Þjóðviljinn - 18.05.1990, Side 12
X-NESKAUPSTAÐUR
Einar Már Sigurðarson verður
ekki öfundsverður að morgni
27. maí og upp frá því ef andstæð-
ingum Alþýðubandalagsins í Nes-
kaupstað verður að þeirri ósk
sinni að meirihlutinn f bæjar-
stjórn falli. Einar Már skipar
fimmta sæti G-listans og á því sæti
veltur hvort 44 ára líf meirihluta
G-listans verður framlengt.
„Ég trúi því að ég sé að gera
rétt, svo líðan mín er bara góð og
ég get ekki sagt að ég kvíði kosn-
inganóttinni. En fólk má auðvit-
að ekki trúa þeim áróðri minni-
hlutans að við séum nánast örugg
með áframhaldandi meirihluta í
bæjarstjórn. Þetta verður tvísýnt
eins og svo oft áður.
Ég held það eigi vel við mig að
vera í þessu sæti, baráttusætinu.
Pað er hluti af lífsskoðun minni
að maður eigi að standa í baráttu í
stað þess að halda sig á lygnum
sjó. Ég er bara að taka nauðsyn-
lega áhættu," segir Einar Már í
samtali við Þjóðviljann.
Þjóðviljinn
og Morgunblaðið
Hann er 38 ára gamall og hefur
kennt við Verkmenntaskólann í
Neskaupstað um nokkurra ára
skeið. Hann er varamaður í bæj-
arstjórn, en nú veltur allt á því að
hann nái að verða aðalmaður. Ef
Fimm efstu á G-listanum talið frá vinstri: Guðmundur Bjarnason, Smári Geirsson, Sigrún Geirsdóttir, Einar Már Sigurðarson og Klara
Sveinsdóttir. Alþýðubandalagið hefur fimm bæjarfulltrúa og þarf að halda þeim til þess að halda meirihluta. Myndir gg.
Samviilc forysta og valddreifing
Einar Már Sigurðarson er í baráttusœti G-listans í Neskaupstað: Bar-
áttan um meirihlutann verður tvísýn eins ogsvo oftáður. Minnihlutinn
hefur ekki gegnt aðhaldsskyldu sinni
ekki, fellur meirihlutinn eftir 44
ára úthald.
Andstæðingár Alþýðubanda-
lagsins nota einatt svipuð rök
gegn meirihluta flokksins þar og
andstæðingar Sjálfstæðisflokks-
ins nota í Reykjavík. Til ergömul
gamansaga um að Alþýðubanda-
lagsmenn í Neskaupstað vilji
heldur dreifa Morgunblaðinu en
Þjóðviljanum síðustu vikurnar
fyrir kosningar.
Rökin gegn meirihluta G-
listans eru á þá leið að bæ sé ekki
hollt að hafa sama meirihluta eins
flokks of lengi, valdið spilli,
stöðnun haldi innreið sína í kerf-
ið. Er ekki bara orðið tímabært
að skipta um meirihluta?
Breiðfylking
„Það er satt og rétt að við erum
sökuð um stöðnun og margt ann-
að. Staðreyndin er hins vegar sú
að við höfum að miklu leyti þurft
að sinna því aðhaldshlutverki
sjálf sem minnihlutinn á í raun að
sinna. Við höfum lagt áherslu á
stööugaendurnýjun innan frá, en
minnihlutinn hefur brugðist
þeirri skyldu sinni að veita okkur
raunverulegt aðhald.
Þeir í minnihlutanum hafa til
dæmis ekki flutt neinar stefnu-
markandi tillögur á þessu kjör-
tímabili öllu. Þeir fluttu engar
breytingartillögur við afgreiðslu
síðustu fjárhagsáætlunar.
Auðvitað ræða menn málin
innan meirihlutans og eru ekki
alltaf sammála um alla hluti. Það
er meðal annars vegna þess hve
breiddin er mikil innan okkar
raða og vegna þess að þessi
breiðfylking sem við erum endur-
nýjast reglulega.
Lýðræðið er því virkt þrátt
fyrir að minnihlutinn hafi ekki
staðið sig sem skyldi í aðhalds-
hlutverki sínu.“
Ungt fólk
„Það er til að mynda sérstak-
lega áberandi hve ungt fólk er
fjölmennt í efstu sætum G-
listans. Meðalaldur frambjóð-
enda er lágur og fólkið kemur úr
öllum starfsstéttum. Þetta er
auðvitað mjög ánægjulegt.
Það er því fráleitt að yfirfæra
málflutning andstæðinga Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavíic á
okkur. Sjálfstæðisflokkurinn
leggur mikið upp úr hinum sterka
manni. Við erum ekki að bjóða
fram „ofurmenni“, en byggjum
starf okkar á samvirkri forystu og
valddreifingu," segir Einar Már.
Hann segir Alþýðubandalagið
nú hafa hugmyndir um að auka
vald kjörinna fulltrúa enn frekar
á kostnað embættismanna. Til
dæmis með því að bæjarfulltrúi
en ekki bæjarstjóri verði formað-
ur bæjarráðs.
