Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1995, Qupperneq 15
Í-TV' ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1995
veran15
Fjögurra manna fjölskylda í Búsetakerfinu:
Góður kostur í skamman tíma
„ Á þeim tíma þegar við fluttum
inn var þetta fyrst og fremst pen-
ingaspursmál. Við fengum fyrst í
stað neitun, þá með eitt barn, og síð-
an sóttum við um aftur og fengum
inni. Við skoðuðum Búseta en okk-
ur fannst biðtíminn þar vera of
langur," segir Jens Ólafsson sem
býr ásamt konu sinni, Heike Diem-
er Ólafsson, og þremur börnum í
fjögurra herbergja íbúð í félagslega
kerfinu.
Jens segir að honum þyki súrt
hversu hægt menn eignist eitthvað í
íbúðunum í þessu kerfi og hann er
ósáttur við fasta rýmum upp á 1,5
prósent á ári, rýrnun sem er mun
meiri en á íbúðum á frjálsum mark-
aði.
„Gallarnir felast kannski fyrst og
fremst í þessari miklu rýrnun og
hversu lítið maður eignast en kost-
urinn er hins vegar sá að maður er
í öruggu húsnæði. Það skiptir öllu
þegar maður er kominn með fjöl-
skyldu," segir Jens. Hann segir að
þau hefðu ekki ráðið við útborgun á
frjálsa markaðnum á sínum tíma og
því hafi „verkó“ verið góð lausn fyr-
ir þau. Kerfið þar sé þó að sumu
leyti svipað því að vera að leigja því
eignarmyndunin sé nánast engin.
Á grænni grein
„Við erum að borga um 70 þúsund
krónur á þriggja mánaða fresti og
það er dæmi sem við sáum fyrir að
við gætum ráðið við. Við sjáum
fjöldann allan af fólki sem hefur
steypt sér út í hluti sem það ræður
ekki við, t.d. í húsbréfakerfinu, og
við erum á grænni grein samanbor-
ið við margt af því fólki,“ segir Jens.
Aðspurður hvort eitthvað hafi
komið þeim á óvart í kerfinu eftir
að þau fluttu inn segir Jens það
kannski helst vera það hversu mik-
ið verð eldri íbúðarinnar rýrnaði
þegar hann skipti innan kerfisins.
Þau hefðu verið búin að leggja pen-
inga í þriggja herbergja íbúð í vest-
urbænum, borgað síðan hefðbundn-
ar greiðslur af henni en lítið hafi
staðið eftir af því þegar þau fluttu í
stærri íbúð innan kerfisins. Jens
sagðist reikna með að þau héldu sig
innan félagslega kerfisins enn um
sinn a.m.k.
„Að mínu mati hefur þetta kerfi
ekki staðið fyllilega undir nafni og
húsbréfakerfíð er ein rjúkandi rúst
eins og menn vita. Það vantar því
nokkuð upp á að fundin sé viðunandi
flötur á á þessum húsnæðismálum
hér í landinu," segir Jens. -sv
Jens og Heike með Karl, átta ára, Isabellu Sif, 6 ára, og Olaf Steinar, tveggja ára, á heimili þeirra í Grafarvoginum.
DV-mynd ÞOK
* *
Afföllin eru of mikil
- segir Jens Úlafsson
- segir Heimir Þór Tryggvason
„Ég bjó í Svíþjóð í tíu ár og gekk
í Búseta á meðan ég var úti. Þegar
ég kom heim var röðin komin að
mér að fá íbúð og ég gat valið úr
staðsetningum. Við vorum frá byrj-
un ákveðin í að vera í Búseta í
u.þ.b. þrjú til fjögur ár og breyta síð-
an um. Nú horfum við til
Permaformhúsanna sem Ármanns-
fell er að byggja. Okkur sýnist það
vera góður kostur,“ segir Heimir
Þór Tryggvason en hann býr ásamt
Ólaflu Gústafsdóttur og tveimur
börnum þeirra í nýrri Búsetaíbúð í
Grafarvogi.
• „Við skoðuðum ekki aðra kosti
því ég taldi að ég hefði of miklar
tekjur til þess að komast í félagslega
kerfið en var jafn viss um að ég
myndi ekki ráða við að kaupa á al-
mennum markaði.
Kostir og gallar
Því fylgja bæði kostir og gallar að
búa í Búseta. Fólk flytur inn og þarf
síðan ekki að hafa frekari áhyggjur,
svo fremi að það standi í skilum,
auk þess að geta gert það sem því
hentar við íbúðina. Öryggið er því
það sem skiptir mestu máli. Hins
vegar er byggingarkostnaðurinn hér
svimandi hár, líkt og í félagslega
kerfmu, og þú þarft að punga út
10-15% af íbúðarverðinu í byrjun.
Það getur ekki talist eðlilegt að
byggja tveggja herbergja blokkarí-
búð fyrir 10 milljónir," segir Heimir.
Heimir segir Búseta vera góðan
kost í skamman tíma fyrir fólk sem
ekki sé tilbúiö til þess að byggja eða
kaupa en geti lagt milljón í íbúð þar
og átt hana enn eftir einhver ár þeg-
ar það vilji selja.
„Leigan er auðvitað mikill ókost-
ur hér og þú ert aldrei að eignast
neitt. Félagslega kerfíð hefur þó
þann kost fram yfir að þar ertu
a.m.k. að eignast eitthvað í íbúð-
inni. í stað 36 þús. kr. leigu í tveggja
herbergja íbúðinni undir það síð-
asta erum við nú að borga tæp 30
þúsund fyrir stærri íbúð í sama
kerfi. Það sýnir best hvað þetta get-
ur verið ótryggt og tilviljanakennt.
Enginn sem ég þekki í félagslega
kerfmu segist myndu vilja skipta á
kerfum við mig,“ segir Heimir en
bætir við að hann sjái alls ekki eftir
því að hafa valið Búseta. -sv
Heimir Þór Tryggvason og Ólafía Gústafsdóttir, ásamt dótturinni Helgu Dögg og nýfæddum Aroni Þór. DV-mynd ÞÖK