Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Síða 25
JLlV LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996
25
Kristín Ásta Jónsdóttir, dóttir Jóhönnu, tvíburasysturnar Jóhanna Sigríður og Ástríður Guðný og fylgdarmaður
þeirra í Svíþjóð, eiginmaður Ástríðar, Halldór Elís Guðnason. DV-mynd Jón Ben
Þakklæti
efst í huga
- segir Jóhanna Sigríður Daníelsdóttir sem fékk nýra úr tvíburasystur sinni
„Ég Fmn geípilega mikinn mun á
mér síðan ég fékk nýrað, fann
reyndar strax eftir aðgerðina auk-
inn kraft. Ég var búin að vera veik
frá því í apríl 1994. Það byrjaði með
beinverkjum, kuldahrolli og háum
hita. Ég hafði alltaf verið hraust,"
sagði Jóhanna Sigríður Daníelsdótt-
ir sem fékk nýra úr Ástríði Guð-
nýju, tvíburasystur sinni, 25. októ-
ber sl. á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í
Stokkhólmi. Þær voru úti í sjö vik-
ur og komu heim 10. desember.
„Við höfum alltaf verið samrýnd-
ar systurnar og það hefur ekkert
breyst. Ég hugsaði mikið um þetta
og hafði áhyggjur af því að systir
mín væri að leggja þetta á sig fyrir
mig. Læknarnir sogðu mér að ég
ætti bara að hugsa um að láta mér
batna.
Engin höfnunar-
einkenni
Mér er efst í huga hve þetta gekk
allt vel og finnst undarlegt að svona
lagað skuli vera hægt. Mig langar
að færa öllum þeim sem hjálpuðu
okkur þakkir.
Núna er ég bara að vinna að því
að styrkja mig. Engin höfnunarein-
kenni hafa komið fram. Ég léttist
um 35 kíló í veikindunum. Vöðvarn-
ir eru ansi slappir. Það tekur lang-
an tíma að byggja sig upp en þetta
er ailt að koma. Börnin mín tvö eru
hérna hjá mér. Ég missti manninn
minn 1991 og var að ná mér eftir
það þegar ég veiktist," sagði Jó-
hanna Sigríður.
Nýtt nýra
eina ráðið
„Það var í september sl. sem
læknarnir sögðu að ekki væru til
nein önnur ráð en að Jóhanna fengi
nýra. Það má ekki biðja neinn að
gefa nýra, maður verður að gefa sig
fram og ég gerði það,“ sagði Ástríð-
ur Guðný.
„Mér fmnst bara gleðilegt hve
þetta hefur gengið vel og er mjög
ánægð með að þetta er búið. Lika að
Jóhanna geti verið heima, hún
þurfti að vera í Reykjavík vegna
veikindanna. Dóttir hennar, fjórtán
ára, var hjá mér á meðan,“ sagði
Ástríður Guðný.
„Við lögðumst inn á spítalann á
sama tíma, aðgerðin á mér tók fjóra
klukkutíma, þetta er mjög stór að-
gerð, sérstaklega á mér,“ sagði
Ástríður.
Ekki eineggja
Tryggingastofnunin á íbúð í
Stokkhólmi og systurnar dvöldu þar
eftir aðgerðina ásamt manni Ástríð-
ar og voru þær systur sammála um
að nauðsynlegt hefði verið að hafa
hann þeim til halds og trausts.
„Læknarnir sögðu að vefjaflokkar
í okkur væru líkari en gerist og
gengur hjá systrum. Þó erum við
ekki eineggja," sagði Ástríður.
- Ertu búin að ná þér?
„Nei, ég er slöpp ennþá en það er
alveg eðlilegt. Það fylgir þessu mik-
U1 blóðmissir og áreynsla, bæði and-
leg og líkamleg," segir Ástríður
Guðný.
Jóhanna Sigríður býr á Flúðum
en Ástríður Guðný þar rétt hjá. Þær
eru 47 ára gamlar. Ástríður og mað-'
ur hennar eru með kúabú, einnig
sumarbústaði og golfvöll en Jó-
hanna Sigriður vann í mötuneyti og
á skrifstofu áður en hún veiktist.
-ÞK
ENSKA ER OKKAR MÁL
SÉRMENNTAÐIR ENSKIR KENNARAR - LIFANDI NÁMSKEIÐ
Julie John
Ný námskeið að hefjast, með
áherslu á talmál.
Bæði fyrir byrjendur og lengra
komna.
HVOLSVÖLLUR
7/////////////////A
Nýr umboösmaöur DV
ARNDÍS KRÍSTLEIFSDÓ TTIR
Hvolsvegi 20 - Sími 487 8767
BLÖNDUÓS
7//////////////////
Nýr umboðsmaður DV
GERÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR
Melabraut 3 - Sími 452 4355
VARNARLIÐIÐ
LAUST STARF
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar eftir að ráða lærðan
kjötiðnaðarmann til starfa hjá Matvöruverslun Varnarliðsins.
Mjög góð enskukunnátta nauðsynleg.
Vinnutími: Þriðjudaga 0800-1600, fimmtudaga 0800-1600,
föstudaga 0800-1700 og laugardaga 0800-1700.
Starfið er tímabundið til 31. ágúst 1996.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar Varnarmálaskrifstofu,
Brekkustíg 39, Njarðvík, sími 421-1973,
eigi síðar en 15. janúar 1996.
Starfslýsing liggur frammi til aflestrar fyrir umsækjendur og er
þeim bent á að lesa hana áður en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama stað.
Byrjendanámskeið
GYM 8ð AND
Suöurlandsbraut 6
Nánarí
upplýsingar
gefa stwfsfölk
GYM80
í slma
588 83 83
et)a
Hróar
í síma
554554 7
Council of Europe
Conseil de l’Europe +
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
Give your career a European outlook
Join the Council ofEurope in Strasbourg!
We are looking for a number of skilled
administrators to provide comprehensive
executive and advisory support to committees
of experts or parliamentarians working
within this expanding European
organization. Since 1949, the Council
of Europe has worked to promote respect
for the rule of law and ever greater
cooperation between the governments
of member States, currently numbering
thirty-eight
Matters dealt with by the committees
are very broad, ranging from legal, social
and administrative issues through to public
health and environmental protection.
You must have a university degree,
preferably in law, humanities, political
or social sciences, of at least the standard
required for entry to the senior level
of the lcelandic national civil service.
Since graduating, you will either have
been obtaining higher academic
qualifications or gaining professional
experience in law or administration.
Strong analytical skills, the ability to draft
clear and precise reports, and an aptitude
for computer work are also sought
Aged under 35, you must have sound
knowledge of one of the Council of Europe’s
official languages (English/French) and be
able to work in that language, and a good
knowledge of the other. Knowledge
of other European languages will be useful.
Discretion, teamwork, and inter<ultural
flexibility are all important requirements.
Further information including the official
vacancy notice and an application form
(to be returned by 15 February 1996)
are available from the Council of Europe
(ref. 107/95), Bureau des Concours
(Pers.), 67075 Strasbourg Cedex, France.
Please send self-addressed envelope
(23 x 32 cm no stamp required).
Enskuskólinn
Túngötu 5 - Sími 552 5330
Administrative
offfcers m/f |
These posts are open, through competition, to all lcelandic nationals I
who meet the stated terms.