Þjóðviljinn - 31.08.1990, Síða 5

Þjóðviljinn - 31.08.1990, Síða 5
• • it^ a cfd ut i 11 o jUij 1 UDAGhrKKI I liv Almálið Staðarval ekki enn á dagskrá Svavar Gestsson, menntamála- ráðhcrra, segir enga ákvörð- un hafa verið tekna um það hvar nýju álveri verði valinn staður. - Þeirrar ákvörðunar er vart að vænta á næstunni, sagði Svavar þegar hann var inntur eftir þeim ummælum Karls Steinars Guðnasonar þingmanns Alþýð- uflokksins á opnum fundi í Kefla- vík í gær um álmálið þess efnis að Atlantál-hópurinn vildi að nýtt álver yrði staðsett á Keilisnesi. - Undirbúningur málsins er Svavar Gestsson: Atlantál-hópurinn hefur ekki tekið afskarið um staðarval. einfaldlega ekki kominn á það stig að unnt sé að gera raunhæfan samanburð hvað kostnað og um- hverfisþáttinn áhrærir á þeim stöðum sem nefndir hafa verið til sögunnar, sagði Svavar, - en síðamefndi þátturinn er mikil- vægastur í mínum huga. Þá á ég ekki aðeins við þá hlið málsins er lýtur að hugsanlegri loftmengun og nánasta umhverfi, heldur einnig félagslega þættinum sem verður að hyggja vel að. í fréttum Ríkisútvarpsins í gær- kvöldi var staðhæft að fréttastof- an hefði áreiðanlegar heimildir fyrir því að Atlantál-hópurinn hefði þegar ákveðið að Keilisnes yrði fyrir vaiinu. Karl Steinar staðfesti þetta í viðtali við Út- varpið. Hann sagði það hafa komið skýrt fram í viðræum sín- um við forstjóra tveggja fyrir- tækjanna úr Atlantál-hópnum að aðeins kæmi til greina að nýju ál- veri yrði fundinn staður á Keilis- nesi og væri formlegrar ákvörð- unar þar að lútandi að vænta innan þriggja vikna. Þá gaf Karl Steinar það fylli- lega til kynna að afstaða ráðherra Alþýðubandalagsins væri eina hindrunin sem væri í vegi fyrir því að staðarvalið hefði ekki þegar verið ákveðið. fyrir, enda hafa forstjórarnir ekki tekið af skarið og nefnt einn stað öðmm fremur. Svavar Gestsson sagði að þess væri miklu lengur að bíða en þriggja vikna áður en ákvörðun yrði tekin um staðarvalið. - Við- ræðumar em á afar viðkvæmu stigi eins og stendur. í gær ræddu forsætis- og fjármálaráðherra við forstjóra Alumax og frá þeim við- ræðum liggja engar niðurstöður Svavar sagði það ekki nýtt að Karl Steinar léti ummæli af marg- víslegu tagi falla um ráðherra Al- þýðubandalagsins. - Þessi um- mæli em líkust útbrotum og van- líðan Alþýðuflokksins svo skömmu fyrir kosningar. Sannast sagna tek ég orð Karls Steinars ekki alltof hátíðlega, sagði Svav- ar. -rk Bandaríski kvikmyndaleikarinn Jon Voight er nú staddur hér á landi til að kynna nýjustu mynd sína „Etemity". Á blaðamannafundi í gær ásamt leikstjóra og framleiðanda myndarinnar, Steven Paul, sagði Voight að „Eternity" væri lítil, ódýr, hógvær og bjartsýn mynd sem vonandi gæti keppt við stórar og dýrar myndir í vinsældum. „Eternity" verður frumsýnd hér á landi í október. Mynd: Kristinn. VASK gf bókum Útgefendur í sjöunda himni Virðisaukaskattur ekki innheimtur afbókum eftirhelgi. Bókaútgefendur: Gamalt baráttumál okkar Eftir helgina geta menn keypt sér bækur án virðisaukaskatts og munu bækur að öllu jöfnu lækka um 19,68% af þeim sökum. Þetta hefur lengi verið baráttumál bókaútgefenda og -sala og eru þeir nú í sjöunda himni og sjá fram á betri tíð með blóm í haga hvað bókasölu varð- ar. Páll Kristjánsson sölustjóri hjá Vöku/Helgafelli segir að beðið hafi verið eftir þessu í langan tíma. „Við grípum þetta fegins Arnarflug Tíminn að renna út Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra segir að það sé ekki rétt sem fram hefur komið í fjölmiðlum, að ráðuneytið hafl lagt það til við stjórn Arnarflugs að Flugleiðir sinni áætlunar- leiðum þess til 1. febrúar á næsta ári, á meðan unnið yrði að endur- skipulagningu á fjárhag félagsins. Hins vegar sagði samgöngu- ráðherra að í samtölum sínum við stjórn Arnarflugs í fyrradag og í gær að tími þeirra til að koma félaginu á kjöl á nýjan leik væri útrunninn. Stjórn félagsins yrði að gera það upp við sig í dag eða í síðasta lagi næstu sólarhringa um það hvort þeim takist ætlunar- verk sitt eða ekki. Ef ekki, yrði annar aðili að taka við. Hver það yrði vildi ráðherra ekki svara. Steingrímur sagði að ísflug hefði ekki leyfi til áætlunarflugs og uppfyllti ekki nauðsynleg skilyrði sem til þarf og frá þeim yrði ekki hvikað. Um átta leytið í gærkvöld kom svo stjórn Arnarflugs til fundar við ráðherra í samgönguráðu- neytinu. Niðurstaða þess fundar lá ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun. -grh Skúli Alexandersson Eitt allsherjar bull Samþykkt