Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1995, Side 17
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1995
17
dv_______________________________________________Fréttír
Akureyri:
Svíar sýna áhuga
á skóverksmiðju
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„í sjálfu sér vitum viö lítiö um þaö
á þessu stigi um hvaö málið snýst,
annað en að þetta fyrirtæki hefur
sýnt áhuga á því að stofna til rekst-
urs skóverksmiðju hér í bænum,“
segir Guðmundur Stefánsson, for-
maður atvinnumálanefndar Akur-
eyrarbæjar.
Sænska fyrirtækið Gapap Com-
pany hefur sett sig í samband við
forsvarsmenn Akureyrarbæjar og
lýst áhuga sínum á að hefja skófram-
leiðslu á Akureyri. Guðmundur Stef-
ánsson segir að næsta skref í málinu
verði aöfulltrúi frá Iðnþróunarfélagi
Eyjafjarðar, sem fer með málið fyrir
hönd Akureyrarbæjar, muni fara
utan til viðræðna við fulltrúa sænska
fyrirtækisins.
„Við höfum fullan hug á að skoða
þetta mál til hlítar en fyrst og fremst
þurfum við að fá vitneskju um
hvernig máhð snýr að Akureyrarbæ,
hvort fyrirtækið er með einhverjar
óskir á hendur bænum eða hvernig
málið einfaldlega lítur út í heild
sinni,“ sagði Guðmundur.
Hafnargarðurinn á Djúpavogi. Gestur SU er á leið í land.
DV-mynd Hafdís Erla
Djúpivogur:
Vinnu við hafnar-
garðinn lokið
Hafdís Erla Bogadóttir, DV, Djúpavogi:
Lokið er vinnu við 180 metra lang-
an hafnargarð við Djúpavogshöfn.
Það var Suðurverk á Hvolsvelh sem
vann verkiö og er kostnaður við
garðinn 35 milljónir.
Garðinum er ætlað að skýla höfn-
inni fyrir úthafsöldu. Aður var búið
að gera tilraunir á líkani sem sett var
upp í Kópavogi. Verkið hófst í maí
og því lauk í septemberlok.
Séra Halldór Gunnarsson, fyrsti varastjómarmaður SVFÍ:
Ekki sátt í starfs-
mannamálunum
- sátt um að halda frið, segir Gunnar Tómasson
„Það er ekki sátt í starfsmanna-
málum innan Slysavarnafélagsins.
Mér kemur á óvart að sjá að Gunnar
Tómasson segi aö sátt sé um þau
mál. Það eru mjög skiptar skoðanir.
Óánægja er um hvemig stjórnin hef-
ur starfað gagnvart starfsmönnum,
menn vita hvemig hún hefur beitt
sér fyrir uppsögnum.
Fimm manna nefnd var skipuð á
fundinum á Úlfljótsvatni innan
stjórnar og varastjórnar til að reyna
að leita leiða fyrir Slysavarnafélagið
til að hægt sé að starfa án átaka fram
að næsta landsþingi. Það þarf að
breyta stjórnfyrirkomulaginu og
■taka á málum varðandi samskipti
stjórnar við starfsmenn," sagði séra
Halldór Gunnarsson í Holti, fyrsti
varastjómarmaöur SFVÍ.
Gunnar Tómasson, varaforseti
SVFÍ, sagöi að hann hefði ekki öðru
viö þetta að bæta en því að hann segði
að sátt væri um að halda frið innan
Slysavarnafélagsins og um það hefðu
menn tekist í hendur.
Hann sagði enn fremur að nefnd-
inni, sem skipuð var á fundinum á
Úlfljótsvatni, hefði ekki verið falið
að skipta sér af starfsmannamálum,
heldur að jafna mönnum í ráð innán
stjórnarinnar.
ökuskóii MEIRAPRÖF
íslands Námskeið til aukinná
-------— ökuréttinda 17. Okt.
Dugguvogur2 S. 568 38 41
ÚTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til-
boðum í jarðvinnu við viðbyggingu Hamraskóla.
Útboðið nær til aðstöðusköpunar og jarðvinnu.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn 10.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 19. októb-
er 1995, kl. 11.00 f.h.
bgdS5/5
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00
FORVAL
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Hitaveitu
Reykjavíkur, áformar að bjóða út viðhald dreifikerfis. Út-
boðið verður lokað að undangengnu forvali.
Verkið felst í að sinna tilfallandi viðhaldi og endurnýjun á
dreifikerfi Hitaveitu Reykjavíkur auk bakvakta. Vinnusvæð-
ið er á öllu veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur.
Lögð er áhersla á að væntanlegir bjóðendur hafi reynslu
af svipuðum verkum.
Forvalsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn 5.000 króna skilatryggingu. Forvalsgögn-
um skal skila á sama stað fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn
18. október 1995.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - simi 552 58 00
™ meÓ borgarstjóra ^
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
heldur fund með íbúum
Arbæjarhverfis
Artúnsholts
og Seláshverfis
í Árseli mánudaginn 9. október kl. 20.00
Á fundinum mun borgarstjóri m.a.
ræða um áætlanir og framkvæmdir í
hverfunum. Síðan verða opnar umræður
og fyrirspurnir með þátttöku fundar-
manna og embættismanna borgarinnar.
Jafnframt verða settar upp teikningar af
fyrirhuguðum framkvæmdum í
hverfunum ásamt öðru fróðlegu efni.
Allir velkomnir.
Skrifstofa borgarstjóra.