Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1995, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995
Spurningin
Ertu góður bílstjóri?
Valdís Samúelsdóttir sóknar-
kona: Ég keyri ekki.
Friðgeröur Daníelsdóttir síma-
vörður: Já, já. Það hefur aldrei
neitt komið fyrir mig.
Jóhanna Þórðardóttir veitinga-
kona: Svona í meðallagi.
Perla Thorsteinson verslunar-
maður: Já, ég myndi segja það.
Jón V. Halldórsson ævintýramað-
ur: Já, ég er alveg afbragðs góður
bílstjóri.
Sólveig Magnúsdóttir snyrtifræð-
ingur: Já, ég tel mig vera það.
Lesendur
Þingmannalaun og
togaramatsveina
Sigrún Ólafsdóttir skrifar:
Loks kom að því sem ég hef lengi
beðið eftir að sjómannsstarfið fái
ögn af viðurkenningu í þessu þjóðfé-
lagi. Þar sem ofanrituð vill að þing-
menn og sjómenn gangi á eitt vil ég
byrja á því, fyrir hönd allra sjó-
manna á íslandi, að fara fram á að
allir íslenskir sjómenn fái nýja bíla.
Ennfremur dagpeninga á meðan
þeir eru að heiman vegna starfs
síns. Og að sjálfsögðu eiginkonur
þeirra líka, fari veiðiferð fram yfir,
segjum hálfan mánuð.
Yrði þingmaðurinn svo „hepp-
inn“ að fá sömu kjör og hæst laun-
aði matsveinninn á togara frá
Granda þá myndu nú líklega heyr-
ast harmakvein úr þeirra ranni. Og
hrædd er ég um að þingmanni þætti
lítið gaman að vita aldrei fyrirfram
hvað hann fengi i laun. Einn mán-
uðinn kannski 325 þúsund útborgað
og annan mánuðinn 250 þúsund. Og
svo væri hann launalaus fjórða
hvern mánuð. Ég reikna með að
þingmanni þætti þetta ekki launa-
hækkun heldur launalækkun. En
alls yrðu launin hans miðuð við
hæstu laun alla mánuði ársins, eða
u.þ.b. 243.750 kr. útborgað aö jafnaði
á mánuði. Og guð forði því að fiskirí
væri tregt því þá lækkuðu laun
þingmanna verulega.
Vissulega er alveg fráleitt að bera
saman störf þingmanna og sjó-
manna. Auðvitað fylgir þingmanns-
starfmu töluverð streita og óskikk^
anlegur vinnutími og í sumum til-
vikum ferðalög, að ekki sé nú talað
um utanlandsferðirnar. Hjá sjó-
manninum, sem lifir náttúrlega við
lúxus (og alltof há laun!), kemur lika
Ef tregt væri fiskiríið myndu laun þingmanna lækka verulega, segir bréfrit-
ari.
streita til sögunnar, langar fjarvist-
ir að heiman frá konu og börnum,
innilokun og sambandsleysi við um-
heiminn. Að ógleymdri hættunni
sem fylgir sjómannsstarfinu.
Svo ég fullkomni nú þennan
launamismun þá myndi þingmönn-
um örugglega líka vel að borga þótt
ekki væri nema smáhluta (25% eða
svo) upp í ríkishallann, svona líkt
og sjómenn greiða sitt hlutfall í oliu-
kostnaöi útgerðarinnar. En þegar á
allt er litið, þingmönnum þætti bara
nokkur akkur í að hafa þessi launa-
kjör?
Skattleysisfrúmvarp alþingismanna:
Hvað dvelur umræðuna í þinginu?
Kristján Sigurðsson skrifar:
Nokkru fyrir setningu Alþingis
var sú frétt birt okkur landsmönn-
um aö lagt skyldi fyrir Alþingi
frumvarp frá formönnum þingflokk-
anna eða forsætisrefnd Alþingis
(man ekki hvort var heldur) strax í
upphafi þings til að afnema fyrri
lagasetningu þingmanna um skatt-
frjálsa launahækkun sér til handa.
— Til þessa dags hefur ekkert frést
af þessu frumvarpi.
í lesendabréfi í DV þann 29. sept.
sl. setti maður einn fram þá kenn-
ingu að þótt viðrað hefði verið af
ráðamönnum, þ.m.t. forsætisráð-
herra, að skattleysislög þingmanna
ætti að afnema í byrjun þessa þings
væri alls óvíst að það fengist sam-
þykkt af hinum almennu þingmönn-
um, sem eru saltvondir og sárreiðir
út af þessu frumvarpi. — Líklega
gengur þetta eftir.
Nú hafa forsvarsmenn rikis-
stjórnaminnar nefnilega dregist á
að láta skoða forsendur Kjaradóms
og leggja fram sem gögn í væntan-
legum kjaraviðræðum við almenna
launþega. En hvemig Alþingi ætlar
að „fóðra“ frestun á að samþykkja
skattleysislög þingmanna verður
næsta spennuefni fréttamiðlanna.
Ef þeir þá þora um það að fjalla, því
það leiðir svo af sér umræðu um
makalífeyri varaþingmanna og svo
koll af kolli, þar til ekki stendur
steinn yfir steini af virðingu þjóðar-
innar fyrir Alþingi og því sem það-
an kemur.
Maríu Guðmundsdóttur fyrir forseta
Ásmundur Guðmundsson skrif-
ar:
Ég vil byrja á að þakka Ásgeiri
Guðmundssyni fyrir snjallt lesenda-
bréf í DV sl. fóstudag. Þar gerir
hann tilraun til að skipta þeim sem
helstir hafa verið nefndir sem hugs-
anlegir forsetaframbjóðendur í þrjá
flokka.