„Við höfum einnig áhuga á að
stórauka upplýsingastreymi frá
bæjaryfirvöldum til bæjarbúa.
Markmið okkar er einnig að auka
áhuga bæjarbúa á málefnum
bæjarins á milli kosninga. Það er
lýðræðinu nauðsynlegt að fólk
taki þátt í umræðu og láti sig á-
kvarðanir yfirvalda einhverju
skipta,“ segir Einar Már.
Gott
aluínniissfsnd
........
Bæjarstjórnarkosningar snúast
að þessu sinni mjög víða um at-
vinnumál, enda er atvinnu-
ástandið víða með eindæmum
erfitt. Þetta á þó ekki við Nes-
kaupstað. Þar er fremur skortur á
vinnuafli en skortur á vinnu. í
fjórðungnum í heild er þó 3,5
prósent atvinnuleysi og hvorki
meira né minna en fimm af
hverju hundraði kvenna hefur
ekki atvinnu.
Kosningabaráttan snýst miklu
fremur um hvort meirihluti Al-
þýðubandalagsins á að fá áfram-
haldandi umboð eða ekki. En
hvað hefur Alþýðubandalagið
gert til þess að verðskulda fram-
lengt umboð til þess að fara með
meirihluta í bæjarstjórn?
„Á þessu 44 ára tímabili sem
Alþýðubandalagið hefur farið
með meirihiutavald hefur átt sér
stað gífurleg uppbygging félags-
legrar þjónustu samfara því að
hér hefur verið haldið uppi
traustri atvinnu. Atvinnuástand-
ið byggist að verulegu leyti á
góðri samvinnu bæjaryfirvalda
og stjórnenda fyrirtækja, ekki
miðstýringu eins og stundum er
EinarMár Sigurðarson: Það á vel við mig að veraíbaráttusætinu. Mér
finnst betra að standa í baráttu en að vera á lygnum sjó. Mynd gg.
haldið fram. Samstarf bæjaryfir-
valda og stærsta fyrirtækisins í
bænum, Síldarvinnslunnar, hefur
verið mjög gott og á þeim nótum
að full atvinna komi á undan ítr-
ustu hagkvæmni í þrengsta skiln-
ingi þess orðs.“
Næg
dagvistarpláss
„Það er nú eins og fara með
gamla lummu að hér hefur þörf
fyrir dagvistun m'ög lengi verið
fullnægt, sem er mjög ólíkt flest-
um öðrum bæjarfélögum.
Meirihlutinn hefur lagt metnað
sinn í að byggja upp gott fram-
haldsnám. Tónlistarskólinn hef-
ur einnig verið ofarlega á for-
gangslistanum, enda er hann nú
miðstöð tónlistarlífsins í bænum.
Tónlistarskólinn var áður sam-
eiginlegt verkefni ríkis og bæjar,
en bærinn hefur alltaf sett markið
hærra en hlutdeild ríkisins hefur
gert ráð fyrir.
Á þessu kjörtímabili höfum við
verið að fjölga íbúðum aldraðra
verulega og þær framkvæmdir
eru á lokastigi í bili.
Á næsta kjörtímabili verða
fþróttamálin í brennidepli. Það
hefur þegar verið tekin ákvörðun
um að byggja nýtt íþróttahús í
stað þess að byggja við það gamla
eins og áður var rætt um. Minni-
hlutinn hefur dregið lappirnar í
þessu, en þetta verður stærsta
verkefni næsta kjörtímabils.
Einnig hefur verið ákveðið að
halda áfram uppbyggingu á skíð-
asvæðinu í Oddsskarði og það er
óneitanlega brýnt að bæta að-
stöðu til sundiðkunar.“
Sorpmálin
„Það er líka brýnt að finna úr-
lausn fyrir félagsstarf unglinga.
Unglingarnir hafa haft bráða-
birgðahúsnæði fyrir fél-
agsmiðstöðina Atóm, en það er
ljóst að þeir verða að fá betri að-
stöðu.
Sorpmálin eru hér í ólestri eins
og víða annars staðar. Það hefur
á svæðinu, en það er fyrirsjáan-
legt að kostnaður við slíka lausn
verður mikill. Við munum áfram
kanna möguleikann á sameigin-
legri lausn, en það starf má ekki
taka of langan tíma.“
Einar Már segir uppbygging-
una í Neskaupstað hvorki hafa
byggst á óhóflegum álögum né
óvenjulega háum tekjum miðað
við önnur sveitarfélög. Neskaup-
staður hefur safnað skuldum eins
og svo mörg önnur sveitarfélög."
Skuldugt
sveitarfélag
„Neskaupstaður er skuldugt
sveitarfélag, það er ekki hægt að
neita því. Við eigum það nefni-
lega sammerkt með öðrum
sveitarfélögum, öðrum en
Reykjavík að tekjur okkar eru
allt of litlar. Við höfum barist
fyrir uppstokkun á tekjuskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga og telj-
um nýju lögin um þetta aðeins
lítið sícref í rétta átt. Það þarf að
stórefla tekjustofna sveitarfélag-
anna,“ segir Einar Már.
-gg
12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 18. maí 1990