Þjóðviljinn - 11.01.1991, Blaðsíða 28

Þjóðviljinn - 11.01.1991, Blaðsíða 28
 t \ t í V t I t i t Sovéskur hermaður virðir fyrir sér nektarmynd á blaðsölustað. Nú skulu Sovétmenn siðvæddir á ný Gorbatsjov sovétleiðtogi blæs til baráttu gegn klámhundum. Guðsótta og góðum siðum sov- étmanna viðbrugðið Einn þeirra fylgifiska sem flotið hefur með í kjölfar pere- strojkunnar í Sovétríkjunum, og það miður skemmtilegur að margra mati, er klámbylgjan. Hingað til hafa stjómvöld lítt haft sig í frami við að stemma stigu við hverskyns klámefni sem sov- éskum borgurum hefur staðið til boða undanfarin misseri. En nú skal blaðinu snúið við og hefúr Gorbatsjov sovétleiðtogi sjálfúr tekið af skarið og kveðið upp her- ör gegn hverskyns blygðunar- leysi. Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem sovétleiðtoginn gerir til- raun til að siðbæta landa sína. Frægt er að eitt fyrsta verk Gor- batsjovs eftir að hann komst til valda var að segja ofdrykkju heil- agt strið á hendur. Arangurinn var þó minni en efni stóðu til og benda fréttaskýrendur á að líkt muni gerast nú. Eftir áratuga siðavendni sov- éskra stjómvalda varðandi allt það sem lýtur að holdsins lysti- semdum, er engu líkara en flóð- gáttir hafi opnast í kjölfar lýðræð- isþróunarinnar þar eystra. Víðast hvar í blaðasölum getur að líta áð- ur forboðinn vaming, vestræn klámblöð og nektarmyndir. Oftast er þó um að ræða lélegar eftir- prentanir sem seldar em á upp- sprengdu verði. Og þá sjaldan upprunaleg eintök af „karlablöð- unum“ Playboy og Penthouse eru á boðstólum em þau seld á svörtu. Að undanfomu hefur talsvert borið á umvöndunum og kvörtun- um í sovéskum Qölmiðlum vegna þessarar nýju ógnar úr vestri og að siðgæði Sovétmanna væri við- bmgðið. I lesandabréfi í málgagni ungliðahreyfingar sovéska Kommúnistaflokksins, Komso- molskaya Pravda, kvartaði einn lesandi yfir því að hverskyns sora og viðbjóði væri úthellt í sjón- varpi yfir böm og gamalmenni, á meðan annar lesandi hataðist út í ákveðinn þátt í Leningradsjón- varpinu sem hefði orðið þess valdandi að sonur sinn 15 ára hefði tekið upp á þeirri leiðu iðju að stunda sjálfsfróun. Jafnvel Gorbatsjov, sem er mikill aðdáandi vestrænna kvik- mynda, er sagður hafa gengið út af sýningu á myndinni Litlu Vem, sem hvarvetna hefur hlotið góða dóma og var sýnd íslenskum sjón- varpsáhorfendum í hitteðfyrra, fýrir opinskáa lýsingu á ástarat- lotum karls og konu. Að sögn menningarmálaráð- herrans, Nikolai Gubyenko, sem fer fyrir nefnd þeirri sem sett hef- ur verið á laggimar til að vera stjórvöldum innan handar í bar- áttunni fýrir bættu siðgæði, þurfa menn ekki að óttast að verið sé að fara afian að málfrelsi og ftjálsri fjölmiðlun, heldur sé tilgangurinn sá að koma í veg fýrir að samfé- lagið og sérstaklega böm láti af „guðsótta og góðum siðum“. Það er tímanna tákn um aukið vægi kirkjunnar og trúarbragða í Sovétríkjunum að Rélttrúnaðar- kirkjan, múslimar og búddhatrúar eiga fulltrúa í nefndinni, sem á vandasamt starf fyrir höndum. Nefndin hefur ekkert vald, en er ætlað að vera stjómvöldum til ráðgjafar og að semja drög að skýmm lagafýrirmælum um það hvar mörkin skuli dregin og hvað teljist klám og hvað ekki. A með- an ganga klámhundamir lausir og bjóða siðgæðinu byrginn. -The European/-rk UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000 VERTU MEÐ — Þ AÐ ER GALDURINN s

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.