í DV á laugardaginn var birtist
svo eins konar úttekt, ásamt viðtöl-
um, við ekki færri en 14 manns sem
nefndir hafa verið tiltækir í slaginn.
Það vekur athygli að af þeim 14 sem
þar er rætt við eru aðeins tveir sem
gefa afdráttarlaus svör um að þeir
hafi ekki löngun til framboðs, þ.e.
Friðrik Ólafsson og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir. Bæði færðu fram fram-
bærileg rök fyrir sínum svörum. -
Reyndar útilokaði borgarstjóri einn-
ig með orðum sínum framboð nú-
verandi forsætisráðherra.
Dæmigerð voru svo svör allra
hinna 12 sem spurðir voru: „Neita
ekki möguleika á framboði". -
„Hugsun sem bíður“. - „Óljóst á
þessari stundu". - „Leggst undir
feld“. - „Hugmyndin hefur verið
reifuð við mig“. - „Því ekki það“?
Og þar fram eftir götunum. Fannst
mér svör. þeirra flestra benda til
þess að enginn þeirra væri hæfur
Vigdísi Finnbogadóttur áfram sem forseta. - Að öðrum kosti Maríu Guð-
mundsdóttur Ijósmyndara, segir bréfritari m.a.
frambjóðandi.
Ég tel heppilegast fyrir okkar
þjóð, héðan af, að frú Vigdís gæfi
kost á sér í embættið áfram. Og
finnst raunar að ekki sé enn full-
reynt hvort ekki megi á hana skora
að gefa kost á sér. Ég tel að fullur
vilji almennings sé fyrir slíkri
áskorun. - Að öðrum kosti vO ég
bæta við nafni Maríu Guðmunds-
dóttur, hins þekkta ljósmyndara,
sém nú býr í París. Hún myndi
sóma sér prýðilega sem forseti
landsins og arftaki frú Vigdísar.
María er þekkt víða um heim fyrir
sín störf og Island hefur hún kynnt
svo um munar, allan sinn starfsfer-
0.
Formannskjör
Alþýðu-
bandalagsins
Hilmar Ingólfsson skrifar:
Ég er alþýðubandalagsmaður
og hef atkvæðisrétt í formanns-
kjöri flokksins. Ég fékk atkvæða-
seðO sendan frá kjörstjórn. Degi
síðar barst mér heldur
óskemmtOeg sending. Það var
áróðurspési með glansmyndaryf-
irbragði frá Margréti Frímanns-
dóttur, öðrum formannskandi-
datinum. Þessu vil ég mótmæla
harðlega þar sem mér finnst slík-
ur áróður bæði ósanngjam og
óviðeigandi eftir að kosning er
hafin. Ég taldi að kosningabar-
áttunni hefði lokið fostud. 29.
sept. sl. með fundi frambjóðend-
anna á Hótel Sögu. Þetta er al-
varlegt brot á þeim reglum sem
settar voru í upphafi um kosn-
ingabaráttuna og setur ljótan
blett á annars heiðarlega baráttu
sem hefur verið háð innan
flokksins.
Ökuníðingar
sleppa vel
Halldóra skrifar:
Mér er það óskOjanlegt hvem-
ig hver ökuníðingurinn á fætur
öðrum sleppur vel frá sínum
verknaði. Dæmin era óteljandi.
Þeir nást, það er tekin af þeim
skýrsla og síðan er ökuníðingun-
um sleppt. Síðast nú um sl. helgi
þegar drakkinn ökuþór ók á
stúlku og ók síðan á brott. Þess
konar athæfi kaUar á varðhald
að mínu mati aUt þar tU dæmt
hefur verið í málum þessara fjöl-
mörgu ökuníöinga.
Öll nöfnin
á borðið
Lárp hringdi:
Ég skora á fólk að koma með
sem flest nöfn úpp á borðið strax
vegna væntanlegs forsetakjörs.
Við verðum að hafa úr mUdu að
moða, því hér þurfa áreiðanlega
að fara fram forkosningar og síð-
an úrslitakosning mUli þeirra
sem efstir verða í þeim forkosn-
ingum. Og ekki er ráð nema í
tíma sé tekið.
Er sendiherra
og segi ekkert
Kristján Sveinsson hringdi:
Þátturinn Almannarómur á
Stöð 2 í sl. viku var um margt
fróðlegur og auðvitað skemmti-
legur líka. Þar kom m.a. fram að
almenningur hefur breyst í við-
horfum sínum tO forsetaembætt-
isins. Forseti verði meira afger-
andi, hafi meira frumkvæði
varðandi stjórnsýsluna - eða að
fram fari endurskoðun á tilveru-
grandveUi embættisins. Annað
þótti mér afar athyglisvert. Það
var þegar þáttarstjórnandinn
spurði paUborðsgesti þeirrar ein-
fóldu spurningar í byrjun þáttar-
ins hvort þeir teldu O.J. Simpson
sekan eða saklausan. Þá svaraði
sendiherra okkar í Bandaríkjun-
um því til að hann gæti ekkert
sagt vegna stöðu sinnar! - Ja,
héma.
Engir vara-
hlutir í hár-
þurrkuna
Ragnar skrifar:
Ég týndi stúti framan af hár-
þurrku af PhUips-gerö og taldi
víst að svona hlutur lægi á lausú
hjá umboðinu, sem er Heimilis-
tæki hf. Ég fékk þau svör að eng-
ir varahlutir væru tU í hárþurrk-
ur og fengjust ekki pantaðir.
Væri hreinlega ekki gefinn kost-
ur á að panta varahluti í svona
tæki! Mér er nokkuð brugðiö við
svona svör. Þetta er e.t.v. land-
lægt varðandi varahlutaþjónustu
í þessi tæki? En skyldu þetta
þykja eðlUegir viðskiptahættir?