Þjóðviljinn - 19.01.1990, Qupperneq 22
1— 2 3 Tf 5 Z~~ 7- V s 10 T~ z Y
TT~ /3 >f // 7- )5 )(p II s? )i i? w
20 ie V 2/ 22 23 19 v- 7- Zf V 22
7- w 7- 7? 10 W~ 23 U ¥ y ¥ 77“ w~ w~ 20
11 ZJ /4 V 2+ )/ )f 3 20 )i 7 15 2%
V T~ 2? ze 7 II 24 n // V U 28 U
Ih ¥ Zío y 30 ¥ 25 13 IV II f )> \8
31 ih 7- 15- W~ y /4 u $1 27“ * 20
)f u n- 7- IÝ 15- 13 Z6> y 23 77“ TF~ 24 ll
Zt> IV k? 17- 21 <P 23 f u 18 28-
V ’s zt H lí zl 7- 15 13 H W~ TT 11
Jí' zz M )h V f TT~ Zf // V 11 zé, 18 V 15 )f
v- 7 ZU V Zl T7~ 24' )f ih 20 23 Í&f
ÓLAFUR
GÍSLASON
MATUR
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
: Wilham Heinesen
Krossgáta nr. 79
Setjiö rétta stafi i reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjamafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla
6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 79". Skilafrestur er þrjár vikur.
Verðlaunin verða send til vinningshafa.
)°í 12 )8 ¥ J/ 1 13 Jf 23
Lausnarorð á krossgátu nr. 76 var Vatnshlíð. Dregið var úr réttum
lausnum og upp kom nafn Ingunnar Jónasdóttur, Vesturgötu 155,
Akranesi. Hún fær senda bókina Skólaskop, gamansögur af kennur-
um og nemendum eftir Guðjón Inga Eiríksson og Jón Sigurjónsson.
Almenna bókafélagið gaf út 1989.
FJÖLSKYLDAN
Verðlaunin fyrir Krossgátu nr. 79 eru
smásagnasafn færeyska rithöfund-
arins William Heinesen, Fjandinn
hleypur í Gamalíel, í þýðingu Þorgeirs
Þorgeirssonar rithöfundar. Er bókin
annað bindið í ritsafni Heinesens
sem Mál og menning hefur gefið út á
íslensku.
Portkonu-
spaghetti
ítalir búa ekki bara yfir ríku
hugmyndaflugi í matargerð. Þeir
búa líka yfír miklu hugmynda-
flugi í nafngift réttanna. Sá réttur
sem hér skal lagaður heitir því
frumlega nafni „Spaghetti alla
puttanesca“. Sem útleggst
portkonuspaghetti. Rétturinn er
ættaður frá Napoli-svæðinu, og í
fyrsta skipti sem ég sá hann á
matseðli var á einu dýrasta og fín-
asta matsöluhúsi sem ég hef
heimsótt í gamalli miðaldahöll í
bænum Ravello með ægifögru út-
sýni yfír Salemo-flóann. Það var
eiginlega fyrir misskilning að ég
rakst þama inn en var óðara
leiddur að matborði og réttur
matseðill um leið og fordrykkur
var borinn fram. Þegar ég opnaði
matseðilinn sá ég að þessi
veitingastaður var í raun ætlaður
efnaðra fólki en mér og minni
fjölskyldu. Þó sá ég á matseðlin-
um forrétt á viðráðanlegu verði:
„Spaghetti alla bella donna“, sem
útleggst fegurðardísarspaghetti.
Þegar ég spurði þjóninn hvemig
spaghetti það væri hvíslaði hann í
eyra mér án þess að eiginkonan
heyrði: „alla puttanesca!“. Ég
var litlu nær en kinkaði kolli
skilningsríkur eins og vera ber og
pantaði fyrir tvo. Portkonuspag-
hettíið bragðaðist vel og hef ég
oft eldað það síðan við góðar
undirtektir. Uppistaðan í sósunni
eru ólívur, tómatur, hvítlaukur
og rauður peperoncino, sem
einnig er kallaður chili-pipar.
Hvítlaukur og peperoncino em
annars einkennandi fyrir napolit-
anska matargerð.
Hér hafa að undanförnu feng-
ist ágætar grænar ólívur í
Kommarkaðnum við Skóla-
vörðustíg á vægu verði. 1 þennan
rétt er gott að blanda saman
grænum og svörtum ólívum, t.d.
