Þjóðviljinn - 29.06.1990, Blaðsíða 18
„Svona er prógrammið"
Að veldi Lajos Portisch í ungversku skáklífi sem stendur enn
í viötali sem dagblað í Reykjavík
átti við Boris Spasskí er heimsbikar-
mót Stöðvar 2 stóð yfir haustið 1988
sagði heimsmeistarinn fyrrverandi frá
því er hann flatmagaði við bakka
Laugardalslaugar og Lajos Portisch
besti skákmaður Ungverja í meira en
30 ár steig upp úr lauginni að aflokn-
um kflómetra spretti og Spasskí
spurði hann eitthvað á þá leið hvort
þetta væri nú nauðsynlegt. Svarið
sem hann fékk er einkennandi fyrir
Portisch: „Það veit'ég ekkert um en
svona er prógrammið."
Þetta er dæmigerð lýsing á Lajos
Portish sem enn og aftur kveður sér
hljóðs með frábærri frammistöðu
jafnvel þó hann sé kominn af léttasta
skeiði. I lokamóti Stórmeistarasam-
bandsins, GMA, sem lauk í Moskvu í
upphafi þessa mánaðar sannaði Port-
isch enn styrk sinn og ávann sér rétt til
þátttöku í heimsbikarmótunum. Það
er athygiisvert að sama tíma sat landi
hans Zoltan Ribii heima og í von um
að komast beint áfram á reiknuðum
meðalstigum. Ribli er sennilega
blauðasti skákmaður heims og nú er
það staðreynd að honum hefur orðið
að ósk sinni og kemst áfram sem er
reginhneyksli í skákheiminum eink-
um þegar horft er til þess að meistarar
á borð við Ivantsjúk og Gelfand sem á
óbirtum lista FIDE munu sitja jafnir í
þriðja sæti með 2680 Elo stig sitja hjá.
f Ungverjalandi hefur Ribli fyrir
margt löngu myndað þríeyki með
stórmeisturunum Sax og Pinter og
þeir hafa lengi beðið þess að Portish
félli af stalli. Enn virðist nokkur bið
æltla að verða á því. Undanfarið hafa
frá þessum stórmeisturum gengið svo
harðvítugar ásakanir í garð Portisch
að með ólíkindum má telja. Sax hélt
því nýlega fram aí viðtali að Portisch
hefði árum saman reynt að hamla
skákferli sínum með öllum tiltækum
ráðum og svo hefði einnig verið og
margir aðrir ungverskir skákmenn
hefðu sömu sögu að segja. Portisch
svaraði fyrir sig í viðtali sem birtist
nýlega í hinu virta tímariti New in
chess. Ekki ætla ég að rekja efni þess-
ara deilna í smáatriðum en það stend-
ur eftir að Portisch hefur lýst því yfir
að hann muni ekki framar tefla í Ól-
ympíuliði Ungverja. Hann er ekki
maður orða og viðtalið í New in chess
er eitt fárra sem birst hafa við hann.
Mér segir svo hugur að hann kjósi
frekar að láta verkin tala enda hefur
svo farið í viðureignum hans við Sax
að í svo til hvert einasta skipti sem
þeir mætast hefur Sax orðið að láta í
minni pokann.
Portisch fékk skákmenntun sína í
„skóla“ Botvinniks sem aldrei gerði
ráð fyrir neinum frávikum frá pró-
gramminu.
Svo við snúum okkur að mótinu í
Moskvu þá setti það mark sitt á
keppnina að vegna sérstakra reglna
gátu aðeins fimm Sovétmenn vænst
þess að komast áfram en að öðru leyti
voru sjö sæti laus. Mótinu gerði ég
skil fyrir nokkrum vikum en því lauk
þannig að fimm skákmenn urðu efstir
með 7 vinninga sem er afar lágt vinn-
ingshlutfall en segir nokkuð um gang
mála. Portisch var efstur ásamt So-
vétmanninum Baarev en ætlaði sér
um of í innbyrðis uppgjöri þeirra og
tapaði en hlaut að lokum 6V6 vinning
sem dugði.
Hann tefldi við Sax í 7. umferð.
