Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1996, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1996, Blaðsíða 15
14 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 4 FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 1996 27 íþróttir íþróttir Borðtennis: Guðmundur og Lilja sigruðu Guömundur Stephensen sigr- aði Kristján Jónasson, 2-0, í úr- slitaleik í meistaraflokki karla á LA Café-mótinu í borðtennis sem fram fór í TBR-húsinu á laug- ardaginn. Lilja Rós Jóhannes- dóttir sigraöi Evu Jósteinsdótt- ur, 2-1, í úrslitaleik í meistara- flokki kvenna. Bergur Konráðsson sigraði í I. flokki karla, Kjartan Baldurs- son í 2. flokki og Pétur Ó. Steph- ensen í eldri flokki karla. Allir þessir keppendur eru úr Víkingi. Enska knattspyrnan: Stoke varð fyrir áfalli Stoke City, lið Lárusar Orra Sigurðssonar, vai'ð fyrir miklu áfalli í gær. I ljós kom að aðal- markaskorari liðsins, Kanada- maðurinn Paul Peschisolido, er meiddur á ökkla og verður frá keppni í að minnsta kosti einn mánuð. -DÓ Vinny fékk 4 leiki í bann Vinny Jones, fyrirliði Wimble- don, var í gær dæmdur í fjögurra leikja bann ensku knattspyrn- unni. Vinny'var rekinn af velli í II. skipti á ferlinum um jólin fyrir að skella Ruud Gullit hjá Chelsea hressilega. Að auki gagnrýndi hann útlendinga í deildinni fyrir leikaraskap og fékk þyngri refsingu fyrir það. Frjálsar íþróttir: Ragnheiður og Kristján þjálfa Frjálsíþróttasamband íslands hefur ákveðið að skipta starfi landsliðsþjálfara i þrennt. Það er ólympíuhópur FRI og ólympíu- leikarnir í Atlanta, A-landslið íslands og svo unglingahópar FRÍ 2000 og Sydneyhópur FRÍ 2000. FRÍ hefur ráðiö Ragnheiði Ólafsdóttur sem verkefnisstjóra vegna unglingahópa og Sydney- hóps og Kristján Harðarson hef- ur verið ráðinn verkefnisstjóri vegna verkefna landsliðsins á árinu, en þau eru EM innnhúss og Evrópubikarkeppni félagsliða. Ólympíuleikarnir: Aldrei fleiri þjóðir með Ailar þjóðir innan raða AI- þjóða ólympíusambandsins hafa tilkynnt þátttöku í ólympíu- leikunum í Atlanta sem fram fara í sumar. Síðasta þjóðin til að tilkynna þátttöku var Norður- Kórea og þar með veröa keppendur frá 197 sem taka þátt í ólympíuleikunum og er það metþátttaka. Jafntefli í Skotlandi Rangers og Celtic gerðu markalaust jafntefli í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Þar með heldur Rangers átta stiga forskoti á Celtic en hefur leikið tveimur leikjum fleira.Þrátt fyrir markaleysið var leikurinn fjörugur og átti bæði lið góð færi. I kvöld DHL-deildin í körfubolta ÍA-Þór, Ak..............20.00 Grindavík-Valur.........20.00 Keflavík-Breiðablik.....20.00 KR-Skallagrímur.........20.00 Haukar-Tindastóll.......20.00 Forkeppni að HM ’97 í Japan: Alvöruleikir hér á landi næsta haust Eftir uppákomu þá í gær, þar sem í ljós kemur að aðeins fimm efstu þjóðirnar frá Evrópumótinu á Spáni tryggi sér þátttökurétt í heimsmeist- arakeppninni í Japan, gefur það ís- lenska landsliðinu í handknattleik næg verkefni á þessu ári. Hand- knattleikssamband Evrópu (EHF) gaf HSÍ í gær þær upplýsingar að þetta væri niðurstaðan, aðeins fimm efstu þjóðimar frá Spáni fari beint til Japans. Aðrar Evrópuþjóðir fara í forkeppni I haust. Þetta mun EHF staðfesta í dag í símbréfi til HSÍ. Strax daginn eftir og Evrópumót- inu lýkur á Spáni 2. júní veröur dregið í sex riðla og verða í hverjum þeirra fiórar þjóðir. Þessi keppni hefst í byrjun október og verður leikið með sama sniði og í riðla- keppni Evrópumóts