Þjóðviljinn - 29.06.1990, Blaðsíða 3
Af minjagripum
í tolli
Ýmsar sögur hafa spunnist
í gegnum tfðina af viðureign
landans við tollverði á Kefla-
víkurflugvelli þar sem þeir síð-
astnefndu hafaoftast haft bet-
ur. Fyrirskömmu kom einn að
norðan heim úr heimsókn frá
Englandi. Þar hafði hann farið
víða um og heimsótt meðal
annars nokkra viskífram-
leiðendur sem gerðu vel við
hann. Áður en hann lagði af
stað heim keypti hann tvær
viskíflöskur af stærri gerðinni,
ásamt stórum kassa af Ha-
vanavindlum auk hefðbund-
inna vindlinga. Þegar hann
kom til Keflavíkurflugvallarfór
hann rakleiðis í rauða hliðið í
tollinum í þeim tilgangi að
greiða toll af varningnum.
Aður en kom til þess ákvað
hann hvort ekki væri reynandi
að sannfæra tollinn um það
að viskíflöskurnar væru í raun
minjagripir frá framleiðendun-
um og því ekki réttlátt að hann
þyrfti að greiða toll af þeim.
Eftir nokkurt þóf, japl og fuður
féllst tollurinn á sjónarmið
þess norðlenska og hleyptu
honum í gegn með flöskurnar
góðu án gjalds og líka með
tóbakið. Það er af flöskunum
að frétta að þær ku vera báðar
tómar og langt gengið á tó-
bakið. ■
Hvað er sam?-
keppni?
Guðmundur Magnússon
sagnfræðingur, fyrrverandi
kommúnisti og núverandi
frjálshyggjupostuli, skrifar at-
hyglisverða kjallaragrein í DV
í vikunni. Hann er að skrifa um
samkeppni og úthúðar Kenn-
arasambandi Islands í leiðinni
fyrir að vilja ekki veita nem-
endum í skólum landsins
verðlaun eða viðurkenningu
fyrir „námsafrek", því sam-
keppni sé af hinu góða. Síðan
fer Guðmundur að skilgreina
orðið samkeppni og kemur
með all nýstárlega kenningu
um það orð: „Samkeppni,
hvort sem hún fer fram á
íþróttavelli, í skólum, í verslun
og viðskiptum eða fjölmiðlum,
er með öðrum orðum sú at-
höfn er fleiri en einn keppa
saman að einhverju marki.“
Ekki er nú orðabókin alveg
sammála Guðmundi því í
henni stendur að samkeppni
þýði það að keppa sín á milli í
einhverju, ekki saman. Eða
eru samkeppnisfyrirtæki
kannski að keppa saman að
því að ná til sín viðskiptum?
Eru þau ekki frekar að kepp-
ast við að ná viðskiptum hvert
frá öðru? ■
iJUI^FERÐAR við Stýnð.
Dýrkeypt
mótmæli
Meira af hinum norðlenska.
Fyrir nokkru þótti honum þjón-
usta Pósts & síma ekki vera
nægilega góð f sinni heima-
byggð. Til að leggja áherslu á
mótmæli sín barði hann þétt-
ingsfast í borðið hjá Póstinum
með þeim afleiðingum að
hann handarbrotnaði. Fyrirþó
nokkrum árum varð bóndi
þessi fyrir því, að slegið var á
þessa sömu hönd með
sleggju þegar hann lagði
hana á girðingarstaur í þeirri
trú að félagi hans væri búinn
að reka smiðshöggið. ■
Kerfið
samt við sig
Opinberir starfsmenn
þekkja það manna best hvað
það getur verið erfitt að herja
út úr kerfinu smá aur þegar
þarf að kaupa einhvern hlut
sem viðkomandi stofnun þarf
nauðsynlega á að halda.
Hinsvegar skortir ekki aurinn
þegar ferðalög yfirmanna
eiga í hlut. Svo mun hafa verið
á dögunum þegar yfirmaður
Rafmagnseftirlits ríkisins fór
til Kína á norrænan sam-
starfsfund og á heimleiðinni
var komið við á Svalbarða. ■
Umboðsmenn
Þjóöviljann vantar umboðsmenn á Húsavík og
Dalvík. Vinsamlegast hafiö samband við af-
greiðslu blaðsins í síma: 91-681333.
þJÓÐVILIINN
Aðalfundur
Aðalfundur Útgáfufélags Þjóðviljans verður
haldinn fimmtudaginn 5. júlí nk. að Hverfisgötu
105, og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Veldu aðeins það besta
þegar þú terð út að borða
Einn hJuti verltsin
^öku/sZt”ftrerUbva»'
^pauesWunZrfsSummm,Unum
finmanniál - hrrt„ j mar með
^Aðsenda ð,aunverðaí|
^^“Or‘%*****'*
5'm'ISar'°S,1öfundarfbVa'dar10
XWkr. v/ðurkenn' Þe,rra fa
sPaug/ð send/st b Un®U flVcr-
pf'ÍTta,u"dm
^<>sthoirsi94
12sReykjavík
VERVM EKK! HRvcr
KGG- VERUM j
* 6 kg. poki með hálfum lambsskrokk úr l.fl. A, snyrtum og sneiddum á grillið.