Þjóðviljinn - 02.11.1990, Page 2
Bak við háreistan vegg niður við Ægisgarð í Reykjavík hafa
menn árum saman dyttað að skipaflota landsmanna. Þang-
að hefur ungviðið í Reykjavík löngum sótt til að fylgjast með
því þegar skip eru dregin á land og sjósett að nýju.
Jim Smart heimsótti nýlega þennan óumbreytanlega vinnu-
stað, sem í daglegu tali er kallaður Slippurinn, og festi á
filmu það sem á vegi hans varð.
IROSA-
GARÐINUM
SKYLDI SVERA
ÁRNIJOHNSEN?
Háskólamenn eru ágætir en
þeir fljúga hátt yfír haffletinum
og hafa ekki áttað sig á að veið-
arfærin eru undir honum. Það er
nauðsynlegt að fá í þingliðið
(Sjálfstæðisflokksins) mann,
sem veit það gerla.
Prófkjörsgreirt í
Morgunblaðinu
OG VAR EKKI MAL
TIL KOMIÐ!
Maðurinn yfirgefúr hana
vegna annarrar konu og hún
neyðist til að horfast í augu við
sjálfa sig og dusta rykið af sín-
um kostum og hæfileikum sem
legið hafa ónotaðir.
Morgunblaöiö
OG SAMT FÉLL
GVENDUR
Guðmundur H Garðarsson
sagði fjármálaráðherra reyna
með ósæmilegum hætti að sá
ósætti milli manna í forystu
Sjálfstæðisflokksins.
Morgunblaöiö
ENNTÓRIR UM-
BURÐARLYNDIÐ
Nokkrar (konur í lesenda-
könnun) tóku sérstaklega fram
að maðurinn yrði að hafa meira
til að bera en tippi og góðar rass-
kinnar.
Pressan
EKKI SEGI ÉG
ÞAÐ NÚ KANNSKI
DV er aftur á móti eins og
gamalt næturgagn sem hefur
verið skilið eftir á gatnamótum
og mega allir nota það.
Tíminn
HVURSLAGS
KOMMÚNISMI ER
ÞETTA!
Einkunnarorð næstu kosn-
inga verði jafnrétti og fagurt
mannlíf. Sömu lífsgæði íyrir
alla verði því sjálfsögð sannindi
eftir kosningar.
Alþýöublaöið
AÐ EKKI SÉ TAL-
AÐ UM MORÐ-
FÝSNINA!
Það var tími til kominn að
Davíð (Oddsson) goði í Reykja-
vík settist í rafmagnsstólinn.
Alþýöublaöiö
NJÁLGFRÍR DRAG-
BITUR
Þrjátíu sjónvarpsþættir eru
gott ráð við njálg, sjónvarpið yf-
ir höfúð, er helsti dragbítur á
mannleg samskipti.
Ellert B. Schram í DV
2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 2. nóvember 1990