Þjóðviljinn - 18.05.1990, Page 6
Árangurinn og framtíðin
Stórtíðindi í efnahagsmálum
Fjármálaráðuneytið hefur undanfarið gengist fyrir fundum víða um land þar sem kynntur er efnahagsbatinn og ný viðhorf
í íslenskum þjóðmálum. Fjármálaráðherra fer þar í máli og myndum yfir mikilvægustu þætti efnahagsmálanna, auk þess
sem opnaðar eru frjálsar umræður. Þjóðviljinn fylgdist með í Keflavík í upphafi maí
Olafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, sagði
að nú væru merkileg tímamót í
augsýn á Isiandi, það væri að
bætast í hóp ríkja sem búa við
mestan stöðugleika í efnahags-
lífinu og betri möguleika til að-
gerða og athafna. Þetta væru
stór tíöindi fyrir Islendinga,
sem barist hefðu við verðbólgu-
drauginn eins og ættarfylgju.
Veröbólgan í 6,5%
1988/89 spáðu forystumenn
atvinnuveganna atvinnuleysi hér-
lendis af stærðargráðu sem verst
þekktisterlendis, bjuggust við að
útflutningur mundi stöðvast,
byggð raskast verulega og þjóðar-
gjaldþrot blasa við. Þetta voru
ekki aðeins orð, heldur stað-
reyndir, og skýringin var alröng
efnahagsstefna og crfiðar ytri að-
stæður sem mögnuðu skekkjumar
í hagstjóm rikisstjómar Þorsteins
Pálssonar. Ný skýrsla frá OECD
hefur staðfest þungan áfellisdóm
yfir þeirri efnahagsstefnu í góð-
ærinu.
Núverandi stjóm greip til all-
róttækra aðgerða, td. í skattakerf-
inu. Ein aðalforsenda var sú að
ná verðbólgunni niður. Og það
hefúr tekist með þeim árangri, að
verðbólga er nú skráð með eins
stafs tölu hérlendis, í fyrsta sinn
um langan aldur. Þjóðhagsstofn-
un spáir 6,5% verðbólgu frá upp-
hafi árs til áramóta, sem er svipað
verðbólgustig eða lægra en í ná-
grannalöndum. I fyrsta sinn í 25
ár þolum við samanburð við önn-
ur lönd í þessum efnum.
Fjármálaráðherra benti á það
sem hann kallaði „apabúrið” á
línuriti um verðbólguþróunina frá
upphafi árs 1970, þeas. tíma-
bundna lækkun verðbólgu frá því
í ágúst fram til áramóta 1988.
Þessi árangur náðist með gerviað-
ferðum ríkisstjómar Þorsteins
Pálssonar, lögþvingunum, verð-
hækkanir voru bannaðar og búið
til gerviástand. Þegar búrið var
opnað rauk verðbólgan upp á ný.
Upp úr miðju ári 1989 byrjar svo
verðbólgan að hjaðna fyrir alvöm
i kjölfar ráðstafana núverandi rik-
isstjómar og kjarasamninganna.
%
Verðbólgan 1987-1990
Breytingar síöustu þrjá mánuöi reiknaöar til árshækkunar
%
4.0
3.0
2.0
1.0
0.0
-1.0
-2.0
-3.0
-4.0
-5.0
-6.0
Vöruskiptajöfnuður 1980-1990
Sem hluttall af vergri landsframleiöslu
I-Q.8 I
1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 spá
Vextir, gengi, við-
skiptajöfnuöur
Vaxtamál hafa tekið nýja
stefnu. Sú aðferð ríkisstjómar
Þorsteins Pálssonar að skella á
vaxtafrelsinu í krafti erlendra
kreddukenninga gal ekki Ieilt til
annars en sprengingar. Tekist hef-
ur að ná raungengi niður, og allir
em sammála, efnahagssérfræð-
ingar og fulltrúar atvinnuveg-
anna, að raungengi sé nú rétt í
fyrsta sinn síðan 1971 og í þriðja
sinn síðan 1926.
