Þjóðviljinn - 29.06.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 29.06.1990, Blaðsíða 2
SYSTIR SKAÐA SKRIFAR Við erum best! Ég svíf um á amarvængjum jákvæðninnar. Brosmild sem krókódíll og hláturmild eins og hýena, jafn troðfull af fogmm fyrirheitum og gluggaumslag beini ég jákvæðum röntgen- augum mínum að landi og þjóð. Og sjá, þetta er allt harla gott. Horfm er þessi kona sem af einhverjum ástæðum neyddist endalaust til að böðlast áfram í útsynningi með hausinn undir sér, nú vef ég bara treflunum þéttar að hálsin- um, stari dreymnum augum upp í öskugráan sumarhimininn og hugsa um hvað við séum nú öllsömul heppin að fá að búa hér norður við heimskautsbaug, merkilegasta þjóð í heimi í besta landi í heimi fyrir utan mörk hins byggilega heims. Mér er loksins orðið þetta ljóst. Þetta hefur náttúrlega verið vitað lengi, þó ég hafi ekki haft hugmynd um það, en það fer ekkert á milli mála að staðreyndin hefur verið ýmsum kunn í gegnum aldimar. Ég er sann- færð um að hér hefur búið jákvætt fólk sem vissi þetta allt frá Landnámsöld, - og jafnvel fyrr. Og leitum við eftirseinni tíma sönnunum höfum við þær alveg pottþéttar til dæmis í öll- um ættjarðarljóðunum sem enn draga hrifn- ingartárin fram í augun og í sjálfri pýramíða- kenningunni sem sannar að hið nýja Ljós Heimsins muni koma frá Islandi innan skamms, - og sú kenning kemur meira að segja frá útlöndum svo hún hlýtur að vera sönn og engin leið að saka okkur um þjóð- rembu og hroka í því sambandi. Að vísu finnst mér soldið hæpið að ákveð- inn árgangur, sem ég hirði ekki um að nefna, vilji eigna sér hinn nýja Messías, ekki afþví ég sé öfundsjúk eða að mér finnist neitt endilega að sá ákveðni árgangur sé ekki beinlínis til stórræðanna, neinei, ekki þannig séð. Þetta er ósköp þokkalegur árgangur svona eftir því sem slíkir gerast, það er ekki það. Mér finnst bara ekkert jákvætt að ætla að eigna sér hlut- ina rétt si-sona. Ég á við, það má alveg gefa hinum séns þar til annað sannast. En hvað sem þvi líður þá erum við best. Það hefur verið margsannað með samanburði, svo það fer ekkert á milli mála. Við erum gáf- aðasta, hæfileikaríkasta og fallegasta þjóðin á norðurhveli jarðar að minnsta kosti og þó víð- ar væri leitað. Við eigum merkilegustu menn- inguna og landið okkar er pottþétt það falleg- asta í heimi, við eigum hér fallegustu jöklana, fjöllin og fossana, náttúran er hér öll hin gjöf- ulasta, hér er lambakjötið best og hér er eftir- sóknarverðast að búa því okkar velferðarþjóð- félag er sko líka það besta í heimi. Hér drýpur hreinlega smjör af hverju strái, - þar sem þau er á annað borð að finna. Veðrið hér er líka ákaflega gott. Það sést með tilliti til breiddargráðu og samanborið við Grænland, Norðurpólinn og Suðurskautsland- ið. Hér er einfaldlega alveg himnesk veðrátta. Þeim sem vilja vera eitthvað neikvæðir og nöldra má benda á að við værum nú illa stödd ef við gætum ekki talað um veðrið, hamingjan má vita hversu mörg hjónabönd hefðu leyst upp og hvað mörg fjölskylduboð endað í harmleik ef ekki væri blessað veðrið okkar að ræða um. Og hvemig ætti eiginlega að enda fréttatíma Sjónvarpsins? Ja ég bara spyr. Og vilji einhver draga landkosti hér í efa má bara benda á það að hér er þó mun betra en að hýr- ast á Jan Mayen, það fer ekkert á milli mála. Ég hefði nú haldið það! Öllu þessu er restin af landsbyggðinni nú að átta sig á, sannaðist það svo ekki varð um villst þegar hún Beta fékk sér