Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1995, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1995, Blaðsíða 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1995 Afmæli Njáll Halldórsson Njáll Halldórsson sjómaður, Vík Bakkafirði, varð áttræður í gær. Starfsferil Njáll fæddist á Bakkafirði og ólst þar upp. Hann fór ungur til sjós, keypti sirin fyrsta bát 1933 er hann var átján ára og hóf þá útgerð á Bakkafirði. Hann hefur síðan stund- að þar útgerð auk þess að vera með fiskverkun af eigin báti. Njáll var til sjós frá Vestmanna- eyjum á vetrarvertíðum 1941,1942 og 1943. Þá var hann háseti á segl- skipinu Arctic er það rak upp vestan við Mýrar á Snæfellsnesi 17.3.1945. Fjölskylda Kona Njáls er Guðrún Margrét Ámadóttir, f. 17.8.1921, húsmóðir, en þau hófu búskap 1947. Hún er dóttir Áma Friðrikssonar, útvegsb. á Bakkafirði, og Petrínu Pétursdótt- urhúsmóður. Böm Njáls og Guðrúnar Margrét- ar eru Reynir Njálsson, f. 15.4.1947, útibússtjóri Hafrannsóknastofnun- ar á Höfn í Hornafirði, búsettur þar, kvæntur Sigþrúði Rögnvaldsdóttur og eiga þau þrjú börn; Halldór Njáls- son, f. 29.3.1953, sjómaður á Bakka- firði; Hilma Hrönn Njálsdóttir, f. 1.5. 1958, húsmóðir á Bakkafirði, en maður hennar er Áki Hermann Guðmundsson og eiga þau tvö börn; Ámi Bragi Njálsson, f. 31.1.1967, sjómaður á Bakkafirði. Systkini Njáls: Hilma Fanney Halldórsdóttir, f. 30.5.1909, d. 21.7. 1923; Baldur Halldórsson, f. 12.3. 1911, d. 5.8.1926; Bragi Halldórsson, f. 24.8.1912, fyrrv. sparisjóðsstjóri, búsettur i Keflavík; Jón G. Halldórs- son, f. 13.2.1914, d. 1993, viðskipta- fræðingur í Reykjavík; Flosi Hall- dórsson, f. 5.10.1916, d. 1984, bifvéla- virki; Bergþóra, f. 17.11.1917, hús- móðiríReykjavík. Foreldrar Njáls voru Halldór Run- ólfsson, f. 1.10.1870, d. 27.8.1920, kaupmaður á Bakkafirði, og Sólveig Kristjana Bjömsdóttir, f. 18.5.1883, d. 14.11.1964, húsmóðir. Ætt Halldór var sonur Runólfs, b. í Böðvarsdal, Magnússonar, b. þar, Hannessonar, b. þar, Magnússonar en sama ættin bjó í Böövarsdal í margar ættliði. Móðir Magnúsar var Guðný Björnsdóttir, stúdents úr Böðvarsdal. Móðir Guðnýjar var Guðrún Skaftadóttir, prests á Hofi í Vopnafirði, Árnasonar. Móðir Halldórs var Stefanía, dótt- ir Þorsteins sterka, b. í Krossavík í Vopnafirði, Guðmundssonar, sýslu- manns í Krossavik, Péturssonar, sýslumanns á Ketilsstöðum á Völl- um, Þorsteinssonar, sýslumanns á Víðivöllum eystri. Móðir Stefaníu var Guðríður Sigurðardóttir, prests á Hálsi í Fnjóskadal, Ámasonar, og k.h., Bjargar, systur Reynistaða- bræðra, dóttur Halldórs Vídalíns, klausturhaldara á Reynistað Bjarnasonar, sýslumanns á Þing- eyrum. Halldórssonar. Móðir Hall- dórs Vídalín var Hólmfríður Páls- dóttir, lögmanns Vídalín, þess er tók saman Jarðabókina með Árna Magnússyni. Sólveig var dóttir Björns, b. á Kröggólfsstöðum í Ölfusi, Gíslason- ar, b. þar, Eyjólfssonar, ættföður Kröggólfsstaðaættarinnar Jónsson- ar. Móðir Björns var Sólveig Snor- radóttir, ríka í Engey, Sigurðssonar. Móðir Snorra var Guðlaug Þor- björnsdóttir, b. í Engey, Halldórs- sonar. Móðir Guðlaugar var Guð- rún Erlendsdóttir, ættfóöur Engeyj- Njátl Halldórsson. arættarinnar, Þórðarsonar. Móðir Sólveigar var Ólöf Guðmundsdóttir. Til hamingju með afmælið 3. október 85 ára Rósa Ólafsdóttir, Valsmýri 4, Neskaupstað. Jón Jónsson, Smáraflöt42, Garðabæ. 