landsliða, leikir heima og að heiman og á forkeppn- inni að ljúka fyrstu vikuna í desem- ber. Allt eins er búist við að þátttak- an verði meiri en 24 þjóðir og ef það kemur á daginn er ekki vitað hvern- ig EHF bregst við þvi. Eftir þvi sem DV komst næst í gærkvöldi gæti þátttökufiöldi farið upp í 35 þjóðir, þá yrði jafnvel liðum fiölgað í riðl- unum. Efstu þjóðirnar i riðlunum fiórum þegar upp verður staðið í desember tryggja sér sæti í heimsmeistara- keppninni í Japan en hinar sitja eft- ir. Niðurstaðan er því sú að níu Evr- ópuþjóðir verða á HM í Japan, fimm frá EM á Spáni og fiórar frá for- keppninni sem hefst í október. Með þessu fyrirkomulagi hefur landsliöið í næg hom að líta á þessu ári. Liðið tekur þátt í Lottó-mótinu í Noregi í lok janúar og verða þar leiknir fiórir leikir við Norðmenn, Dani, Rúmena og Júgóslava. Til stendur einnig að þiggja boð móts- haldara fyrir HM ’97 í Japan en þeir hafa boðið til 7-8 landa móts í vor. -JKS NBA-deildin í körfuknattleik í nótt: Chicago enn osigrað heima Michael Jordan átti mjög góðan leik er Chicago Bulls tók Houston Rockets í bakaríið i nótt í NBA-deild- inni. Lið Chicago virðist ósigrandi um þessar mundir og hefur ekki enn tapað leik á heimavelli á leiktíðinni. Úrslitin i NBA-deildinni í nótt: Boston-Portland 110-114 (frl.) Orlando-Toronto • 121-110 Chicago-Houston 100-86 Milwaukee-Detroit 96-82 SA Spurs-Utah Jazz 111-97 LA Clippers-Indiana 94-110 Golden State-76ers 122-111 • Toni Kukoc skoraði 19 stig fyrir • Chicago og Scottie Pippen 16. Hakeem Olajuwon skoraði 23 stig fyrir Hous- ton, Mario Elie 15 og Sam Cassell 14. „Þetta var versti leikur okkar á tíma- bilinu. Við lékum sem einstaklingar en ekki sem lið og þegar við leikum ekki sem liðsheild erum við bara meðalmenn,“ sagði Hakeem Ola- juwon eftir leikinn. •Orlando er annað lið í deildinni sem kannast ekki við ósigur á leiktíð- inni á heimavelli. Anfernee Hardaway og Shaquille O’Neal fara á kostum þessa dagana og Orlando er til stórra hluta líklegt er vorar. Hardaway skor- aði 34 stig og Shaq var með 26, Dennis Scott 18 og Nick Anderson 17. Alvin Robertson skoraði 27 stig fyrir Tor- onto. Nýliðinn Damon Stoudamire skoraði 23 stig og gaf 13 stoðsendingar. • Illa gengur hjá Boston eins og áður og Rod Strickland skoraði 27 stig í framlengda leiknum i nótt. Arvydas Sabonis var með 24 stig og Clifford Robinson 23. Dino Radja skoraði 24 stig fyrir Boston og þeir Dana Barros og Rick Fox 22 hvor. • David Robinson skoraði 31 stig í nótt fyrir Spurs gegn Utah og Vinny Del Negro var með 28. Skammt undan kom Sean Elliott með 24 stig. Að auki hélt hann Karli Malone í 14 stigum sem teljast verður til mikilla afreka. Sannaðist nú enn einu sinni að leiki Malone illa tapar Utah Jazz. Chris Morris skoraði 22 stig fyrir Utah og John Stockton 21. • Glenn Robinson skoraði 19 stig fyrir Milwaukee, Vin Baker 18 og Benoit Benjamin 16. Alan Houston skoraði 17 stig fyrir Detroit. • Rony Seikaly skoraði 21 stig og Joe Smith og Latrell Sprewell 19 hvor er Golden State vann 76ers. Trevor Ruffin skoraði 27 stig fyrir 76ers. • Rik Smits skoraði 25 stig og Ricky Pierce 19 fyrir Indiana gegn Clippers þar sem Loy Vaught var stigahæstur með 25 stig. -SK íþróttamaður ársins: Hver hreppir titilinn eftir- sótta í kvöld? Útnefning á íþróttamanni ársins Birkir Kristinsson .knattspyma 1995 fer fram í kvöld og verður Eydis Konráðsdóttir..sund kjörinu lýst í hófi sem verður haldið Geir Sveinsson.handknattleikur á Hótel Loftleiðum. Það eru Samtök Jón Amar Magnússon . frjálsar íþróttir íþróttafréttamanna sem standa að Kristinn Bjömsson ..skíði kjörinu en þau hafa gert það allar Magnús Scheving.