En breytingamar í efnahags-
lífinu koma ekki bara fram í þeirri
hagsveiflu sem sýnir lækkandi
verðbólgu og meiri stöðugleika,
heldur er einn skýrasti mæli-
kvarðinn á hagstjómina etv. vöm-
skiptajöfnuðurinn. I fyrra var
hann 2,5% sem hlutfall af vergri
landsframleiðslu og getur farið
upp í 3% á þessu ári. Fjármála-
ráðherra vakti sérstaklega athygli
á því, að ef hin umfangsmiklu
þotukaup Flugleiða em tekin út
úr, þá kemur í ljós að árangurinn
er í raun enn þá betri. Á einu ári
em nú keyptar 2-3 þotur, sem
ekki hefur verið gert á undanfom-
um ámm, svo það skekkir saman-
burðinn við „þotukaupalausu”
árin.
Lántökur innanlands
Ríkisstjómin hefur lagt á það
áherslu að taka innlend lán og
Aukaúthlutun
úr kvikmyndasjóði
Menntamálaráöuneytiö hefur fariö þess á leit
við stjórn kvikmyndasjóðs og úthlutunarnefnd
að af því fé sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að
veita til kvikmyndamála umfram þærfjárveiting-
ar sem ákveðnar eru í fjárlögum ársins 1990
verði úthlutað 5 milj. kr. í tap- og undirbúnings-
styrki fyrir kvikmyndagerð.
Óskað er eftir umsóknum um fé þetta. Umsókn-
ir, merktar aukaúthlutun, sendist kvikmynda-
sjóði íslands, pósthólfi 320,121 Reykjavík, fyrir
30. maí n. k.
Stjórn Kvikmyndasjóðs íslands
Tónlistarskólinn
á Akureyri
Staða forskólakennara og forskóla- og hljóð-
færakennara í tengslum við grunnskóia eru
lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur fyrir áður auglýstar stöður
fiðlu- og píanókennara eru framlengdar. Um-
sóknir berist fyrir 29. maí 1990.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 96-
21788.
Skattar ríkis og sveitarfélaga í OECD-löndum
Hlutfall af vergri landsframleiðslu
OECD
Portúgal
island
Sviss
133
o/
/o
1987 /1988 /1989
hefur snarsnúið dæminu við í
þeim efnum, úr 80% erlendri Ián-
töku í 80% innlenda lántöku með
sölu ríkisskuldabréfa, gæti farið í
90-100% á þessu ári. Jóhannes
Nordal Seðlabankastjóri hefur
lýst því yfir að þetta sé rétt stefna
og íjármálaráðherra sagðist nú
bara vona að Jóhannes tapaði
ekki áttum í bílnum á leið úr
Seðlabankanum inn í Landsvirkj-
un, ef hún ætlar að fjármagna allt
með erlendum lándum getur allt
farið úr skorðum á ný. Olafur
Ragnar segir því „yfir til þín Jó-
hannes”, eins og góðkunnir sjón-
varpsmenn.
Viðskiptabankamir em í á-
kveðnum vanda eftir að búið er að
ná niður verðbólgunni, geta ekki
lengur notfært sér þann mikla
vaxtamun sem tíðkaðist áður.
Bankakerfið hér þolir varla verð-
bólgu með eins stafs tölu og full-
trúar bankanna hafa farið fram á
það við íjármálaráðherra að
lækka skatta á bönkunum, sem
hefur algerlega verið hafnað.
Skattar eru lágir hér
Margir spyija, hvemig núver-
andi ríkisstjóm hafi náð þessum
góða árangri í stjóm efnahags-
mála. Sumir halda að hann bygg-
ist á skattpínslum, og sá falsáróð-
ur er mjög ákafur úr vissum nom-
um. Fjármálaráðherrann er nefnd-
ur skattaskelfir, en sagðist hafa
haft ánægju af „Skattmann” í ára-
mótaskaupinu, enda væri „Bat-
mann” í miklu áliti hjá þeim. Og
skattamir eru það eina sem Sjálf-
stæðismenn vildu ræða í eldhús-
dagsumræðunni, þeir vilja yfir-
leitt ekki ræða efnahagsmál á
breiðum gmndvelli núna. Stað-
reyndin er sú, að skattar hafa að-
eins aukist um 2 prósentustig hjá
núverandi rikisstjóm, og er heild-
arskattbyrði hér enn með lægsta
móti í OECD-ríkjum.
Það kemur í ljós, þrátt fyrir á-
róðurinn, að skattar em furðu Iág-
ir hér, miðað við nágrannalöndin.
