Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996 1 B~\/~
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjórl: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasfða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centmm.is. - Dreifing: dvdreif@centmm.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Með töffara að talsmanni
Biskupinn yfir íslandi hefur gert töffara aö talsmanni
sinum í málum þeim, sem hafa brunniö á honum aö und-
anförnu. Talsmaðurinn hefur gengiö hart fram í að mála
fyrir fólki afleiöingar af mótþróa við biskupinn, svo sem
kostnað þess af hugsanlegum málaferlum biskups.
Talsmaöurinn hefur aflað sér bréfa, sem endurspegla
gamlan systkinaágreining; fengið eina af konunum
þremur til aö draga kæru sína til baka, en ekki lýsingu
hennar á málsatvikum; og fengið sóknamefndarformann
og organista til aö brjóta trúnaö á presti sínum.
Venjulegir talsmenn úr hefðbundinni stétt kynningar-
fulltrúa heföu fariö mýkri leiðir og meira hugsaö um
langtímaáhrif aögerða sinna á almenningsálitið. Tals-
manna-, ímyndar- og spunafræði er sérstakt og erfitt fag
og er raunar allt annað fag en lögfræði töffarans.
Komið hefur fram, að talsmaðurinn telur málið hafa
verið komið í svo slæma stöðu, að hann hafi ekki átt
annars kost en að taka að sér hlutverk fréttafulltrúa. En
aðferðir hans eru þær, að erfitt er að sjá annað en að
þær skaði stöðu þjóðkirkjunnar í þjóðfélaginu.
Faxahríð hans úr Biskupsstofu til fiölmiðla hefúr með-
al annars þær afleiðingar, að erfiðara en áður verður
fyrir fólk að leita til presta í trúnaði, þegar það sér, að
Biskupsstofa brýtur þessa nafnleynd í örvæntingu. Þetta
dregur úr trausti fólks á þjóðkirkjunni yfirleitt.
Mál biskups stendur þannig, að þrjár konur saka hann
um óviðeigandi athæfi. Ein þeirra hefur dregið kæm
sína til baka, en ekki lýsingu sína á málsatvikum.
Fréttaflutningur fiölmiðla af gangi þessara mála um
stofnanir kirkjunnar fela ekki sér neina dómsúrskurði
fiölmiðla.
Ekki hefur verið auðvelt fyrir biskup að meta, hvem-
ig hann eigi að mæta hremmingum af þessu tagi. Ein
leiðin hefði verið að einangra málið við sig persónulega
til að hlífa þjóðkirkjunni við afleiðingum af brostnu
trausti milli hans og umtalsverðs hluta þjóðarinnar.
En biskup valdi þá leið, sem nú er komin í ljós. Sú leið
felur í sér, að vandamál hans verða um leið að hremm-
ingum þjóðkirkjunnar. Það gerir honum kleift að sitja
sem fastast og bíða eftir að veður sloti, en veldur því um
leið, að sár kirkjunnar gróa verr en ella.
Óneitanlega er sérkennilegt að fylgjast með talsmanni,
sem hamast á faxinu eins og hann sé verjandi
landskunnra afreksmanna í skuggalegum viðskiptum.
Vinnubrögðin gagnast töffúrum í lögmannastétt á mörg-
um sviðum, en klæða biskupsembættið ekki vel.
Með þessum aðferðum verður líklega unnt að koma
málunum í pattstöðu, þar sem klögumálin ganga á víxl
og enda úti í mýri. Það er árangur út af fyrir sig, þótt
biskup og talsmaður hans hafi í leiðinni fómað svo sem
einum sóknamefndarformanni og einum organista.
Vandamál biskups felast í, að mikill hluti þjóðarinnar
tekur ekki orð hans eins trúanleg og kvennanna þriggja.
Um daginn voru um tveir þriðju hlutar þjóðarinnar á
þessari skoðun. Þessi hópur kann að minnka niður í
minnihluta, en verður áfram afar fiölmennur.
Prófastar hafa á fundi dómtekið mál biskups og úr-
skurðað hann saklausan af áburði. Þar með ætti málinu
að vera lokið á vegum þjóðkirkjunnar og á þann hátt, að
þjóðkirkjan tekur það á bakið, svo sem stefnt hefur ver-
ið að af hálfú biskups og talsmanns hans.
Þegar rykið hefur setzt, situr eftir öflug áminning um,
að þjóðin þarf að losna undan ábyrgð á þjóðkirkjunni,
svo að hvor aðili um sig geti siglt sína leið.
Jónas Kristjánsson
Verk Qassam og
Mossari spilla friði
Friðargerð Israelsstjórnar og
Frelsissamtaka Palestínumanna
er i hættu. Á hálfri annarri viku
hafa nær sex tugir ísraelsmanna
beðið bana í sjáifsmorðsspreng-
ingum palestinskra tilræðis-
manna á götum Jerúsalem og Tel
Aviv. Simon Peres, forsætisráð-
herra ísraels, horfir fram á þing-
kosningar 29. maí og krefst þess
að yfirvöld á sjáifstjómarsvæðmn
Palestínumanna, undir stjóm
Jassers Arafats, uppræti hryðju-
verkasamtök sem þar hafast við.
