Þjóðviljinn - 05.01.1990, Síða 15
- -í í -• f- Á m ,
W n
£.£>~&&&m&£Z&2ííZiL£i&2í&£i&SL&2í&Zi£m&ZÚUdlU&£í&:
AÐ - SÍÐA 15
Messan er drama í nútímanum
Rætt við Hjálmar H. Ragnarsson um kórmessuna sem hann
hefur samið fyrir söngraddir og Hljómeyki mun flytja í
Kristskirkju á sunnudag
Sönghópurinn Hljómeyki mun
flytja Messu í fimm þáttum við
latneska kirkjutexta og lofsöng
um Maríu eftir Hjálmar H.
Ragnarsson í Kristskirkju í
Landakoti á sunnudag kl. 17.
Messan er í fímm hefðbundn-
um þáttum, kuríe, gloría, credo,
sanctus og agnus dei. Hjálmar
sagði í spjalli við Nýtt helgarblað
að verkið ætti sér nokkuð langan
aðdraganda því elsti hlutinn,
gloríuþátturinn, hefði verið
saminn fyrir sjö árum. Credo-
þátturinn var svo saminn fyrir
rúmum tveim árum, en hinir þrír
þættimir eru samdir á síðasthðnu
sumri. Messan í heild var fmm-
flutt á tónleikum í Skálholti í ág-
ústmánuði síðastliðnum.
Mér hefur fundist það spenn-
andi að fást við fomt og hefð-
bundið form eins og þetta, en
túlka efnið með þeim hætti sem
mér finnst eðlilegt út frá forsend-
um okkar tíma. Niðurstaðan
verður því nokkuð frábmgðin því
sem við eigum að venjast um slík-
ar messur: Kýrian sem venjulega
er ljúf bæn verður í þessu tilfelli
eins konar neyðarákall, og glorí-
an, sem er venjulega gleðilegur
dýrðaróður, verður mild og
auðmjúk. Kannski vegna þess að
við, sem emm menn hins harða
efnishyggjuheims, emm þess
ekki umkomnir að lofsyngja
drottinn með þeirri staðföstu
gleðitónlist sem tíðkaðist fyrr á
öldum. Þetta er því frekar dýrð-
arsöngur auðmýktarinnar. Sama
má segja um kredó-þáttinn, trú-
arjátninguna. Hún er frekar játn-
ing þess sem langar til þess að
trúa en þess sem er fullkomlega
staðfastur í sinni trú. Og loka-
kaflinn, Agnus dei eða Guð-
slambið er hressilegur gleðisöng-
ur frekar en ómþýð hljómatón-
list. Ég lít á þennan lokaþátt mess
unaar sem eins konar sáttagjörð í
lok þeirra átaka sem messan felur
í sér. Þá hafa menn meðtekið
hold og blóð frelsarans. í heild lít
ég á messuna sem eins konar
drama, og í þessu tilfelli er um að
ræða nútímalegt drama með
gleðilegum og fjörlegum endi.
Annars var þessi túlkun mess-
unnar ekki fyrirfram skipulögð
með neinum hætti. Hún einfald-
lega varð svona í minni meðferð,
og það er hverjum heimilt að
leggja þann skilning í hana sem
hann vill.
Hjálmar sagði að tónleikunum
lyki með Lofsöng um Maríu (Ave
María), sem einnig er saminn við
latneskan texta. María er ímynd
mýktar og mildi og tónskáldið
sagði vel við hæfi að ávarpa hana í
leit nútímamannsins að náð og
blessun.
Bæði Messan og Maríusöngur-
inn eru flutt af kór án undirleiks
og einsöngvara, og er þar fetað í
fótspor tónskálda 16. aldar hvað
varðar framsetningu. Inntak
verksins mótast hins vegar af
glímu nútímamannsins við það að
skilja tilvist sína og óvissu hans
um tilvist og mátt guðdómsins í
hörðum og flóknum heimi tækni
og efnishyggju.
Sönghópurinn Hljómeyki, sem
flytja mun verkið, er skipaður
fimmtán söngvurum, en stjóm-
andi hópsins á þessum tónleikum
er Hjálmar H. Ragnarsson. Tón-
leikamir verða í Kristskirkju í
Landakoti á sunnudag og hefjast