Þjóðviljinn - 05.01.1990, Page 10

Þjóðviljinn - 05.01.1990, Page 10
Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar at- kvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaðar- mannaráðs og endurskoðenda í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur fyrir árið 1990. Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrif- stofu félagsins, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi, mánudaginn 8. janúar 1990. Kjörstjórnin REYKJMJÍKURBORG Acui&vi Atödui Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27 Starfsfólk óskast til eftirtalinna starfa: þvotta- hús 100% starf og á vakt 100% starí. Upplýsingar gefur forstöðumaður milli kl. 10.00 og 12.00 í síma 685377. SJÚKRAÞJÁLFARI Aðstaða fyrir sjúkraþjálfara í tengslum við þjón- ustuíbúðir er laus til umsóknar. Upplýsingar gefur forstöðumaður milli kl. 10.00 og 12.00 í síma 685377. VÖRUR í VIRÐISAUKASKATTI: Samaverð stundum lægra! 'Nýmjólk, G-mjólk, / undanrenna og / léttmjólk lækka í / verði vegna endurgreiðslunnar. Þessi lækkun á að skila sér beint I vöruverðinu strax eftir áramótin. Neyslufiskur á að lækka í verði. Endurgreiðslan miðast við ferskan óunninn neyslufisk í heildsölu. Álagninginerfrjáls, og ermikilvægt að fisksalar og neytendurtaki höndum samantil að skattalækkunin skili sér í vöruverðinu., Tegundirnarsem lækkaeru.Ýsa, þorskur, ufsi, steinbítur, karfi, langa, keila, lúðá, koli, skata, skötuselur, rauðmagi og grásleppa. Vöruverð á ekki að hækka þegar virðisaukaskattur leysir söluskatt af hólmi nú um áramótin. Vissar vörutegundir lækka verulega og almennt vöruverð stendur í stað eða þokast niður á við. Með virðisaukaskatti breytist skatthlutfallið úr 25% í 24,5%. Þá hverfa einnig uppsöfnunaráhrif söluskatts í vöruverðinu því að virðisaukaskattur leggst aðeins einu sinni á sömu vöruna, óháð fjölda framleiðslu- og viðskiptastiga. Vöruverð á því alls ekki að hækka vegna kerfisbreytingarinnar. Þvert á móti ætti breytingin að leiða til lækkunar á almennu vöruverði. Vegna sérstakrar endurgreiðslu hefur skattbreytingin þau áhrif að neyslumjólk, ferskfiskur, kindakjöt og ferskt innlent grænmeti bera ígildi 14% skatts í stað 24,5% á öðrum vörum. Ef aðrir þættir, til dæmis álagningin, haldast óbreyttir geta skattaumbæturnar haft í för með sér að þessi matvæli lækka um allt að 7-9% strax eftir áramótin. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ FYLGJUMST MEÐ - VEITUM AÐHALD Það er mikilvægt að almenningur veiti aðhald og beri saman verðlag fyrir og eftir áramót. VERÐLAGSSTOFNUN fylgist með því af fremsta megni að skattbreytingin um áramót leiði ekki til verðlagshækkunar, og að endurgreiðslan skili sér í lækkuðu verði þeirra innlendu matvæla sem hún tekurtil. Ef þú verður var/vör við óeðlilegar verðhækkanir eftir áramótin, og ekki fást fullnægjandi skýringar hjá kaupmanninum, skaltu hafa samband við VERÐLAGSSTOFNUN. Hún kannar hvert tilvik og hefur sérstakt eftirlit með verðlagsbreytingum. Kindakjöt í heilum og hálfum skrokkum lækkar i verði frá afurðastöðvunum nú strax eftir áramótin vegna endurgreiðslunnar. Verðlækkun átil dæmis lambalærum, lærissneiðum, hrygg, kótilettum og súpukjöti er háð aðgæslu kjötkaupmanna og aðhaldi neytenda því frjáls álagning er á unninni kjötvöru. Alltinnlent »/ grænmeti lækkar í verði, til dæmis kartöflur, sveppir, baunaspírur, gulrófurog gulrætur. Álagning erfrjálsáþessari matvöru. Þess vegna er það ekki sístkomiðundir árvekni neytenda og aðgæslu verslunarmanna að endurgreiðslan skili sér að fullu í vöruverðinu. FRÉTTIR Verka- skiptingarlög Bót fyrir minni sveitar- félög Magnús Guðjónsson: Hagur minni sveitarfé- laga vœnkast með verka- skiptingarlögunum. Jöfnunarsjóður sveitarfé- laga stendur nú undir nafni. Mögulega agnúa verður að slípa af seinna Um áramótin gekk í gildi viða- mikil löggjöf um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Magnús Guðjónsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfé- laga, segir einu óánægjuraddirn- ar sem fram hafa komið varðandi lögin, séu vegna þeirrar breyting- ar sem gerð var á þeim rétt fyrir jól, að sveitarfélögin greiði áfram hluta tannlæknakostnaðar. Hann sagði Qárhagslegar skyldur sveit- arfélaganna ekki minnka með lögunum, að sumu leyti ykjust þær, en kæmu betur út en áður. í samtali við Þjóðviljann sagði Magnús Jöfnunarsjóð sveitarfé- laga nú rísa undir nafni. Sjóður- inn væri nú að mestum hluta hreinn jöfnunarsjóður en áður hefði verið greitt úr honum í hlut- falli við fólksfjölda. Magnús sagði minni sveitarfélög nú geta fengið rekstrar- og stofnframlög td. vegna kostnaður við skóla- akstur og rekstur heimavista, skóla og dagvistarstofnana. Þau nýmæli væru í lögunum að sveitarfélög á stærðargráðunni 200-3.000 íbúar gætu fengið svokallað þjónustuframlag sem grundvallaðist á þjónustustigi þeirra og gæti framlagið verið á bilinu 600-6.OOOkr. á hvem íbúa. Þetta væru viðbótartekjur. Sveitarfélögin losna einnig við stóra útgjaldaliði og minntist Magnús þar á framlög þeirra til sjúkratrygginga sem voru 10- 15% af kostnaði, en leggjast nú af með sjúkrasamlögunum og Tryggingastofnun ríkisins tekur við starfseminni. Áður hefðu sveitarfélögin greitt 50% af stofnkostnaði við skólabyggingar en nú væri þetta alfarið á höndum ríkisins. Magnús sagði eðlilegt að reikna með að einhverjir agnúar komi í ljós þegar eins viðamikil löggjöf er annars vegar. Til dæm- is gætu orðið byrjunarörðuleikar varðandi Jöfnunarsjóðinn, en vonandi mættu sveitarfélögin því með skilningi. Tíminn einn gæti síðan leitt í ljós hvort lögin þörfn- uðust endurskoðunar, en ekki væri gert ráð fyrir því í lögunum að þau verði endurskoðuð innan ákveðins tíma. -hmp Reykjavík íhaldið ekki með prófkjör Stjóm fulltrúaráðs Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík ákvað á miðvikudag að ekki verði efnt til prófkjörs um framboðslista flokksins fyrir næstu borgar- stjómarkosningar. Sjálft fullt- rúaráðið á svo eftir að koma sam- an en það tekur endanlega ákvörðun um það hvort efnt verði til prófkjörs. Má búast við að skoðanir verði mjög skiptar um málið. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.