Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1995, Page 29
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995
Fjölmargir leikarar taka þátt í
Trójudætrum í lönó.
Tróju-
dætur
Iðnó er aftur orðið vettvangur
leikbókmenntanna eftir að
Hvunndagsleikhúsið hóf sýning-
ar á Trójudætrum Evrípídesar.
Leikrit þetta er af mörgum talin
áhrifamesta lýsing á stríði þjóða
og þeim skelfingum sem ævin-
lega fylgja í kjölfarið.
Að sýningunni standa um
fimmtíu listamenn og er leik-
stjóri Inga Bjamason. Með
helstu hlutverk fara Bríet Héð-
insdóttir, Helga E. Jónsdóttir,
Sigrún Sól Ólafsdóttir, Halla
Margrét Jóhannsdóttir, Guimar
Gunnsteinsson og Hinrik Ólafs-
Sýningar
son.
Kórverkið í þessum harmleik
er mjög viðamikið og era þau í
höndum leikara, söngvara og
dansara. Næsta sýning er í
kvöld en áætlaðar vora sex sýn-
ingar í október. Síðan verður
þráðurinn tekinn upp næsta vor
og verkið æft upp og bætt viö
Jötuninn eftir Evripides og
þessi tvö verk síðan sýnd á
Karlar og jafnrétt-
isbarátta
er þema dagsins á Kynlegum
dögum SHÍ. Tveir fyrirlestrar
verða kl. 12 í stofu 101 í Odda
undir yfirskriftinni Hlutverk og
gtaða i jafhréttisbaráttunni og
kl. 21.00 á Sóloni íslandusi verða
fjórir fyrirlestrar undir yfir-
skriftinni Kynlaus veröld.
Mannréttindi - hagur fjöl-
skyldunnar
Haustvaka KÍ verður haldin
21. október 1995 á Grand Hótel
og hefst hún kl. 9.30.
Málþing um miðborg
Reykjavíkur
Reykjavíkurborg efnir til mál-
þings um miðborg Reykjavíkur
—• framtíðarsýn — á Hótel Borg
á morgun kl. 10.00.
Samkomur með
Christopher Alam
Þessa dagana standa yfir sam-
koma i húsakynnum Vegarins,
Smiðjuvegi 5, með Christopher
Alam. Næstu samkomur era í
kvöld og ahnað kvöld kl. 20.00.
Samkomur
Félagsvist
veröur í Risinu í dag kl. 14.00
á vegum Félags aldraðra í
Reykjavik. Göngu- Hrólfar fara
á morgun frá sama stað kl. 10.00.
Hana nú
Laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður farin í fyrra*
málið kl. 10.00 frá Gjábakka.
Hunang á Kaffi Reykjavík
Kaffi Reykjavík er einn
vinsælasti skemmtistaður
borgarinnar um þessar
mundir og er hann til
húsa í gömlu og virðulegu
húsi i gamla bænum. Þar
er nú boðið upp á lifandi
tónlist á hverju kvöldi. í
gærkvöld sáu Útlagamir
um að skemmta gestum
staðarins en í kvöld er
það danssveitin Hunang
sem mun sjá um að koma
fólki í stuð. Þar fer
Skemmtaiiir
fremstur í flokki Karl
Örvarsson söngvari
Hunang verðui’ bæði í
kvöld og annað kvöld en á
sunnudagskvöld verður
bróðir Karls, Grétar Örv-
arsson, í sviðsljósinu en
hann mun þá skemmta
ásamt hinni vinsælu
söngkonu, Siggu Bein-
teins.
Hungang er fimm manna hljómsveit sem leikur á Kaffi Reykjavík í kvöld og annað
kvöld.
Vegir hálir á
heiðum
Á Vestfjörðum er hafinn mokstur
i A-Barðastrandarsýslu og einnig á
Hrafnseyrarheiöi og búist við að
þar opnist fljótlega. Ófært er um
Eyrarfiall í ísafiarðardjúpi og verð-
Færð á vegum
ur því að aka út fyrir Reykjanes.
Annars eru flestir vegir vestra fær-
ir.
Ófært er um Þverárfiall á milli
Húnavatnssýslu og Skagafiarðar og
einnig Axarfiarðarheiði og Hellis-
heiði eystri en jeppafært um Lág-
heiði, Hólssand og Mjóafiarðarheiði.
Víða eru vegir hálir, einkum á heið-
um, síst þó á Suður- og Suöaustur-
landi.
