Þjóðviljinn - 11.01.1991, Blaðsíða 4
SIEMENS-ðæð/
STÓRGLÆSILEG
NÝ ÞVOTTAVÉL
FRÁ SIEMENS!
Enn á ný ryður Siemens brautina i þróun
og hönnun heimilistækja.
í þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur í
gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið-
endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð
tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem
býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur
þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og
þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt
svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og
þann hámarkshita sem hann þolir.
Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina
í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er
í gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því
sem þvegið er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns-
hripum heldur vatninu á stöðugri
hreyfingu og tryggir þannig jafnt
A gegnumstreymi á vatni um
mf J1* */» Bj þvottinn. Þessi nýjung sér til
^ íiJbSSI þess að þvotturinn fær bestu
hugsanlegu meðhöndlun.
SIWAMAT PLUS 4200 uppfyliir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upplýst
stjórnborð. ftarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa
endingu.
Gæði á gæði ofan frá SIEMENS
SMITH&
NORLAND
Sveinn Rúnar Hauksson afhendir starfsmanni sendiráðs Bandaríkjanna bréf til Bush forseta í gær. Starfsmaður-
inn, Richard Rogers, lofaði að koma bréfinu áleiðis I réttar hendur ( dag. Myndir: Jim Smart.
Átak gegn stríði
Blóð er verð-
mætara en olía
Fátækum drengjum í her
Bandaríkjanna verður fórn-
að fyrir hagsmuni oiíuauð-
hringja, sagði Sigríður Kristins-
dóttir meðal annars á útifundi
hópsins sem kallar sig Átak gegn
stríði á Lækjartorgi í gær.
Fjölmenni var á fundinum þrátt
fyrir fimbulkulda. Ungir og gamlir
mættu til að hvetja ráðamenn þjóð-
arinnar til að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að friðsamlegrar
lausnar verði leitað í Persaflóadeil-
unni.
Héldu margir á friðarkertum og
áletruðum spjöldum, á einu þeirra
stóð: Blóð er verðmætara en olía, á
öðru: Böm deyja i stríði.
Ræðumenn á torginu voru
Heimir Pálsson, Sigríður Kristins-
dóttir sjúkraliði og Amþór Helga-
son formaður Öryrkjabandalags-
ins.
Sigríður minnti fundarmenn á
að það vom Vesturveldin sem
skópu Saddam Hussein og þvi væri
það þeirra að finna friðsamlega
íausn á deilunni og semja við
Hussein þótt erfitt væri.
Amþór Helgason varaði við
þeirri vá sem fyrir dymm stæði og
hvatti stjómvöld til að reyna að
koma í veg fyrir stríð. Hann tíund-
aði þær hræðilegu afleiðingar sem
styrjöld gæti haft í för með sér.
Heimir Pálsson las upp bar-
áttukveðju frá Gísla Sigurðssyni
lækni sem ekki gat mætt á fundinn
vegna þess að hann stóð vakt á
sjúkrahúsi.
Sendinefnd af fundinum fór í
Stjómarráðið handan götunnar og Menn bám mótmælaspjöld og friðarkerti á fundi Ataks gegn stríði ( mið-
afhenti forsætisráðherra undir- bænum.
skriftalista þá sem þegar hafa bor-
ist, en undirskriftimar telja nokkur
þúsund.
Á fundinum var biðröð við tré-
spjald hjá listakonunni Rósku sem
var ein margra sem söfnuðu undir-
skriftum í mannþvögunni á torg-
inu.
Félag háskólakennara sendi
fundinum einnig kveðjur og þau
skilaboð að heilshugar væri tekið
undir með þeim sem standa að
Átaki gegn stríði.
Á eftir ræðuhöldum las Vilborg
Dagbjartsdóttir ljóðið Slysaskot í
Palestínu eftir Kristján frá Djúpa-
læk. Þá mætti Reynir Jónasson til
leiks ásamt nokkmm söngmönnum
og tók lagið. Við sönginn hitnaði
mönnum nokkuð og ekki síður
þegar Bjartmar Guðlaugsson klifr-
aði upp á svið með kassagítar og
söng Allt sem við viljum er friður á
jörð, og tóku þá flestir hressilega
undir.
Fjölmennur útifimdur var
haldinn á Lækjartorgi í gær
til að krefjast fnðsamlegrar
lausnar á Persaflóadeilunni
Þegar fundi var slitið á Lækjar-
torgi hélt öll hersingin upp að
bandaríska sendiráðinu þar sem
Sveinn Rúnar Hauksson hélt tölu
og afhenti síðan starfsmanni sendi-
ráðsins, Richard Rogers, bréf til
Bush forseta þar sem hann er beð-
inn að forðast stríð. Richard þakk-
aði mönnum komuna, en spurði
hvort svipað bréf hefði verið af-
hent íraska sendiráðinu í Helsinki.
Sagði starfsmaður sendiráðsins að
mikilvægt væri að menn gerðu sér
grein fyrir að Bandaríkin væri ekki
eina þjóðin sem styddu aðgerðir
gegn Hussein færi hann ekki á
brott með her sinn frá Kúvæt.
Þegar sendiráðsstarfssmaður-
inn hvarf inn úr kuldanum var mót-
mælum lokið. Fjölmennur hópur
unglinga hrópaði þó enn um stund:
Við viljum ekkert stríð!
Átak gegn stríði mótmælir að-
gerðarleysi íslenskra stjómvalda í
þessu máli fyrir utan stjómarráð ís-
lands í dag. Kom fram á fundinum
í gær að íslenska rikisstjómin hefði
ekki sýnt nein viðbrögð við þeirri
áskorun sem forsætisráðherra var
afhent frá Átaki gegn stríði með
undirskrift 90 Islendinga fyrir
nokkrum dögum. RF
4 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 11. janúar 1991