Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Side 46
50 afmæli Svanborg Egilsdóttir Svanborg Egilsdóttir ljósmóðir, Engjavegi 81, Selfossi, er fimmtug í dag. Starfsferill Svanborg fæddist að Litlu- Reykjum í Hraungerðishreppi en ólst upp á Selfossi. Hún útskrifað- ist sem ljósmóðir frá Ljósmæðra- skóla íslands 1978. Svanborg var ritari sýslumanns- ins i Árnessýslu 1966-75, ljósmóðir á Kvennadeild Landspítalans 1978-82, er ljósmóðir við Sjúkrahús Suðurlands og Heilsugæslustöð Selfoss frá 1982, auk þess sem hún var ljósmóðir í sumarafleysingum við St. Fransiskusspítalann í Stykkishólmi í sumarafleysingum 1994 og 1995. Svanborg var formaður ritnefnd- ar Ljósmæðrablaðsins 1979-81 og hefur starfað í ýmsum nefndum á vegum Ljósmæðrafélags íslands. Hún er formaður heilbrigðisnefnd- ar Selfosssvæðis, situr í svæðis- nefnd Heilbrigðiseftirlits Suður- lands, í nefnd um stefnumótun Sel- fossbæjar í umhverfismálum og er formaður Samtaka heilbrigðis- stétta. Fjölskylda Svanborg giftist 12.11. 1965 Sig- fúsi Ólafssyni, f. 30.4. 1944, tónlist- arkennara. Hann er sonur Ólafs Jónsson'ar frá Skála og Elsu Krist- ínar húsmóður Sigfúsdóttur, skálds Elíassonar. Ólafur og Elsa eru látin. 711 hamingju með afmælið 6. janúar 85 ára Sesselja Beneditksdóttir, Sundabúð 3, Vopnafirði. 80 ára Sigríður Pálsdóttir, Boðahlein 24, Garðabæ. Jóhanna Baldvinsdóttir, Vesturvallagötu 1, Reykjavík. 70 ára Sigrún Einarsdóttir, Stóragerði 18, Reykjavík. 60 ára Sigurbjartur Frímannsson, Sólbakka, Þorkelshólshreppi. Rannveig Edda Hálfdánardótt- ir, Esjubraut 20, Akranesi. 50 ára Dagbjört Engilbertsdóttir, Heiðarbrún 11, Hveragerði. Hallgerður Stefánsdóttir, Litlu-Breiðuvík, Eskifirði. Hafdis Sigurðardóttir, Ólafstúni 7, Flateyri. Valgerður Sveinsdóttir, Birtingakvísl 18, Reykjavík. Guðný L. Hávarðsdóttir, Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík. 40 ára Lára Sigurðardóttir, Skaftárvöllum 17, Skaftárhreppi. Jóhanna Sigríður Njálsdóttir, Engimýri 13, Garðabæ. Kristin Ólafsdóttir, Stórholti 9, ísafirði. Ragnar Gíslason, Lækjarbergi 19, Hafnarfirði. Filippía Ingólfsdóttir, Steinahlíð 3 H, Akureyri. Bjami Snæbjörn Jónsson, Grenibyggð 34, Mosfellsbæ. Sigríður Gunnarsdóttir, Brekkusíðu 2, Akureyri. Valgerður S. Skjaldardóttir, Þórunnarstræti 87, Akureyri. Anna Ruth Antonsdóttir, Traðarbergi 19, Hafnarflrði. Andrés Magnússon lögfræðing- ur, Graafschapslaan 5, Veltem- Beisem, Belgíu. Hann tekur á móti gestum að heimili sínu á afmælisdaginn, eft- ir kl. 20.00 að staðartíma. Ágústa Sigríður Winkler, Lundarbrekku 12, Kópavogi. Guðríður Steinunn Jónsdóttir, Mörtungu 2, Skaftárhreppi. Sigursteinn Mýrdal, Grýtubakka 12, Reykjavík. Þór Mýrdal, Hrafnhólum 6, Reykjavík. Sonur Svanborgar og Sigfúsar er Guðmundur Rúnar Sigfússon, f. 24.3. 1965, mjólkurtæknifræðingur, í sambúð með Halldóru Þorsteins- dóttur og er sonur þeirra Arnar Freyr, f. 18.12. 