Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1996, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1996, Blaðsíða 24
36 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 . Hrafn er ánægður með ára- mótaskaupið. Harðlífis- vandamálin horfin „Síðustu tvö ár hafa skaupin litast um of af harðlífisvanda- málum viðkomandi leikstjóra, en nú var létt yfir, góður leikur og ný andlit kynnt.“ Hrafn Gunnlaugsson, í Tímanum. Leikrænar tjáning- ar hverfi „Það er kominn tími til að for- usta verkalýðsins í landinu opni Ummæli augun fyrir því að tímf hinnar leikrænu tjáningar í fjölmiðlum er liðinn." Kristján Árnason, formannsefni í Dagsbrún, í DV. Viljalaus og getulaus Forystan er algjörlega mátt- laus, viljalaus og getulaus." Pétur Sigurðsson, formaður Al- þýðusambands Vestfjarða, t DV. Botnlangi af kjaradómi „Þetta er eins konar botnlangi af kjaradómi. Þarna er „elítan“ að skammta sjálfri sér. Það er verið að skammta mönnunum með titlana." Björn Grétar Sveinsson, i DV. Sjötíu og fimm ár eru síðan fyrsta hárþurrkan leit dagsins Ijós. Hárþurrkur og hárlitun Franski efnafræðingurinn Eu- gene Schueller gerði fyrstu til- raunirnar með hárlitun árið 1909. Ári síðar stofnaði hann fyr- irtæki í kringum þessar tilraun- ir sínar og nefndi það L’Oréal. 1927 var fundið upp litarefnið imédia, sem framleitt var úr náttúrulitum. Olli það byltingu í hárprýði sakir margbreytilegra blæbrigða og trúverðugs útlits. Einkum var um mikla framför að ræða í litun á ljósu hári. 1953 komu Regi Color litir á markað- inn, léðu þeir gljáa og áttu eftir að efla það og styrkja. Blessuð veröldin Hárþurrkur verða til Tvær fyrstu gerðir af hár- þurrkum voru framleiddar í Racine í Wisconsin árið 1920. Þær þættu ekki hentugar í dag þar sem þær voru handknúnar. Framfarir urðu þó örar. Næsta stigi var náð þegar stórfyrirtæk- ið Sears, Roebuck & Co, setti á markaðinn fyrsta hárþurrku- hjálminn sem ætlaður var til heimilisnota. Rigning og skúrir Það verður austan og norðaustan hvassviðri um norðvestanvert land- ið. Annars staðar er vaxandi aust- anátt og verður víða allhvöss eða hvöss fram eftir degi. í kvöld snýst vindur til mun hægari suðlægrar Veðrið í dag áttar, fyrst sunnanlands en síðan einnig norðan til. Það verða lítils háttar él eða slydduél norðanlands í dag en sunnanlands verður rigning og síðan skúrir þegar líður á daginn og síðan einnig um austanvert land- ið. Það verður vægt frost norðvest- anlands en hitinn í kringum frost- mark norðaustan tfl. Sunnanlands verður hiti á bilinu 2 tU 7 stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður austan- og norðaustankaldi eða stinning- skaldi, dálítil úrkoma þegar líður á daginn en norðaustangola eða kaldi og léttir heldur til í nótt. Hiti á bil- inu 4 til 8 stig. Sólarlag í Reykjavík: 15.49. Sólarupprás á morgun: 11.15. Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.59. Árdegisflóð á morgun: 6.15. Heimild: Almanak Háskólans. Veðriö kl. 6 í morgun: Akureyri slydduél 2 Akurnes álskýjað 4 Bergsstaðir skýjaö 1 Bolungarvík snjóél á siö. klst. -3 Egilsstaöir alskýjaö 1 Keflavikurflugv. alskýjað 4 Kirkjubkl. alskýjaö 3 Raufarhöfn rigning 1 Reykjavík skýjað 4 Stórhöfði alskýjaö 5 Helsinki alskýjaö -11 Kaupmannah. þokumóóa -9 Ósló snjókoma -11 Stokkhólmur léttskýjaö -15 Þðrshöfn alskýjað 7 Amsterdam þokumóöa 0 Barcelona léttskýjaó 5 Chicago skýjaó -7 Frankfurt skýjaó -5 Glasgow rigning 4 Hamborg þokumóöa -5 London mistur 4 Madríd skýjaö 7 París alskýjað 1 Róm heiöskýrt 4 Mallorca léttskýjaö 1 New York snjóél -7 Nice léttskýjaö 7 Nuuk þoka í grennd -5 Valencia háifskýjaó 7 Vín snjókoma -2 Winnipeg snjókoma -20 Stefan Hjartarson hjá Djúpmynd: Fer fljótlega að mynda háhyrninga „Fyrirtækiö var stofhað 1987 í kringum neðansjávarmyndavélar sem keyptar voru og þótt aUtaf hafi fyrst og fremst verið ljós- myndað þá hefur einnig fylgt starf- seminni ýmis vinna neðansjávar, meðal annars fyrir rafmagnsveit- urnar og Póst og síma. Það hefur þó alltaf verið stefha okkar