Þjóðviljinn - 18.05.1990, Page 8
*
líelgárblad
Útgefandi: Útgáfufélag Þióðviljans
Framkvæmdastióri: Hallur Pall Jónsson
Ritstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ólafur Gíslason
Fréttastjóri: Sigurður A. Friðþjófsson
Útlit: Þróstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Olga Clausen
Afgreiðsla: ® 68 13 33
Auglýsingadeild: = 68 13 10-68 13 31
Símfax: 68 19 35
Verð: 150 krónur í lausasölu
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Síðumula 37,108 Reykjavík
Leiðtoginn
mikli og
dreifing valds
Við lifum á svo trúlitlum tímum, að það er mestallt
púður úr persónudýrkun sem pólitísku fyrirbæri víðast
hvar um heimsbyggðina. Meira að segja er persónu-
dýrkun á poppurum dauflegri miklu en hún var.
Þó má finna eina fróðlega undantekningu og hún
birtist í þeim dansi sem Sjálfstæðismenn stíga í kringum
Davíð Oddsson. Síðast í gær birti einn af frambjóðend-
um flokksins grein í Morgunblaðinu, þar sem því er lýst
með drjúgum tilfinningahita að það sé „dýrmætt fyrir
íbúa Reykjavíkur að eiga jafn sterkan, hugaðan og
hreinskiptinn en einnig mannúðlegan borgarstjóra”. I
leiðinni er Davíð kallaður „mikill leiðtogi” í fyrirsögn og
honum stillt upp sem andstöðu við „veika foringja” hér
og þar í forustuhlutverkum.
Þessi pistill er um margt tímanna tákn: málefni fara
ekki hátt í umræðunni, hinsvegar leitar á menn frukt fyr-
ir þeim sem á mikið undir sér, fyrir þeim sterka, sem fer
sínu fram hvað sem hver segir. Þetta ástand er afar
hentugt fyrir Sjálfstæðisflokkinn hér í bæ: pólitísk deyfð
gerir það freistandi að varpa öllum áhyggjum á bak við
Leiðtogann mikla og sjá þær ekki framar - amk. ekki
þangað til hver og einn þarf að hafa áhyggjur af dag-
vistarplássi eða húsnæði í ellinni. Fjölmiðlastaðan virk-
ar á sama veg: Davíð sýnist vera einn gegn átján - það
dylst fyrir hrekklausum að hann hefur Golíat sín meginn
í slagnum, samsteypu þeirra sem reka borgina og eiga
fyrirtæki hennar - sem að sínu leyti eru nú að auglýsa
það á löngum listum að þau kosti þessa eða hina hverf-
isskrifstofu Sjálfetæðisflokksins í kosningabaráttunni.
Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa að vonum
sett á oddinn kröfur um lýðræði og valddreifingu gegn
þeim' feiknalegu uppsöfnun valds og persónugervingu
þess sem Sjálfstaeðisflokkurinn treystir á. Borgarmála-
fólk Alþýðubandalgsins hefur haft forystu um að móta
raunhæfar tillögur í þeim efnum. Reyndar settu Alþýðu-
bandalagsmenn í vinstrimeirihlutanum 1978-1982 þeg-
arfram ágætar hugmyndir bæði um lýðræðistiltæki eins
og hverfisstjómir og svo nýja tilhögun ráðninga í emb-
ætti, sem átti að vinna gegn því að borgarbúar sætu
uppi með þungt hlass „eilífra augnakarla”. Því miður
náðu þær ekki fram að ganga fyrir sakir þvermóðsku í
Alþýðuflokknum. En þessar hugmyndir lifa - eins og
Guðrún Ágústsdóttir borgarfulltrúi gerði ágætlega grein
fyrir hér í blaðinu fyrr í vikunni.
Þar minnti hún á þetta: Alþýðubandalagið vill að
borginni sé skipt í hverfi, sem hafi hverfastjómir. Þær
geri tillögur til borgarstjómar um mál sem hverfin varða,
þær hefðu sitt að segja um alla helstu málaflokka áöur
en borgarstjóm ræður þeim til lykta (svo sem dagvistar-
heimili, leikvelli, opin svæði, æskulýðsmál, íþróttamál,
leiðir strætísvagna, skipulagsbreytingar innan hverfa).
