Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1996, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1996, Blaðsíða 28
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttáskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER 550 5000 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Frjálst,6háð dagblað FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 Úrval-Útsýn yfirtók Alís Úrval-Útsýn yfírtók eignir og starfsemi Ferðaskrifstofunnar Alís í Hafnarfirði um áramótin. Nafni fyr- ^*irtækisins var breytt í Plúsferðir og verður starfsmannahald óbreytt fyrst um sinn. Laufey Jóhannsdótt- ir, eigandi Alís, staðfesti þetta í samtali við DV, en hún mun stýra Plúsferðum. Alís hefur sérhæft sig í sölu á ferðum til Newcastle í Englandi og Billund í Danmörku auk annarrar almennrar ferðaskrif- stofustarfsemi. Laufey sagði starf- semina verða óbreytta. -bjb Columbia Aluminum: Ákvörðun innan þriggja vikna „Við erum að fara vandlega yfir kosti þess og galla að reisa álverið, hvort heldur sem er í Venesúela eða á íslandi. Við ætluðum að vera bún- ir að þessu um áramótin en þetta er stór ákvörðun og mun væntanlega ekki liggja fyrir strax. Ætli það verði ekki innan þriggja vikna,“ sagði James Hensel, yfirmaður nýrra verkefna hjá Columbia Alum- inum, í samtali við DV í gærkvöld. Ákvörðunar fyrirtækisins er beðið með mikilii eftirvæntingu, hvort 60 þúsund tonna álver rísi á Grundar- tanga eða ekki. -bjb Flóki vill ekki Jón aftur: Ekki hægt að reiða sig á slíkan starfskraft Eiríkur Tómasson prófessor hef- ur, að beiðni biskups Islands, tekið að sér að kynna sér deiluna í Lang- holtssókn og benda á leiðir til lausn- ar. Jón Stefánsson var spurður hvemig honum litist á það. „Mér líst mjög vel á það. Ég kem til starfa aft- ur í kirkjunni með kórinn þann 15. janúar og æfingar hefjast fyrr. Ég hef talað við formann sóknamefndar og 'hann var ánægður með það.“ Jón sagðist í samtali við DV ekki hafa rætt þessa ákvörðun sina við séra Flóka enda töluðust þeir ekki við. „Auðvitað verður þetta erfitt en það er hægt að standa af sér nokkr- ar messur, ég hef áður leikið við erf- iðar aðstæður, til dæmis jarðarfarir nákominna," sagði Jón. Séra Flóki Kristinsson var spurð- ur hvemig honum litist á það að Jón sneri aftur. „Mér finnst ótrúlegt að söfnuðurinn sætti sig við að mað- ur sem tvisvar hefur hótað að koma jólahaidi í uppnám með því að fara, og gert alvöru úr þvi í seinna sinn- ið, komi aftur til starfa. Það er aug- jljóst að ekki er hægt að reiða sig á slíkan starfskraft." -ÞK L O K I Ungur maöur dæmdur í átta mánaöa fangelsi: Seldi ungmenn- um mjög hættu- leg fíkniefni - einn kaupendanna er nafngreindur 17 ára piltur 23 ára Eskfirðingur, Björn Kristjánsson, hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir sölu á talsverðu magni af hættulegum fikniefnum á fyrri hluta ársins 1995. Hann var dæmdur fyrir að hafa haft í vörslum sínum 40 grömm af amfetamíni, 17 töflur af metýlendíoximetamfetamíni og 40 grömm af hassi. Björn seldi nafngi-eindum 17 ára pilti 3 grömm af amfetamíni, 3 grömm af hassi og 4 töflur af MDMA. Hann seldi síðan nafn- greindum 19 ára pilti 2 grömm af amfetamíni og 4 töflur af MDMA. Þriðja aðilanum, 24 ára karl- manni, seldi Bjöm 25 grömm af amfetamíni, um 30 grömm af hassi ig 9 töflur af MDMA. Þremenningarnir greiddu 4.000- 4.500 krónur fyrir hveija töflu af MDMA, 4.000-5.000 krónur fyrir grammið af amfetamini og 1.300 krónur