hingað flug og bát? Ég ætla nú bara ekkert að segja, og hún er alls ekki ein um þetta, ónei! Hingað streyma túrhestar til að berja okkur augum og dást að okkur um leið og að íjöllunum okkar og Hall- grímskirkju og til að fá það ókeypis hjá falleg- asta kvenfólki í heimi. Það var sko alveg rétt landkynning að vekja athygli á því á sínum tíma og ófáar ánægjustundimar sem við kven- fólkið höfum haft af erlendum karlpeningi fyrir bragðið. Einsog það sé ekki munur að fá aðeins meira úrval svona yfir hásumartímann? Og allir þessir túrhestar sanna svo ekki verður um villst það sem sumir hér hafa alltaf vitað því við spyrjum þá alla, hvem einn og einasta og það mörgum sinnum á dag: Há dú jú læk Æsland? Og hver skyldi hafa fengið neikvætt svar við þeirri spurningu nema frá bilaðri manneskju? Ha? Já. Það er bara eitt sem mér finnst vanta svo allt verði hér alfullkomið og ég geri að já- kvæðri tillögu minni að það verði barasta flutt inn, auðvitað að undangengnum nákvæmum rannsóknum á hreinleika, heilbrigði, innræti og öðmm kostum, því hingað til fyrirheitna landsins getum við aðeins hleypt því besta! En mér finnst vanta hér mörgæsir. Þær geta kommúníkerað telepatískt og svona burtséð frá því hvað það væri nú gaman að ræða við þær þá em þær líka svo settlegar og vel klædd- ar. Svo myndu þær líka taka sig svo vel út við Ráðhúsið okkar nýja. ^Ég vil að þið Teggið ykkur alla fram við blásturinn þannig að annar eins leikur1 á þjóðsöngvunum hafi [ aldrei heyrst. í RÓSA- GARÐINUM AÐ VERA EÐA VERA EKKI Fólk að flyt „Ég hef ekki orðið var við að fólk sé að flytja héðan, þvert á móti virðist fólk vera að flytja hingað á staðinn. Atvinnu- ástand hér er líka betra en á sama tima í fyrra. Þá voru 18 á atvinnuleysisskrá en nú 7", segir Björn Níelsson sveitar- stjóri á Hofsósi. Níelsson að hætta Björn Nielsson hefur ákveðið að láta af starfi sveitarstjóra Hofsóshrepps og mun það líklega gerast um mánaða- mótin júlí-ágúst. Ástæðan fyrir því er sú að Björn ætlar að hefja nám í Tækniskóla íslands í haust. Úr Feyki AF MANNKOSTUM ÞJÓÐHÖFÐINGJA Bretadrotning er alþýðleg og alúðleg í fasi. Hið sama gildir um forseta Islands. Ur leiðara DV HVAÐ VARÐ UM GESTRISNINA? Við skulum sem íyrr nýta heimsóknir þjóðhöfðingja til að efia markaði... Þannig getum við - eins og oft hefur gerzt, fengið til baka það, sem við höfum kostað til skrúðsins. Úr leiöara DV ÞJÓÐHÁTÍÐ MEÐ FRAMSÓKNAR- BRAG Hátíðarhöld 17. júní fóm vel íram á Húsavík og var stjómað af röggsemi. Og einhvetjum varð að orði að það væri greinilegt að Framsóknarmenn væm teknir við stjóminni í bænum. Hafliði Jósteinsson var kynnir á hátíðar- höldunum, Einar Njálsson, ný- ráðinn bæjarstjóri, flutti hátíðar- ræðuna og Stefán Haraldsson, bæjarfulltrúi B-lista kynnti hestasýningu. Og að sögn kunn- ugra fóm þar einungis framsókn- arhross, en það mun hafa sést á hlaupalaginu og svo vom hest- amir einnig opnir í báða enda. Víkurblaóiö JARTEIKN HIN NYJU Á (þjóðhátíðardaginn) gerð- ist raunar kraftaverk sem fram- sóknarmenn hafa auðvitað eign- að sér. Sem sé það að hátalakerf- ið brást ekki að þessu sinni. Elstu menn muna ekki eftir meiriháttar mannfagnaði á Húsavík sem ekki hefur einkennst af míkra- fónmeinum og hátalarahallæri... Sumir telja að þetta sé vísbend- ing um farsæla framsóknarstjóm næstu 4 árin. 2 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 29. júní 1990 Víkurblaðið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.