Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Blaðsíða 6
6 t útlðnd LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 JjV stuttar fréttir Sprengjusmiöur myrtur Helsti sprengjusmiður palest- insku samtakanna Hamas, Ya- hya Ayyash, lést I sprengjutil- ræði í gær. Samtökin saka ísra- ela um tilræöið. Fry I sáttahug Leikarinn Stephen Fry, sem hvarf skyndilega frá hlutverki í leikriti í London í fyrra, hefur nú sæst við sýnendur. Tryggingafélag hans greiðir þeim um 25 milljónir króna. Stephen sagðist verið undir miklu álagi er hann hvarf á brott og hefur síðan haft hægt um sig. Verkfallsmenn mótmæla Verkfallsmenn í Marseille í Frakklandi hótuðu í gær að halda áfram mánaðarlöngu verkfalli eftir að lögregla rýmdi þrjár af fjórum miðstöðvum strætisvagna sem þeir höfðu lagt undir sig. Þakka Clinton, ekki Chirac Vinir frönsku flugmannanna, sem voru í haldi Bosníu-Serba, þakka Clinton Bandaríkjafor- seta en ekki Chirac Frakklands- forseta fyrir þátt hans í lausn þeirra. Viöræöur í Rússlandi Viktor Tsjemómyrdín, for- sætisráðherra Rússlands, ræddi í gær við leiðtoga kommúnista, Gennadíj Zyuganov, um ýmis vandamál. Óeiröir í fangelsum Óeirðir brutust út í fimm fangelsum í Tyrklandi í gær. Yfir 30 fangavörðum var haldið í gíslingu. Að minnsta kosti 3 hafa látist í uppreisn fanganna. Previn riddari Elísabet Bretadrottn- ing hefur sæmt banda- ríska hljóm- sveitarsljór- ann Andre Previn heið- ursriddara- tign. Er það æðsta viðurkenning sem Bretar veita útlendingi. Viðurkenning- una fær Previn fyrir framlag sitt til tónlistarlífs í Bretlandi og menningarsamskipta Bret- lands og Bandaríkjanna. Neitar aö segja af sér Forsætisráðherra Póllands, Jozef Oleksy, neitar að segja af sér þrátt fyrir ásakanir um að hann hafi njósnað fyrir Moskvu. Reuter Metaregn í kauphöllum - bensínið lækkar Hlutabréfaviðskipti i helstu kaup- höllum heims fóru af stað með lát- um á nýárinu. Söguleg met voru slegin í London og Frankfurt hvað hlutabréfavísitölur snertir og töl- umar í Tokyo og Hong Kong hafa ekki verið hærri undanfarið ár. Við- skipti í Wall Street hafa sömuleiðis veriö lífleg og Dow Jones verið ná- lægt sögulegu meti. Lækkun varð þó á fimmtudag í Wall Street vegna fjárlagadeilunnar í Washington milli Clinton og leiðtoga repúblik- ana. Verð á bensíni og olíu á heims- markaði lækkaði litillega eftir ára- mótin. Hráolían þó ekki sem seldist í staðgreiðslu á 19,25 dollara tunnan á fimmtudag. Sérfræðingar spá ört lækkandi eldsneytisverði næstu vikurnar. -bjb Utanríkisráðherra Rússlands segir af sér: Zhírínovskíj vill taka við embættinu Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn fór fram á það i gær að leiðtogi flokksins, Vladimir Zhírinovskíj, tæki við embætti utanríkisráðherra Rússlands, Andreis Kozyrevs, sem sagði af sér í gær. Interfax frétta- stofan greindi frá því í gær að þing- menn flokksins hefðu sent Borís Jeltsín forseta bréf og beðið um að Zhírínovskíj yrði skipaður utanrík- isráðherra. Talsmaður Borís Jeltsíns forseta sagði að afsögn Kozyrevs myndi ekki hafa nein áhrif á utanríkis- stefnu Rússlands. Kozyrev hefur verið utanríkisráðherra síðan 1990 og var hliðhollur nánum samskipt- um við Bandaríkin og Vesturlönd. Andrei Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands, ætlar að setjast á þing. Símamynd Reuter Andstæðingar hans sökuðu hann um að vera hallur undir Vesturlönd og ekki gæta þess að láta rödd Rúss- lands heyrast á alþjóðlegum vett- vangi. Kommúnistar höfðu lengi krafist afsagnar utanríkisráðherr- ans og sökuðu hann meðal annars um að hafa aðstoðað Jeltsín við að leysa í sundur Sovétríkin. Kozyrev bauð sig fram til neðri deildar þingsins í kosningunum í desember og náði sæti. Þar með opnaðist leið fyrir hann til að segja af sér án þess að bíða mikinn hnekki. Fréttastofan Interfax greindi frá því í gær að Sergei