Þjóðviljinn - 19.01.1990, Page 25
VÖd^^vMÖUIJMWMÍ^wBk*:# ♦•4'%.4-J*. r* 4 » 4 O Í1KI
KVIKMYNDIR
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
Byrjaö meö stæl
Kvikmyndaklúbbur íslands
byrjar með trukki á síðara misseri
og býður okkur að sjá verð-
launamyndina Landslag í þoku
eftir Theo Angelopoulos. Hún
vann evrópsku Felix-verðlaunin í
lélegustu sjónvarpsútsendingu
áratugarins seint á síðasta ári, en
vann einnig silfurbjörninn I Fen-
eyjum árið 1988. Einnig verður
sýnd Ferð til Kithira eftir sama
leikstjóra, en annars er ma. lögð
áhersla á myndir f rá sænsku gull-
öldinni, film-noir, auk mynda frá
meisturum á borð við Antonioni,
Tarkovskíj, Fellini, Klimov og
Eisenstein.
Landslag í þoku, eða Topio
Stin Omichili, var sýnd í gær-
kvöld, en verður einnig sýnd á
laugardag einsog venja er með
myndir klúbbsins. Þarsem hún
hefur þegar verið sýnd og fjallað
var sérstaklega um hana í Þjóð-
viljanum í gær er varla ástæða til
að ítreka það hér. Hinsvegar skal
minnt á að möguleiki er á auka-
sýningum verði aðsókn góð. t
næstu viku verður síðan sýnd
Ferð til Kithira sem Angelopou-
los gerði árið 1984 og hefur eins-
og margar mynda hans ferðalag
sem þema. Hún segir frá gömlum
kommúnista, sem verið hefur í
útlegð í Moskvu frá borgarastyrj-
öldinni í Grikklandi, en snýr aft-
ur til föðurlandsins og krefst
eigna sinna.
í febrúar verða sýndar nokkrar
af klassískum sænskum myndum
frá þriðja áratugnum. Tvær
myndir verða eftir Mauritz, Fjár-
sjóður herra Arne og Saga Gunn-
ars Hede, og Stormurinn og
Fjalla-Eyvindur eftir Sjöström.
Af film-noir myndum verða
sýndar Gun Crazy sem Joseph
Lewis gerði árið 1949, Ace in the
Hole eftir Billy Wilder og svana-
söngur Renoirs í Bandaríkjun-
um, The Woman on the Beach.
Þá verður sýnd Orphée eftir
landa hans Jean Cocteau, Sól-
myrkvi Antonionis, Solaris eftir
Tarkovskíj og Kvennabær Fellin-
is. Que viva Mexico eftir Eisen-
stein verður sýnd og einnig hin
magnaða Komdu og sjáðu eftir
landa hans Elem Klimov (varð
nr. 2 í áratugaruppgjöri Þjóðvilj-
ans en er skrifuð Idí í smotrí á
frummálinu - (sjá sýningarskrá).
í maí verða síðan „cult-myndir“ á
borð við Frankenstein eftir Andy
Warhol og The Pit and the Pend-
ulum og The Masque of the Red
Death eftir Roger Corman. Að
síðustu verður reynt að sýna
Rokk í Reykjavík eftir Friðrik
Þór Friðriksson.
Að öðru leyti vil ég í skjóli
plássleysis vísa á ágæta sýningar-
skrá Kvikmyndaklúbbsins og
hvetja sem flesta til að verða sér
úti um skírteini.
Regnboglnn
Famlly Business ★★
(Fjölskyldumál)
Talsverð vonbrigði frá úrvalsdeildinni.
Ekki er greinilegt hvort aetlunin var að gera
gamanmynd eða drama eða hvorttveggja.
Dramað er misheppnað, gamanmyndin
skárri, sérstaklega hnyttin tilsvör Conner-
ys. Leikur er í lagi en allir hafa gert betur.
SSL 25 ★★★
Frísklegt og vel heppnað byrjandaverk
frá Óskari. Gæti allt eins verið upphaf að
íslenskri nýbylgju og hefur allt sem þarf til
að vekja góðar vonir um framhaldið. Háðið
er oft á tíðum yndislegt.
Mlracle Mile ★★
(Óvænt aðvörun)
Um margt mjög sérstök mynd og oft
undarlega stutt ámillispennu, frumleika og
væmni. Engin hetjudýrkun hér, einsog
venjulega I svona klukkumyndum, en
óvænta endinn vantar.
L'Ours ★★★
(Björninn)
Annaud kemur vissulega nokkuð á óvart
með þessum óð sínum til náttúrunnar en
það verður ekki frá honum tekið að myndin
er listavel gerð. Falleg og rómantísk mynd
og góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna,
sérstaklega þá sem unna óspilltu náttúru-
lífi. Aðalleikararnir fara á kostum!
