Þjóðviljinn - 02.03.1990, Qupperneq 5
_____________________________________________________________________
Aflamiðlun
Allar upplýsingar á borðið
Stjórnarformaður Aflamiðlunar: Það verður engin leynd yfirstarf seminni néyfir úthlutun útflutningsleyfa.
Mun veita sín fyrstu leyfi á föstudag eftir viku. Ekki í húsnœði utanríkisráðuneytisins
Eg lít svo á sem og öll stjórnin að
allar upplýsingar um útflutn-
ingsleyfi á ferskum fiski sem og
aðrar upplýsingar er lúta að
starfsemi Aflamiðlunar muni
verða uppá borði í stað þeirrar
leyndar sem verið hefur um þessi
mál hingað til, sagði Sigurbjörn
Svavarsson formaður stjórnar
Aflamiðlunar.
Nýskipuð stjórn Aflamiðlunar
hélt sinn fyrsta fund í fyrradag og
fundaði síðan aftur í gær. Á þess-
um fundum hefur stjórnin verið
að fara yfir stöðuna og hvernig
staðið hefur verið að úthlutun út-
flutningsleyfa á ferskum fiski
með tilliti til magns og skiptingar
þess á hina ýmsu markaði. Þar
fyrir utan hefur stjórnin á þessum
fundum sínum verið að koma sér
saman um ákveðnar vinnureglur
sem vinna á eftir í framtíðinni.
Fljótlega eftir helgina verður svo
fyrirhuguð starfsemi Aflamiðlun-
Norðurlandaráð
Hús Eirflcs
rauðaí Nuuk
Menntamála- og samstarfsráð-
herrar Norðurlanda samþykktu í
gær að fjalla á fundi sínum 9. maí
um tillögu þess efnis að Norður-
landaráð taki þátt í kostnaði við
byggingu menningarmiðstöðvar í
Nuuk á Grænlandi.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra var í Grænlandi nýlega
og hefur mælt sérstaklega fyrir
þessari hugmynd. Nú eru liðin
1000 ár síðan Eiríkur rauði nam
land í Brattahlíð og hefur af því
tilefni verið stungið upp á því að
húsið beri nafn hans. Ráðgert er
að þrír aðilar greiði til jafns hver
sinn þriðjunginn við
stofnkostnað og rekstur hússins,
Norðurlandaráð, Landsráðið í
Grænlandi bæjarsjóður Nuuk.
í maí munu ráðherrarnir einnig
fjalla um þær tillögur sem fram
hafa komið um 10% niðurskurð á
framlagi Norðurlandaráðs til
menningarmála og ýmsir hafa
mótmælt harðlega. M.a. barst
ráðinu undirritað mótmælaskjal
frá mörgum þekktum einstak-
lingum í íslensku mennta- og
menningarlífi. ÓHT
HM-handbolti
Spánn vann
Islendingar töpuðu fyrir Spán-
verjum í æsispennandi leik á
Heimsmeistaramótinu í gær í
Tékkóslóvakíu með 18 mörkum
gegn 19.
Spánverjar náðu tveggja
marka forskoti strax í byrjun
leiksins en síðan náðu íslending-
ar að jafna. Um miðbik fyrri hálf-
leiksins náðu íslendingar tveggja
marka forskoti en þegar flautað
var til leiksloka var staðan jöfn
11:11. í upphafi síðari hálfleiks
náðu Spánverjar síðan yfirhönd-
inni á ný og leiddu leikinn allt þar
til um 9 mínútur voru til leiks-
loka. Þá náði Sigurður Gunnars-
son að jafna leikinn 16:16. Á lok-
amínútunum náðu Spánverjarnir
yfirhöndinni á ný og náðu tveggja
marka forskoti. Það var síðan fyr-
ar kynnt útgerðarmönnum og
fiskkaupendum og á hvern hátt
þær upplýsingar sem hún hefur
yfir að ráða geta nýst þeim við
útflutning og fiskkaup til inn-
lendrar fiskvinnslu.
Sigurbjörn sagði að starfsemi
Aflamiðlunarinnar yrði ekki í
húsnæði utanríkisráðuneytisins
og er verið að leita að hentugu
húsnæði fyrir hana. f dag verður
væntanlega síðasti fundur svo-
kallaðrar kvótanefndar, sem hef-
ur haft með höndum veitingu út-
flutningsleyfa með fisk í gámum
hjá viðskiptaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins. Það verður síðan
ekki fyrr en eftir eina viku sem
stjórn Aflamiðlunar mun úthluta
sínum fyrstu útflutningsleyfum.