Þeir stóðu báðir vel að vígi með 4
Helgi
Ólafsson
vinninga úr sex skákum en jafntefli
kom aldrei til greina. Sax var eins og
dæmdur maður í þessari skák. Hann
gerðí þau mistök að tefla eitt af þess-
um klassísku afbrigðum af Nimzoind-
verskri vörn óg þau þekkir Portisch
betur en nokkur annar. Ég man ekki
betur en að sjálfur Tigran Petrosjan
hefði ratað í eigi ósvipaða stöðu með
biskup og riddara gegn biskupum
Portisch. En það er reginmunur á Sax
og Tigran sáluga sem beitti allri sinni
varnartækni og hélt jöfnu.
Moskva 1990, 7. umferð:
Lajos Portisch - Guyla sax
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6
2. cd4 e6
3. Rc3 Bb4
4. e3 0-0
5. Bd3 d5
6. Rf3 dxc4
7. Bxc4 Rbd7
8. Db3 c5
9. 0-0 a6
10. a4 Hb8
11. Hdl Dc7
12. Bd2 b6
13. Hacl Bb7
14. Be2 Bxc3
(Sax hefur áreiðanlega séð lengi eftir
þessum leik. Hann lætur biskupapar-
ið af hendi og eftir að staðan opnast
ráða biskupar Portisch lögum og
lofum.)
15. Bxc3 Re4
16. Bel Bd5
17. Da3 Db7
18. Re5!
(Sterkur stöðulegur Ieikur einkenn-
andi fyrir Portisch. Eftir 18. .. Rxe5
19. dxe5 er 19. .. h6 þvingað og svart-
ur nær öflugu frumkvæði með 20. f3
Rg5 21. h4 Rh67 22. e4 Bc6 23. Hd6
o.s.frv.)
18. .. Ref6
19. Rxd7 Rxd7
20. f3 cxd4
21. e4 Bc6
22. Hxd4 Hbc8
23. b4 b5
24. a5 Re5
25. Bf2 h6
26. Hddl Hfd8
27. De3 Rc4
28. Da7!
(Drottningaruppskiptin styrkja stöðu
hvíts því svartur á erfitt með að verja
veikleikana á svörtu reitunum og í
peðastöðunni á drottningarvæng.)
28. .. Dxa7 32. Kf2 f6
29. Bxa7 Hd7 33. g4 Kf7
20. Hxd7 Bxd7 34. h4
31. Hdl Be8
Vmningsáætlun Portisch er tiltölu-
lega einföld. Hann myndar peða-
storm á kóngsvængnum og skapar þar
með enn frekari veikleika í stöðu
svarts.)
34. .. Ke7
35. Hgl Kf7
36. g5 fxg5
37. hxg5 h5
38. Hhl g6
39. Hdl Re5
40. Bc5 Rc6
41. Hd6 Hd8
42. f4 Hxd6
43. Bxd6 Bd7
44. Ke3 Kg7
45. Bf3 Be8
46. Bc5 Kh7
47. Kf2 Kg8
48. Kg3 Rd8
49. Be7 Rc6
50. Bd6 Rd4
51. Bdl Bd7
52. Bc5 Rc6
53. Bf3 Be8
54. f5!
(Þessi peðaframrás ræður úrslitum.
Hvítur nær að ryðja kóngi sínum
braut á meðan kollegi hans kemst
ekkert.)
54. .. exf5
55. exf5 gxf5
56. Kf4 h4
57. Kxf5 Kg7
58. Kf4 Bd7
59. Be4 Rd8
6Ö. Bd4+ Kg8
61. Bf6+
62. Ke5
- Hér fór skákin í bið en Sax gafst upp
án frekari taflmennsku. Hann brotn-
áði við þetta tap og hlaut aðeins einn
vinning úr fjórum síðustu skákunum.
Vissulega hefur Portisch hamlað fra-
mgang hans á skáksviðinu.