Krylov aðstoðar- utanríkisráðhen-a myndi fara með utanríkismál fyrst um sinn. Reuter Það viðraði vel til skautakeppni á náttúrulegum ís f Hollandi í gær. Keppendurnir á myndinni renndu sér 100 kíló- metra og fyrstur í mark var Ruud Borst. Myndin er tekin í bænum Nieuw Wolda. Símamynd Reuter Bosníumenn segja Serba enn með múslíma í haldi Stjómvöld í Bosníu sögðu i gær að Serbar hefðu enn í haldi fjóra múslíma. Að sögn stjómvalda voru fjórmenningarnir gripnir er þeir fóm um yfirráðasvæði Serba í Sara- jevo, alveg eins og múslímarnir sextán sem voru gripnir og látnir lausir á fimmtudaginn eftir tíu daga í haldi Serba. Talsmaður Atlantshafsbandalags- ins greindi frá því í gær að friðar- gæsluliðar á vegum þess hefðu skot- ið að byssumanni sem særði ítalsk- an hermann í Sarajevo á fimmtu- daginn. Talsmaðurinn sagði að frið- argæsluliðamir teldu að þeir hefðu ekki drepið byssumanninn. ítalinn var í skotheldu vesti og særðist lít- ils háttar á handlegg. Spenna rikti I Mostar í Bosníu í gær eftir að Króatar skutu á og særðu illa tvo múslímska lögreglu- menn á fimmtudagskvöld. Á nýárs- dag drap króatíska lögreglan múslímskan ungling. Reuter DV! Eiginkona Pap- andreous með lifrarbólgu Dimitra Li- ani, eiginkona Andreas Pap- andreous, for- Isætisráðherra Grikklands, er með lifrar- bólgu og fær ekki að heim- sækja eigin- manninn á sjúkrahúsið fyrr en henni er batnað. Liani hefur ver- ið við sjúkrabeð manns síns frá því að hann var fluttur í skyndi á sjúkrahús 20. nóvember með lungnabólgu. Liani, sem er fyrr- verandi flugfreyja, hefur ekki farið leynt með það að hún hafi hug á að taka við embætti af manni sínum. Banvænum lirfum fjölgar Lífshættulegar fiðrilmslirfur hafa valdið talsverðum ótta í suðurhluta Brasilíu. Þar hafa 20 manns verið fluttir á sjúkrahús nýlega eftir að hafa snert lirfurn- ar. Þær gefa frá sér banvænt eit- ur og undanfarin tvö ár hafa níu manns látist af völdum þess. Þeir sem verða fyrir eitrinu fá : útbrot á húðina og sviða eins og eftir bruna. Ef ekki er brugðist við getur viðkomandi fengið háan hita, blæðingar úr nefi og eyrum, nýmabilun óg síðan lát- ist. Lirfunum hefur fjölgað þar sem rottur og fúglar liafa drepist af völdum eitraös áburðar á svæðinu. I Pólskar skóla- stelpur ræna og myrða Afbrof pólskra skólastelpna gerast sífellt grófari. Lögreglan i | Varsjá segir að fyrir nokkrum árum hafi helstu afbrot 13 til 16 i ára skólastelpna verið þjófnaður | á snyrtivörum og nærfötum. Núna gerast unglingsstúlkur sekar um árásir, rán og morð tO þess að komast yflr feng sinn og þær safnast saman í gengi sem ■ fuilorðnir afbrotamenn stýra. Dæmi eru um að hópar stúlkna sérhæfi sig í að slá nið- ur og ræna ölvaða menn fyrir utan diskótek. Nýlega komst upp um einn hópinn eftir 24 árásir. Annar hópur lokkaði menn út fyrir bæinn þar sem liðsauki beið. Þar urðu mennirnir að af- henda allt fémætt og var sleppt á nærklæðunum einum. Að sögn sérfræðinga eru fé- lagslegar aðstæður flestra stúlknanna slæmar. Það er þó ekki óalgengt að stúlkur frá vel stæðum flölskyldum taki þátt í ránum og morðum. Víkingaskart rennur út Eftirlík- : ingar af vík- ingaskart- gripum seld- ust eins og heitar lumm- | ur i Banda- rikjunum fyr- ir jólin. Danska ræð- ismannsskrifstofan í New York hvetur nú dönsk fyrirtæki til að nýta tækifærið og huga að út- flutningi. Á síðasta ári seldust eftirlíkingar fyrir hálfan millj- arð dollara og hefur salan tvö- faldast á fimm árum. Ein af orsökunum fyrir auk- inni sölu er sú að Bandaríkja- menn þurfa nú ekki lengur að arka á söfn til þess að flárfesta í eftirlíkingum af skarti víkinga og annarra gamalla menningar- heima. Nú geta þeir nefnilega keypt eftirlikingarnar í gegnum Ípóstverslun, í venjulegum vöru- húsum og í litlum verslunum í „kringlum". Reuter, Politiken. '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.