Le dernler metro ★★★
(Síðasta lestln)
Pað fer að verða siðasta tækifæri fyrir
fólk að sjá þessa dásamlegu mynd Truff-
auts. Óðurinn til leikhússins og stríðsá-
ranna kemst vel til skila í myndrænu and-
rúmslofti. Catherine Deneuve hefur sjald-
an verið meira sjarmerandi en einmitt hér.
Laugarásbíó
Back to the Future II ★★
(Aftur til framtiðar 2)
Enginn vafi er á að fyrri myndin var mun
betri, enda byggist þessi leikur á ferskri
hugmynd sem á að koma á óvart alla
myndina. Hér er samt sumt gott: tækni-
brellur og einstaka atriði, en mörg fara þau
forgörðum (hjólabrettið td.) þegar reynt er
að stæla frumburðinn. En það er aksjón.
The Land Before Tlme ★★
(Fyrstu ferðalangamlr)
Ágætis teiknifantasia og vitaskuld
skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Amerfski
draumurinn var þó betri á sínum tíma.
Parenthood ★★★
(Barnabasl)
Ein af hlýlegri myndum Ron Howards
með hóþ úrvalsleikara. Allt býsna vel gert,
en flest hefur maður samt séð einhvers
staðar áður.
Pelle erobreren ★★★★
(Pelle sigurvegari)
Sannarlega meistarverk ársins og það
albesta sem komið hefur frá Dönum og
jafnframt Norðurlöndum í mörg ár. Bille
August hefur tekist að gæða fjórðung
skáldsögu Nexös einstöku lífi með yndis-
legri epískri frásögn. Samleikur Hvene-
gard og Von Sydows er með ólíkindum og
kvikmyndatakan gullfalleg. Upplifun sem
enginn má láta framhjá sér fara. Húrra fyrir
Dönum.
Rlver of Death 0
(Dauðafljótið)
Lélegasta Alistair MacLean mynd sem
gerð hefur verið, en þær kalla nú ekki allt
ömmu sína.
Bíóhöllin
Honey, I Shrunk the Klds ★
(Elskan, óg minnkaði börnln)
Gamalkunn hugmynd verður aukaatriði I
tæknibrellum nútímans. Auðvitað enj
nokkur skondin atriði inná milli, en flest er
jtetta aðeins fyrir 10 ára og yngri.
Turner and Hooch ★
(Löggan og hundurlnn)
Bolabíturinn stelur senunni hór og hirðir
einu stjörnuna, en annars voða þunnt og
venjulegt. Góðu brandarana hafði maður
oft séð I úrklippum áður. Nöldur: Spottisw-
oode kom ekkert nálægt Coctail einsog
ranglega er farið með I auglýsingu.
Oliver & Company ★★★
(Óllver og félagar)
Það liggur við að þessi sé frekar fyrir þá
fullorðnu. Bein skírskotun til Dickens er vel
gerð og persónurnar eru frábærar og skýrt
mótaðar. Allir í bíó, allt frá börnum til ömmu
og afa.
Young Einstein ★
(Ungi Einstein)
Víruð mynd frá Yahoo Serious, en grínið
fer að mestu forgörðum. Sniðugt að henda
gaman að þessum fræðum en hann hefur
ekki lært heima um Einstein og eðlis-
fræðina.
Bíóborgin
Dead Poets Society ★★★
(Bekkjarfélagið)
Peter Weir nær sér aftur á strik eftir mis-
heppnaða Moskítóströnd. Hér er öll vinns-
la óaðfinnanleg en auðvitað má velta sér
uppúr undarlegri hegðan ýmissa persóna.
Best er hve vel tekst að skapa eðlilegt og
trúverðugt andrúmsloft þegar misjafnlega
þroskaðir drengir reyna að hafa „Caipe
Diem“ að leiðarijósi. Weir sýnir hæfileika
sína í leikstjóm með mögnuðum atriðum
og agaðri stjórn á drengjunum - I anda
skólans illræmda. Glæsilegar landslag-
stökur Seales eru I anda klassíkur á borð
við Barry Lyndon.
Turner and Hooch
(sjá Bíóhöll)
Honey, I Shrunk the Kids
(sjá Bíóhöll)
Oliver & Company
(sjá Bíóhöll)
Háskólabió
Black Raln ★★
(Svart regn)
Ridley Scott svíkur ekki hvað hvarðar
glæsilegt útlit, Ijós-skugga, birtu-gufu,
snotra notkun á telelinsum á breiðtjaldi ofl.,
en vonandi er hann ekki að síga niður til
bróður síns Tony. Að vísu jjokkalegasti
tryllir en sagan er nauðaómerkileg og
endirinn hræðilegur miðað við hve löggan
Douglas var aumkunarverður karakter. At-
hugasemd: Þótt Scott eigi margt sameigin-
legt með Adrian Lyne (Fatal Attraction)
þarf ekki að auglýsa þá sem sama mann-
inn.