Þá er gert ráð fyrir því, aö fulltrúi hverfisstjómar hafi rétt
tii aö sitja í borgarráði með málfrelsi og tíllöguréttí þegar
rædd eru málefni sem varða hverfið og að hverfiss^óm-
ir hafi nokkur eigin Qárráö. Og markmið slíkrar skipunar
mála er aö sjálfeögöu aö dreifa valdi, færa það nær
þeim sem ákvarðanir gagnast - eða bitna á.
Sumum finnst slíkar hugmyndir of róttækar, aðrir
þykjast sjá I þeim hættu á aukinni skriffinnsku. Vitanlega
fyígir einhver áhætta öllum breytíngum. En hér skal nú
minnt á valddreifingarboðskap Alþýðubandalagsins, að
fátt er nauðsynlegra en aö menn haldi áfram ótrauðir að
vinna úr kostum lýðræðis á tlma, þegar það er boðað
hástöfúm að menn geri best I því aö falla í stafi yfir því
dýrmæta hnossi aö eiga sér Mikinn Leiðtoga.
ÁB
Kabaretthópurinn sem skemmtir mönnum með stríðsáraminningum [ Nomæna húsinu um helgina.
Lög og Ijóö í stríði
Söngur og upplestur í Norræna húsinu
Leikaramir Ása Hlín Svav-
arsdóttir, Edda Heiðrún
Backman, Egill Ólafsson og
Jóhann Sigurðsson ásamt
tónlistarmanninum Jóhanni
G. Jóhannssyni hafa undan-
farið skemmt mönnum með
söng og upplestri í Norræna
húsinu í tengslum við dag-
skrá hússins um Seinni
heimsstyrjöldina.
Kabarett sinn kallar hópur-
inn „Þeir héldu dálitla heims-
styrjöld...” lög og ljóð í stríði.
Heitið er fengið að láni frá
Megasi en textar hans eru með-
al þeirra sem þau syngja. Aðrir
textahöfundar eru m.a. Hulda,
Halldór Laxness, Jón úr Vör og
Bertolt Brecht. Einnig syngja
þau gamla bandaríska Cole
Porter slagara.
Milli laga eru lesin brot úr
skáldsögum og ljóðum. Lesið
er úr Sóleyjarsögu eílir Elías
Mar, Við gluggann eftir Stein
Steinarr, Gangvirkinu eftir Ólaf
Jóhann Sigurðsson og Virkinu í
Norðri eftir Gunnar M. Magn-
úss.
Ljósmyndasýning á mynd-
um frá stríðsárunum á Islandi í
sölum Norræna hússins stendur
enn um sinn eða til loka júní, en
þessa helgi gefst mönnum í síð-
asta sinn tækifæri til að sjá kab-
arettinn. Hann verður sýndur á
laugardagskvöld kl. 21 og
sunnudagkl. 16.
Ungum er það allra best
r
Nemendur í Leiklistarskóla Islands flytja trúarljóð
í Borgarleikhúsinu
Nemendur í 3. bekk Leiklist-
arskóla íslands hafa sett
saman Ijóðadagskrá um ís-
lenskan trúarskáldskap fyrr
og síðar í samvinnu við Leik-
félag Reykjavíkur.
Dagskráin er samsett úr
ljóðum, sönglögum og leiknum
brotum úr ýmsum áttum. Svo
dæmi séu tekin verða flutt brot
úr Merði Valgarðssyni eftir Jó-
hann Sigurjónsson, Passíu-
sálmum Hallgrims Péturssonar,
atriði úr Gullna hliðinu eftir
Davíð Stefánsson og úr Jóni í
Brauðhúsum eftir Halldór Lax-
ness.
Auk nemenda Leiklistar-
skólans koma fram þau Soffía
Jakobsdóttir og Jón Hjartarson.
Undirleikur á gamalt sveitaorg-
el er í höndum Jóhanns G. Jó-
hannssonar. Lýsingu annast
Lárus Bjömsson.
Sýningar verða á mánudag
og þriðjudag kl. 20 og miðviku-
dag kl. 16 á Litla sviði Borgar-
leikhússins.
Helgarveðrið
Horfur á laugardag og
um en þurrt að mestu.
r. Hæg, breytileg átt, skýjað með köfl-
t SÍÐA—HÝTT HBJjARBLAÐ Fðctudagur 1t. maí 1990