Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Blaðsíða 32
44
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1995
Eru þessir menn ekki hæfir til að
gegna forsetaembættinu?
Óhæfir í for-
setaembættið
„Ég tel stjórnmálamenn ekki
eiga erindi í þetta embætti,
a.m.k. ekki eins og þeir hafa hag-
að sér fram að þessu.“
Sigrún Þorsteinsdóttir, fyrrum forseta-
frambjóðandi í DV.
Svört vinna
„Að hrófla við svartri vinnu í
dag er eins hættulegt fyrir þjóð-
félagið og að slíta eitt líffæri
mannsins úr tengslum við aðra
starfsemi líkamans."
Ásgeir Hannes Eiríksson íTímanum.
Ummæli
Horaðar gamalær
„Það sem þeir grófu þarna á
Hólmavík var nánast ekki
mannamatur. þetta voru horaðar
gamalær.“
Sigurgeir Þorsteinsson í DV.
Laun á tíu stöðúm
„Það sem var hvað mest áber-
andi var að menn tóku laun á
allt að tíu stöðum á sama árinu.
Guðmundur Árni Stefánsson um laun
lækna í DV
Knattspyrnuvellir eru svo til allir
jafnstórir en áhorfendarýmið er
mjög misstórt.
Flestir áhorfendur
og óþekkustu
leikmennirnir
Stærsti áhorfendaskari sem
mælst hefur á einum knatt-
spyrnuleik var 205.000 (199.854
borguðu sig inn). Þessi áhorf-
endaskari var á leik milli Brasil-
lu og Uruguay í HM á Maracana
vellinum í Rio de Janeiro í Bras-
ilíu 16. júlí 1950. Breska aðsókn-
armetið er 149.547 á leik Eng-
lands og Skotlans á Hampten
Park í Glasgow 17. apríl 1937. Þó
kann að vera að fleiri hafi komið
á leik Bolton Wanderers og West
Ham United á Wembley 28. april
1923, en áætlað er að 160.000
manns hafi verið á leiknum. Þá
réðist áhorfendaskarinn inn á
leikvanginn og seinkaði leiknum
um 40 mín., en skráður áhorf-
endafjöldi á leik þennan var
126.047.
Versta hegðun á knatt-
spyrnuvelli
Þegar Tongham Youth Club í.
Surrey og Hawley í Hampshire
leiddu saman hesta sína í hérað-
skeppni 3. nóvember 1969 fengu
Blessuð veröldin
allir 22 leikmennirnir á vellinum
og annar línuvarðanna bókun og
að minnsta kosti einn leikmaður
lenti á spítala. Tongham sigraði
2-0 og eftir leikinn var haft eftir
einum leikmanni að þetta hafi
verið „harður og góður leikur.“
Þá má geta leiks sem var í
Abbey í Essex 23. desember 1973,
þá léku Juventus Cross og Walt-
ham og endaði leikurinn þegar
dómarinn rak allt Juventus liðið
út af vellinum.
Hvasst fyrir norðan
í dag, mánudag, verður allhvöss
eða hvöss norðaustanátt á landinu
og lítið sést til sólar á landinu norð-
anverðu. Snjókoma verður norð-
austanlands, einkum þegar líða tek-
ur á daginn, en annars verður élja-
Veðrið í dag
gangur norðan til á landinu. Um
landið sunnanvert verður þurrt og
fremur fallegt, sést jafnvel eitthvað
til sólar. Hiti verður um eða rétt
undir frostmarki.
Sólarlag í Reykjavík: 17.42
Sólarupprás á morgun: 8.41
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.45
Árdegisflóð á morgun: 5.30
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri
Akurnes
Bergsstaóir
Bolungarvík
Egilsstaóir
Grímsey
léttskýjaö
skýjaö
skýjaó
skýjaö
léttskýjaó
skýjaö
Keflavíkurflugvöllur rigning og súld 3
Kirkjubœjarklaustur skýjaó 2
Raufarhöfn skýjað 0
Reykjavík alskýjað 4
Stórhöföi . skúr á síó. klst. 6
Helsinki skúr 7
Kaupmannahöfn hálfskýjaö 12
Ósló skýjaö 13
skýjað 10
rigning á síö. klst. 4
rign. á síð. klst. 13
mistur 22
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Chicago
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madrid
Mallorca
New York.