Astand veea
O Hálka og snjór [▲] Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
Cb LokaörStÖÖU 11 ÞunSfært ® Fært fjallabílum
Máni
Litli drengurinn á myndinni,
sem fæddist á fæðingardeild Land-
spítalans 9. október kl. 12.34, heitir
Barn dagsins
Snær
Máni Snær. Hann var við fæðingu
3510 grömm að þyngd og 51 sentí-
metra langur.'Foreldrar hans era
Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir og
Öm Þór Guðjónsson og er hann
fyrsta bam þeirra.
Paul Verhoven leiðbeinir Eliza-
bet Berkley.
Evrópufrumsýn-
ing á Showgirls
í dag verður Evrópufrumsýn-
ing á Showgirls í Sam-bíóum en ■
stutt er síðan þessi umdeilda
kvikmynd Paul Verhoevens var
frumsýnd í Bandaríkjunum.
Mikið er búið að fialla um mynd-
ina í fiölmiðlum vestra og er að-
alástæðan fyrir mikilli umfiöll-
un sú að þetta er fyrsta ameríska
„stórmyndin" sem er bönnuð
innan 17 ára en myndin er djörf
lýsing á lífi dansstúlkna í Las
Vegas.
Leikstjórinn Paul Verhoeven
og handritshöfundurinn Joe
Eszterhas eru ekki óvanir því að
hneyksla með djörfum atriðum
en saman stóðu þeir að gerð
Basic Instinct sem gerði Sharon
Kvikmyndir
Stone að stórstjömu. í aðalhlut-
verki myndarinnar er óþekkt
stúlka, Elizabeth Berkley, sem
heyir hér frumraun sína í kvik-
myndum. Þekktari leikarar eru í
öðrum hlutverkum. Má þar
nefna Kyle MacLaghlan, Gina
Gershon og Robert Davi.
IMýjar myndir
Háskólabíó: Jarðarber og
súkkulaði
Laugarásbíó: Apollo 13
Saga-bíó: Hlunkarnir
Bíóhöllin: Vatnaveröld
Bíóborgin: Brýrnar í Madison-
sýslu
Regnboginn: Ofurgengið
Stjörnubíó: Kvikir og dauðir
Gengið
Almenn gengisskráning Ll nr. 252.
20. október 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 64,350 64,670 64,930
Pund 101,260 101,780 102,410
Kan. dollar 47,910 48,200 48,030
Dönsk kr. 11,7540 11,8170 11,7710
Norsk kr. 10,3620 10,4190 10,3630
Sænsk kr. 9,5130 9,5650 9,2400
Fi. mark 15,1630 15,2530 14,9950
Fra.franki 12,9910 13,0650 13,2380
Belg. franki 2,2188 2,2322 2,2229
Sviss. franki 56,0500 56,3600 56,5200
Holl. gyllini 40,7700 41,0200 40,7900
Þýskt mark 45,6800 45,9200 45,6800
ít. líra 0,04016 0,04040 0,04033
Aust. sch. 6,4880 6,5280 6,4960
Port. escudo 0,4328 0,4354 0,4356
Spá. peseti 0,5273 0,5305 0,5272
Jap. yen 0,63960 0,64340 0,65120
irskt pund 103,490 104,130 104,770
SDR 96,42000 97,00000 97,48000
ECU 83,6400 84,1500
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270.
Krossgátan
7 z - 5 " T f I
T~ i \
)ö mmmá _
i'Á ry 1U
/ú 1 TST
l°l J W
!H U
Lárétt: 1 athuga, 6 féll, 8 aur, 9 virði,
10 balann, 12 ullarkassi, 14 tanga, 16
gangflötur, 17 vígi, 19 fiöldi, 20 utan,
21 peninga, 22 mjúk. *
Lóðrétt: 1 sívalningur, 2 orka, 3 bind-
ur, 4 umhyggjusamir, 5 leiði, 6 byr, 7
borðaði, 11 hraðinn, 13 höku, 15 ös, 18
róti, 19 átt.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 storms, 8 verja, 9 er, 10 eik,
11 úlfa, 12 stappan, 14 kisu, 16 arg, 17
jól, 19 runa, 21 al, 22 ótrúr.
Lóðrétt: 1 sveskja, 2 teiti, 3 orka, 4
rjúpur, 5 mal, 6 sefar, 7 krangar, 13
paur, 15 sló, 18 ól, 20 nú.