Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Side 52
f
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notaö ! DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
550 5000
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996
Norsk-íslenska síldin:
Úrslitatilraun
í Moskvu
„Við erum sammála um að gera
_úrslitatilraun til að reyna að ná
samkomulagi i Moskvu síðar í mán-
uðinum. Takist ekki samkomulag
þá erum við jafnframt sammála um
að gefa út sameiginlegan síldar-
kvóta,“ sagði Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra í samtali við
DV eftir fund sem hann átti með
Færeyingum um norsk-íslenska síl-
arstofninn og önnur mál sem tengj-
ast fiskveiðum þjóðanna.
Fundinum, sem haldinn var í
Þórshöfn í Færeyjum, lauk í gær-
dag. Þorsteinn segist ánægður með
niðurstöðuna.
„Það var algjör samstaða um að
fara þessa leið. Þetta var góður
fundur og við gerðum þarna samn-
ing um gagnkvæmar veiðiheimildir
á kolmunna sem er nýmæli og mjög
mikilvægt skref,“ segir Þorsteinn.
-rt
Níu mjlljóna
Audi á ísafjörð
Bifreið af gerðinni Audi A 8 að
verðmæti 9,4 miljónir var dreginn
út í Happdrætti Háskóla íslands á
gamlársdag. Vinningurinn kom á
seldan miöa á ísafirði. Vinningshaf-
~inn vill ekki láta nafns síns getið en
tekur væntanlega við bílnum síðar í
mánuðinum.
-em
íslenska útvarpsfélagið:
Jafet hættur
sem útvarps-
stjóri
Jafet S. Ólafsson hefur verið
leystur frá störfum sem útvarps-
stjóri íslenska útvarpsfélagsins að
_ eigin ósk. í samtali við DV sagðist
Jafet skilja sáttur við fyrirtækið.
Hann hefði á sínum tíma verið ráð-
inn í tvennum tilgangi. Annars veg-
ar að setja niður deilur í hluthafa-
hópi félagsins og hins vegar að f]ár-
magna myndlyklakaup. Þessum
verkefnum væri lokið og þvi tíma-
bært að snúa sér að öðrum verkefn-
um, sem hann vildi ekki upplýsa
hver væru.
Framkvæmdastjórn mun taka að
sér daglegan rekstur ásamt stjómar-
formanni sem jafnframt fer með
ábyrgð útvarpsstjóra samkvæmt út-
varpslögum. Verkaskipting hefur
orðið innan stjórnarinnar og verður
Jón Ólafsson stjórnarformaður. Sig-
urður G. Guðjónsson verður vara-
'r~Tormaður ásamt Nathan W. Pear-
son. -bjb
L O K I
brother
Litla
merkivélin
Loksins
með Þ og Ð
Nýbýlavegi 28-sími 554-4443
Veörið á sunnudag
og mánudag:
Rigning um
allt land
Á sunnudag og mánudag
verður austlæg átt, nokkuð
hvöss, einkum á sunnudaginn.
Rigning verður um allt land og
hiti á bilinu 2 til 7 stig, hlýjast
allra sýðst.
Veðriö í dag er á
bls. 53
Átök hafa átt sér stað í Verkalýðsfélaginu Dagsbrún að undanförnu vegna stjórnarkjörs sem fram fer 19. og 20. jan-
úar. Kristján Árnason, verkamaður hjá Reykjavíkurborg og frambjóðandi til formanns Dagsbrúnar, skilaði í gær inn
framboðslista. Snær H. Karlsson, formaður kjörstjórnar, tók við listanum og Árni H. Kristjánsson fylgdist með. í
stjórnarkjörinu í Dagsbrún eru tveir listar í framboði. Halldór Björnsson, núverandi varaformaður Dagsbrúnar, leið-
ir hinn listann.
Borgarráð hefur frestað tillögu
um að borgarstjóra verði falið að
óska eftir viðræðum við fulltrúa
ríkisins og Akureyrarbæjar um
skipulag, rekstrarform og eignarað-
ild að Landsvirkjun í frámtíðinni en
í fréttum að undanfornu hefur kom-
ið fram að borgaryfirvöld og bæjar-
yfirvöld á Akureyri hafa hug á að
selja sinn hlut í fyrirtækinu.