þolfimi götur síðan 1956. Þetta er því í 40. Patrekur Jóhannesson handknattleikur skipti sem kjörið fer fram. Sigurður Jónsson...knattspyrna Nöfn tíu efstu íþróttamanna hafa Teitur Örlygsson .... körfuknattleikur verið birt og til upprifiunar er það Athöfnin hefst klukkan 20.30 og þessir, í stafrófsröð. verður hún sýnd í beinni útsend- Arnar Gunnlaugsson .... knattspyma ingu í Ríkissjónvarpinu. Grófur leikur í Eyjum - þegar ÍBV tapaði fyrir Aftureldingu dv e um- prýddu liði gestanna. Vörn ÍBV var —’ yium:-------------------- hins vegar í molum en frábær mark- Afturelding mátti svq sannarlega varsla Sigmars Þrastar hélt ÍBV á hafa fyrir hlutunum þegar Eyja- floti. Dagskipun Aftureldingar var menn voru lagðir í Eyjum, 23-20, í greinilega að þjarma vel að óreyndu einhverjum grófasta og ljótasta Eyjaliði og mátti Bergsveinn mark- handboltaleik sem sést hefur í Eyj- vörður hrósa happi að fá ekki rauða um í seinni tíð. Dómararnir misstu spjaldið þegar hann hljóp út á móti leikinn strax úr höndunum og tíðir og keyrði niður Ingólf, hornamann brottrekstrar liðanna segja aðeins ÍBV. litla sögu um ástandið inni á vellin- í seinni hálfleik var þrek ÍBV á um. En það var Einar Þorvarðarson enda og Afturelding átti ekki í telj- sem hrósaði sigri í uppgjöri fyrrver- andi vandræðum með að innbyrða andi landsliðsþjálfaranna sem sigurinn í lokin en þá hrökk Berg- þarna mættust í fyrsta sinn með fé- sveinn í gang og varði mjög vel. ÍBV lagslið sín. gerði einfaldlega of mörg sóknarmi- ÍBV var hálfvængbrotið enda án stök í leiknum og var grimmilega Rússans Dudkins sem verður frá refsað með hraðaupphlaupum. samkvæmt læknisráði allan janúar. Bjarki Sigurðsson var langbestur Hefur Zoltan Belánýi verið kallaður í liði Aftureldingar og Róbert átti frá Ungverjalandi til að fyfla skarð- góða spretti. Hjá ÍBV var Sigmar ið en hann er enn að jafha sig eftir Þröstur besti maðúr og Amar lék slæm meiðsli. En táningarnir í lengst af frábærlega en klúðraði hreinræktuðu Eyjaliðinu spiluðu leiknum af hálfu ÍBV i lokin. fyrri hálfleikinn af miklum eldmóði -ÞoGu og stóðu uppi í hárinu á stjömu Jón Arnar tekur við DV-verðlaununum Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi tók í gær við verðlaunum sínum sem íþróttamaður ársins 1995 hjá DV. Eins og fram kom í blaðinu á þriðjudag hlaut Jón Arnar fiest atkvæði í kjöri lesenda DV og hann fékk að launum íslandssögu a-ö eftir Einar Laxness, sem gefin er út af Vöku-Helgafelli. Hulda Ingibjörg Skúladóttir, eiginkona Jóns, og mánaðargamall og nýskírður sonur þeirra, Krister Blær, komu með honum á ritstjórn DV . DV-mynd Brynjar Gauti ÍBV-Afturelding (13-12) 20-23 1-1, 4-2, 10-10 (13-12), 14-12,15-17, 16-20, 18-21, 19-21, 19-23, 20-23. Mörk ÍBV: Arnar Pétursson 9/4, Gunnar B. Viktorsson 5, Haraldur Hannesson 3, Svavar Vignisson 2, Davíð Hallgrímsson 1. Varin skot: Sigmar 19/2. Mörk Aftureldingar: Bjarki Sigurðsson 5/1, Ingimundur Helgason 5/5, Alexei Trufan 3, Páll Þórólfsson 2, Róbert Sighvatsson 2, Þorkell Guðbrandsson 2, Gunnar Andrésson 2, Jóhann Samúlesson 1, Bergsveinn Bergsveinsson 1. Varin skot: Bergsveinn 13. Brottvisanir: ÍBV 6 mín., UMFA 12. Dómarar: Sigfús og Gunnlaugur, slökustu menn vallarins. Áhorfendur: 325 Maður leiksins: Sigmar Þröstur. Staðan Valur 11 KA 10 Haukar 11 Stjarnan 11 FH 11 Aftureld. 