Þjóðviljinn - 29.06.1990, Page 25
LAUGARÁSBÍÓ
Allltaf (Always)
Leikstjóri: Steven Spielberg
Handrit: Jerry Belson
Kvikmyndataka: Mikael Salomon
Aðalleikarar: Richard Dreyfuss,
Holly Hunter, John Goodman
1944 var gerð mynd með
Spencer Tracy í aðalhlutverki
sem hét „ A guy named Joe“. Hún
var um flugmann í stríðinu sem
deyr en kemur aftur (sem
draugur) til að hjálpa kærustunni
sinni að ná í nýjan mann. Konur
voru jú alltaf að missa mennina
sína á þessum tímum og það var
eflaust huggun fyrir sumar að
geta ímyndað sér dána kærasta í
draugalíki þegar allt var á bömm-
er.
Spielberg hefur sagt að þetta sé
ein af hans uppáhaldsmyndum og
hann hafi alltaf langað til að
endurgera hana. og hann lætur
ekki sitja við orðin tóm.
Alltaf gerist samt ekki í stríðinu
heldur í nútímanum. Dreyfuss
leikur glæfralegan flugmann sem
slekkur skógarelda einhversstað-
ar í Bandaríkjunum og deyr með
bros á vör í miðjum eldsvoða.
Þetta er alveg sérstaklega sorg-
legt af því hann var búinn að lofa
konu sinni (Holly Hunter) og vini
(John Goodman - maðurinn
Einum of
hennar Roseanne) að hætta að
slökkva elda og fara að kenna
það í staðinn. Dreyfuss fær held-
ur ekki að vera dáinn í friði.
Audrey Hepburn, sem er engill í
hvítum trimmgalla, sendir hann
(sem draug) aftur til jarðar til að
kenna ungum flugmanni (Brad
Johnson) að fljúga. Ungi flug-
maðurinn kynnist ekkjunni og
Dreyfuss þarf að leiðbeina hon-
um við fleira en flugið áður en
yfir lýkur.
Að ásaka Spielberg um væmni
væri eins og að ásaka Spaugstof-
una um að vera fyndnir. Myndin
þrýstir á tárakirtlana frá byrjun
til enda og hún er rúmlega
tveggja tíma löng. Bara þessi sí-
fellda endurtekning á gamla
Platterslaginu, Smoke gets in
your eyes, er nóg til að kreista
fram nokkur tár.
Spielberg er náttúrlega
reyndastur í að gera spennu-
myndir á borð við Indiana Jones
og þar standa honum fáir á
sporði, og mér fannst flugsatriðin
í Alltaf bera af, því þar er hann að
gera nokkuð sem hann kann
mjög vel. En afgangurinn af
myndinni er eiginlega... einum
of! Einum of margar nærmyndir
af tárvotum andlitum osfrv.
Þó er seinni hlutinn að mörgu
leyti skárri en fyrri hlutinn,
Dreyfuss sem draugur er meira
sannfærandi en Dreyfuss í hlut-
verki hins glannalega flugmanns
(það er svona týpískt John Wa-
yne hlutverk). Hunter og Good-
man eru væmin og fyndin í bland,
en mér finnst að það hefði mátt
blanda öðruvísi, þ.e. leggja meiri
áherslu á fyndnina.
Myndataka, tónlist og öll
tæknileg atriði eru náttúrlega
óaðfinnanleg. Spielberg er alveg
einstakur handverksmaður.
Spurningin er hvort hann er lista-
maður líka.
TJALDIÐ
HÁSKÓLABÍÓ
Vinstri fóturinn****
(My left foot)
Algjörlega yndisleg mynd sem maöur get-
ur ekki annað en fallið fyrir, nokkurskonar
óður til líkamshluta. Daniel Day Lewis sýnir
fyrir manni í hlutverki Christy Brown að
vinstri fótur er allt sem maður þarf til að
vera sjarmerandi og sexý.
SIF
Shirley Valentine*.**
Pauline Collins fer á kostum sem Shirley
Valentine (Þetta er klisja en það er alveg
satt). Shirley er kona sem talar við eldhús-
vegginn sinn, af því allir aðrir í kringum
hana eru svo leiðinlegir. Svo talar hún líka
við stein en hann skilur hana ekki af því
hann er grískur. Þetta er skemmtileg mynd
um konu sem er dálítið galin og skammast
sín ekkert fyrir það.
SIF
Cinema Paradiso*.***
(Paradísarbíóið)
Það er I rauninni fáránlegt að vera að gefa
svona mynd stjörnur, því hún er langt yfir
alla stjörnugjöf hafin. Svona mynd er að-
eins gerð einu sinni og þessvegna má eng-
inn sem hefur hið minnsta gaman af kvik-
myndum missa af henni.
