Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1996, Page 1
Sakborningur í Töggsmálinu dæmdur á ný fyrir tugmilljóna skattalagabrot:
Framdi brotin í fangelsi
og á reynslulausn
- einnig meðan Töggsmálið var í dómsmeðferð - fær nú 15 mánaða fangelsi - sjá bls. 2
Handknattleikur:
Víkingar
féllu en
Eyjamenn
björguðu sér
- sjá bls. 14
og 25
Dole spáð
sigri I New
York í dag
- sjá bls. 8
IRA hafnar
tillögum um
vopnahlé
- sjá bls. 8
Díana
heimtar þrjá
milljarða
- sjá bls. 9
Borgarráð:
Deilt um
leikskóla
- sjá bls. 11
A myndinni heldur Jóhann Gunnlaugsson, starfsmaður Faxamarkaðar, á rauðmaga sem kom í þorskanetin hjá bát sem var
að veiðum í Faxaflóa. Ekki er enn heimilt að leggja hrognkelsanet í Flóanum. Miðað við sjósókn undanfarna daga hefur tíð-
arfar verið prýðilegt en í morgun var hvöss suðlæg átt og voru heldur færri bátar á sjó en verið hefur síðustu daga, sam-
kvæmt upplýsingum Tilkynningaskyldunnar. DV-mynd S
Rauðmagi
í þorskanet
Skoðanakönnun DV um viðhorf kjósenda til Hvalfjarðarganga:
Þorri þjóðarinnar andvígur göngunum
- andstaðan mun meiri hjá konum en körlum - sjá bls. 4