Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Síða 9
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1996 9 Hananum gert aö halda kjafti um miðjar nætur Lögmaður Díönu óttast að Karl standi ekki við gerða samninga: Hótar að hætta Dómari hefur kveðið upp úr- skurð sem franska þjóðin beið eft- ir með öndina í hálsinum. Haninn Renato var dæmdur til að halda kjafti og hætta að vekja nágranna sína upp af værum blundi um miðjar nætur. Eiganda skepnunn- ar var gert að greiða stefnendum einn franka í skaðabætur. „Ef ekki er lengur hægt að halda galandi hana eða baulandi kú þá eru það endalok sveitalífs- ins,“ sagði Pascal Bureau, lög- fræðingur fuglsins, fyrir réttinum í Bordeaux. Það voru tveir aðfluttir homm- ar í þorpinu Villefranche-en- Périgord sem kvörtuðu yfir því að haninn Renato vekti þá. Hann byrjar að gala klukkan hálffimm á morgnana og heldur áfram á 20 sekúndna fresti til klukkan sjö, á hverjum einasta degi. Eigandinn sagði að slíkt væri eðli hana. Vegna málaferlanna hafa stefn- endurnir orðið fyrir töluverðu að- kasti í þorpinu en deilan um han- ann hefur staðið í tvö ár. Um 50 fúglavinir mættu í dóm- salinn til að sýna Renato stuðning sinn. Reuter samningagerð Lögmaður Díönu prinsessu hótaði í morgun að hætta öllum samninga- viðræðum vegna skilnaðar hennar við Karl ríkisarfa ef konungsfjöl- skyldan virti ekki þá samninga sem Diana fullyrðir að hún og Karl hafi þegar gert með sér. „Ef við getum ekki treyst samningum sem þegar hafa verið gerðir er ekki sérlega skynsamlegt að halda samningavið- ræðum áfram," sagði Anthony Juli- us, lögmaður Díönu. Ágreiningurinn við konungsfjöl- skylduna fjallar að mestu um kröfur Díönu um að hún fái að halda kon- unglegri nafnbót og fái að búa áfram í Kensingtonhöll í London. Talsmenn Buckingham-hallar segja að engir samningar hafi verið gerðir um þessa hluti og það komi í hlut lög- manna beggja aðila að semja. Hótun lögmanns Díönu er fyrsti áreksturinn í lögskilnaðarferlinu eft- Díana er komin í stríð við bresku konungsfjölskylduna. ir að Díana tilkynnti á miðvikudag, öllum að óvörum, að hún hefði, gegn vilja sínum, fallist á lögskilnað við Karl. Gagnstæðar fullyrðingar aöil- anna þykja einkennandi fyrir þá ringlureið og fjandskap sem einkennt hefur samband Karls og Díönu frá þvi þau skildu að borði og sæng 1992. Dagblöð í Bretlandi birtu í gær vangaveltur um að Díana nái samn- ingi um eingreiðslu sér til handa sem næmi um 1.500 milljónum króna. Sér- fræðingar í málefnum hiröarinnar segja þá upphæð raunhæfa ef Díana á að viðhalda konunglegum lífsstíl og við hæfi þar sem hún væri móðir verðandi konungs. Hún þurfi að hafa um 20 manns í vinnu, þurfi mikið af fatnaði og geta lifað í þokkalegum lúxus. í margumtöluðu sjónvarpsviðtali í nóvember sagði Díana að hún mundi ekki skilja hljóðlega við hirðina. Sú fullyrðing, auk frásagna af framhjá- haldi og efasemda um hæfni Karls til að verða konungur, varð tU þess að Elísabet drottning, sem verður sjötug r mánuðinum, hvatti tU skjóts skiln- aðar. Reuter Útlönd "'■e Coleman fellihýsi frá USA - þau mest seldu á íslandi Árg. '96 til sýnis að Suðurlandsbraut 20 Kirkjan fær ekki að auglýsa í sjónvarpinu Sænsk sjónvarpsstöð hefur hafnað áformum kirkjusamtaka um auglýsingaherferð í sjónvarp- inu fyrir páska tU að auka kirkju- sókn á þeim forsendum að það sé ólöglegt. Reuter Erum fluttir úr Lágmúlanum Danska fyrirsætan Helena Christensen sýnir hér kjól eftir tískuhönnuðinn Thomasz Starzewsky en hann kynnti fatnað sinn í London i gær. Símamynd Reuter IRA lætur í sér heyra: Friðartillögum fálega tekið Fyrstu viðbrögð Irska lýðveldis- hersins (IRA) við nýjum tilraunum stjórnvalda á Bretlandi og írlandi tU að koma friðarumleitunum á Norð- ur-írlandi aftur í gang lofuðu ekki góðu þegar skæruliðar höfðu að engu ákaU um að lýsa aftur yfir vopnahléi. John Major, forsætisráðherra Bretlands, lýsti viðbrögðum IRA, sem berst fyrir endalokum breskra yfirráða á Norður-írlandi, sem „ógeðslegum brandara" og sagði þau geta orðið tU þess að útUoka Sinn Fein, pólitískan arm samtak- anna, frá friðarferlinu. írski lýðveldisherinn útUokaði ekki að virða aftur vopnahléið sem hafði staðið í 17 mánuði þegar hann rauf það þann 9. febrúar. í stuttri yf- irlýsingu sem IRA sendi frá sér í Dublin og Belfast í gær var hins vegar ekki minnst á vopnahléið einu orði og það þýðir að skærulið- amir séu enn í stríði. Reuter Fylgstu með |E miðvikudaginn 6. mars PVPIS í BÍLAHÚSIN laugardogum. co oð V) <D BÍLASTÆÐASJÓÐUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.