Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 4
fréttir
LAUGARDAGUR 9. MARS Í996
Keppti á íslandsmeistaramótinu í þolfimi um helgina:
Var það slappur að ég
átti að vera dauður
- var 120 kg og á gjörgæslu vegna sykursýki fyrir einu og hálfu ári
„Það er rúmlega eitt og hálft ár
síðan ég var 120 kíló en núna er ég
87 kíló. Ég lenti þá inn á gjörgæslu
og greindist með sykursýki. Ég var
það slappur að ég átti eiginlega að
vera dauður, held ég,“ sagði Samúel
Sveinn Bjarnason, 21 árs, sem
keppti á íslandsmeistaramótinu í
þolfími í Laugardalshöll um síðustu
helgi og lenti í fjórða sæti.
Upp úr veikindunum fékk hann
áhuga á hreyfingu og árangurinn
hefur ekki látið á sér standa.
„Þetta var rétt eftir páska 1994 og
ég var búinn að vera eitthvað veik-
ur héma heima en vissi ekkert
hvað þetta var. Ég var með öU ein-
kenni sykursýki en vissi ekkert um
það.
Þannig er að ég er úr Vestmanna-
eyjum en bý í Reykjavík. Mamma
hringdi í mig og ætlaði ekki að
þekkja mig í símanum. Þá var þetta
orðið svona tæpt hjá mér. Hún
hringdi í vin hans pabba og hann
kom og keyrði mig upp á spítala og
Þessi mynd af Samúel Sveini er tekin rétt eftir að hann kom af spítalanum
fyrir um að bil einu og hálfu ári. Þá hafði hann lést um 5 til 8 kíló.
Ársskýrsla Stígamóta um kynferðisofbeldi:
Flestir komu
vegna sifjaspella
- aðeins fimmtungur sagði frá strax eftir ofheldið
ég fór beint inn á gjörgæslu. Þá
mældist sykurmagnið í blóðinu 97
mmol en það á að vera um 5 mmol,“
sagöi Samúel Sveinn.
Þár fékk Samúel Sveinn, sem þá
var nemi í rafeindavirkjun i Iðnskó-
lanum, rétta meðferð.
„Ég ætlaði að setjast aftur á
skólabekk en hafði ekkert þol í það,
það var aUt búið í manni. Þá fór ég
tU Eyja og byrjaði að endurhæfa
mig, byrjaði með eift kUó í hvorri
hönd. Líka að ganga kringum hverf-
ið og synda tU að fá þol til að geta
farið að vinna. Svo fór ég að hlaupa
og þegar ég var farinn að hlaupa
tíu kUómetra á dag ákvað ég að
reyna eitthvað nýtt.
Um það leyti sá ég auglýst
námskeið hjá Ágústu og
Hrafni fýrir leiðbeinendur
í eróbikki og þar var
kennd næringarfræði.
Þar sem mig lang-
aði að læra hana
út af sykur-
sýkinni fór
ég þang-
að. Svo fannst mér bara svo gaman
eróbikkinu að
ég gat ekki
hætt. Núna í
febrúar er ár
síð-
an ég
byrjaði að æfa.
Maður stoppar
ekki núna, þetta
hefur aUt gengið
upp hjá mér.“
-ÞK
Samúel Sveinn Bjarnason varð í fjórða sæti á íslandsmeistaramótinu í
þolfimi um helgina og er ákveðinn í að halda áfram að æfa. Myndin er tekin
á mótinu. DV-mynd JAK
Tæplega 42 prósent þeirra, sem
leituðu tU Stígamóta í fyrra, höfðu
áður leitað sér aðstoðar í heUbrigðis-
og félagsmálakerfinu, að því er kem-
ur fram í ársskýrslu Stígamóta fyrir
árið 1995. Sumir höfðu leitað á fieiri
en einn stað. Rúmlega fimmtungur
þolenda sagði frá ofbeldinu meðan
það átti sér stað eða strax eftir að því
lauk. 64,1 prósenti þeirra var trúað
og eitthvaö gert í málinu.
Á árinu 1995 leituðu 472 einstakl-
ingar tU Stígamóta vegna sifjaspefia,
nauðgunar eða kynferðislegrar
áreitni. Af þeim voru 283 að leita sér
aðstoðar í fyrsta skipti og er það 63
færri en í fyrra. Fjöldi kvenna var
261 og karla 22 og er það svipað hlut-
faU og á fyrri árum. Flestir leita tU
samtakanna vegna sifjaspeUa og af-
leiðinga þeirra eða 63,6 prósent.
í skýrslunni kemur fram að stór
hluti þolenda, eða 84,5 prósent, var
beittur kynferðisofbeldi innan 16 ára
aldurs. Bent er á að fólk sé enn að
leita sér aðstoðar vegna kynferðisof-
beldis sem átti sér stað fyrir 10 tU 20
árum. Þessi staðreynd sýni hversu
mörgum reynist erfitt að leita að-
stoðar vegna þessara mála og geri
það ógjaman fyrr en afleiðingar of-
beldisins séu orðnar afar þungbær-
ar.
Af þeim þolendum sem leituðu að-
stoðar Stígamóta í fyrra höfðu 54 eða
19,1 prósent gert eina eða fleiri tU-
raunir tU sjálfsvíga.
Stígamót vekja athygli á því að
innan við 10 prósent ofbeldismanna
eru ókunnugir. Gamla goðsögnin um
að konum og bömum stafi mest
hætta af kynferðisofbeldi ókunnugra
fái því ekki staðist.
Ofbeldismennirnir em á öUum
aldri og koma úr öUum stéttum
starfsstéttmn þjóðfélagsins. Rúmlega
41 prósent þeirra, sem vitað er um,
hefur verið í hjúskap eða sambúð
þegar þeir frömdu ofbeldið og rúm-
lega helmingur þeirra á böm. Bent
er á að næsta algengt virðist að ung-
ir pUtar beiti sér yngri böm ofbeldi
af kynferðislegum toga.
Um félagslegar aðstæður þolenda
segir í skýrslunni að 72,8 prósent
hafi alist upp hjá báöum kynforeld-
rum. Aðeins 10,2 prósent hafi alist
upp hjá öðm foreldri og 9,5 prósent
hjá móður og stjúpa.
Árið 1995 er ein kona skráð sem
nauðgari en hún gerði tilraun tU að
nauðga kynsystur sinni, aö því er
fram kemur í skýrslunni. Er þetta í
fyrsta sinn sem kona er nefnd sem
nauðgari i gögnum Stígamóta.
-IBS
80%
70
60
50
40
30
20
10
Ástæður þess að leitað
er til Stígamóta
63,7
31,4
Sifjaspell og
afleiöingar
þeirra
Nauöganir og
afleiöingar
þeirra
Grunur um
sifjaspell
Kynferöisleg
áreitni
PV|
Skólaostur kg/stk.
i io% LÆKKUN
VERÐ NU:
647 kr.
kílóið.
VERÐÁÐUR-7T9 Kr. kílóið.
72 kr.
ÞU SPARAR:
á hvert kíló.
OSIA-OG
SMjÖRSALAN SH