fyrir grammið af hassi. Allt þetta viðurkenndi sakborn- ingurinn skýlaust fyrir dómi. Lög- reglan lagði hald á 12 grömm af amfetamíni og hálft gramm af hassi við leit í bíl Bjöms þann 11. júlí síðastliðinn. Héraðsdómur Austurlands komst að þeirri niðurstöðu að Björn hefði selt töluvert magn „af mjög hættulegum efnum“ og ekki aðeins í eitt skipti. Við refsiá- kvörðun var hliðsjón höfð af þessu. Ólafur Börkur Þorvaldsson héraðsdómari kvað upp dóminn. -Ótt Konur eru til alls vísar eins og alkunna er og Sigríður Ólafsdóttir er þar engin undantekning. í 17 ár hefur hún ekið öskubíl fyrir hreinsunardeild Reykjavíkurborgar og verið að „trilla í sorpinu með körlunum", eins og hún segir sjálf. Sigríður hefur verið virk í félagsmálum og meðal annars verið í stjórn Dagsbrúnar frá 1989. Nú hefur hún ákveðið að gefa kost á sér til varaformanns í Dagsbrún. Á myndinni má sjá Sigríði í bíl sínum ■ gær. DV-mynd GS Veörið á morgun: Allhvasst og slydda Á morgun verður norðaustan stinningskaldi eða allhvasst og slydda eða snjókoma á Vestfjörð- um. Annars staðar verður aust- angola eða kaldi. Norðanlands verður að mestu þurrt en smá- skúrir sunnan til. Hiti verður á bilinu 0 til 6 stig, kaldast allra nyrst. Veðrið í dag er á bls. 36 * * * * * 1° * * W* o< o 1 2° ^ V 3° • 4° /• V w. hÆ \ 3° . \ V ^ V >] Sundahöfn: Hættuástand þegar brú svignaði „Kraninn stendur nú á brúnni. Stálsmiðir em nú að styrkja brúna því að menn vilja ekki keyra tækið fyrr en hún hefur verið styrkt. Síð- an reikna menn með að kippa tæk- inu aftur i land síðdegis í dag,“ seg- ir Hjörleifur Jakobsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Eim- skips. Hættuástand skapaðist þegar flot- brú svignaði undan 150 tonna krana sem verið var að keyra um borð í skip í Sundahöfn i gærkvöld. Óttuð- ust menn að brúin gæfi sig og kran- inn félli i sjóinn en svo fór ekki. „Þetta er mikil handvömm hjá Reykjavíkurborg að vita ekki hvað mannvirki þeirra þola þegar þeir vita hvað tækið er þungt,“ segir Brenda Kristbjömsson, sem selt hef- ur kranann til Bretlands og þaðan til Taívan. -GHS Úrskurður Félagsdóms Nú reynir á samstöðu félaganna - segir Kristján Gunnarsson „Það sem við gemm nú er að kynna okkar fólki niðurstöðu Fé- lagsdóms. Samkvæmt honum eru hendur verkalýðsfélaganna sjálfra bundnar út þetta ár og þá reynir á samstöðu félaganna ef þeir vilja fara út í baráttu. Það er kaldhæðn- islegt að þessi úrskurður Félags- dóms skuli koma sama dag og kjara- nefnd úrskurðar um tugþúsunda króna launahækkun til presta og annarra embættismanna ríkisins," sagði Kristján Gunnarsson, formað- ur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, í samtali við DV i morg- un um úrskurð Félagsdóms frá í gær. Félagsdómur úrskurðaði þá að uppsögn kjarasamninga hjá Verka- lýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur, Verkamannafélaginu Hlíf, Verka- mannafélaginu Dagsbrún og Verka- lýðsfélaginu Einingu á Akureyri væri ógild. Segir í úrskurði dómsins að forsendur séu ekki fyrir hendi til uppsagnar kjarasamninga. Éins og áður hefur komið fram í fréttum DV hafa menn í þessum verkalýðsfélögum rætt þann mögu- leika að setja á yfirvinnubann þegar loðnuvertíð hefst en að sjálfsögðu fer slíkt eftir því hvað félagsmenn sjálfir vilja gera í þeim efnum en ekki hvað stjómarmenn vilja. -S.dór btother Litla merkivélin Loksins meö ÞogÐ JÉ Nýbýlavegi 28-sími 554-4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.