80 ára Sigriður Bj ar nadóttir, Látraströnd 48, Seltjarnarnesi. Þórunn Elíasdóttir, Ásgarðsvegill, Húsavík. 75 ára Albert Jónsson Kristjánsson, Álfaskeiði 64, Hafnarfiröi. Hanneraðheiman. Þorgerður Hauksdóttir, Hólabraut20, Akureyri. 70 ára Karlotta Einarsdóttir, Lækjargötu 10, Hafriarfirði. Eiginmaður hennarvarGuð- jónHalldórsson skipstjórisem • lést 1991. Karlottatekurá móti ættingjum og vinum í Álfa- felli, íþróttahús- inuvlðStrand götu í Hafnarfiröi, kl. 20.00 í kvöld. Hildur Jóhannsdóttir, Dalbæ, Dalvík. Eirikur Sæmundsson, Stórholti 12, Reykjavík. 60 ára Kristrún Eiriksdóttir, Sólvöllum, Skeggjastaðahreppi. Helga Baldursdóttir, Þóranúpi, Hvolhreppi. Steinunn Jónsdóttir, Akurgerði 15, Akranesi. 50 ára Jóe! Elfar Jóelsson, Eyrarbraut 16, Stokkseyri. Þórarinn Sigurbjörnsson, Hringbraut 55, Hafriarfirði. Jórta Valdís Árnadóttir, Ólafsbraut 42, Snæfellsbæ. 40 ára Víkingur Trausti Traustason, Hátúni 35, Reykjavík. Þóra Hafdís Kristiansen, Búlandi 20, Reykjavik. Gísli Haraidsson, Suðurgötu 90, Hafnarfirði. Margrét Oddsdóttir, Ásvallagötu 24, Reykjávík. Bryndís Þorsteinsdóttir, Þingási 32, Reykjavík. Jón Kristinn Jensson, Stekkjarhvammi 17, Hafnarfirði. Vignir Jónsson, Auösholti III, Hrunamannahreppi. María H. Sigurlaugsdóttir, Holtagerði 18, Kópavogi. Elsa Þuríður Þórisdóttir, Austurbrún 4, Reykajvík. Maria Rebekka Kristjánsdóttir, Hálsvegi8, Þórshöfn. Þorgerður Þormóðsdóttir, Miklubraut 48, Reykjavík. Þorsteinn Magnússon, Miklubraut 70, Reykjavík. Jóvin Bjarni Sveinbjömsson, Fjarðargötu 51, Þingeyri. Elin Petra Guðbrandsdóttir, Hvalnesi, Skefilsstaðahreppi. ólafur Sigurbjörn Magnússon, Breiðagerði 2, Reykjavík. Nesjar Nýr umboðsmaður Kristín Gunnarsdóttir Stöðii Sími: 478 1573 Iilja Guðmundsdóttir Lilja Guðmundsdóttir verkakona, Vallargötu 9, Flateyri við Önundar- fjörð, verður áttræð á morgun. Hún er nú stödd aö Holtsgötu 18, Hafnar- firði. Starfsferill Lilja fæddist í Hafnarfirði en flutti með foreldrum sínum til Flateyrar er hún var fimm ára og hefur átt heima þar síöan. Hún lauk bama- skólanámi á Flateyri. Lilja hefur alla tíð unnið við fisk- vinnslu á Flateyri. Hún starfaði hjá Ásgeiri Guðnasyni, kaupmanni og útgerðarmanni, á áranum 1930-38 og síöan samfellt í sama frystihús- inu á Flateyri á áranum 1938-89, en hjá nokkram fyrirtækjum. Fyrst í nýbyggðu Hraðfrystihúsi Flateyrar hf. 1938-43, hjá ísfelli hf. 1943-60, hjá Fiskiðju Flateyrar hf. 1960-67, Hrímfaxa hf. 1968 og hjá Hjálmi hf. 1968-89. Eftir fimmtíu ára starf í sama frystihúsinu 1988 verðlaunaði Hjálmur hf. Lilju með þriggja mán- aða ferð til Kanada. Sjómannadags- ráö á Flateyri sæmdi Lilju heiðurs- merki sjómannadagsins 1983 og er hún eina konan sem þar hefur hlot- ið slíka viðurkenningu. Fjölskylda Systkini Lilju: Sigurlaugur, f. 1.10. 1911, d. 21.10.1988, iðnaöarmaður í Reykjavík; Ingileif, f. 29.9.1913, hús- móðir í Hafnarfirði. Foreldrar Lilju vora Guðmundur Guðmundsson, f. 1.12.1882, d. 2.10. 