í ráði er að ráða í það minnsta
tvo starfsmenn að Aflamiðlun-
inni og sagði Sigurbjörn að þær
stöður yrðu ekki auglýstar.
Nauðsyn væri á að ráða til starfa
hæfa starfskrafta og yrði það gert
í samráði við stjórnina. „Það
hlutverk sem bíður okkur í stjórn
Aflamiðlunar verður trúlega ekki
neitt sældarbrauð en við munum
kappkosta að gera okkar besta“,
sagði Sigurbjörn Svavarsson.
Umhverfisvernd
Lýst eftir
meiri arangn
/
Aœtlanir um varnir gegn mengun íhafi og
lofti samþykktar á þingi Norðurlandaráðs
jj^j orðurlandaráð samþykkti
Þingi Norðurlandaráðs lýkur eftir hádegi í dag og kemst lífið þá aftur í
eðlilegt horf í Háskólabíói. í gær fór fram umræða um umhverfismál og
voru m.a. samþykktar áætlanir um varnir gegn mengun.
tvær áætlanir um varnir
gegn mengun í gær. Annars vegar
um varnir gegn mengun í hafinu,
hins vegar gegn loftmengun.
Ræðumenn í gær voru þó margir
Verkalýðsfélögin
Eftirlit gengur vel
A annað hundrað manns hafa hringt á einni viku. Mest kvartað undan
bílatryggingum, bifreiðaskoðun og sérfrœðiþjónustu lœkna
sammála um að Norðurlönd
þyrftu að gera enn betur í um-
hverfismálum en raun ber vitni og
ná enn betri árangri.
Fjallað var um áætlun gegn
mengun í hafinu á aukaþingi
ráðsins í nóvember 1988, en um-
hverfisráðherrar landanna sam-
þykktu hana í janúar í fyrra. Það
sem nú var verið að samþykkja
var endurskoðun þessarar áætl-
unar.
Áætlunin felur í sér að mörk
þess sem losa má í hafið af skað-
sömum efnum eru lækkuð.
Hið sama gildir um áætlunina
gegn loftmengun. Þar er rætt um
að minnka losun koltvísýrings,
brennisteins og köfnunarefna út í
andrúmsloftið.
Skrifstofa verðlagseftirlits
verkalýðsfélaganna hefur
hlotið góðar undirtektir almenn-
ings. A annað hundrað manns
hafa hringt með margvíslegar
ábendingar um hækkanir á verði
vöru og þjónustu frá því hún tók
til starfa fyrir einni viku.
Leifur Guðjónsson, starfsmað-
ur skrifstofunnar, sagði í samtali
við Þjóðviljann að helstu um-
kvörtunarefnin væru hækkun
bifreiðatrygginga, skoðunar-
gjalds bifreiða og hækkun á sér-
fræðiþjónustu lækna. Þá sagði
hann að allmikið hefði verið
hringt vegna hækkana á verði
bensíns sem gengu í gildi í gær.
Sem dæmi um hækkun á lækn-
isþjónustu sagði Leifur að í hann
hefði hringt manneskja sem í
fyrrasumar þurfti að fara til sér-
fræðings einu sinni í viku í tólf
vikur og þurft að greiða 630 krón-
ur í hvert skipti. Fyrir sömu þjón-
ustu nú þyrfti hins vegar að
greiða 1500 krónur fyrir hvert
skipti.
Bankarnir hafa einnig fengið
sinn skerf af kvörtununum.
Leifur sagði að fólk héfði m.a.
kvartað undan hækkunum á
leigugjaldi fyrir bankahólf og
hækkunum á þóknun bankanna
úr 0,75 í 1,8 prósent.
Leifur sagði að fólk lýsti al-
mennt ánægju sinni með framtak
Staðan í riðlunum A-riöill Leikir U—J—T Mörk Stig C-riöill Leikir U—J—T Mörk Stig
Svíþjóö 2 2—0—0 45—37 4 Spánn 2 2—0—0 37—35 4
Ungver|aland 2 2—0—0 41—34 4 ísland 2 1-0—1 45—42 2
Alaír 2 0-0—2 35-42 0 Júgóalavla 2 1—0—1 45-45 2
Frakkland 2 0-0—2 36—44 0 Kúba 2 0-0—2 50-55 0
B-riöill D-riöill
Rúmenia 2 2—0—0 51—41 4 Sovétríkin 2 2-0—0 61—37 4
Su&ur-Kórea 2 1—0—1 45-43 2 A.-Þýskaland 2 2—0—0 51—39 4
Svias 2 1—0—1 30—33 2 Pólland 2 0—0—2 38—51 0
Tikkóalóvakia 2 0—0—2 29—38 0 Japan 2 0-0—2 38—61 0
irliði íslenska landsliðsins Þorgils
Óttar sem náði að minnka mun-
inn niður í eitt mark og þar við sat
þrátt fyrir að fslendingar áttu
tækifæri til að jafna leikinn á lok-
asekúndunum.
