Þjóðviljinn - 02.03.1990, Side 23
ars"«erfoSa^o» 8
aðsetjauppgnmur.
Breið-
hyltingar
í sælu-
vímu
Alla þessa viku hafa staðið yfir Sælu-
dagar í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti. Hefðbundin kennsla
hefur legið niðri en í stað hennar
hafa nemendur tekið þátt í ýmiskon-
ar hópstarfi og má segja að hægt hafi
verið að velja um allt milli himinsog
jarðar, dáleiðslu, ísklifur, ÁTVR
kynningu, flippi, flugkennslu, kvik-
myndun og þannig mætti lengi telja.
Hápunktur Sæludaganna var
vafalítið árshátíð skólans sem haldin
var á Hótel íslandi á miðvikudag.
Þar var m. a. fluttur söngleikur eftir
Valgeir Skagfjörð af nemendum
skólans og eru myndirnar hans Jim
Smart teknar við það tækifæri.
ÁkvöröunarstaöuR
Key West
Guðmundur Karlsson stundar siglingar með íslenska ferðamenn frá
Fort Lauderdale til Key West í Flórída
Siglingin frá Fort Lauderdale
til Key West er ævintýri líkust,
segir Guðmundur Karlsson skip-
stjóri á lítilli lystisnekkju, sem
hann hefur gert út frá Fort
Lauderdale í Flórída í vetur.
Guðmundur fer í dagsferðir,
þriggja daga ferðir eða vikuferðir
meðfram ströndinni og um
„Vatnavegina“ og skerjagarðinn
alla leið til Key West, sem er
syðsta eyjan undan Flórída. Það-
an eru aðeins 90 mflur til Kúbu.
Guðmundur hefur siglt með
bandaríska ferðamenn og ís-
lenska jöfnum höndum í vetur,
og segir þessa útgerð vera ævint-
ýri líkasta. Nú stefnir hann að því
að bjóða þessar ferðir fyrir ís-
lendinga í auknum mæli í gegnum
ferðaskrifstofuna Sögu. Fort
Lauderdale er í þriggja og hálfs
tíma akstursleið frá Orlando á
Flórída, sem er reglulegur við-
komustaður Flugleiða.
Dagsferðin sem við förum frá
Fort Lauderdale er um Miami-
flóann, þriggja daga ferðin er til
Key Largo nyrst og vestast í
skerjagarðinum og vikuferðin er
til Key West. Flórída-lyklarnir
eða Flórida Keys, eins og þeir
heita á ensku, eru eyjarani sem
liggur í suður og austur frá
Flórídaskaganum. Eyjarnar eru
allar tengdar saman með brúm,
og er ein þeirra sú lengsta í heimi.
Eyjarnar eru allar byggðar, en
misjafnlega mikið, og er Key
West sú fjölmennasta. Byggðin
og andrúmsloftið á þessum
syðstu eyjum N-Ameríku ber
mikið svipmót af latneskum
áhrifum frá suðurhluta álfunnar,
og er því ekki dæmigerð fyrir
Bandaríkin. Meðal þeirra sem
áttu sumarhús á Key West voru
BoaZfirande
Kqy
Jtico' L Amrrican ShoaJ
Flórídaskagi
Lystisnekkjan
rithöfundurinn Hemingway og
Truman bandaríkjaforseti.
Guðmundur segir að sjórinn
við skerjagarðinn og í Miami-flóa
sé alltaf sléttur og silfurtær, og
víða megi kafa niður á ævintýra-
leg kóralrif og skoða litskrúðugt
sjávarlíf. Veiði sé ágæt á stöng,
en tegundirnar hafi ekki íslensk
nöfn. Ef farið er út á opið haf í
Flórídasundinu má einnig veiða
stærri fiska eins og sverðfisk og
túnfisk. Guðmundur segist fara
með sjóstangveiðifólk út í Golf-
strauminn á lystisnekkjunni til
veiða, sé þess óskað. Veðurfar á
þessum slóðum er gott á vetrum,
22-30 stiga hiti að jafnaði.
Lystisnekkja Guðmundar
rúmar vel 9-10 manns í dagsferð
en gott svefnpláss er fyrir 6 far-
þega í tveim svefnklefum fyrir 6
daga ferðir. Auk svefnklefanna
eru um borð stór setustofa, eld-
hús og messi og öll þægindi.
Hvernig kom það til að þúfórst
í þetta starf?
Mitt líf hefur alla tíð snúist í
kringum sjóinn. Ég er vélfræð-
ingur, og stundaði sjó, aðallega á
togurum til 1963. Fór þá í land í
nokkur ár og hafði m.a. eftirlit og
milligöngu um skipabyggingar
fyrir íslendinga erlendis. Fór svo
Guðmundur Karlsson: Það er
góð stangveiði í skerjagarðinum.
Ljósm. Kristinn.
í kaupskipaútgerð um tíma, en
hætti henni 1986. Ég stefni nú að
því að vinna við þessa ferða-
mannaþjónustu á veturna en
koma heim á sumrin.
Guðmundur segir að siglingar
hans um skerjagarða og vatna-
vegi Flórída séu seldar á verði
sem sé vel samkeppnisfært við
hliðstæðar siglingar á Miðjarðar-
hafi.
Föstudagur 2. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23