Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Blaðsíða 21
DV LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996
sviðsljós
Norska forsætisráðherranum, Gro Harlem Brundtland, líður vel í faðmi fjölskyldunnar. Hér er hún ásamt eiginmanni
sínum, Arne Olav, og fjórum barnabörnum, Önnu, 7 ára, Oda, 8 ára, Snorra, 6 ára, og Arne, 5 ára.
21
Viðskipta- og tölvuskólinn
Nám sem skilar þér
árangri - núna!
Gro Harlem Brundtland:
Ætlar að halda megrun-
inni áfram á nýju ári
- og vera meira með barnabörnunum
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráöherra Noregs, sem er 56 ára,
heldur ætíö upp á jólin með fjöl-
skyldu sinni í sumarbústað, langt
inni í skóginum. „Að vera með fjöl-
skyldu sinni og borða góðan mat í
fríi frá umheiminum er gott fyrir
sálina," segir Gro Harlem.
Forsætisráðherrann tekur sér frí
frá önnum dagsins og lætur sér líða
vel í faðmi eiginmanns, barna og
barnabarna, langt frá skarkala
hversdagslífsins. Nú er hún bara
eiginkona, móðir og amma.
„Alveg frá því ég var fjórtán ára
hefur það verið siður í fjölskyldu
minni að halda jólin í sumarbústað.
Mér fannst það kannski skrýtið
fyrst að vera að heiman um jólin en
núna get ég ekki hugsað mér neitt
annað,“ segir hún. „Nú eru jólin í
bústaðnum „jólin heima“,“ segir
forsætisráðherrann.
Mannmargt í sveitinni
Bústaður Gro og fjölskyldu henn-
ar er í skógarkjarri á fallegum stað
í Hadeland. Allt í kring eru furu- og
grenitré. Þrátt fyrir kyrrðina í loft-
inu er galsi í bústaðnum enda er
fjölskyldan orðin stór - þrjár kyn-
slóðir. Yfirleitt eru á milli 10 og 12
manns í húsinu um jólin. Þrjú börn
þeirra Gro og eiginmanns hennar,
Arne Olavs Brundtlands, makar og
sex barnaböm. „Ég vil halda ' allar
fjölskylduvenjur á jólum og ekki
síður að vera með fjölskyldunni í ró
og friði,“ segir Gro Harlem.
Hún segir líka halda i fastar venj-
ur í matargerðinni um jólin. Á jóla-
dag hefur hún alltaf svínarifjasteik
með rauðkáli og öðru tilheyrandi og
ávaxtasalat í eftirrétt. Gro býr alltaf
til matinn sjálf og gefur .sér góðan
tíma í það. „Allir í fjölskyldunni
hjálpast að í bústaðnum en í matar-
gerðinni fæ ég að ráða.“
Stóðst heitið
Um áramótin í fyrra strengdi
norski forsætisráðherrann þess heit
að ná af sér nokkrum kílóum. Hún
hefur staðið við það heit og hefur
misst á bilinu 15-20 kíló. Reyndar
vakti fréttin um megrunina heil-
mikla athygli víða um lönd og ekki
síst hér á landi þar sem íslenski for-
sætisráðherrann, Davið Oddsson,
var einnig í megrun.
Gro Harlem ætlar að halda áfram
í megruninni á nýju ári en hún seg-
ist gera undantekningar á stórhátíð-
um eins og jólum. Þá gleymast allir
megrunarkúrar.
Fjölskyldan í fyrirrúmi
Um þessi áramót strengdi forsæt-
isráðherrann nýtt áramótaheit, að
vera meira með bamabömum sín-
um. Þau eru á aldrinum ársgamalt
til átta ára. „Fjölskyldan er númer
eitt og stjórnmálin númer tvö,“ seg-
ir hún. Það er einmitt ástæða þess
að hún sóttist ekki eftir fram-
kvæmdastjórastöðunni í NATO eða
hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún seg-
ist ekki kæra sig um að búa langt
frá fjölskyldunni og flytja til ann-
arra landa.
Fyrir þremur árum missti Gro
Jörgen, son sinn, og það fékk mjög á
hana.
Á þessu ári verður að venju nóg
að gera hjá forsætisráðherranum,
mörg ferðalög munu biða hennar,
jafnt innanlands sem utan. Gro mun
til að mynda fara i opinbera heim-
sókn til Suður-Afríku í febrúar.
-ELA
Langar þig í spennandi og
ódýran skóla eitt kvöld í viku?
□ Langar þig í vandaðan og fijálslyndan cinkaskóla sem kennir þér flestallt sein vitað
er um dulrxn mál, s.s. hvar framliðnir hugsanlegast og líklegast eru og hvemig
þessir væntanlegu handanheimar okkar allra virðast vera að mati þeirra einstaklinga
á jörðinni sem mest hafa rannsakað þessi mál á fordómalausan hátt?
