Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Side 13
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 13 Skipherrann reyndist saklaus Everett Greene, skipherra í Bandaríkjaflota, hefur veriö sýkn- aður af ákæru um kynferðislega áreitni í starfi. Eins og greint var frá í DV fyrir nokkru sakaði fyrrum samstarfskona Greene hann um kynferðislega áreitni og lagði fram kæru á hendur honum. Málið var tekið fyrir í herrétti og er Greene hæst setti foringi sem hlýtur þessi örlög síðan í seinni heimsstyrjöld- inni. Hvort sem hann yrði sakfefld- ur eða ekki mátti hann eiga von á að frami hans yrði gerður að engu en líklegt hafði þött að hann yrði einn fjögurra blökkumanna sem næði tign aðmíráls í flotanum. Greene reyndist saklaus en frama- vonir hans kunna að vera brostnar. Sendi samstarfskonu Ijóð Mál Greenes reis af þvi að hann sendi samstarfskonu sinni ljóð þar sem hann sagði að hún stæði aldrei ein, hvað sem á gengi, og fleira í þeim dúr. Samstarfskona hans hafði gengið í gegnum einhverja erfði- leika og vildi Greene sýna henni að hann stæði með henni á þennan máta. Greene var sem sagt sýknað- ur af ákæruatriðunum eða svo hélt hann að minnsta kosti. í ljós hefur komið að framavonir hans eru svo til að engu orðnar og hefur vikurit- ið People eftir háttsetttim foringja í Bandaríkjaflota að þótt Greene hafi verið sýknaður hafi kortin og bréfin sem hann sendi samstarfskonu sinni verið óvenjuopinská og gengið nærri blygðunarkennd hennar. Síðast þegar fréttist átti Greene fund með flotamálaráðherra til að reyna aö bjarga frama sínum. „Ég vona að ég nái að vinna aftur traust ráðherrans," sagði Greene og bætti við að hann væri bjartsýnn. ^qrnenqs^, Ökuskóli ísiands í fyrirrúml AUKIN ÖKURÉTTINDI MEIRAPRÓF —-► LEIGUBIFREIÐ-VÖRUBIFREIÐ-HÓPBIFREIÐ , hefjast námskeið til Gott verö og jMÚwi aukinna ökuréttinda hagstœö greiösiukjor. Skráning stendur yfir. 9 568 3841 t..í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.