11 Grótta 11 Selfoss 11 1 272-241 19 1 285-255 18 2 290-254 17 3 289-261 15 4 284-269 11 5 268-266 11 5 262-265 10 7 250-291 8 ÍBV 10 3 1 6 237-249 7 ÍR 11 3 1 7 235-262 7 Víkingur 11 3 0 8 248-257 6 KR 11 0 1 10 249-319 1 • Næstu leikir þann 14. janúar: Valur-Stjarnan, Afturelding- KA, Víkingur-Haukar, FH-KR, Selfoss-Grótta, ÍR-ÍBV. Allir leikirnir hefiast kl. 20. Þjóðverjar vissu þessa samþykkt Nokkrar þjóðir, sem kepptu á heims- meistaramótinu í handknattleik á ís- landi, var fullljóst eftir hana að haldin yrði sérstök forkeppni að heimsmeistara- mótinu í Japan 1997. Þær töldu að þegar hefði verið samþykkt að aðeins fimm efstu þjóðirnar frá Evrópumótinu á Spáni myndi fara beint á HM ’97 í Japan. Svo virðist sem skilningur á þessari sam- þykkt frá EM-þinginu í Frakklandi 1994 hafi ekki verið víðtækur, þar á meðal ís- lendinga. Uppákomur innan handboltans hafa oft verið kátlegar en þessi slær lík- lega allt út. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Framkvæmdastjóri Örebro: „Vonandi orö- ið klárt með skiptin" Sigurður og ÍA semja í kvöld Nú þykir fullvíst að Sigurður gangi ■ raðir sænska liðsins Örebro. Skagamaðurinn Sigurður Jóns- son og forráðamenn sænska úrvals- deildarliðsins Örebro ræddu saman í gær um væntanleg félagaskipti hans frá ÍA til Örebro en eins og kunnugt er hafa Sigurður og knatt- spymudeild ÍA ekki komist að sam- komulagi hvemig staðið verði að málum um félagaskiptin. „Sigurður tjáði okkur að hann myndi ganga frá samningi við ÍA annað kvöld (í kvöld) og því er það vonandi orðið klárt að hann gangi í raðir Örebro. Það ríkir mikil ánægja með þessa niðurstöðu í stjórninni. Við höfum þurft að bíða lengi með þetta mál og vorum orðn- ir ansi óþolinmóðir,” sagði Kenneth Karlsson, framkvæmdastjóri Örebro, við DV í gærkvöldi. Þrátt fyrir ítrekar tilraunir blaðs- ins tókst ekki að hafa upp á Sigurði til að ræða þetta mál í gærkvöldi. -GH/EH-Sviþjóð Möguleiki á þátttöku á HM í Japan: „Þetta gefur okkurný sóknarfæri" - segir Örn Magnússon hjá HSÍ Segja má með sanni að forsvars- menn Handknattleikssambands ís- lands hafi rekið upp stór augu síð- degis í gær þegar í ljós kom að möguleikar íslenska landsliðsins um að tryggja sér þátttökurétt í næstu heimsmeistarakeppni í Japan 1997 eru enn fyrir hendi. Þennan möguleika töldu menn endanlega úti eftir riðlakeppni Evrópumótsins nú í nóvember þar sem íslendingar lentu í þriðja sæti í sínum riðli. Ljóst var þá að ísland yrði ekki með á stórmótum fyrr en eftir HM í Jap- an 1997. Þessi sýn snerist alveg við í gær þegar í ljós kom að aðeins fimm efstu þjóðimar frá Evrópumótinu á Spáni í maí tryggja sér þátttökurétt á HM í Japan. Aðrar þjóðir í Evrópu taka síöan þátt í forkeppni sem hefst í október með sex fiögurra þjóða riðlum. Nánar er fiallað um þessa keppni annars staðar í opnunni. „Upplýsingaflæðið hefur kannski brugðist" „Á Evrópusambandsþinginu sem fram fór í Frakklandi 1994 var þetta mál rætt og sátu þingið fimm full- trúar frá HSÍ. Þar var málinu, það er að segja þessari staðreynd sem við stöndum frammi fyrir núna, vís- að í nefnd. Okkar skilningur, og greinilega Norðmanna einnig, er sá að nefndin leggi þetta fyrir þingið núna í mars og það fari í fram- kvæmd fyrir heimsmeistarakeppn- ina 1999. Ekki þá keppni sem haldin verði í Japan á næsta ári. Það sem gerist er að þessi milli- þinganefnd virðist hafa vald til þess að ákveða þetta nú þegar. Þama kemur misskilningurinn. Við