Nice
Nuuk
Orlando
Valencia
Vin
Winnipeg
alskýjaö 7
skýjaó 13
léttskýjaö 11
léttskýjaö 14
alskýjaö 14
þokumóöa 17
skýjað 12
léttskýjaö 21
hálfskýjað 24
alskýjað 17
létskýjaö 20
snjókoma 0
þokumóöa 23
léttskýjaö 23
léttskýjaö 17
snjók. á síö. klst. 1
Gunnar Stefánsson sendibílstjóri:
Ræningjanum var brugðið
þegar hann stóð á nærbrókinni
„Ég var þarna staddur nánast af
tilviljun, var með nokkrar ávísan-
ir til að leggja inn, þegar hann hóf
að athafna sig,“ segir Gunnar Stef-
ánsson, sendibílstjóri á Sendibila-
stöðinni, en hann sýndi snaggara-
leg tilþrif þegar grímuklæddur
maður gerði tilraun til þess að
ræna útibú Landsbankans í Aust-
urveri í síðustu viku og kom
þannig í veg fyrir barikarán.
Gunnar segir að það hafi verið
fáir í bankanum þegar þetta gerð-
ist: „Ég vissi ekki fyrr en að mað-
Maður dagsins
urinn var kominn upp á borð. Það
lá við aö augun dyttu úr mér, svo
hissa var ég. Ég hélt eiginlega að
ég væri kominn í bíómynd en ég
rauk til og reif í hann og dró niður
um hann buxumar, um leið og
hann beygði sig niður til að ná í
peninga. Hann var í dökkbláum
galla og með prjónahettu til að
skýla andlitinu. Buxurnar voru
með teygju þannig að auðvelt var
Gunnar Stefánsson.
að draga þær niður. Manngreyið
hefur greinilega farið úr öllu stuði
við að standa allt í einu á nærbrók-
unum í miðju bankaráni og allur
kraftur farinn út í veður og vind.
Ég dró hann síðan niður og þar
sem hann var-með buxumar á hæl-
unum náði hann ekki að fóta sig í
fallinu og ég lagðist ofan á hann og
fékk síðan hjálp frá öðrum og
þannig héldum við honum þar til
lögreglan kom. Eftir á að hyggja
hlýtur þetta að hafa verið bráð-
fyndin sjón að sjá bankaræningja á
nærbrókunum uppi á borði í miðju
bankaráni.
Lögreglan kom fljótt á vettvang
en Gunnar segir að honum hafi
fundist það vera óratími, enda með
ræningjann undir sér. Hann segist
ekkert hafa fengið sjokk eftir á, að-
eins verið nokkuð brugöið við all-
an hamaganginn.
Gunnar rekur eigin sendiferða-
bíl og segir það vera skorpuvinnu:
„Stundum er mikið að gera en
stundum er þetta ósköp rólegt.
Hann sagðist I raun hafa áhuga á
mjög mörgu, þegar hann var
spurður um áhugamál, en hafa lít-
inn tíma til að sinna þvi. „Það fer
svo mikill tími í bflinn, ýmislegt í
kringum starfið." Eiginkona Gunn-
ars er Þórey Jóhannsdóttir og eiga
þau fjórar dætur á aldrinum 21 árs
niður i 7 ára.
Myndgátan
Hungurlús
Myndgátan hér aö ofan lýsir orðasambandi
DV
Einþrykk
Sigrún Sverrisdóttir opnaði
sýningu á laugardaginn í List-
húsi 39 í Hafnarfirði á einþrykki.