150 gr. af hvoru. Skerið holdið
utanaf kjarnanum og saxið það
niður. Setjið vænan skammt af
olíu á pönnuna ásamt með ca. 4
söxuðum eða mörðum hvítlauks-
rifum og 2-3 litlum þurrkuðum
piparávöxtum. Látið krauma við
vægan hita smástund. Bætið svo
olívunum útí. Þá 1-2 dósir af nið-
ursoðnum tómötum og látið
malla við hægan eld. Útlitsins og
ánægjunnar vegna er rétt að hafa
nokkrar heilar svartar olívur í
sósunni. Rauði og svarti liturinn
em jú þeir litir syndarinnar sem
gefa réttinum nafn!
Spaghettíið er soðið með hefð-
bundnum hætti og miðast
skammturinn við ca. 75 gr. á
mann þurrvegið. Munið að hafa
barmaháan pott og mikið vatn og
láta það sjóða áður en spaghettíið
er sett útí. Suðutíminn er til-
greindur á pakkanum. Ekki sak-
ar að strá saxaðri steinselju yfír
réttinn þegar hann er fullbúinn.
SIGTRYGGUR
JÓNSSON
Þeir sem hafa áhuga á að fræðast um eitthvert
ákveðið efni varðandi fjölskylduna geta skrifað.
Merkið umslagið: Fjölskyldan; Nýtt Heigarblað,
Þjóðviljanum, Síðumúla 6, Reykjavík.
Sálræn kreppa eða áfall, oft
notað slettuorðið „krísa”, er
nokkuð sem kemur fyrir okkur
öll einhvern tíma á ævinni. Slíkar
kreppur em misjafnlega miklar
og hafa mismikil áhrif á okkur, en
þær koma okkur alltaf að óvömm
og því er mikilvægt að bæði við
sjálf og aðstandendur höfum leitt
hugann að og undirbúið okkur
eins og hægt er til þess að mæta
þeim rétt. Eða eins rétt og hægt
er hverju sinni. Þess vegna ætla
ég nú og a.m.k. í næsta þætti að
fjalla um slíkar sálrænar kreppur.
Kreppa er eins og slettan ber
með sér þýðing á erlendu orðun-
um „kris” eða „chrisis”, en upp-
haflega er orðið komið úrgrísku,
en þar þýðir það snögg breyting,
afgerandi umsnúningur eða
örlagarík truflun í lífínu. Orðið er
þekkt og hefur lengi verið notað
um efnahagssveiflur og einnig um
afgerandi umsnúning á sjúk-
dómsástandi, en hefur í seinni tíð
verið meir og meir notað um sál-
ræn viðbrögð við ófyrirsjáan-
iegum vandamálum.
Ég hef nokkrum sinnum áður
rætt um það hvernig þær
breytingar, sem hafa átt sér stað í
þjóðfélögum Vesturlanda síðast-
liðna áratugi, hafa haft neikvæð
áhrif á sálrænt líf okkar. Eitt af
því, sem hér er um að ræða, eru
viðbrögð samfélagsins við eðli-
legum kreppum einstaklinga eins
og það að verða kynþroska,
Sálræn kreppa
eignast fyrsta barn eða missa ná-
mn ættingja, vin eða maka.
Samfélög fyrri alda höfðu komið
sér upp ákveðnum siðum, reglum
og venjum til þess að létta þessar
kreppur einstaklinganna, en nú
hefur þeim annað hvort verið lagt
fyrir róða eða þeim breytt þann-
ig, að þær mæta ekki lengur and-
legum þörfum einstaklinganna.
Fermingin, sem áður var
meiriháttar undirbúningur fyrir
fullorðinslífið, er nú aðeins at-
höfn, sem líkja mætti við sam-
setningu á léttu prófi og hátíð,
sem meira eða minna er haldin til
þess að gefa og fá gjafir. Þá hafa í
alltof mörgum tilvikum fallið
burt tveir mjög mikilvægir þættir
fyrir konu sem verður móðir í
fyrsta sinn. Annar þátturinn er
sálrænn stuðningur og aðstoð
ömmunnar og hinn er sá, að
þekking konunnar á barna-
uppeldi, sem áður var bundin
reynslu af uppeldri yngri systkina
eða annarra barna, er nú meira
eða minna bundin íestri bóka og
bæklinga eða frásögnum ann-
arra. Hvað varðar viðbrögð við
dauðanum, þá höfðu samfélög
fyrri alda svo mikla þörf fyrir inn-
byrðis samheldni og stuðning, að
þau komu sér upp ákveðnum
reglum um það hvernig dauðan-
um skyldi mætt. Slíkir siðir og
venjur höfðu það markmið að
sætta eftirlifendur við dauðann
og voru í senn praktískar og
trúarlegar lausnir á sálarkreppu
fólks. I dag eru slíkir siðir oft
alltof ópersónulegir, nema sjálf
jarðarförin. Þessar breytingar
hafa gert það að verkum að þessir
atburðir valda alltof oft meiri sál-
rænni kreppu en áður gerðist.