Fjármálaráðherra líkti þeim, sem
halda því fram að skattbyrðin sé
hærri hér, við þá sem trúðu á Óðin
og Þór forðum. Staðreyndin er
sú, að ef öll Evrópulönd em skoð-
uð, þá em aðeins Tyrkland og
Sviss með lægri skatta en ísland.
Skattbyrðin hér er minni en í
Bretlandi Thatchers.
Skattar ríkis og sveitarfélaga,
sem hlutfall af vergri landsfram-
Ieiðslu, em um 33% á Islandi, eða
að meðaltali 41% í Evrópubanda-
lagslöndunum og 39% í OECD-
löndum. Hæstir em þeir í Sví-
þjóð, 56% af landsframleiðsl-
unni, svo 52% í Danmörku og
47% í Noregi. Hjá Thatcher er
hlutfallið 38%.
Beina eöa óbeina
skatta?
Það er í þessu sambandi at-
hyglisvert að skoða samsetningu
skattanna á íslandi, í EFTA, EB
og Bandaríkjunum. Þá kemur í
ljós, að tekjuskattur og trygginga-
gjöld bæði einstaklinga og fyrir-
tækja em lægst á íslandi, rúm
20%, en hæstir eða tæp 50% í
Bandaríkjum. Eignaskattur er
hæstur í Bandaríkjunum, svo á Is-
landi, þá í EFTA og lægstur í EB.
Neysluskattar em hæstir á Is-
landi, tæp 60%, svo í EFTA, þá í
EB og lægstir í Bandaríkjunum,
um 5%.
Ólafur Ragnar Grímsson
sagði að aðalgallinn við of háa
neysluskatta væri sá að þeir köst-
uðust strax út í verðlagið, ef ein-
hverjar aðgerðir em á ferðinni í
hagstjóm. Það er því rétt að
lækka neysluskattana, enda er
það í samræmi við ráðleggingar
sérfræðinga OECD. Það er auð-
veldara að breyta beinum sköttum
til jöfnuðar en neyslusköttum.
í skoðanakönnun hefúr komið
fram, að menn vilja auka útgjöld
til allra þátta, en ekki hækka
neina skatta. Fjármálaráðherra
drap líka á þá ranghugmynd, að
skattar mættu vera lægri hér,
vegna þess að við hefðum engin
hemaðarútgjöld. En vegagerð,
hafnargerð og önnur samgöngu-
mál em svo stór herkostnaður hjá
okkur að hann vegur það fyllilega
upp-,
Ólafúr Ragnar Grimsson
benti á, að hann væri eini fjár-
málaráðherrann í 10 ár sem hafi
reynt niðurskurð á rikisfjármálum
á 2-3 mánaða fresti. Og aðhald í
ríkisrekstri hefur stóraukist. Töl-
umar árið 1989 tala sínu máli.
Fjárfesting ríkisins minnkaði um
7%. Yfirvinna ríkisstarfsmanna
dróst saman um 3% og vinnu-
magn um nær 1%. Launakostn-
aður minnkaði að raungildi um
1%. Og útgjöld vegna launa- og
rekstrarkostnaðar ráðuneyta og
stofnana drógust saman að raun-
gildi um 1,5%. ÓHT
6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ
Kennarar
Kennara vantar viö grunnskólana á Akranesi.
Tónmenntakennara við Brekkubæjarskóla,
100% staða, kennara á bókasafn Brekkubæj-
arskóla, 100% staða, sérkennara í Grunda-
skóla, 100% staða, tvær stöður íþróttakennara
við Grundaskóla, 100% stöður.
Umsóknarfrestur ertil 26. maí n.k. Upplýsingar
veita Ingi Steinar Gunnlaugsson, skólastjóri
Brekkubæjarskóla, í vinnusíma 93-11938,
heimasími 93-11193 og Guðbjartur Hannes-
son, skólastjóri Grundaskóla, í vinnusíma 93-
12811, heimasími 93-12723.
Skólanefnd
Laust starf
Staða auglýsingastjóra Þjóðviljans er laus til
umsóknar. Umsóknir, þar sem m.a. skal greint
frá menntun og fyrri störfum, þurfa að berast
framkvæmdastjóra blaðsins, eigi síðar en mið-