þingflokks AB um smábátaveiðar er alvegyfirgengileg samsuða. Kaup fyrirtœkja á kvótum smábátafjármögnuð afríkis- bönkum Skúli Alexandersson þingmað- ur Alþýðubandalagsins á Vesturlandi segir að samþykkt þingflokks AB um smábátaveiðar frá því á þriðjudag sé eitt allsherj- ar bull og alveg yfirgengileg sam- suða. En Skúli var fjarverandi þegar þingflokkurinn kom sam- an. Skúli segir að þingflokkur sem samþykkti lög um stjómun fisk- veiða á Alþingi í vor geti ekki látið frá sér fara aðra eins vitleysu .og samþykkt hans um smábáta- veiðar ber með sér. „Nema að þessi samþykkt feli í sér að það hafi orðið hugarfarsbreyting hjá þeim sem vildu ekki ganga að til- lögum mínum þá. Þær gengu út á það að girt yrði fyrir það að hægt yrði að selja kvóta smábáta yfir í aðra útgerðarflokka. Núna tala Flugumferðastjórar Settir í þjóðarsátt Kjarasamningur flugumferðar- stjóra og fjarmálaráðuneytis- ins sem undirritaður var um miðjan júlí fellur undir bráða- birgðalögin. Þetta er álit Guðna Á Haraldssonar hrl., en hann samdi álitsgerð fyrir ASÍ um samninginn. Af þessu leiðir að sá hluti samningsins sem kveður á um bætur fyrir styttri starfsævi og fleiri atriði kemur ekki til framkvæmda. Hins vegar kemur hinn hluti samningsins, sem felur í sér sömu launahækkanir og fel- ast í þjóðarsáttinni svokölluðu, til framkvæmda. Mörður Árnason upplýs- ingafulltrúi fjármálaráðuneytis- ins segir að lögfræðingar ráðu- neytisins hafi farið yfir samning- inn og talið að þær hækkanir sem í samningnum og samkomu- laginu felast og eru umfram þjóð- arsáttina, sníðist af með bráða- birgðalögunum. Flugumferðar- stjórar hækka því ekki meira í launum en aðrir meðan bráða- birgðalögin eru í gildi. ns. þeir hinir sömu um „réttaróvissu og ringulreið" varðandi smábáta- veiðar og framsal á kvóta þeirra. Þetta gat hver hugsandi maður séð fyrir og þó ég hafi reynt mitt besta til að koma vitinu fyrir þingflokkinn í vor, náðu mínar tillögur ekki fram að ganga.“ Skúli segir að reglugerð sjávar- útvegsráðuneytisins um veiðar smábáta breyti engu í þessu máli. Hvað þá heldur þó svo að stjóm- um skuldum vafinna sveitarfé- laga í þessum sjávarplássum verði veitur forkaupsréttur að kvótanum sem seldur er á mark- aðsverði. „Það sem er kannski sýnu verst í þessu öllu er sú staðreynd að þeir aðilar sem eru að safna að sér kvóta smábáta era yfirhöfuð gjaldþrota fyrirtæki sem hefur verið haldið uppi af Atvinnu- tryggingarsjóði og Hlutafjár- sjóði. Síðan til að kóróna vit- leysuna er þessum sömu fyrir- tækjum lánað fé úr ríkisbönkum til að fjármagna kvótakaupin. Á sama tíma er þeim sem era heiðarlegir í sínum viðskiptum ýtt út í kuldann,“ segir Skúli Al- exandersson. -grh hendi og munum að sjálfsögðu lækka bækur á íslensku, en því miður verða bækur á erlendu máli áfram með virðisaukaskatt. T.d. bækur eftir Laxness sem við höfum látið þýða á erlendar tung- ur verða áfram skattskyldar. En þetta er fyrsta skrefið og það stórt,“ segir Páll. Flestir búast við aukinni bóka- sölu vegna þessarar aðgerðar, en ekki eru allir jafn bjartsýnir. Páll segist búast við að salan fari hægt af stað til að byrja með, en með aukinni kynningu og umfjöllun um bækur taki hún við sér. „Bók- inni verður gert virkilega hátt undir höfði eins og hún á skilið og við munum væntanlega verða með tilboð og fleira í tilefni af þessu,“ segir Páll. Katrín Árnadóttir fjármála- stjóri hjá Almenna bókafélaginu segir að það sé stórkostlegt fram- tak að virðisaukaskatturinn fari af bókum, og það hafi hreinlega verið nauðsynlegt fyrir bókina. „Ég hef trú á því að salan aukist, því bækur voru orðnar alltof dýr- ar. Það er mín tilfinning að bækur lækki jafnvel enn meira en sem nemur virðisaukaskattinum,“ segir Katrín. Bæði Páll og Katrín telja að jólabækurnar í ár verði á svipuðu verði og í fyrra, altént ekki dýr- ari. ns- Föstudagur 31. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5 Útvarp Rót Skólamál í Fésinu í kvöld kl. 19-21 verður þáttur- inn Nýtt Fés á Rótinni. Nýtt Fés er unglingaþáttur og er í umsjá Andrésar Jónssonar. í þessum þætti verður fjallað um skólamál vítt og breitt, en hæst mun þó bera ráðstefnuna „í leit að skóla- stefnu á unglingastigi“, sem nú stendur yfir í Réttarholtsskóla. Andrés segir að unglingar komi í heimsókn, en einnío verður talað við fulltrúa KÍ o tarald Finns- son úr undirbúi ;snefnd ráð- stefnunnar. Allii iglingar era hvattir til að hlusta á þennan merkilega þátt.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.