að fara inn á erlendan markað með myndavélina og höfum við í því skyni tekiö þátt í sýningum," seg- ir Stefán Hjartarson en fyrirtæki hans, Djúpmynd hf., hefur fengið verkefni við að mynda neðansjáv- ar hér við land fyrir hina þekktu sjónvarpsstöð, Discovery, og kem- ur þetta boð í kjölfarið á nýrri og Maður dagsins fuUkominni neðansjávarmyndavél sem fyrirtækið hefur eignast: „Þetta er spennandi verkefni og er það sem við höfum verið að stefna aö allan tímann, að gera náttúrulífsmyndir um dýralífið neðansjávar. Viðbrögð hér á landi hafa hingað til ekki verið mikil en ég er að vona að þetta verkefni veki menn upp við að við eigum lítið af myndum úr dýraríkinu Stefán Hjartarson. neðansjávar hér við land.“ Stefán sagði myndavélina, sem hann væri með núna, af fuU- kominni gerð. Vélin getur tekið á 600 metra dýpi. Það eru ekki marg- ar vélar af þessari gerð tfl í Evr- ópu.“ Stefán segist ekkert kafa sjálfur, vélin sé öU fjarstýrð og hann stjórnar myndatökunni gegnum skjá. Aðspurður sagði Stefán að hann væri nú að fara að vinna fyrir Olís: „En síðan bíð ég bara þar tU síldarflotinn fer aftqr austur og þá get ég byrjað á háhyrningamynda- töku og verður sérstaklega fylgst með þeim í kringum síldarnótina. í framhaldi munum við svo taka myndir víða í kringum landið á fallegum stöðum. Síðan verður það skoðað sem myndað hefur ver- ið og það sem mestan áhuga vekur valið úr.“ Stefán starfar við fyrirtækið einn ásamt eiginkonu sinni, Mar- íu Irenu Martin, sem hann segir vera framkvæmdastjóra fyrirtæk- isins og aUt í öUu. Hann segist hafa farið út í þetta af áhuga á slíkri ljósmyndun og farið á nám- skeið til að læra tæknina: „Það er mikið þolinmæðisverk að vinna við þessa myndatöku og tímafrekt. Yfirlegan er oft mikil enda getur klukkutíma vinna orðið að nokkrum sekúndum þegar upp er staðið." Stefán sagði að hjá sér samein- aðist starf og áhugamál: „Það gefst lítfll tími tU annars en að vera i þessu og stimda fjölskylduna en við María eigum fjögur börn. -HK Það hefur verið pása í úrvals- deildinni yfir hátíðirnar, en nú verður þráðurinn tekinn upp að nýju. Fimm ieikir í úrvalsdeildinni Eftir að keppni í körfubolt- anum hefur legið niðri frá því um miðjan desember verður þráðurinn tekinn upp að nýju í kvöld og verða leiknir fimm leik- ir í úrvalsdefldinni í körfubolta. íþróttir Fyrirhugað var að leika heUa umferð, en viðureign ÍR og Njarðvíkur hefur verið frestað til fostudagskvölds. Leikirnir fimm í kvöld fara aUir fram á suðvesturhominu. Á Akranesi leika ÍA og Þór, í Grindavík leika heimamenn við Val, í Keflavlk leika Keflvíking- ar við Breiðablik, á Seltjarnar- nesi leika KR og SkaUagrímur og í Hafnarfirði leika Haukar ' og TindastóU. AUir leikimir hefjast kl. 20. Bridge Hver yfírslagur skiptir miklu máli í tvímenningi og því var sagn- hafi á tánum í úrspilinu til þess að reyna að fá alla slagina. Tólf slagir voru augljósir, 3 á spaða (með svín- ingu), 6 á hjarta (með trompun á styttri hendina), tveir á tígul og einn á lauf. Vestur gat ekki stillt sig um að opna í þriðju hendi á spaða og sú sögn hjálpaði sagnhafa. Sagn- ir gengu þannig, austur gjafari og NS á hættu: a ÁKG54 M ÁK543 ♦ Á85 * -- é D10862 M 9 f 10943 * 1098 ♦ 73 * DG102 ♦ K76 * ÁG73 Myndgátan Lausn á gátu nr. 1408: Áhorfsmál Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi. Austur Suöur Vestur Norður pass pass lé Dobl pass 3» pass 6» p/h Spilamennskan gekk þannig fyrir sig; ÚtspU lauftía, sem trompuð var í blindum, ÁK i hjarta tekin, spaða- ás, hjarta á drottningu, spaðagosa svinað, spaði trompaður, laufási, tígli spilað á ás og spaðakóngur tek- inn. Staðan var þá þannig: é D » -- f 109 * — ♦ 5 M 4 ♦ 8 * -- ♦ -- M -- •f DG * K f -- f K7 * G I síðasta trompið varð austur að henda öðru tígulspilinu og þá var hægt að henda laufgosanum, því hann hafði gegnt hlutverki sínu. Vestur gat ekki heldur passað báða litina og tvöfalda þvingunin sá því um að ferja heim þrettánda slaginn. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.