Félagsleg þjónusta í dag er alltof
mikið bundin stofnunum í stað
þess að vera persónuleg og til-
finningalega gefandi. f stað um-
hyggju, þátttöku og stuðnings
ættingja, vina og nágranna við
fráfall ættingja, t.d. maka eða
barns, er alltof oft komin lyfja-
gjöf læknis, undarleg eða mis-
skilin tillitssemi vina, sem telja að
ekki eigi að heimsækja eða hring-
ja í viðkomandi fyrr en hann er
kominn yfir áfallið eða fjárhags-
legur stuðningur opinberra stofn-
ana. Þannig skortir oft á hinn
nauðsynlega stuðning ástvina og
annarra á sorgarstundu.
Viðbrögð einstaklinga við
kreppum eru oft á þá lund að þeir
sýna ótta, eru niðurbeygðir eða
þunglyndir, hætta að sofa eða
sofa illa, auka notkun alkóhóls
eða misnota það og ýmis önnur
líkamleg og andleg viðbrögð,
sem túlkuð eru sem sjúkdómur.
„Hjálpin” verður þá oft í formi
íyfjagjafar, veikindaleyfis frá
vinnu eða skóla, innlögn á
sjúkrastofnun eða eitthvað í þá
áttina. Slík viðbrögð eru ailtof oft
algerlega út í hött og gera oftast
það eitt að verkum að viðkom-
andi verður enn meira einmana
og enn ráðvilltari gagnvart eigin
þörfum. Eina leiðin til þess að
hjálpa í slíkum aðstæðum er að
skilja hvers eðlis þessar sálrænu
kreppur eru. Þau viðbrögð, sem
ég lýsti hér að framan, eru fyrst
og fremst lýsandi fyrir þá sem
flýja aðstæðurnar. Þeir vita ekki
hvernig þeir eiga að bregðat við
og verða því óöruggir og leysa
það með því að varpa allri ábyrgð
á sjúkleika þess er í kreppunni
lendir.
Einfaldast er að skilgreina sál-
ræna kreppu á þá leið, að einstak-
lingur lendir í aðstæðum, þar sem
fyrri reynsla hans og lærð við-
brögð duga honum ekki til þess
að skilja og ná tökum á þeim. í
megindráttum er hægt að flokka
slíkar aðstæður í tvo megin-
flokka. Annars vegar er um að
ræða aðstæður sem koma manni
að óvörum og óvænt og ógna lífi.
og limum, félagslegum aðstæðum
eða grundvallarmöguleikum til
þess að fullnægja eigin þörfum.
Dæmi um slíkar aðstæður eru
andlát náins ættingja, fjárhags-
hrun, skyndileg uppsögn í vinnu,
rán, nauðgun eða annað ofbeldi,
sem viðkomandi verður fyrir.
Þessi tegund sálrænnar kreppu er
oft kölluð „atburðakreppa”
(traumatisk). Hins vegar er um
að ræða sálarkreppu sem stafar af
atburðum, sem hægt er að segja
að tilheyri daglega lífinu, en sem í
vissum tilvikum verða ein-
staklingum ofviða. Dæmi um
slíkar kreppur eru að eignast
barn, hefja störf í atvinnulífinu
eftir áratuga vinnu á heimili, að
fara á eftirlaun o.s.frv. Þessi teg-
und sálarkreppu er oft kölluð
„þroskakreppa” vegna þess að
hún er hluti af eðlilegu, daglegu
lífi og felur í sér möguleika til
þroska eða er hluti af þroska ein-
staklingsins. Oft er erfiðara að
átta sig á þessari tegund kreppu
en hinni, einkum vegna þess að
við eigum erfítt með að átta okk-
ur á að þessir eðlilegu hlutir geti
verið einhverjum erfiðir.
22 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. janúar 1990
xtÁ.í .u.
aAA