Norðurlandamótið að hefjast
Norðurlandamótið í Opnum
flokki og kvennaflokki hefst nú
um helgina. Spilað er í Þórshöfn í
Færeyjum að þessu sinni og er
þetta í fyrsta skipti sem mótið er
spilað þar. ísland sendir lið til
þátttöku í báðum flokkum. Lið
okkar í Opnum flokki er skipað:
Karl Sigurhjartarson, Sævar Þor-
björnsson, Þorlákur Jónsson,
Guðmundur Páll Arnarson,
Guðlaugur R. Jóhannsson og
Örn Arnþórsson. Fyrirliði er
Hjalti Elíasson. Þrír þeir fyrst-
nefndu urðu Norðurlanda-
meistarar 1988, er mótið var spil-
að hér heima og eiga því titil að
verja,
Lið okkar í kvennaflokki
skipa: Esther Jakobsdóttir, Val-
gerður Kristjónsdóttir, Anna
Þóra Jónsdóttir og Hjördís
Eyþórsdóttir. Fyrirliði er Sig-
mundur Stefánsson.
Skrifstofa Bridgesambandsins
hefur ekki séð ástæðu til að
kynna þetta stórmót sérstaklega
fyrir bridgeáhugafólki hér á
landi. Af þeim ástæðum er erfitt
að greina frekar frá þessu móts-
haldi. Ef að líkum lætur, verður
þetta strembið mót, því ná-
grannaþjóðir okkar eru meðal
þeirra bestu í heiminum í íþrótt-
inni. Liðsskipan sveita þeirra er
því stóra spurningin í umfjöllun
þáttarins.
Karlaliðið ætti þó að eiga góða
möguleika, sérstaklega ef dags-
formið verður í lagi.
Umsjónarmaður óskar liðun-
um góðrar ferðar og góðs árang-
urs.
Nokkrir leikir voru á dagskrá
Bikarkeppni Bridgesambandsins
um sfðustu helgi. Sveit Estherar
Jakobsdóttur Reykjavík sig’-aði
sveit Skúla Jónssonar Sauðár-
króki með um 40 stiga mun. Sig-
ursveitin mun mæta sveit Sig-
mundar Stefánssonar í 2. umferð.
Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar
sigraði sveit Hótel Hafnar á
Hornafirði, nokkuð örugglega.
Sveitin mun mæta Guðlaugi
Sveinssyni og félögum frá
Reykjavík í 2. umferð, en þeir
síðarnefndu sigruðu sveit Eð-
varðs Hallgrímssonar Skaga-
strönd í jöfnum og skemmti-
legum leik. Sigurinn byggðist á
alslemmu í síðustu lotu, sem
norðanmenn sögðu en töpuðu, á
meðan hógværir sunnanmenn
létu hálfslemmu nægja. Alslem-
muna mátti vinna með þvf að
finna dömuna í trompi, sem lá
þriðja úti gegn einu.
Búast má við á næstu dögum að
meira fjör færist í keppnina og
leikjum fjölgi nokkuð. Enn er ól-
okið 10 leikjum úr 1. umferð.
Á þessum síðustu og verstu
(eða þannig) er alltaf ánægjulegt
að geta greint frá jákvæðum
„fréttum“. Ungaparið okkar,
Ljósbrá Baldursdóttir og Matthí-
as Þorvaldsson (landsliðsmaður í
yngri flokki) hafa sett upp hring-
ana. Umsjónarmaður samgleðst
þessu ágæta bridgefólki og árnar
þeim velfarnaðar á komandi
árum.
Athyglisvert er þegar meist-
arastigaskránni sem BSÍ gaf út í
vor er flett, að ýmislegt virðist
vera að í skráningu stiga. Sem
dæmi um áunnin stig á síðasta
keppnisári (frá áramótum 1989 til
áramóta 1990) má taka Jón Sigur-
björnsson frá Siglufirði. Hann er
sagður hafa áunnið sér hvorki
meira né minna en 428 silfurstig á
einu ári. Aðrir í fjölskyldu Jóns á
Siglufirði eru einnig mjög stiga-
háir í silfurstigum á síðasta ári.
Ásgrímur Sigurbjörnsson hefur
áunnið sér 368 stig, Steinar Jóns-
son sonur hans 322 stig, Anton
Sigurbjörnsson 277 stig, Ólafur
Jónsson, sonur Jóns, með 264
stig. Þessir fjórir spilarar erú
hæstir yfir landið í silfurstigum á
síðasta ári. Getur það staðist?