1992. Systkini Svanborgar eru Páll, f. 8.5. 1947, verktaki á Selfossi; Guð- jón, f. 18.12. 1952, framkvæmda- stjóri á Selfossi; Stefán, f, 3.10.1954, vélstjóri í Ólafsvík; Pálmi, f. 14.10. 1956, framkvæmdastjóri á Selfossi; Gunnar, f. 10.11. 1958, skipstjóri á Selfossi; Guðríður, f. 3.10. 1960, matreiðslumeistari á Selfossi; Sig- rún, f. 9.4. 1962, leikskólakennari í Svíþjóð; Sigríður, f. 23.2. 1964, bóndi og hárgreiðslustúlka að Vatnsleysu í Biskupstungum. Foreldrar Svanborgar voru Egill Guðjónsson, f. 15.1. 1921, d. 16.2. 1994, bifreiðastjóri á Selfossi, og k.h., Guðrún Pálsdóttir, f. 20.8. 1924, d. 1.3. 1983, húsmóðir. Ætt Egill var sonur Guðjóns, b. á Fornuströnd undir Eyjaíjöllum og síðar í Berjanesi í Vestur-Landeyj- um, Einarssonar, b. á Fornuströnd, Pálssonar, b. á Minniborg, Jóns- sonar, í Krótúni hjá Stóradal, Magnússonar, b. í Efrahvoli, Jóns- sonar. Móðir Egils var Guðríður Jóns- dóttir, b. í Reynishólum í Mýrdal, Jónssonar, b. í Skammadal, Þórð- arsonar, b. þar, Einarssonar. Móð- ir Jóns í Reynishólum var Guðrún Jakobsdóttir, b. í Brekkum, Þor- steinssonar og Karitasar Þorsteins- dóttur, b. í Vatnsskarðshólum, Eyj- ólfssonar. Móðir Karitasar var Karitas Jónsdóttir, klausturhald- ara á Reynistað, Vigfússonar og Þórunnar Hannesdóttur Scheving. Móðir Guðríðar var Sigríður Ein- arsdóttir, b. í Engigarði og á Reyn- ishólum, Einarssonar, b. í Kerl- ingadal, Þorsteinssonar, b. þar, bróður Jóns eldprests Steingríms- sonar. Móðir Sigríðar var Ingibjörg Sveinsdóttir, læknis og náttúru- fræðings í Vík, Pálssonar. Móðir Ingibjargar var Þórunn Bjarnadótt- ir, landlæknis Pálssonar og Rann- veigar Skúladóttur, landfógeta Svanborg Egilsdóttir. Magnússonar. Guðrún var dóttir Páls, b. á Litlu- Reykjum í Hraungerðis- hreppi, Árnasonar. Móðir Guðrún- ar var Vilborg Þórarinsdóttur Öfjörð, b. á Fossnesi í Gnúpverja- hreppi, og Guðnýjar Oddsdóttur. Móðir Guðnýjar var Soffia Frið- finnsdóttir. Móðir Sofííu var Guð- rún Bjarnadóttir, ættföður Vlk- ingslækjarættarinnar, Halldórs- sonar. Svanborg og Sigfús taka á móti gestum í sal Oddfellowreglunnar að Vallholti á Selfossi í dag, 6.1., M. 18.00-21.00. Guðmundur Ragnar Magnússon Guðmundur Ragnar Magnússon, stoðtækjafræðingur og einn af eig- endum stoðtækjafyrirtækisins Stoð hf„ Hjallabraut 37, Hafnarfirði, er fertugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Keflavík og ólst þar upp. Hann stundaði þar barnaskólanám og nám við Gagn- fræðaskóla Keflavíkur, stundaði nám við Verslunarskóla íslands 1973-77, starfaði hjá Stoðtækjamið- stöðinni Össuri hf. 1977-81, stund- aði nám í stoðtækjafræðum við Munksjöskolan í Jönköping í Sví- þjóð 1981-83. Að námi loknu starfaði Guð- mundur í Odense í Danmörku í eitt og hálft ár, starfaði síðan hjá Öss- uri hf. 1985-91 en gerðist þá með- eigandi stoðtækjafyrirtækisins Stoðar hf. þar sem hann starfar enn. