Þjóðviljinn - 29.06.1990, Blaðsíða 8
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviijans
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Ritstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Kartsson
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Úðit: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson
Afgreiðsla: * 68 13 33
AuglýsÍngadeHd:« 681310 - 6813 31
Símfax: 68 19 35
Verð: 150 krónur I lausasölu
Setning og umbrofc Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Pnentun: Oddl hf.
Aðsetur: Siðumúla 37,108 Reykjavik
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Miðstjórnarfundur
Alþýðubandalagsins
í kvöld hefst á Egilsstöðum miðstjómarfundur
Alþýðubandalagsins og stendur fram á sunnu-
dag. Landsfundur var haldinn í fyrra og sam-
kvæmt lögum flokksins ber að halda miðstjómar-
fund þrisvar þau ár sem ekki er haldinn lands-
fundur. Fyrsti miðstjómarfundur ársins 1990 var
haldinn í febrúar, svo tímasetning fundarins núna
er mjög eðlileg og ekki til komin vegna þeirra
heitu umræðna sem hafa átt sér stað innan
flokksins undanfarið. Hins vegar stjómar mið-
stjómin málefnum Alþýðubandalagsins í umboði
landsfundar og mótar pólitíska stefnu flokksins
þegar ekki liggja fyrir stefnuyfirlýsingar lands-
fundar. Fundurinn axlar því mikla ábyrgð og get-
ur haft veruleg áhrif á gang mála. Af þessum sök-
um er mikilvægt að sem flestir þeirra sem tök
hafa á sæki miðstjómarfund og vanhugsað að
hunsa hann, eins og þó hefur bryddað á núna.
Nauðsyn þess að sem flestir mæti á fundinn
er enn skýrari í Ijósi þess að mörg mikilvæg mál-
efni liggja nú fyrir ríkisstjóm, sem varða ma. stór-
iðju og Evrópusamstarf, er því augljóst að mið-
stjómarfundurinn núna hefur brýnum verkum að
sinna. Fyrir utan almennar stjómmálaumræður
enj á dagskrá hans sérstaklega störf ríkisstjóm-
arinnar og árangur í efnahagsmálum, úrslit sveit-
arstjómarkosninganna, stjómmálaástandið og
staða flokksins, flokksstarfið og undirbúningur Al-
þingiskosninga, sjávarútvegsmál og landbúnað-
armál.
Þótt þessum miðstjómarfundi sé ekki ætlað
að fjalla um stefnuskrá Alþýðubandalagsins, þá
vill svo til að þessa dagana hefur Alþýðubanda-
lagið verið að senda til umfjöllunar í flokksfélög-
unum um land allt drög að nýrri stefnuskrá flokks-
ins undir heitinu „Lýðræði og jöfnuður”. Undirtitill
draganna er „Bætt lífskjör, blómleg menning, ís-
lenskt forræði.” Á haustfundi miðstjómar verður
síðan kosin ný stefnuskrámefnd til að fullvinna
drögin og leggja fýrir næsta landsfund. Alþýðu-
bandalagsmenn standa þess vegna frammi fyrir
því um þessar mundir að kveðja margt í þeirri
stefnuskrá sem þriðji landsfundur flokksins sam-
þykkti fyrir tæpum 16 ámm. Nýju stefnudrögin
em að miklum mun einfaldari og hnitmiðaðri í
sniðum en gamla stefnuskráin, geyma meginlín-
ur en höfundar þeirra ætla sér ekki þá dul að gefa
jafn nákvæmar forskriftir að þjóðfélaginu og áður
tíðkaðist.
í formála sínum að nýju stefnuskrárdrögunum
segir Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, ma. í framhaldi af orðum um
stjómmálaþróunina annars staðar í Evrópu: „En
séraðstæður okkar benda einnig til að við lifum
tímabil þáttaskila í íslenskum stjómmálum. Miklar
breytingar eru að verða á íslensku samfélagi, í
efnahagslífinu, í félagsmálum og í menningarieg-
um efnum. Þessar breytingar hafa undanfarin ár
vakið mikla ólgu og valdið verulegu umróti á hinu
pólitíska sviði, og þeirtímar umbrota, gerjunar og
nýsköpunareru engan veginn liðnir.” Miðstjómar-
fundurinn núna fer fram við þær aðstæður að
ólga af ýmsum toga leikur um flokkinn og forystu-
menn hans. Sumt af henni á sér rætur innan Al-
þýðubandalagsins, en annað er hluti af þeirri
endursköpun og gerjun þjóðfélagsmálanna og
stjómmálanna almennt sem formaður flokksins
nefnir í ofangreindum formálsorðum að stefnu-
skrárdrögum. Það byggist því á hættulegri
skammsýni ef menn freistast til þess að halda að
þeir leysi ágreining sinn og vandamál með því að
beina sjónum eingöngu að flokksstarfinu, foryst-
unni og kosningaúrslitunum í maí sl. Brýnt er að
flokksmenn hafi það hugfast að þeim býðst að
vera þátttakendur í uppbyggingarstarfi jafnaðar-
manna á íslandi, og að nokkru er til fómandi á
persónulegum grunni til að stuðla að langtíma-
markmiðum félagshyggjufólks. ÓHT
• %
ÞAB HEFBl EUAHVER.
KiT AÐ VAR'ANN Vib.
RBSNíáALtÍ DUSAR.
bbtur hérAlanuí.
8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 29. júní 1990