Markhæstir leikmenn íslenska
liðsins voru þeir Alfreð Gíslason
með 6 mörk og Bjarki Sigurðsson
og Sigurður Gunnarsson með 3
mörk hver. Af markvörðum ís-
lenska liðsins varði Guðmundur
Hrafnkelsson 6 skot og Einar
Þorvarðarsson einnig. Aftur á
móti varði spænski markvörður-
inn alls 15 skot og þar af eitt víti.
Þá var íslendingum vísað af
leikvelli alls 6 sinnum eða í sam-
tals 12 mínútur.
Úrslit í öðrum leikjum í gær
voru þessi: A-riðill: Alsír - Ung-
verjaland 16:22. Frakkland-Sví-
þjóð 18:25. B-riðill: Sviss - S-
Kórea 17:21. Rúmenía - Tékk-
óslóvakía 25:17. C-riðill:
Júgóslavía- Kúba 28:27. D-riðill:
Japan-Sovétríkin 16-35. Pólland
- Áustur-Þýskaland 17:25. -grh
verkalýðsfélaganna. „Þá er það
okkar að reyna að sýna fram á að
við skilum einhverjum árangri,"
sagði Leifur.
Símatími hjá verðlagseftirliti
verkalýðsfélaganna er kl. 9-12,
og síminn er 624230. „Ég vil
hvetja alla til að taka þátt í þessu,
því raunverulega það eina sem
getur fært okkur aukinn kaup-
mátt er að sýna aðhald í verð-
lagsmálum," sagði Leifur Guð-
jónsson, starfsmaður verðlags-
eftirlits verkalýðsfélaganna. -gb
í umræðum um tillögurnar
voru ræðumenn yfirleitt sam-
dóma um að Norðurlönd þyrftu
að gera hærri kröfur en tillög-
urnar bera með sér. Hjörleifur
Guttormsson vék sérstaklega að
ástandinu á íslandi og sagðist
telja að íslendingar stæðu ekki
undir þeim fögru orðum sem hér
eru viðhöfð um umhverfisvernd,
enda fengist alls ekki nægilegt fé
til þessa málaflokks.
Þingi Norðurlandaráðs lýkur
eftir hádegið í dag. -88
Suður-Afríka
Fulltrúi ANC
í heimsókn
Pritz Dullay, fulltrúi Afríska
þjóðarráðsins í Danmörku,
kom til íslands í gær til að taka
þátt í tónleikum tileinkuðum
frelsun Mandela.
í dag mun Dullay hitta
Steingrím Hermannsson forsæt-
isráðherra og Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra að
máli. Líklegt er að hann muni
fara fram á að engin slökun verði
á innflutningsbanni á s-afrískar
vörur á meðan Apartheid ríkir í
landinu, en Afríska þjóðarráðið
hefur hvatt til þess að ekki verði
hróflað við efnahagslegum refsi-
aðgerðum á S-Afríku á meðan
kynþáttastefnan er við lýði.
Á morgun kl. 17 mun Dullay
tala á fundi sem Vináttufélag fs-
lands og Kúbu og Pathfinder-
bóksalan standa fyrir í Sóknar-
salnum Skipholti 50A.
Á fundinn kemur einnig Ama-
do Rivero frá Kúbu, en hann er
yfirmaður Norðurlandadeildar
ICAP, stofnunar um vináttu-
tengsl Kúbu við aðrar þjóðir.
Kynnt verður sérstaklega rit-
gerðasafn Fidels Castro, „In De-
fence of Socialism", sem
Pathfinder-bókaforlagið gaf út á
síðasta ári. Þar er m.a. fjallað um
þátt Kúbana í baráttunni gegn
Apartheid-stefnunni í S-Afríku.
Auk þess munu um 50 bókatitlar
liggja frammi á fundinum, ásamt
með veggspjöldum og merkimið-
um. Túlkað verður á íslensku á
fundinum og hægt verður að
kaupa kaffiveitingar.
-Sáf
Föstudagur 2. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5