Stjörnubíó
See No Evil, Hear No Evll ★*
(Skollaleikur)
Pryor og Wilder leggja enn einu sinni í
þúkk og nú aftur undir stjórn Hillers. Góð
hugmynd (blindur og heyrnariaus) en
smekksatriði hvernig unnið er úr henni. Að-
dáendur beggja aðalleikaranna hljóta að
skemmta sér en [jeir keyra um þverbak
einsog oft áður.
Ghostbusters II ★
(Draugabanar 2)
Jafnvel aödáendur tyrri myndarinnar
verða fyrir vonbrigðum því hór er of mikil
endurtekning. Greinilega gert með dollara-
merki i augunum og skulum við bara vona
að seðlarnir verði notaðir á árangursrikari
hátt.
Magnús ★★★
Lang besta kvikmynd Þráins til þessa og
jafnframt í hópi betri kvikmynda sem gerð-
ar hafa verið hér á landi. Þráinn hefur náö
auknum þroska sem listamaöur og byggir
mynd sína vel upp til að byrja með en ým-
issa brotalama fer að gæta þegar leysa á
úr vandamálum höfuðpersóna. Oft yndis-
legur gálgahúmor og Magnús er
sannkölluð skemmtimynd fyrir alla aldurs-
hópa.
• 8
’
1. prentun AUK-dagatalsins „AF LJÓSAKRI'
öbbbÉiöSlilíliktítlöEtobtöhistlMöbav T ii a to a B u
H J A A
••“U' II' I) i) ll lli 11! 11! 11' 11: JhlíutfJitdltíV.-llUÍLlltULríLrtfcl'löltílclXlflliritaTB
antriitototiaiitoatiiiUHUiítiaasifirrriiiicissto':
er uppseld hjá útgefanda.
2. prentun væntanleg úr bókbandi.
Sölustaðir: Casa, Epal, Gegnum glerið, Katel, Nýhöfn, Bókabúð Steinars,
II TT T'W' T' 1 Bóksala stúdenta, Eymundsson, Mál og menning, Penninn, Veda, Hans
I I | Petersen, Álafossbúðin, íslenskur heimilisiðnaður, Land og saga,
■* Rammagerðin og íslenskur markaður Keflavíkurflugvelli.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Ólafsfirði
Alþýðubandalagið í Kópavogi
í nýju Ijósi:
Kalda stríðið búið - hvað tekur við?
Félagsfundur
Alþýðubandalagið á Ólafsfirði boðar til félagsfundar sunnudag-
inn 21. janúar klukkan 20.30 í Tjarnarborg.
Dagskrá:
1. Sveitarstjórnarkosningar.
2. Bæjarmálin.
3. Landsmálin — Steingrímur J. Sigfússon samgöngu- og land-
búnaðarráðherra.
4. Önnur mál.
Stjórnin
Fundur í bæjarmálaráði
verður haldir.i 22. janúar n.k. í Pinghóli, Hamraborg 11 og hefst kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 1990.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Seltjarnarnesi
Breyttir tímar heima og erlendis - ný tækifæri jafnaðarmanna
Opinn fundur verður í Ársal Hótels Sögu þriðjudaginn 23. janúar
kl. 20.30.
Á þessum fundi munu formenn íslensku jafnaðarflokkanna ræða
breytta stöðu heimsmála og áhrif þeirra breytinga á hlutverk
hernaðarbandalaganna, íslenska flokkakerfið o.fl.
Fundarstjóri: Ævar Kjartansson útvarpsmaður.
Jón Baldvin Ólafur Ragnar
Alþýðubandalag Akraness
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins á
Akranesi mánudaginn 22. janúar klukkan 20.30 í Rein.
Dagskrá:
1. Kynning á tillögu að skipulagi Akratorgssvæðis.
2. íþróttamál - Framkvæmdir.
3. Málefni SFA.
4. Fjárhagsáætlun 1990 - Framkvæmdir.
5. Önnur mál.
Mætum öll. Stjórnin
AB Kóþavogi
Þorrablót
Hið vinsæla þorrablót Alþýðubandalags Kópavogs verður haldið í
Þinghóli Hamraborg 11, laugardaginn 3. febrúar kl. 19.
Nánar auglýst síðar.
Félagsfundur
Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi heldur almennan félagsfund
mánudaginn 22. janúar í Félagsheimili Seltjarnarness klukkan
20.30.
Dagskrá:
1. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga.
2. Önnur mál.
Félagar, mætum öll. Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Opið hús
í Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn 20. janúar n.k. milli kl. 10
og 12. Heitt verður á könnunni og eru félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin