Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1996, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 7 Fréttir Stjórnarmenn Fiskiðjusamlags Húsavíkur: Aðalfundur hækkaði laun stjórnar- manna um hundruð prósenta - siðlaust, segir formaður Verkalýðsfélagsins DV, Akureyri: „Mér finnst þetta siðlaust, þótt auðvitað eigi að greiða stjórnendum fyrirtækisins góð laun fyrir ábyrgð- arstörf," segir Aöalsteinn Baldurs- son, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, um þá ákvörðun að hækka laun stjórnarmanna fyrir- tækisins verulega, eða um nokkur hundruð prósent. Ákvörðunin um launahækkun til stjórnarmanna og stjórnarformanns var tekin á aðalfundi fyrirtækisins nýlega. Laun stjórnarmanna, sem verið hafa 45 þúsund krónur á ári, hækka í 150 þúsund, eða um 233%, en laun stjórnarformanns, sem ver- iö hafa 55 þúsund krónur, hækka í 300 þúsund krónur, eða um 445%. „Þetta er alveg út úr kortinu, á sama tíma og laun fiskverkafólksins eru ekki mannsæmandi. Viðbrögðin eru mikil og lýsa mikilli óánægju, enda er launafólk að fá um 5% hækkun á sama tíma og þetta á sér stað,“ segir Aðalsteinn Baldursson. Aðalfundur Fiskvinnsludeildar Verkalýðsfélagsins átaldi þessa ákvörðun harðlega í ályktun þar sem sagði m.a.: „Fundurinn efast ekki um ábyrgð stjórnar og telur að laun hennar eigi að vera í samræmi við það. Ábyrgð annarra starfs- manna er sömuleiðis mikil, þrátt fyrir það búa þeir við launakjör sem varla teljast mannsæmandi. Auk þess hafa þeir ekki aðstöðu til að skammta sér laun sjálfir." Þá beindi fundurinn þeim tilmælum til stjórn- ar Verkalýðsfélagsins að þess verði krafist að starfsmenn fyrirtækisins fái sambærilegar hækkanir og stjóm fyrirtækisins telur sér hæfa. „Það var verið að reyna að laga laun stjórnar fyrirtækisins að því sem er í sambærilegum fyrirtækj- um, laun stjórnarmanna fara þannig í 150 þúsund krónur á ári en eru t.d. 210 þúsund hjá Útgerðarfé- lagi Akureyringa, svipuð hjá Þor- móði ramma en miklu hærri t.d. hjá Granda," segir Einar Njálsson, for- maður stjórnar Fiskiðjusamlagsins. Einar segir að hægt sé að reikna dæmið eins og gert hafi verið og fá þannig út háa prósentuhækkun. Það hafi hins vegar einungis verið aflað upplýsinga um greiðslur hjá öðrum svipuðum fyrirtækjum og laun stjórnarmanna FH löguð að þeim þótt launin hafi ekki verið hækkuð eins mikið og þurft hefði til að ná þeim launum sem greidd eru annars staðar. -gk Feðgin saman á dvalarheimili DV, Hvolsvelli: Ágústa Jónsdóttir, sem er 94 ára Og bjó í Miðkoti í Vestur-Landeyj- um, eyðir ævikvöldinu með syni sínum, Tómasi KristinSsyni, sem er 71 árs, á Dvalarheimilinu Kirkju- hvoli á Hvolsvelli og mun slíkt vera mjög fátítt ef ekki einsdæmi hér á landi. Eiginmaður Agústu var Kristinn Þorsteinsson frá Árgilsstöðum á Hvolsvelli. Þau eignuðust sjö börn og sex komust til fullorðinsára. Tómas er þeirra elstur og það er eins og aldursmunur minnki' með árunum því elsti sonur hennar er nú fluttur til hennar. Þau hafa margt að rifja upp og eldast saman án þess að taka eftir því. Síritar í 1% vinnuvéla DV-mynd JBen Þrátt fyrir aö reglur um að síritar skuli vera í vinnuvélum hafi tekið gildi 15. nóvember sl. er, að sögn Kristínar Sigurðardóttur, fram- kvæmdastjóra Félags vinnuvélaeig- enda, aðeins eitt prósent þeirra sem eiga að vera með þá. Ástæða þess er að fá verkstæði hafa leyfi til að setja þá í bílana, þeir eru dýrir, kosta 70-90 þúsund komnir í, og svo eru menn að halda að sér höndum í þeirri von að reglunum verði breytt. Kristin sagðist vera hrædd um að reyndin yrði sú að þetta kæmi með tímanum. Ekki hefur enn sem komið er ver- ið tekið hart á að síritarnir séu ekki í bílum en Kristín sagði að þeir sem færu með bíla sína í skoðun yrðu að sýna fram á að þeir heföu pantað tíma fyrir ísetningu. -ÞK REYKJAVIK OG NAGRENNI áerindi við þig milljóniróskiptar a einn mi ur mi i. ianuar ar vinna Aðalumboð Suðurgötu 10, sími 552-3130 Verslunin Grettisgötu 26 sími551-3665 Blómabúðin Iðna Lísa Hverafold 1-3, Grafarvogi, sími 567-6320 Breiðholtskjör Arnarbakka 4-6, sími 557-4700 Griffill sf. Síðumúla 35, sími 533-1010 Bókabúð Árbœjar sími 587-3355 Bókabúð Fossvogs Grímsbæ, sími 568-6145 Happahúsið Kringlunni, sími 568-9780 Verslunin Straumnes Vesturbergi 76, sími 557-2800 Neskjör Ægissíðu 123, sími 551-9292 Úlfarsfell Hagamel 67, sími 552-4960 Verslunin Snotra Alfheimum 4 sími 553-5920 Teigakjör Laugateigi 24, sími 553-9840 Kópavogur: Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 554-2630 Videómarkaðurinn, Hamraborg-20A, sími 554-6777 Garðabœr: Bókabúðin Gríma, Garðatorgi 3, sími 565-6020 SÍBS-deildin, Vífilsstöðum, sími 560-2800 Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers Steins, Vilborg Sigurjónsdóttir, sími 555-0045 Mosfellsbœr: Bókabúðin Ásfell, Háholti 14, sími 566-6620 SÍBS-deiIdin, Reykjalundi, sími 566-6200 Einstakir aukavinningar: Handrit íslenskra rithöfunda Hœstu vinningarnir ganga örugglega út - oft upphœkkaðir Mestu vinningslíkur í íslensku stórhappdrætti HAPPDRÆTTI K V,SA Óbreytt miðaverð: 600 kr. ...fyrir lífið sjálft

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.