í greinargerð borgarstjóra með
tillögunni kemur fram að borgin
eigi mikið fé bundið í fyrirtækinu
og hljóti það að ýta undir að óskað
verði eftir slíkum viðræðum. Þá
hljóti virkjunarmöguleikar borgar-
innar á Nesjavöllum að ýta undir
viðræður.
Reykjavíkurborg á 45,5 prósenta
eignarhlut í Landsvirkjun, ríkið 50
prósent og Akureyrarbær 4,5 pró-
sent.
Búist er við að tillagan verði tek-
in upp aftur á borgarráðsfundi í
næstu viku.
-GHS
i
Fimmfaldur 1. vmninjur
Fáránlegar skattareglur:
Ekki glóra að fjár-
festa í hlutabréfum
- nema fyrir tiltölulega lágar upphæðir, segir Pétur Blöndal alþingismaður
„Það er eins og það hafi verið
stefna stjómvalda að beina fjár-
magninu til rikisins frá atvinnulíf-
inu og yfir í íbúðarhúsnæði vegna
eigna- og tekjuskatts og spariskír-
teina. Ef menn selja íbúðarhús-
næði er söluhagnaðurinn skatt-
frjáls. En ef menn selja atvinnu-
húsnæði eða hlutafé þá er það að
fullu skattskylt. Þetta eru svo fá-
ránlegar reglur að það er ekki
glóra í því að fjárfesta í hlutabréf-
um nema menn séu undir mörk-
unum í eignarskatti og arði og að
þeir njóti skattaafsláttar. Því að-
eins er það skynsamlegt að kaupa
hlutabréf, annars ekki. Og þetta
gerir mönnum með snjallar hug-
myndir nær ómögulegt að ná í
fjármagn í gegnum hlutabréfa-
markaðinn,” segir Pétur Blöndal,
alþingismaður og fjármálasérf'ræð-
ingur.
„Að slepptum þessum skattafrá-
drætti þá er skynsamlegra að fjár-
festa í spariskírteinum ríkissjóðs
en í hlutabréfum fyrir þá aðila
sem lenda i eignarskatti. Ef menn
eru komnir með arð sem er um-
fram 120 þúsund krónur á ári fyr-
ir einstakling fara þeir að greiða
eignarskatt. Þessi arður er af sem
nemur svona um það bil tveggja
milljóna króna hlutafjáreign að
meðaltali. Hins vegar greiða menn
ekki tekjuskatt af ríkisskuldabréf-
um,“ sagði Pétur.
Hann tók fram að á síðasta ári
hefði ávöxtunin af hlutabréfum
hér á landi verið mjög góð en það
væri vegna þess að hlutabréfa-
markaðurinn hér byrjaði á núlli.
Þegar svo er verði ávöxtunin alltaf
góð.
„Menn kaupa bréfin á nafnverði
og svo rjúka þau upp fyrsta eða
fyrstu árin á meðan verið er að ná
því upp hvað fyrirtækin eru und-
irmetin. Þegar hlutabréfin eru svo
komin á rétt mat hækka þau bara
í samræmi viö arðsemi fyrirtækj-
anna, það er að segja hagnað
þeirra. Það vita allir að íslensk
fyrirtæki hafa sýnt lítinn hagnað í
gegnum árin. Ef þau fara að sýna
hagnað, eins og fyrirtæki erlendis,
upp á 6 til 10 prósent af veltu, sem
þykir eðlilegt þar, þá breytast for-
sendur. Arðsemi fyrirtækjanna
þarf að vera um 16 prósent, að
meðaltali, til þess að vera sam-
bærileg, við eignarskattinn, fyrir
þá sem fara upp fyrir þessi mörk
og hafa ekki keypt bréfin með
skattaafslætti. Hann breytir hins
vegar dæminu nokkuð. Og fyrir
fólk sem er að kaupa hlutabréf fyr-
ir tiltölulega lágar upphæðir er
það skynsamlegt vegna skattaaf-
sláttarins. Og ef menn eru innan
við 120 þúsund króna arðmörkin
er það tekjuskattslaust eins og
vextir af spariskírteinunum,"
sagði Pétur Blöndal.
-S.dór
Borgarstjóri
vill viðræður
um Lands- í