Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 DV
DV, Akureyri:_____________________
„Það er á engan hátt hægt að
segja að þriðjudagurinn 2. janúar,
sem var fyrsti almenni vinnudag-
ur ársins, hafi verið hefðbundinn
vinnudagur hjá mér. Ég vaknaði
þó um klukkan sjö eins og venjan
er og eftir hefðbundin morgun-
störf, eins og að hlusta á fréttir,
þvo mér og borða morgunmat, var
ég mættur á vinnustað klukkan
átta.
Það er orðinn fastur liður hjá
mér að fyrsti vinnudagur hvers
árs fari í það að koma frá mér
skýrslu um starfsemi slökkviliðs-
ins á nýliðnu ári og þriðjudagur-
inn snerist nánast eingöngu um
það að þessu sinni. Ég var búinn
að undirbúa þetta nokkuð, bæði á
gamlársdag og nýársdag, eins og
hægt var. í sambandi við þessa
vinnu þurfti ég að safna saman,
skrá og flokka niður útköllin, hafa
samband við rannsóknarlögreglu
um orsakir eldsvoða og við trýgg-
ingafélög um umfang tjóns í ein-
staka tilfellum. Þá þurfti ég að fara
í gegnum okkar skýrslur og telja
og reikna, bera saman á milli ára
og þess háttar.
Sem betur fer var útkoman úr
þessu dæmi hagstæð fyrir okkur
þegar á heildina er litið. Þó var eitt
tjón sem skar sig úr en það var
bruninn í Glerárkirkju fyrri hluta
ársins. Ég hafði lokið þessu starfi
um klukkan íjögur og fór þá að
senda þessa skýrslu út til þeirra
fjölmiðla sem hafa sýnt þessu
áhuga og vinnudeginum var lokið
um klukkan sex. Reyndar verð ég
að viðurkenna að ég tek vinnuna
allt of mikið með mér heim, ég ber
ábyrgð á vissum hlutum og losna
ekkert undan þeirri ábyrgð þótt ég
fari heim.
Hið nýja fyrirkomulag varðandi
neyðarsímann kom lítils háttar
inn á mitt borð þennan dag. Það
kom því miður fram að öll gömlu
neyðarnúmerin væru aflögð en
það er ekki rétt og ég lét fljóta með
ársskýrslunni til fjölmiðla þær
upplýsingar að eftir sem áður
væru beinu neyðarnúmerin á Ak-
ureyri óbreytt um ófyrirsjáanlega
framtíð. Ég tel að ef fólk veit hvaða
þjónustu það þarf og hvar hana er
að fá sé best að hringja beint. Ég er
alls ekki að kasta neinni rýrð á
nýja neyðarnúmerið en það er
óneitanlega tafsamara ef fólk
hringir í 112 að síðan þarf að
hringja í okkur og allar upplýsing-
ar þarf að tvítaka. En þetta nýja
fyrirkomulag er án efa ómetanlegt
í hinum dreifðari byggðum þar
sem engin vaktstöð er og fyrir þá
sem eru á faraldsfæti og þurfa á
aðstoð að halda.
Kvöldinu þennan dag eyddi ég
með fjölskyldunni. Synimir voru
báðir heima en þeir stunda nám í
Reykjavík og Svíþjóð. Þetta var
síðasta kvöldið með þeim og ég
reikna ekki með að sjá eldri son-
inn fyrr en um næstu jól. Fjöl-
skyldan átti því saman huggulega
kvöldstund og það var orðið ansi
áliðið þegar ég komst í rúmið.
Eins og ég sagði áður var þetta
ekki hefðbundinn vinnudagur.
Alla jafna reyni ég að vera viðlát-
inn fyrir þá sem eiga við mig er-
indi en ég reyndi að loka á það
þennan dag eins og hægt var.
íþróttaiðkun sem ég stunda flmm
sinnum í viku varð einnig að víkja
þennan dag og ég varð bæði að
sleppa þrektíma hjá slökkvfliðinu
og tíma í „skaflbolta" með góðum
félögum." -gk
Finnur þú fimm breytingar? 340
■ Ég held að eina lækningin við þessu sé að selja sportbílinn.
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð þrítugustu og
áttundu getraun reyndust vera:
Myndimar tvær virðast
við fyrstu sýn eins en þeg-
ar betur er að gáð kemur í
ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum
verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu
merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og
senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilis-
fangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
ELTA útvarpsvekjari að verðmæti kr.
4.275, frá Bræðrunum Ormsson, Lág-
múla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bók-
in Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fin og rík og liðin lik.
Vinningarnir verða sendir heim.
Nafn:
Heimili:
1. Guðrún Júlíusdóttir
Ásheimum
820 Eyrarbakki
2. Halla Gunnlaugsdóttir
Ekrusíðu 9
603 Akureyri
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 340
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík