Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 1. MARS 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÓLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Endurhæfingu er að Ijúka Rekstrarafkoma fyrirtækja hefur batnað að undan- förnu, fjárfestingar hafa aukist og störfum hefur fjölgað. í skýrslu um ríkisíjármál fyrir siðasta ár, sem fjármála- ráðherra lagði frarn á Alþingi í vikunni, kemur frarn að vísbendingar sýni að endurhæfingarskeiði íslensks at- vinnulífs sé að ljúka. Endurskipulagning atvinnuvega og fyrirtækja var brýn nauðsyn vegna afturkipps í efnahagslífi frá árinu 1988. Starfsgrundvöllur fyrirtækjanna var endurmetinn og löngu timabærri hagræðingu komið á. Stjórnvöld komu fyrirtækjunum til aðstoðar með skattalækkunum og raungengi var lagað að efnahagslegum aðstæðum. Gleðileg dæmi þessa sjást nú þegar afkomutölur fyrir- tækja á síðasta ári eru skoðaðar. Vel rekin fyrirtæki skila nú góðum arði. Sá arður er nauðsynlegur til upp- byggingar fyrirtækjunum sem mörg hver eru í harðri samkeppni innanlands jafnt sem utan-. í ríkisfjármála- skýrslunni er þó ekki búist við stökkbreytingum á næst- unni. Hægfara uppbygging í atvinnulífi muni smám sam- an skila sér í aukinni verðmætasköpun. Það sem er jákvætt við efnhagsþróunina hér er að verðbólgan er og hefur verið lág í talsverðan tíma. Hún er raunar með því lægsta sem þekkist. Þá hefur gengi krónunnar verið stöðugt. Viðskiptahalli við útlönd hefur breyst í afgang. Erlend skuldasöfnun þjóðarbúsins hefur því verið stöðvuð og raunskuldir lækka. Á móti kemur að vextir eru enn háir en hafa þó lækk- að frá því sem áður var. Mikilvægt er að ná vöxtunum niður til þess að auka fjárfestingu fyrirtækja og lækka vaxtabyrði heimila. Það kom fram í umræðum á Alþingi í fyrradag að íslenskir fjármagnseigendur hafa enn tak- markaðan áhuga á að fjárfesta í íslensku atvinnulífi vegna of lítillar arðsemi. Sama gildir um erlenda fjárfest- ingu hér. Hún er aðeins lítill hluti af fjárfestingu íslend- inga í útlöndum. Einn helsti vandinn sem við er að glíma er viðvarandi halli ríkissjóðs. Á síðasta ári nam hann tæpum 9 millj- örðum eða sem nemur um 2 prósentum af landsfram- leiðslu. Þennan halla þarf að Qármagna með lánum og lánsfjárþörf ríkissjóðs heldur vöxtunum uppi. Til þess að hamla gegn vaxtahækkunum innanlands leituðu stjórn- völd meira á erlendan lánamarkað en innlendan í fyrra og árið þar áður. Þetta var gert til þess að hamla gegn vaxtahækkunum hér þótt það kostaði lántökur ytra. Ástandið kemst ekki í lag fyrr en jafnvægi næst í tekjum og útgjöldum ríkisins. íslendingar eru að rétta úr kútnum efnahagslega. Segja má að kreppan sé að baki. Hagvöxtur var um 2 prósent á liðnu ári og búast má við auknum hagvexti. Aukin bjart- sýni ríkir. Vendipunktur varð þegar samið var um stækkun álversins í Straumsvík. Sá gjörningur hafði sál- ræn áhrif ekki síður en efnahagsleg. Með aukinni bjart- sýni sýna menn meiri áræði. Kyrrstöðunni er lokið. Það er mikilvægt að nýta efnahagsbatann skynsam- lega. Stjórnvöld gripu á sínum tíma til aðgerða til þess að bæta hag fyrirtækja. Það hefur skilað sér. Það sem riður á nú er að bæta hag almennings. Launþegar hljóta að njóta þess þegar betur fer að ganga. Laun eru bundin út þetta ár. Þau taka mið af þjóðar- sátt, líkt og verið hefur undanfarin ár. Með hófsömum samningum hafa launþegar lagt sitt af mörkum til þess að bæta efnahags- og atvinnulífið. Stækki sú kaka sem til skiptanna er hljóta launamenn að njóta þess án þess að til kollsteypu komi. Jónas Haraldsson i&JSS •* i»-rr » »U L i& Zi hj 1 i-.j r Höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins við Efstaleiti. - Beðið hefur verið fyrir þeirri gömlu stofnun í öllum bænum vinstri manna síðustu hálfa öld, segir Einar m.a. Þjóðsagan um pólitískt sjálfstæði ríkisútvarps Krafa um öflugt og sterkt og jafnvel einrátt ríkisútvarp hefur verið eitt af kennimörkum fram- sækinnar pólitískrar hugsunar hér á landi; það hefur verið beðið fyrir þeirri gömlu stofnun í öllum hænum vinstri manna síðustu hálfa öld. Ástæðan fyrir þessari tryggð þeirra sem vilja bylta og breyta við svo gamalgróiö