Þjóðviljinn - 19.01.1990, Page 28
Konur eru ölnæmari en kariar
Konur eru næmari fyrir áfeng-
isáhrifum en karlar vegna þess
að magi þeirra inniheldur minna
magn af efnahvötum sem brjóta
niður vínanda, og hleypir því
meira áfengismagni út í blóðrás
og lifur konunnar. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu lækna við
Sínaífjalls-læknaskólann í New
York. Höfundar skýrslunnar
segja að niðurstöðurnar skýri
hvers vegna konum sé hættara
við lifrarsjúkdómum en körlum og
myndi þá af minna tilefni og eftir
skemmri drykkju. Niðurstöðurnar
séu jafnframt gott tilefni til þess
að ráðleggja konum að hafa
taumhald á drykkju sinni.
Reuter-fréttastofan hefur það
eftir einum af höfundum skýrsl-
unnar að konur þurfi að meðal-
tali þriðjungi minna áfengismagn
en karlar til þess að ná sömu áf-
engisáhrifum. Hann sagði jafn-
framt að ef niðurstöður rann-
sóknarinnar reyndust réttar gæfu
þær tilefni til þess að endurskoða
reglur um það hversu mikið
áfengismagn sé leyfilegt að taka
inn áður en sest er undir stýri.
Auk lifrarsjúkdóma er talið að
áfengi geti átt þátt í sjúkdómum
eins og hjartaáfalli, háum blóð-
þrýstingi, beinþynningu og
sumum tegundum krabbameins.
Áfengi getur einnig skaðað fóstur
á meðgöngutíma og orsakað of
lítinn þunga þess við fæðingu.
Sérfræðingar sem hafa tjáð sig
um niðurstöður skýrslunnar
segja þær áhugaverðar þótt
mælanlegur efnafræðilegur mis-
munur á milli kynjanna hafi ekki
reynst afgerandi mikill hvað
þetta snerti. Nauðsyn sé á enn
frekari rannsóknum. Þeir segja
að læknavísindin hafi áður skýrt
ölnæmi kvenna umfram karla
með því að líkami þeirra hefði að
geyma hlutfallslega meiri fituvef
og minna vatn. Þessi nýja rann-
sókn bendir hins vegar til þess að
orsökin sé efnafræðileg og að
hennar sé að leita í efnakljúfum í
maga. Rannsóknin bendi jafn-
framt til þess að maginn gegni
mun stærra hlutverki við það að
brjóta niður vínanda en áður var
talið. Lifrin er hins vegar eftir
sem áður það líffæri sem sér um
að brjóta niður meginþorra alls
áfengis í líkamanum.
-ólg
Samtök ofæta
festa skj í sessi
Sniðin eftir AA-samtökunum. Axel Guð-
mundsson: Stórt skref að byrja að tala
(slensku OA-samtökin - Over-
eaters Anonymous, samtökfólks
sem á við átvandamál að stríða-
verða átta ára í febrúar, en 30 ár
eru síðan fyrstu samtökin fóru af
stað í Bandaríkjunum. Fram að
þessu hefur vitneskjan um þau
hér á landi borist milli manna án
þess að þau hafi beinlínis verið
aðgengileg fólki, en nú hafa þau
fengið pósthólf (1783,121
Reykjavík) og fá síma á næst-
unni.
„Það er engin meðlimaskrá til
og nafnleynd er haldið,“ sagði
Axel Guðmundsson tengiliður í
samtökunum, „en við áætlum að
á annað hundrað manns nýti sér
samtökin núna, ef til vill ennþá
fleiri. í heiminum öllum eru um
150 þúsund manns í OA“
Axel sagði að samtökin væru
sniðin eftir AA-samtökunum:
„Félagsgjöld eru engin, rekstrar-
féð fæst inn með samskotum.
Fólk hittist á fundum og ræðir
vanda sinn, deilir reynslu sinni,
vonum og styrk með öðrum. Það
er stórt skref að byrja að tala.
Eins og alkóhólistar halda sig frá
fyrsta sopanum halda ofæturnar
sig frá fyrsta bitanum, en eins og
ofdrykkjumenn hætta ekki að
drekka allan vökva þá hætta of-
æturnar bara að borða mat sem
þær þola ekki. Þetta er dæmigert
velmegunarvandamál og eykst
jafnt og þétt hér á landi.“
Samtökin starfa nú á fjórum
stöðum í Reykjavík (í Árbæjar-
kirkju, Barónsstíg 20, Hával-
lagötu 16 og í Mýrarhúsaskóla), á
Hólmavík, Sauðárkróki, Akur-
eyri, Húsavík og Flúðum, og ver-
ið er að stofna deildir á Siglufirði
og Vestmannaeyjum. Fundir eru
opnir öllum sem vilja hætta ofáti.
SA
Vindlinga-
tálbeita
Vesturevrópskir og þó einkum
vesturþýskir framleiðendur iða
nú í skinninu eftir að vinna mark-
aði í A-Evrópu. Þannig segir
tímaritið Der Spiegel frá því að
vesturþýska tóbaksfyrirtækið
BAT, sem framleiðir HB-
sígarettur, hafi sent 50.000 sígar-
ettupakka gefins til hinnar rikis-
reknu tóbakseinkasölu í Dresden
í A-Þýskalandi. Verða sígarett-
umar seldar þar á 4 austurþýsk
mörk pakkinn.
Vesturþýska tóbaksfyrirtækið
hefur sagt að hér sé um „vinar-
gjöf“ að ræða, sem muni jafn-
framt auka því vinsældir í A-
Þýskalandi til frambúðar. En ætl-
un fyrirtækisins er að hefja út-
flutning til A-Þýskalands í nán-
ustu framtíð. Hingað til hafa inn-
fluttar sígarettur aðeins fengist í
sérstökum gjaldeyrisverslunum
fyrir forréttindafólk í A-Þýska-
landi.
-ólg
Allir þeir, sem greitthafa laun
á árinu Í989, skulu skila
launamiðum vegna greiddra
iauna á þartilgerðum eyðu-
blöðum til skattstjóra.
Frestur til að skila launamiðum
rennur út 22. janúar.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI