geir Hinriks-
son og Einar Valur Kristjánsson. Að-
eins munaði 7 stigum á þeim og sigur-
vegurunum. í 3. sæti urðu svo
„gömlu” kempurnar, Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn Arnþórsson. Alls
spiluðu 24 pör til úrslita, að undan-
genginni forkeppni 80 para.
Bikarkeppni Bridgesambandsins
hófst f maí, með þátttöku rúmlega 30
sveita. Spilamennska stóð yfir um
sumarið, með útsláttarfyrirkomulagi.
Uppi stóðu 2 sveitir, sveit Braga
Haukssonar Reykjavík og Modern
Iceland. Úrslitaleikurinn var spilaður
að hluta beint í beinni sjónvarps-
sendingu Stöðvar 2, eftir óheppilegar
frestanir á sjálfum leiknum. Sveit
Braga sigraði í mjög jöfnum leik.
Með honum í sveitinni voru: Sig-
tryggur Sigurðsson, Ásmundur Páls-
son, Guðmundur Pétursson, Hrólfur
Hjaltason og Ásgeir Ásbjörnsson. f
sveit Modern voru: Ólafur og Her-
mann Lárussynir, Magnús Ólafsson,
Páll Valdimarsson og Jakob Kristins-
son.
fslandsmeistaramót kvenna í tví-
menning var spilað í október. Mæðg-
urnar Esther Jakobsdóttir og Anna
Þóra Jónsdóttir sigruðu af miklu ör-
yggi. fslandsmót yngri spilara var
haldið á sama tíma óg þar sigruðu
Matthías Þorvaldsson og Hrannar
Erlingsson, sem óumdeilanlega bera
af í þessum aldursflokki.
Reykjavíkurmótið í tvímenning
var spilað í desember. Að undan-
genginni forkeppni tæplega 40 para,
spiluðu 24 pör til úrslita. Sigurvegarar
urðu Valur Sigurðsson og Sigurður
Vilhjálmsson og kom sigur þeirra
nokkuð á óvart, enda nýbyrjaðir að
spila saman. í 2. sæti urðu Ólafur og
Hermann Lárussynir en Karl Sigur-
hjartarson og Sævar Þorbjörnsson
náðu 3. sæti.
Stigaefsti spilari í Sumarbridge
1989, varð Þórður Björnsson, eftir
mikla baráttu við félaga sinn, Murat
Serdar. Afar góð þátttaka var í
Agnar Jörgensson,
Bridgemaður ársins.
Sumarbridge. Umsjónarmenn voru:
Ólafur Lárusson, ísak Örn Sigurðs-
son og Hermann Lárusson.
Nokkuð var um opin stórmót á ár-
inu. Þar ber hæst skipulagða spila-
mennsku yfir sumarið, svokallaða Al-
slemmu. Þátttaka var miður góð,
mun verri en hugmyndin sjálf. Stiga-
efsti spilari í Alslemmu ’89 varð Jak-
ob Kristinsson. Af 5 mótum sigraði
hann 2 þeirra, á móti Hjördísi
Eyþórsdóttur (sem er fyrsti kven-
maðurinn hér á landi til að sigra í
opnu móti) og Hermanni Lárussyni.
Við sendum 2 landslið til keppni
þetta árið. f opnum flokki á Evrópu-
mótið í Englandi og Norðurlandamót
yngri spilara í Svíþjóð. Karlalands-
liðið hafði ekki erindi sem erfiði og
hafnaði neðarlega í mótinu. Liðið
skipuðu: Guðmundur Páll Arnarson,
Þorlákur Jónsson, Aðalsteinn Jörg-
ensen, Ragnar Magnússon, Valur
Sigurðsson og Jónas P. Erlingsson.
Fyrirliði án spilamennsku var Hjalti
Elíasson.
Yngra liðið stóð sig ágætlega í Sví-
þjóð. Það skipuðu: Matthías Þor-
valdsson, Hrannar Erlingsson, Árni
Loftsson, Sveinn R. Eiríksson og
Steingrímur Pétursson, Fyrirliði án
spilamennsku var Björn Eysteinsson,
en þjálfari var Jón Baldursson.
Fjögur pör héðan tóku þátt í Evr-
ópumótinu í tvímenning 1989, sem
haldið var á Ítalíu í vor. Tvö náðu í
úrslit, þau Bragi Hauksson, Sig-
tiyggur Sigurðsson, Guðni Sigur-
bjarnason og Jón Þorvarðarson. Hin
2 pörin voru: Ólafur og Hermann
Lárussynir og Jakob Kristinsson og
Magnús Ólafsson.
Sveit Pólaris tók þátt í Bikarkeppni
Norðurlanda (Rottneros-mótið).
Spilaðar voru 5x28 spila leikir.
Sveitin hafnaði í 3. sæti en frá 1985
hafa sveitir héðan einmitt hafnað í því
sæti. Sveit Pólaris var skipuð sömu
spilurum og sigruðu fslandsmótið f
sveitakeppni.
f þessum annál 1989 hefur verið
stiklað á stóru. Agnar Jörgenson hef-
ur stjórnað flestum af þessum mótum
og gert það af sínum alkunna dugn-
aði. í þeim tilvikum sem beitt hefur
verið tölvuútreikningi, hefur Kristján
Hauksson annast þann þáttinn, einn-
ig af alkunnu öryggi. Ak þeirra, hafa
þeir Ólafur Lárusson, Hermann Lár-
usson og Jakob Kristinsson sinnt
stjórnun í flestum öðrum mótum hér
á landi síðasta árið.
Umsjónarmaður óskar lands-
mönnum árs og friðar á komandi ári,
og þakkar samfylgdina á árinu sem er
að kveðja.
FLUGMÁLASTJÖRN
Námskeiö fyrir verðandi flugkennara hefst á
Reykjavíkurflugvelli laugardaginn 13. janúar kl.
14.00 ef næg þátttaka fæst.
Rétt til þátttöku eiga þeir sem hafa a.m.k. 150
klst. flugtíma og hafa lokið bóklegu námi fyrir
atvinnuflugmannsskírteini og blindflugsréttindi
eða eru í slíku námi.
Innritun fer fram hjá Flugmálastjórn/ loftferða-
eftirliti, flugturninum á Reykjavíkurflugvelli og
þar fást frekari upplýsingar.
Flugmálastjórn
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hita-
veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í þana og
loka.
Útboðsgögnin eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjaavík.
Tilboðin verða opnuð á sama satað sem hér
segir:
- Þanar, fimmtudaginn 25. janúar 1990, kl.
11.00.
- Lokar, fimmtudaginn 25. janúar 1990, kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
JtL/1
F4<-v;fer<
mm
FRÁ MENNTAMÁLA-
RÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við
framhaldsskóla:
Við Fjölbrautaskóla Suðurlands, Selfossi vantar
kennara til að kenna eftirtaldara greinar.
Ferðamálagreinar (hlutastarf) og uppeldis- og sálar-
fræði (hlutastarf)
Þá vantar námsráögjafa í hlutastarf og bókasafns-
fræðing í 3/4 starfs.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari. Umsóknir
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 4,150 Reykja-
vík, fyrir 5. janúar n.k.
Einkarekið dagheimili
óskar eftir starfsfólki
Spennandi starf á skemmtilegum vinnustað. Til
greina koma hlutastörf. Allar nánari upplýsingar
veita Gísli í síma 623605 eða Helga í síma í síma
11864.
Foreldrafélagið Gríma
Fjölskyldupakkarnir okkar
fást ekkí annars staðar
í dag er síðasti dagur flugeldasölunnar og opið til kl. 20.
Þú getur valið um fjórar stærðir. Sá minnsti kostar iiÁ.nnig krónur,
næsta stærð kostar r*imm krónur, sá næststærsti kostar Kiunnig krónur
og sá stærsti kostar IdliIiIiH krónur.
OPIÐ til kl. 20.
LOKAÐ GAMLÁRSDAG.
Auðvitað tökum við greiðslukort.
Grandagarði 2, Rvík., sími 28855