og rykfallið skrifstofubákn er sú sannfæring að fjölmiðlar starfræktir á prívat- reikning þeirra sem hafa efni á að koma sér upp slíku batteríi hljóti að ganga erinda eigenda sinna. Vera áróðursmiðstöðvar aftur- haldssjónarmiða og kapítalisma, á meðan stofnun rekin með al- mannafé hljóti að vera hlutlaus og réttsýn í öllum viðhorfum. Óttinn við kommaáróður Gallinn við þessi trúarbrögð eins og mörg önnur er hins vegar sá að þáð er erfitt að fá þau til að standast dóm reynslunnar. Eins og sést best á því að valdaapparat- ið í landinu með sjálft íhaldið i fylkingarbrjósti hefur alltaf gætt þess að þessi ríkisstofnun víki sem allra minnst frá heilbrigðum skoðunum hægri manna. íhaldið hefur alltaf rekið upp ramakvein ef einhver vinstra meg- in við framsókn hefur látið þar ljós sitt skína og ekki eru mörg ár síðan menn voru flæmdir með ópum og svigurmælum frá þátta- gerð í stofnuninni ef þeir drógu í efa réttmæti þess að mesta her- veldi heimsins gerði út orrustu- Kjallarinn Einar Kárason rithöfundur þotur yfir hálfan hnöttinn til að gereyða byggðum fátækra bænda í Víetnam. Sérkennilegar hlutleysiskröfur Að vísu er þetta kannski liðin tíð, með breyttum aðferðum og annars konar þjóðfélagsmóral. En hitt er samt við sig að mönnum er ekki hleypt í áhrifaríkar stöður hjá þessari gamalgrónu stofnun nema þeir séu taldir skaðlausir hægri sinnuðum sjónarmiðum. Og þetta þykir svo sjálfsagt að það er talið til sérstakra tíðinda ef íhald- ið ræður í yfirmannastöður hjá út- varpinu fólk sem er grunað um að vera ekki hundtryggt flokknum, eins og þegar okkar ágæti prestur og þá þjóðgarðsvörður var settur yfir stofnunina; margir töldu það til marks um pólitíska víðsýni þá- verandi menntamálaráðherra, jafnvel þótt fljótlega upplýstist í öðru samhengi að hann væri að vísu flokksbundinn sjálfstæðism- aður. Svona er þetta og hefur lengst af verið, eins og sést til dæmis á því að einn okkar albesti, menntaðasti og slyngasti fjölmiðlamaður, Stef- án Jón Hafstein, er aldrei talinn koma til greina í þær stöður sem hann hefur sótt um hjá stofnun- inni, bara vegna þess að hann hef- ur leyft sér að hafa sjálfstæðar skoðanir á ýmsum málurn. Einar Kárason „En hitt er samt við sig að mönnum er ekki hleypt í áhrifaríkar stöður hjá þess- ari gamalgrónu stofnun nema þeir séu taldir skaðlausir hægri sinnuðum sjónar- miðum.“ Skoðanir annarra Póstur og sími „Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um að breyta Póst- og símamálastofnun í hlutafélag... í stjómar- sáttmála ríkisstjórnarinnar eru ákvæði um að sala hlutabréfa í ríkisfyrirtækjum fari ekki fram nema að undangenginni ákvörðun Alþingis. Sú umræða hefur ekki farið fram um Póst- og símamálastofnun. í fyrstu umræðu málsins í Alþingi var knúið mjög á um svör við því hvort sala hlutabréfanna væri hugs- anleg en fram kom að enginn málatilbúnaður liggur fyrir af háifu stjórnarflokkanna í þá átt.“ Úr forystugrein Tímans 29. febr. Hvalfjarðargöngin „Helsti kosturinn við göngin, ef kost skyldi kalla, er að fólk á Akranesi verður sennilega hálfum tíma fljótara í höfuðborgina. Ferðatíminn norður eða að norðan mun verða nokkrum mínútum styttri en ella. Hverju máli skiptir það að verða nokkrum mín- útum fljótari á áfangastað en efla? Dettur nokkrum í hug að þetta fólk, sem græðir nokkrar mínútur, muni afreka nokkuð á þessum fáu mínútum? Hinar spöruðu mínútur verða i flestum tilvikum jafn dauð- ar og áður. Auk þess talar fólk um að drepa tímann." Dr. Gunnlaugur Þórðarson í Mbl. 29. febr. Félagslegar íbúöir „I lögunum um félagslegar íbúðir er krafist úttekt- ar á hversu mikil þörf sé fyrir þetta húsnæði í sveit- arfélaginu. Það er sveitarfélagið sjálft sem er ábyrgt fyrir því mati sem fer fram á því hver sé þörf fyrir félagslegar íbúðir... Allir viðurkenna að þetta kerfi hefur verið góð og dýrmæt lausn fyrir fjölskyldur sem búið hafa í ótryggu húsnæði og jafnvel dýru leiguhúsnæði. Og þegar rætt er um svo viðamikið mál ættu menn að hafa í huga þann mikla fjölda og þær mörgu fjölskyldur sem notið hafa góðs af.“ Úr forystugreinum Alþbl. 29. febr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.