töld- um nefndina alls ekki hafa vald til þess en greinilega hefur hún haft það. Þar af leiðandi er búið að taka ákvörðun um þetta fyrr en við bjuggumst við. Við vissum að taka þetta myndi koma en ekki fyrr en eftir HM í Japan. Ég minni á það að Norðmenn eru í sömu sporam og við. Þeir töldu sig úti til ársins 1998. Það getur vel verið að upplýsinga- flæðið frá EHF hafi eitthvað brugð- ist og eins það að einhvers miskiln- ings hafi gætt hjá okkur. Þessi möguleiki gefur okkur hjá HSÍ ákveðiö sóknarfæri með alvöruleikj- um í haust. Þetta er mikið gleði- efni,“ sagði Örn Magnússon, fram- kvæmdasfióri HSÍ, í samtali við DV í gærkvöldi. -JKS Þjálfarinn ekki á nærbrókinni Þjálfari þýsku meistaranna í knattspymu, Ottmar Hitzfeld, er enn á toppnum hvað launamál þjálfara í þýska boltanum varð- ar. Hitzfeld er með litlar 135 millj- ónir króna í árslaun en næstur honum kemur Otto Rehagel hjá Bayem Múnchen með 92 millj- ónir króna. Eric Ribbeck hjá Bayer Leverkusen er þriðji launahæsti þjálfarinn með 6 milljónir. Boban á leið á Old Trafford? Alex Ferguson, stjóri Man. Utd í enska boltanum, leitar enn að nýjum leikmönnum. Sem fyrr hefur hann helst augastað á leik- mönnum utan Bretlands og nú er Króatinn Zvonimir Boban hjá AC Milan undir smásjánni hjá Ferguson. Boban hefur ekki tekist að tryggja sér fast sæti í aðalliði Milan og Ferguson telur að Kró- atinn, sem er mjög öflugur miðjumaður, geti reynst United mikilvægur I þeim toppslag sem fram undan er í úrvalsdeildinni. Allt var á floti á heimavelli Stoke Fresta varð heimaleik Stoke City, liði Lárusar Orra, á nýárs- dag vegna vatnselgs á vellinum. Stórt vatnsrör fór í sundur við leikvöllinn og vatnið streymdi óhindrað til leiks. Var svo komið að 5 sm djúpt vatn var á vellinum. Tjón Stoke er mikið en völlurinn verður orðinn leikhæfur á laugardag er Stoke mætir Forest í bikarnum. DV hefur þýska handknattleikssamband- ið verið fullmeðvitað um að forkeppni yrði að HM ’97 í Japan. Umræða um þessi mál var á mifli handknattleiks- manna í Þýskalandi strax eftir komu landsliðs þeirra frá HM á íslandi á sl. vori. Júlíus Jónasson, sem leikur með Gum- mersbach í Þýskalandi, sagði við DV seint í gærkvöldi að þessi forkeppni hefði ekki komið sér á óvart. Hún hefði verið á vitorði allra innan handknattleiksins í Þýskalandi strax eftir HM á íslandi. -JKS Fram missir einn til viðbótar: Gauti í KA - númer eitt að komast í burtu Gauti Laxdal leikur með KA á ný næsta sumar. „Ég er á leið norður og ætla að leika aftur með KA. í dag er þetta ein- ungis spurning um vinnu en það er ekki aðalmálið sem stendur. Númer eitt er að komast í burtu frá Fram en eitthvað meira en lítið er aö hjá félag- inu. Hver leikmaðurinn á fætur öðr- um hefur horfið frá liðinu og það er ekkert gert í málunum. Auðvitað er leiðinlegt að yfirgefa sökkvandi skip en það var ekkert annað í stöðunni,” sagði knattspyrnumaðurinn Gauti Laxdal í samtali viö DV í gær en hann mun spila með KA í 2. deildinni næsta sumar. Gauti hefur leikið með Fram síð- ustu tvö leiktímabil og þar hóf hann ferilinn en frá 1987 til 1993 var hann leikmaður með KA, varð íslands- meistari með félaginu 1989 og er nú aftur á leið til fyrrum félaga sinna. Hann er 29 ára gamall og á að baki 149 leiki í 1. deild, þar af 100 með Ak- ureyrarliðinu. „Ég þekki mig vel fyrir noröan og það verður gaman að takast á við þetta nýja verkefiii,” sagði Gauti Lax- dal. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.