1982, skósmiður í Hafnarfirði og á' Flateyri, og k.h., Guðrún Þórunn Jónsdóttir, f. 13.9.1872, d. 5.6.1957, húsmóðir frá Litlu-Tungu í Miðfirði. Ætt Guðmundur, faðir Lilju, var bróð- ir Kristjáns, iöður þeirra Kirkju- bólssystkina, Halldórs rithöfundar, Guömunda Inga skálds, Ólafs skóla- stjóra og Jóhönnu Guðríðar hús- freyju. Systir Guðmundar var Guð- rún, amma Gests Ólafssonar arki- tekts. Guðmundur var sonur Guð- mundar, b. á Kirkjubóli, Pálssonar, bróður Hákonar, langafa Sigurjóns Péturssonar, fyrrv. borgarfulltrúa. Systir Guðmundar eldri var Solveig, amma Gils Guðmundssonar rithöf- undar. Móðir Guðmundar var Kristín Hákonardóttir, b. í Grafar- gih, Hákonarsonar, bróður Brynj- Lilja Guðmundsdóttir. ólfs, á tvo vegu langafa Guðnýjar, móður Guðmundar G. Hagalíns rit- höfundar. Brynjólfur var einnig langafi Gisla, fóöur Guðmundar G. Hagalíns. Lilja tekur á móti gestum í Álfa- felli, samkomusal íþróttahússins viö Strandgötu í Hafnarfirði, á morgun, miðvikudaginn 4.10., kl. 16.00-20.00. Menning Hugleidsla í tónum Nýlunda telst í íslensku tónlistarlífi að haldnir séu tónleikar í Tjarnarbíói. Því var nokkur tilbreyting að hlýða þar á tónleika með Caput-hópnum sl. sunnu- dagskvöld. Hópurinn lék eingöngu verk eftir Léif Þór- arinsson og var efnisskráin nokkurs konar þverskurð- ur af tónsmíðaferli hans. Verkin spanna 35 ára tíma- bil; það elsta er skrifað árið 1960 en hið yngsta nú í ár. Elsta verk Leifs ber nafnið „Afstæður". Það var sam- ið þegar fæstir nenntu að hlusta á nútímatónlist enda þótti hún þá afspymu leiðinleg. Fyrir kom að frægir hljóðfæraleikarar lýstu því yfir á opinberum vettvangi að tónsköpun væri á blindgötum; tónskáldin semdu nefnilega tónlist eftir formúlum sem enginn venjuleg- ur áheyrandi skildi. „Afstæður" - sem er píanótríó - er að einhverju leyti í þessum flokki. Það er þurrt, akademískt og greinilega bam síns tima. Sem betur fer hefur Leifur þroskast í rétta átt. Hann virðist í æ ríkari mæli gefa sér það frelsi sem andi hans krefst. Verkið „Per Voi“ frá árinu 1975 er líflegt og fallegt, en það er fyrir flautu og píanó. Tónskáldið hefur náð að nýta sér möguleika píanósins og látiö það hljóma á mjög sérstæðan hátt með flautunni. „Smátríó" er frá sama tímabih - þaö er fyrir flautu, selló og píanó. Tríóið er afar vel heppnað og kannski besta tónsmíðin á tónleikunum. Ekki er pláss hér til að nefna öll verkin á efnis- skránni. Þó verður ekki hjá því komist að minnast á þau nýjustu, en það eru „Pente X“ frá því í fyrrá og „Preludio, Intermezzo, Finale" sem mun hafa verið samið í ár. Hið fyrra er fyrir flautu, selló, sembal og tvö slagverk; það er Utríkt og skemmtilegt en kom illa út á tónleikunum. Tónlistin krefst nefnilega bergmáls; hin litla endurómun í Tjarnarbíói gerði það að verkum að sembalið hljómaði eins og ritvél og slagverkið eins og hvert annaö bank. Betri var tónninn aftur á móti í píanóinu enda getur píanóleikarinn skapaö réttu Tónlist Jónas Sen stemninguna með hæfilegri pedalnotkun. „Preludio, Intermezzo, Finale" er einmitt skrifað fyrir þetta hljóð- færi - verkið er mjög sérkennilegt, þaö er innhverft og eins konar hugleiðsla í tónum. Hljóðfæraleikarar Caput-hópsins stóðu sig vel eins og endranær. Þar er líka vahnn maður - eða kona - í hverju horni. í heild voru þessir tónleikar því hinir skemmtilegustu og gáfu góða mynd af merkilegu tón- skáldi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.