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 20.7. 1991 Guðbjörgu Brynju Pálsdóttur, f. 10.4. 1959. Hún er dóttir Páls Harð- ar Pálssonar, skipstjóra á Stokks- eyri, sem er látinn, og Margrétar Sturlaugsdóttur, leiðbeindanda og verkakonu. Börn Guðmundar og Guðbjargar Brynju eru Stella Björk Guðmunds- dóttir, f. 14.2. 1993; Hörður Páll Guðmundsson, f. 16.12. 1990. Synir Guðmundar frá því áður eru Davíð Thor Guðmundsson, f. 6.12. 1981; Ingþór Theodór Guð- mundsson, f. 28.5. 1986. Systkini Guðmundar eru Bald- vin Ómar Magnússon, f. 4.10. 1957, kaupmaður í Kópavogi; Kristín Magnúsdóttir, f. 27.2. 1959, kennari í Kópavogi; Guðný Sigríður Magn- „úsdóttir, f. 1.12. 1964, bankastarfs- maður í Keflavík; Harpa Magnús- Guðmundur Ragnar Magnússon. dóttir, f. 3.7. 1972, nemi við HÍ, bú- sett í Keflavík; Helga Magnúsdótt- ir, f. 21.2. 1976, nemi og húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Guðmundar eru Magn- ús Guðmundsson, f. 21.8. 1938, ör- yggisfulltrúi á Keflavíkurflugvelli, og Stella Björk Baldvinsdóttir, f. 12.4. 1937, kaupmaður í Keflavík. Valdimar Friðbjörnsson Valdimar Friðbjörnsson, fyrrv. skipstjóri, Vogatungu 55, Kópa- vogi, er sjötugur í dag. Starfsferill Valdimar fæddist í Hrísey og ólst þar upp. Hann lauk stýr- imannaprófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík 1952. Valdimar byrjaði til sjós fimmt- án ára og var þá á trillum frá Hrís- ey. Hann var síðan háseti á mótor- bátum, skipum og togurum frá 1942 og stýrimaður frá 1953 og síðar skipstjóri. Hann var þá m.a. á ms. Ingvari Guðjónssyni, ms. Margréti, ms. Pálínu og ms. Helga Helgasyni. Þá var hann verkstjóri hjá Sænsk- íslenska frystihúsinu 1967-73, starfaði síðan hjá BP og loks hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Fjölskylda Valdimar kvæntist 28.7.1951 Sig- urlaugu Barðadóttur, f. 20.5. 1931, bankastarfsmanni. Hún er dóttir Barða Barðasonar, skipstjóra á Siglufirði, og k.h., Helgu Þorsteins- dóttur húsmóður en þau eru bæði látin. Böm Valdimars og Sigurlaugar eru Helga, f. 4.3.1952, búsett í Kópa- vogi; Björg, f. 19.11. 1953, búsett í Kópavogi; Barði, f. 2.4. 1959, búsett- ur í Danmörku; Guðrún Margrét, f. 17.12. 1962, búsett í Kópavogi. Alsystkini Valdimars eru Björn, f. 1922, lengst af verkstjóri á Siglu- firði, nú búsettur á Akureyri; Guð- rún Margrét, f. 1928, starfsmaður hjá Essó í Reykjavík; Óli Dalman, f. 1930, skrifstofumaður á Akureyri; Valdimar, dó í æsku; Pálmi, dó í æsku. Hálfsystir Valdimars er Dag- björt, f. 1942, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Valdimars: Friðbjörn Björnsson, f. 28.2. 1886, d. 10.3.1934, verslunarstjóri og útgerðarmaður í Hrísey, og k.h., Björg Valdimars- Valdimar Friðbjörnsson. dóttir, f. 20.9. 1900, húsmóðir. Hún dvelur nú að Dalbraut 27 í Reykja- vík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.