Stigefsti silfurstigaspilari frá
upphafi (1976, er skráning stiga
hófst) er Jón Baldursson. Hann
hefur áunnið sér inn samtals 1960
silfurstig eða að meðaltali 130 stig
á ári. Sú tala þykir nær lagi (í
meðaltali) heldur en þau 428 silf-
urstig sem Jón Sigurbjörnsson er
skráður fyrir á síðasta keppnisári.
Spilarar hér innanlands verða að
geta treyst því að skrifstofa
Bridgesambandsins yfirfari að-
send stig og skrái þau til sam-
þykktar, ef rétt er að hlutunum
staðið. Mig grunar sterklega að
norðanmenn, vestanmegin og
austanmegin, misnoti sér yfirgjöf
stiga í þeim mótum sem þeir hafa
staðið fyrir sameiginlega. Ein
leiðin er að gefa „uppbótarstig" í
sínum eigin meistaramótum,
innan svæðis. Með þessari aðferð
ætti að vera hægur vandi fyrir
góðan spilara, eins og Jón Sigur-
björnsson tvímælalaust er (og
sama gildir um alla hans fjöl-
skyldu) að „næla“ sér í þetta 300-
500 silfurstig yfir árið.
Það er með öllu óþolandi að
fólk sem býr ekki yfir lágmarks-
þekkingu á meistarastigum, sé
með lúkurnar í þeirri vinnu, sem
vinna þarf.
Oft er talað um tvær tegundir
af spilamennsku innan bridges-
ins. Sú fyrri á við sveitakeppnis-
spilamennsku og hin síðari um
tvímenningsspilamennsku. Fáir
spilarar hafa aðferðafræðin í lagi í
báðum flokkunum. Þeir eru þó til
nokkrir.
Lítum á dæmigert spil fyrir tví-
menningin (ég nenni ekki að
fjalla um sveitakeppnissniðið;
þar gildir að fá þá slagi sem þú
þarft, ekki prik meira ef þú vilt
ekki hætta spilinu um of).
Norður/Suður á hættu, Norður
gefur;
S: Á10642
H: 85
T: D2
L: D532
S: 8 S: D73
H: DG762 H: ÁK104
T: 54 T: G873
L: ÁG1098 L: K7
S: KG95
H: 93
T: ÁK1096
L: 64
Sagnir ganga:
Norður Austur Suður Vestur
Pass 1 hjarta 1 spaði 4 hjörtu
4 spaðarPass Pass Dobl
Pass Pass Pass
Nokkuð djörf ákvörðun hjá
Norður, miðað við hættur í spil-
inu. Tveir niður doblaðir gefa A/
V 500 í sinn hlut, meðan 4 hjörtu
slétt staðin gefa 420. Greinilega
stefnir í botn (lágmarksskor) hjá
N/S nema sagnhafi finni dömuna
í spaða. Ef sagnhafi hins vegar fer
einn niður, fá A/V 200 í sinn hlut,
sem getur reynst toppur ef 4
hjörtu vinnast. Nú, útspil Vesturs
er hjartadrottning og síðan hjart-
agosi, þá laufaás og síðan laufa-
gosi lítið úr borði og Austur drep-
ur á kóng. Austur skilar lágum
tígli um hæl, við látum tíuna og
lágt frá Vestur. Hvað nú? Ef
spaðinn er 2-2 hjá A/V og tígull-
inn ekki verri en 4-2 þá tapast
alltaf 4 hjörtu. En ef spaðinn
reynist vera 3-1 og tígullinn enn-
þá ekki verri en 4-2 (má ekki vera
3-3) þá vinnast alltaf 4 hjörtu.
Sagnhafi verður því að búa sig
undir 3-1 leguna í spaða. Austur
er búinn að sýna okkur að hann á
aðeins 2 lauf (þegar kóngurinn
kom í gosann) og þar af leiðandi
eru yfirgnæfandi líkur á að
Austur haldi á lengdinni í spaða.
Rétt spilamennska er því að spila
lágum spaða að ás og svína síðan
spaðagosa, þegar Austur lætur
lágt í annan spaðann. Með þeirri
aðferð vinnst: 4 hjörtu vinnast og
þess vegna eru 4 spaðar doblaðir
einn niður - 200 toppskor á spil-
ið. Aðferðafræði sem þessi er
nauðsynleg í tvímenningskeppni,
vilji menn ná árangri.
18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÉ Föstudagur 29. júni 1990