SIF
Siðanefnd lögreglunnar .641/2
(Internal affairs)
Það eru aðalleikararnir Gere og Garcia
sem fá þessar stjörnur. Þeir eru báðir góð-
ir, allt of góðir fyrir þetta lélega handrit sem
er mengað af kvenfyrirlitningu.
SIF
Látum'ða flakka**
(Let it ride)
Þægileg gamanmynd með hnittnum til-
svörum og góðum leik hjá aðalleikurunum,
Dreyfuss og Garr.
BÍÓBORGIN
Kynlíf, lygi og myndbönd****
(Sex, lies and videotape)
Þetta er óvenjuleg mynd um venjulegt fólk
sem talar saman og sefur saman sitt á
hvað. Það er ógerlegt að útskýra hvað það
er sem gerir það að verkum að maður vill
ekki fara heim þegar myndin er búin. En
svoleiðis er það nú samt. Drífið ykkur.
SIF
STJÖRNUBÍÓ
Stálblóm***
(Steel magnolias)
Þetta er ekki „skemmtilegasta gaman-
mynd allra tíma" eins og stendur í auglýs-
ingunni. Þetta er reglulega skemmtileg
mynd um líf sex vinkvenna í smábæ. En
lífið er ekki alltaf tóm skemmtun svo aö þið
skuluð taka einn vasaklút með.
SIF
LAUGARÁSBÍÓ
Hjartaskipti*1/^
(Heart Condition)
Ósköp slappur tryllir með Bob Hoskins I
hlutverki lögreglumanns sem fær hjarta úr
svertingja (sem hann hatar) þegar hans
hættir að virka. Nokkrir góðir brandarar
gera myndina ekki þess verða að sjá hana
og manni dettur helst í hug að Hoskins sé
þarna vegna einhverra mistaka.
SIF
Ekið með Daisy****
(Driving miss Daisy)
Þetta er afar ótípísk Óskarsverðlauna-
mynd, aðeins tveir aðalleikarar og þeir
báðir komnir yfir sextugt. Þetta er hlý og
manneskjuleg mynd sem fjallar um vináttu
og kynþáttafordóma og það að eldast i
rólegheitum.
íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur, í samráði við
íþróttabandalag Reykjavíkur og íþróttasamband íslands halda íþróttadag Reykjavíkur 30. júní n.k.
Ákveðið er að halda daginn í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ, en hún stendur yfir frá 28. júní - 1. júlí.
Það sem boðið verður uppá verður m.a.:
I VESTUBÆJARLAUG,
LAUGARDALSLAUG,
SUNDHÖLLINNI og BREIÐHOLTS-
LAUG verður opið frá kl. 7.30-17.30.
Enginn aðgangseyrir er og jafnframt
leiðsögn í SKOKKI og SUNDI.
BARNALEIKTÆKI eru við Laugardalslaug
frá kl. 13 -17. í öllum laugunum verða
flotleikföng fyrir börn.
HJÓLABRETTAPALLAR
verða við Seljaskóla, Ársel
og Grandaskóla.
( NAUTHÓLSVÍK verður almenningi boðin
afnot af bátum siglingaklúbbsins ásamt leið-
sögn frá kl. 13-17.
ETENNISVELLIR VÍKINGS og við GERVI-
GRASVÖLLINN í LAUGARDAL verða opnir
almenningi, án endurgjalds, frá kl. 13-16.
Leiðsögn í grunnatriðum tennisíþróttarinnar
verður á sama tíma.
KEILUSALURINN
í ÖSKJUHLÍÐ verður með
kennslu fyrir byrjendur frá
kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis.
GÖNGUFERÐ UM VIÐEY. Skipulagðar verða
gönguferðir um Viðey, frá kl. 13-17, með
vönum fararstjórum. Ferðir til og frá Viðey
verða ókeypis.
GOLFVÖLLURINN
VIÐ KORPÚLFSSTAÐI
verður opinn almenningi,
án endurgjalds, frá
kl. 13-17. Leiðsögn fyrir
byrjendur verður á staðnum.
SEGLBRETTI
Á sama tíma verður boðin ókeypis kennsla í
siglingu á SEGLBRETTUM sem lánuð eru á
staðnum.
Eins og sést á dagskránni er einkum lögð
áhersla á fjölskylduíþróttir, enda verður
mjög viðamikil íþróttastarfsemi fyrir börn og
unglinga, á sama tíma á vegum ÍSÍ.
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25