Sigrún stundaði nám viö Mynd-
lista- og handíðaskólann
1969-1973. Hún flutti til Stokk-
hólms 1977 og hefur verið búsett
þar síðan. Sigrún hefur aðailega
unnið við myndvefnað, en hefur
seinustu árin einnig fengist við
önnur efni, meðal annars ein-
þrykk.
Sýningar
Sigrún hefur unniö mörg opin-
ber verkefni í Stokkhólmi og
verk hennar eru á opinberum
stofnunum, til dæmis sjúkrahús-
um. Sigrún fékk listamannalaun
sænska rikisins 1989 og 1992.
Hún hefur haldið fjórar einka-
sýningar í Stokkhólmi.
Skák
Fimmta tölublað tímaritsins Skákar
1995 er komið út og kennir þar ýmissa
grasa að vanda. Meöal efnis er ítarleg
umijöllun Sævars Bjarnasonar um
svæðamót Norðurlanda og framhald
greinar Haraldar Baldurssonar um
ólympíumót barna og unglinga, þar sem
íslendingar sigruðu eftirminnilega.
Lítum á smekkleg lok frá svæðamót-
inu. Svíinn Jonny Hector hafði hvítt og
átti leik gegn Dananum Erling Morten-
sen:
25. He8+! og svartur lagði niður vopn.
„Svartur lendir í skemmtilegu (leiðin-
legu!) afbrigði af kæfingarmátinu,” segir
Svæar. Áfram gæti teflst: 25. - Hxe8 26.
Db4+ Kg8 27. Re7+ KfB 28. Rg6++ Kg8 29.
Df8+ HxfB 30. Re7 mát! Hvítur getur
einnig sparað sér ómakiö af drottningar-
fórninni og skotið inn í 29. leik (eða fyrr)
dxe8=D+ og mát í næsta leik.
Jón L. Árnason
Bridge
Sveit Bandaríkjanna II er nýkrýndur
heimsmeistari í bridge, en sveitin sigraði
Kanada með rúmlega 40 impa mun. Sveit
Þjóðverja er heimsmeistari í kvenna-
flokki eftir sigur á sveit Bandaríkjanna.
Heimsmeistarar Bandaríkjanna eru engir
nýgræðingar, Bob Hamman, Bobby Wolff,
Eric Rodwell, Jeff Meckstroth, Nick
Nickell og Richard Freeman. Kanada-
menn komu á óvart með því að komast í
úrslitaleikinn með sigri á sveit Svía. Hér
er eitt spil úr leik Svía og Kanadamanna
þar sem veik grandopnun Kanadamann-
anna kom sér vel. Sagnir gengu þannig í
opnum sal, vestur gjafari og allir utan
hættu:
* D107
V K9873
♦ Á9
A K52
4 542
•* ÁD
•f KD3
* G10974
4 ÁG8
V G10642
♦ 76
* ÁD8
Vestur Norður Austur Suður
Bjerreg. Molson Morath Baran
14 1» pass 4»
p/h
Eftir tvíræða laufopnun Bjerregárds
(veik opnun eða sterk) á gulrótarkerfí
þeirra félaga reyndist það auðvelt fyrir n-
s að ná hinum upplagða fjögurra hjartna
samningi. í lokuðum sal áttu Svíarnir
erfiðara um vik:
Vestur Norður Austur Suöur
Kokish Wirgren Silver Bennet
1G pass 24 pass
2f pass pass dobl
pass 2v
p/h
Það reyndist óyfirstíganleg hindrun að
ráða viö 12-14 punkta grandið í þessu
spili. Silver gat spurt um hálit með þessa
veiku hendi og passaö tveggja tígla svar
vesturs sem neitaði hálit. Dobl suðurs gat
verið byggt á litlum styrk og það útskýr-
ir ef tíl vill þá ákvörðun Wirgrens að
segja aðeins 2 hjörtu. Lengra komust Sví-
arnir ekki, þó að þeir hafi fengiö 11 slagi
í þessum samningi var tapið 6 impar.
ísak Örn Sigurðsson