Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Side 45
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
53
FJÖLSKYLDUDAGAR Á HORNI TRYGGVAGÖTU OG PÓSTHÚSSTRÆTI
Snákurínn
er kominn
m
BUGKSlI
Hann hefur farið sigurför um
Bandaríkin og er nú að hefja för
sína um Evrópu. TryggOu þér
eintak í tíma og vertu meO
þeim fyrstu. Snákurinn
„Snake-IIght" er vinnuljós á
sveigjanlegum barka sem
hefur unniO til fjölda hönnunar-
og hugmynda verOlauna.
Nýung meO ótakmarkaOa
notkunarmöguleika.
Upplýsinar í síma 581 2660
BORGARLJOS
--- K É b J * K
AKHANVSI ■ AKUHKYHI • fQILSSTÖOUM • HAFNAAFIADI
HÖfN • ISAFIHDI ■ KVfLAVIK • HBYKJAVÍK • SBLFOSSI
BYKO allar verslanir, HÚSASMIÐJAN
og fjöldi annarra sölustaða.
Upplýslnar í síma 5812660
SvAKIA
PAMYAM
—
Sarah Brightman:
Græðir á lögum fyrr-
verandi eiginmanns
Sarah og Andrew Lloyd-Webber meðan allt lek í lyndi.
Söngkonan Sarah Brightman, 34
ára, feröast nú um heiminn og held-
ur tónleika við geysimikla hrifn-
ingu. Sarah flytur aðallega lög fyrr-
verandi eiginmanns síns, Andrews
Lloyd- Webbers. Þrátt fyrir að hún
hafi varla náð sér eftir skilnað
þeirra árið 1990 er hún engu að síð-
ur spennt fyrir lögum hans. Webber
er heimsfrægur fyrir söngleiki sína,
Cats, Evita, Jesus Christ Superstar,
Phantom og The Opera og Sunset
Boulevard.
Sarah á langan feril að baki. Þeg-
ar hún var aðeins þriggja ára var
hún send í dansnám og tíu árum
seinna kom hún fyrst fram sem leik-
kona. Þegar hún var átján ára hitti
hún Andrew Graham-Stewart sem
útsetti fyrstu plötu hennar. Hins
vegar fóru hvorki poppdraumar
hennar né hjónaband á þann veg
sem hún óskaði.
Þá reyndi hún að fá hlutverk í
Cats eftir Andrew Lloyd-Webber i
London og hún fékk ekki bara hlut-
verkið heldur einnig nýjan kærasta.
Hann var þá kvæntur og tveggja
barna faðir.
Sarah og Andrew giftu sig árið
1984 og hún varð því brúður í annað
sinn aðeins 23 ára. Hjónin vöktu
ávallt mikla athygli en sagt var að
einkalíf þeirra hefði ekki verið sem
best. Þau eignuðust ekki barn sam-
an og skilnaðurinn varð staðreynd
árið 1990. Sama dag og það gerðist
trúlofaðist Andrew Madeleine Gur-
don.
í sárabætur fékk Sarah dágóða
upphæð frá sínum fyrrverandi. Árið
1992 var erfitt fyrir hana. Faðir
hennar framdi sjáifsmorð og leikrit
sem hún lék í var drepið af gagn-
rýnendum. Árið 1993 gaf hún út eig-
in plötu sem gekk illa.
Nú leggur Sarah áherslu á tónlist
Andrews og þénar dável. Nýlega var
hún á ferð um Bandaríkin og fékk
allt að 15 þúsund áhorfendur á tón-
leika. Hún er nú að gefa út plötuna
Surrender - The Unexpected Songs.
SOUTHERN
FRIED
CHICKEN