Þjóðviljinn - 02.11.1990, Blaðsíða 28
lfa/gar
Föstudagur 2. nóvember 1990 207. tölublað 55. árgangur.
... alla daga
"^f^ARNARFLUG
m
INNANLANDS hf.
*IIN' Reykjavíkurflugvelli - sími 29577
Rússar stjórnuðu ekki óháðri friðarhreyfingu
Oleg Gordíjevskíj, fyrrum liðs-
foringi í KGB, hej'ur í nýútkominni
bók haldið því fram að danska
friðarhreyfmgin hafi verið eins
konar útibú frá sovésku leyniþjón-
ustunni. Til dœmis hafi hann og
hans menn skipulagt herferð i
Danmörku gegn því að danska
stjómin legði blessun sína yfir ný
eldflaugakerfi NATÓ árið 1979.
Þessari staðhœfingu var mótmœlt
með fróðlegum rökum í grein i
danska blaðinu Information fýrir
skömmu.
Hér er um merkilegt mál að
ræða: það hefur lengi verið fastur
liður í áróðursstriði að segja alla
þá sem á hveijum tíma gagnrýndu
eitthvað það sem Nató tók sér fyr-
ir hendur erindreka Sovétríkjanna
með beinum eða óbeinum hætti.
En í grein þeirri sem hér er nefnd
tekur Jörgen Dragsdahl, sem lengi
hefur skrifað um alþjóðmál i Infor-
mation og hafði mikil afskipti af
eldflaugaumræðunni 1979, upp
hanskann fyrir þá sem gagnrýndu
vígbúnaðarkapphlaupið eftir þeim
rökum sem þeir vissu best og voru
ffáleitt á snærum KGB.
Edlflaugaumræðan í Dan-
mörku, sem hið sjálfstæða vinstri-
mannablað Information átti mik-
inn þátt í að skipuleggja, hún
byggði á þeirri forsendu að Nató
væri að stíga hættulegt skref í at-
ómvígbúnaðarkapphlaupi og
mætti einskis láta ófreistað til að
semja við Sovétmenn um þessi
vopnakerfi áður en ný lota í kapp-
hlaupi þessu hæfist. lnformation
hélt m.a. ráðstefnu um málið og
bauð þrem bandarískum sérfræð-
ingum, sem allir voru gagnrýnir á
eldflaugastefnuna - tveir þeirra
höfðu reyndar starfað á vegum
CIA. Upp úr öllu saman varð svo
til hreyfingin „Nej til Atomvaben“
( „Höfnum atómvopnum") sem
átti að beita sér gegn vígbúnaði í
austri og vestri. Þau samtök áttu
einmitt að vera valkostur við
„Samstarfsncfndina“, samstarfs-
nefnd friðarhópa, sem var talin
höll undir Sovétrikin.
Jörgen Dragsdahl bendir á það,
að nú haldi sovéski KGB-maður-
inn fyrrverandi því fram að „Nej
til Atomvaben" hafi verið eins-
konar sovésk felusamtök. Hann
telur það mat hið fáránlegasta. I
fyrsta lagi hafi komið upp mikill
fjandskapur milli „Höfnum
kjarnavopnum" og Samstarfs-
nefndarinnar sem danskir komm-
únistar réðu miklu um. I annan
stað hafði blaðamaðurinn sjálfur
orðið þess var í samtölum við sov-
éska diplómata, að þeir töldu víst
að það væri bandaríska leyniþjón-
ustan CIA, sem í rauninni vildi
tvístra dönskum friðarsinnum með
því að koma upp lævíslegu fyrir-
tæki eins og „Höfnum atómvopn-
um“! Þetta fannst Rússum líklegt
m.a. vegna þess að sú hreyfing
vitnaði mest til bandarískra sér-
fræðinga um vígbunað og þeirra
gagnrýni (sem vissulega náði til
sovéskrar vígbúnaðarstefnu líka).
Oleg Gordíjevskíj lætur mikið
af því í bók sinni um þessi mál, að
KGB hafi útbúið greinar um víg-
búnaðarmál, hagstæðar Sovétríkj-
unum, sem síðan hafi verið laum-
að inn í dönsk dagblöð. Jörgen
Dragsdahl segist vel kannast við
tilraunir sovéskra diplómata til að
koma efni um þessi mál t.d. í In-
formation. En við höfðum lítinn
áhuga segir hann, blátt áfram
vegna þess að „ef menn voru að
leita að efni sem setti spumingar-
merki við stefnu Bandaríkjanna og
Nató, þá var KGB blátt áfram ekki
HOKtE
PÓ1Ö3SSS
VERTU MEÐ
- ÞAÐ ER GALDURINN
Sovéskur áróður gegn
vígbúnaði var frumstæöur og
stoðst hvergi samkeppni við
þá gagnrýni á stefnu NATO
sem óháðir bandarískir
sérfræðingar héldu uppi.
samkeppnishæft við það efni sem
fá mátti hjá mörgum bandarískum
sérfræðingum". Sovéski áróðurinn
var svo frumstæður að hann var
blátt áfram ekki nothæfur til neins.
Aftur á móti var enginn skortur á
bandarískum höfundum sem vom
andvígir opinberri stefnu í sínu
landi og vildu breyta henni, og það
vom þeir sem fengu blaðamönn-
um, bæði heima hjá sér og í Vest-
ur-Evrópu, í hendur það efni sem
málefnaleg gagnrýni á vígbúnað-
arkapphlaupið var byggð á. Þeir
embættismenn, herforingjar og
fjölmiðlar, sem þá vildu verja t.d.
eldflaugastefhu Nató, þeir hættu
sér sjaldan út í málefnalega um-
ræðu, segir blaðamaðurinn danski
að lokum. Þeir létu sér venjulega
nægja að vísa öllu frá sér sem
laumuáróðri sovéskra eða móður-
sjúkri hræðslu við atómvopn.
áb tók saman.
UPPLÝSINGAR: SIMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000