Q Langar þig í öðmvísi skóla þar sem reynt er á víðsynan hátt að gefa ncmendum sem
besta yfirsýn vflr hveijar hugsanlegar orsakir dulrænna mála og tniarlegrar rcynslu
fólks raunvemlega em í víðu samhengi og í Ijósi sögunnar?
□ Langar þig að fara í skemmtilcgan skóla eitt kvöld í viku eða eitt Iaugardagseftir-
miðdegi í viku þar sem helstu möguieikar hugarorkunnar em raktir í ljósi reynslu
mannkynsins á því máli á sem fordómalausastan og skemmtilegastan hátt?
□ Og langar þig að fara í skóla sem kennir allt scm vitað er um hagnyt atriði eins og
um orkustöðvar og orkubrautir líkamans og hvemig ganga á um þessi afar við-
kvæmu fyrirbæri svo að ckki fari illa ásamt þvf að læra um næmni einstaklinga og
hvcmig hver og cinn getur aukið þær skynjanir sínar án þess að lcnda í erflðleikum
eins og svo oft vill annars brenna við í slíkum málum?
□ Og langar þig ef til vill að setjast á skólabekk með bráðhressu og skemmtilegu fólki
þar sem reynt er að gcfa sem besta yfírsýn yflr hvað miðilssainband raunverulcga er,
svo og hverjir séu helstu og þekktustu möguleikar þess - en lfka annmarkar?
Efsvo erþá áttu cf til vill samlcid með okkur og fjöldamörgurn öðrum átuegðum nemend-
um Sálarrannsóknarskólans undanfarin ár. Tvcir byrjunarbekkir hefja brátt nám í Sálar-
rannsóknum l nú á vorönn '96. Skránittg stendur yfir. Hringdu og fáðu allar nánari upp-
lýsingar um mest spennandi skólann sem í boði er í dag. - Yfir skráningardagana út jan-
úar er að jafnaði svarað í síma Sálarrannsóknarskólans alla daga vikunnar kl. 14.00 til
19.00. Skrifstofa skólans er hins vegar opin alla virka daga kl. 17.00 til 19.00 og á laug-
ardögum frá kl. 14.00 til 16.00.
V.
- Skemmtilegur skóli -
Vegmúla 2
Sími 561 9015 og 588 6050
Tölvunámskeið fyrir atvinnulífið
Góð tölvukunnátta eykur afköst. Starfsmenn sinna sínu starfi en ekki
tölvuvandamálum! Þeir geta sótt almenn námskeið eða pantað hóp-
námskeið sem hægt er að laga að þörfum fýrirtækja.
Tölvunámskeið fyrir heimilið
Heimilistölvur eru orðnar ótrúlega öflugar og það er synd að nota þær
aðeins fyrir leiki, þegar hægt er að nýta þær á svo margvíslegan hátt.
VTN býður upp á kvöld- og helgarnámskeið þar sem farið er á
hnitmiðaðan hátt í gegnum algengasta notendahugbúnað. VTN býður
einnig upp á mjög gagnleg námskeið fýrir börn og unglinga.
Rekstur smáfyrirtækja
Námskeiðið er fýrir þá sem standa í rekstri eða þá sem hyggja á rekstur.
Markviss kennsla í helstu þáttum sem snúa að daglegum rekstri
smáfýrirtækja eða einyrkja.
(160 kennslust. /120 klst.)
Virk markaðssetning
Námskeið ætlað verslunareigendum, verslunarstjórum eða fólki með
annan rekstur. Þátttakendum er kennt að tileinka sér vinnubrögð
virkrar markaðssetningar og bæta þannig árangur sinn í viðskiptum.
(108 kennslust. /81 klst.)
Bókhaldsnám
Hefúr þú áhuga á vinnu við bókhald eða kemstu ekki hjá því að færa
bókhald? Á þessu námskeiði eru kennd nauðsynleg atriði til að hand-
færa og tölvufæra bókhald, vinna afstemmingar og setja upp einfaldan
ársreikning fýrir minni fýrirtæki.
(156 kennslust. /117 klst.)
Tölvunotkun í fyrirtækjarekstri
Hér færðu heildaryfirsýn yfir möguleika einmenningstölvunnar í fýrir-
tækjum og alhliða þjálfún í notkun á algengasta búnaði.
(414 kennslust. / 23 vikur)
Almennt skrifstofunám
Ertu á leið út á vinnumarkaðinn? Eða viltu breyta til? Hnitmiðað
undirbúningsnám þar sem kennd eru þau atriði sem mestu máli skipta
við almenn skrifstofustörf. Námið er opið öllum 18 ára og eldri.
(486 kennslust. / 26 vikur)
Námskeið VTN:
Fjalla um aðalatriði - kenna það scm skiptir máli
Eru hagnýt - skila árangri
Eru nátengd atvinnulífinu - veita forskot á vinnumarkaði
VIÐSKIPTA- OC
TÖLVUSKÓLINN
Ánanaustum 15.101 Reykjavík.
sími: 569 7640, símbréf: 552 8583, skoli@nyherji.is