Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Page 43
I JLlV LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 Tt( ettir47 St. Jósefsspítali í Hafnarfirði: 50 milljóna króna uppsafnaður halli - fláraukalög gera ráð fyrir flárstyrk til spítalans haldi hann sig innan ramma fjárlaga Vegna gífurlegs uppsafnaðs halla á rekstri St. Jósefsspitala í Hafnar- firði upp á um 50 milljónir króna var skipaður tilsjónarmaður með spítalanum. Hann skilaði tillögum með ýmsum hugmyndum um hvernig mætti bregðast við þessu vandræðaástandi. Starfi hans lýkur um áramót. Hann lagði meðal ann- ars til að bráðavaktir yrðu lagðar niður á sjúkrahúsinu og handlækn- isdeild yrði_aðeins opin fimm daga í viku. Einnig að breytingar yrðu gerðar á rekstri barnaheimilis spít- alans og margar aðrar tillögur til sparnaðar. Nefnd skipuð Þegar tilsjónarmaðurinn hafði skilað af sér var skipuð nefnd, að sögn Ragnheiðar Haraldsdóttur, for- manns nefndarinnar, til að tryggja Hafnfirðingum greiðan aðgang að bráðaþjónustu kæmu tillögur til- sjónarmannsins um breytt hlutverk deilda spítalans til framkvæmda. Nefndina skipuðu, auk Ragnheið- ar, sem er starfsmaður heilbrigðis- ráðuneytisins, lækningaforstjóri Borgarspítalans, sviðsstjóri lyflækn- ingadeildar Landspitalans, héraðs- læknir Reykjaness, yfirhjúkrunar- fræðingur hjá landlækni, deildar- stjóri fjármálaskrifstofu heilbrigðis- ráðuneytis og hjúkrunarforstjóri og yfirlæknir St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði. Nefndin klofnaði. Meirihluti hennar benti á með hvaða hætti stóru sjúkrahúsin gætu tekið viö aukinni þjónustu. Minnihlutinn, stjómendur á St. Jósefsspítalanum, vildu óbreytt hlutverk spítalans. Óbreytt starfsemi til 1. júlí Niðurstaðan varð, samkvæmt til- lögu heilbrigðisráðherra, sú að spít- Gunnhildur Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri: Barningur „Þetta hefur verið heilmikill barningur hér hjá okkur. Það hefur verið ijallað mikið um mál spítalans og sumt af misskilningi," sagði Gunnhildur Sigurðardóttir. „Tillögur tilsjónarmannsins voru óljósar. Hann vildi leggja niður þjónustu en engin tillaga var um hvað kæmi í staðinn. Eftir að tillög- ur hans komu fram fór stjórn spítal- ans fram á að gerð yrði fagleg og fjárhagsleg úttekt á rekstri hans með hagkvæmni í huga vegna fjár- hagsvandans. Skipuð var nefnd sem ég átti m.a. sæti í og taldi að væri ætlað að gera faglega úttekt. Hún átti þá aðeins að gera tiUögu um einn afmarkaðan þátt, hvernig Hafnfirðingar yrðu fyrir sem minnstum óþægindum ef tiUaga tilsjónarmannsins um að loka bráðavöktum kæmi til fram- kvæmda. Þetta var ekki það sem við fórum fram á. Ef þessar tillögur um að loka bráðavaktinni kæmu til fram- kvæmda gætu stóru sjúkrahúsin ekki tekið við þeim fjölda sjúklinga sem kæmi til viðbótar þvi sem nú er, samkvæmt ályktun frá lækna- ráðinu. Spítalinn yrði ekki heldur eins sterkur og áður hvað varðar þjónustu við Hafnarfjörð og ná- grenni." Virk handlækningadeild „Þá má geta þess að þúsund manns leggjast inn á lyflækninga- deUdina hér á ári. 1700 aðgerðir eru framkvæmdar á handlækninga- deild. 637 manns eru núna á biðlista eftir ýmsum skurðaðgerðum. Við framkvæmum stórar bæklunar-, kvensjúkdóma- og lýtalækningaað- gerðir. Við höfum bráðaþjónustu allan sólarhringinn, 365 daga á ári. 700 sjúklingar eru lagðir inn hér með hraði árlega. Hins vegar eru slasað- ir, börn og ungt fólk með hjartasjúk- dóma lagt inn á sérdeildirnar í Reykjavík. Svo höfum við göngudeild þar sem 13.000 manns koma árlega. Þar starfa 18 sérfræðingar á mismun- andi sviðum. Hér er næststærsta augndeUd landsins þar sem fram Gunnhildur Sigurðardóttir, hjúkrun- arforstjóri á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði. DV-mynd GS fara 300 augnaðgerðir á ári. Það er eins og enginn vilji vita af þessari mikilvægu starfsemi spítalans. Stóru sjúkrahúsin vilja taka þetta allt til sín. Okkur er mikið í mun að tryggja íbúum Hafnarfjarðar og ná- grennis sem besta heilbrigðisþjón- ustu. Við viljum halda sjálfstæði okkar og sinna hugmyndafræði St. Jósefssystranna." Gunnhildur sagði að það væri auðvitað rétt að spítalinn hefði ver- ið kominn mikið fram úr fjárlögum. „Það er vegna þess að við erum með uppsafnaðan vanda vegna síðastlið- inna fjögurra ára. Við lentum í miklum niðurskurði árið 1991, meiri en raunhæft var. Þá átti að breyta starfseminni en það var ekki gert. Núna er verið að skoða alla möguleika til sparnaðar svo að við höldum okkur innan íjárlaga árið 1996. Við munum af heilum hug taka þátt í samstarfi við sjúkrahús- in á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar verkefni milli sjúkrahús- anna. Það er markmið okkar allra að vel takist til svo að það fjármagn sem til ráðstöfunar er nýtist sem best fyrir þjóðfélagið. Ég er bjartsýn á að það geti tekist.“ -ÞK alinn mun starfa með óbreyttum hætti til 1. júlí nk. en verður að sýna fram á að reksturinn gangi með því að framkvæmdar verði ýmsar af tillögum tilsjónarmanns- ins til sparnaðar. Geti spítalinn ekki haldið sig innan fjárlaga verða bráðavaktirnar teknar af 1. júlí. Meiningin er að framkvæma fjölda þessara sparnaðartillagna og sjá til hvernig staðan verður 1. júlí. Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, sagði að í raun- inni stæði til að fara eftir flestum tillögum tilsjónarmannsins. Stjórn- endur spítalans yrðu að draga sam- an og spara, annars yrði starfsemi hans skert í júlí. Samkvæmt fjáraukalögum, sem samþykkt voru á Alþingi fyrir jól, renna 15 milljónir til spítalans að því tilskildu að stjórnendum hans takist að halda sig innan ramma fjárlaga. Annars fær spítalinn ekk- ert. Ef Hafnarfjarðarbær tekur við rekstri barnaheimilis spítalans, sem er eitt að þeim málum sem til athug- unar eru, sparast umtalsverð upp- hæð. -ÞK 1. vinningur stefnir í 22 milljónir króna Nú er flð nota tcekif&wð- -vertu viðbúinav vinningi Fimmfaldur 1. vinningur! Fáðu þér miða íyrir kl. 20,|° á laugardaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.