Haft er við orð að ella verði
ísraelsher sendur inn á sjálfstjórn-
arsvæðin tO að vinna það verk.
Þar með væri fótum kippt undan
áliti og myndugleika Arafats hjá
löndum sínum.
Þetta gerist einmitt þegar sjálf-
stjórnarsamkomulagið var farið
að bera sýnilegan árangur. Sjálf-
stjórnarsvæðið nær nú til allra
helstu byggða Palestínumanna á
vesturbakka Jórdans, nema Hebr-
on. Kosning fyrstu löggjafarsam-
komu Palestínumanna fór fram í
janúar og þótti takast vonum
framar, bæði hvað snerti fram-
kvæmd og þátttöku.
Hryðjuverkin sem nú tefla öll-
um árangri friðarferlisins í tví-
sýnu em verk manna úr Qassam,
hernaðararmi Hamas, hreyfingar
heittrúaðra múslíma. Hamas lagð-
ist gegn friðargerð við ísraels-
stjórn en eftir því sem palestínsk-
ur almenningur gerist henni
hlynntari hefur dregið úr and-
stöðu hjá stjómmálaarmi Hamas
og nokkrir úr þeirra röðum voru í
framboði í kosningunum i janúar.
Stefna Arafats hefúr veriö aö
reka fleyg milli stjómmálahreyf-
ingarinnar Hamas og Qassam, í
þeirri von að hún breytist í stjórn-
arandstöðuflokk innan sljómkerf-
isins sem er í myndun. Stjóm-
málaforusta Hamas hefur komið
tU móts við Arafat að vissu marki
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
og það er talið áhrifum hennar á
Qassam að þakka að hryðjuverka-
menn höfðu haldið að sér höndum
í rúmt misseri áður en síðasta
hryðja hófst.
Beint tilefni hennar er dráp
helsta sprengjugerðarmanns
Qassam, þrítugs manns að nafni
Jehija Ajash, í Gasa 5. janúar.
Hann beið bana við sprengingu í
farsíma sem hann bar að eyra sér.
Qassam heldur því fram að þar
hafi Mossad, aðgerðaarmur leyni-
þjónustu ísraels, verið að verki,
og ísraelsk stjórnvöld bera ekki á
móti því.
Fréttamenn í ísrael telja sig
hafa heimUdir fyrir því að dráp
Ajash hafi verið undirbúið með
þeim hætti aö starfsmenn Mossad
hafi ráðið í sína þjónustu einn af
félögum hans og látið hann færa
sprengjusmiðnum að gjöf farsima
sem hafði í sér fólgna 50 gramma
sprengju með fjarstýrikveikju.
Gefið hafi verið merki úr nær-
stöddum hlerunarbU Mossad þeg-
ar þess varð várt að svarað væri í
farsímann og þannig gert út af við
símnotandann.
Qassam hótaði strax hefndum
fyrir Ajash og hverju tilræði und-
anfarnar vikur hefur fylgt til-
kynning um að þær væru nú að
koma fram. Síðari sprengingunni
í strætisvagni í Jerúsalem fylgdi
tilkynning um að nú væri full-
hefnt að sinni og stjórnmálafor-
ustu Hamas yrði gefinn frestur tU
að semja um vopnahlé með mUli-
göngu sjálfstjórnaryfírvalda Pa-
lestínumanna.
En á eftir fylgdi nýtt sjálfsmorð-
stUræði á verslunargötu í Tel
Aviv. Það hefur einnig vakið at-
hygli að tilkynningar um ábyrgð á
síðustu hryðjuverkum eru ekki
gefnar út í nafni Qassam heldur
hópa sem kenna sig við „píslar-
vottinn Jehija „verkfræðinginn"
Ajash“ og þar eru „bræðurnir í
Qassam" beðnir um að tala ekki í
þeirra nafni.
Stjórnmálaforusta Hamas hefur
fyrir sitt leyti lýst yfir að stöðva
beri aðgerðir sem þessar. Þykir af
þessum ósamrýmanlegu yfirlýs-
ingum sýnt að ekki ríki einungis
klofhingur miUi stjórnmálafor-
ustu Hamas og hernaðararmsins
Qassam heldur sé kominn til sög-
unnar klofningshópur úr Qassam
sem í séu menn sem telji sig sér-
staka lærisveina Jehija Ajash og
fari sínu fram að eigin geðþótta.
Geta má nærri hve torvelt er
fyrir nýlega myndað stjórnkerfi
Jassers Arafats að hafa fullan
hemU á slíkum öflum, eins og
ísraelsstjóm krefst. Meðan Arafat
og hans menn hafa almenningsálit
Palestínumanna með sér gefst
þeim þó nokkurt svigrúm en telji
Peres sig svo aðþrengdan í ísrael
að hann ónýti sjálfstjómarsam-
komulagið 1 verki er voðinn vis.
Jasser Arafat skoðar heiðursvörð við setningu fyrstu löggjafarsamkomu Palestínumanna í Gasa.
Símamynd Reuter
Ískoðanir annarra
Rangt hjá Gorbatsjov
„FuUur af stolti hefur Gorbatsjov lýst því yflr að
hann sé reiðubúinn að bjóöa sig fram til forseta geti
lýðræðissinnar ekki sameinast um annan frambjóð-
anda. Þetta er hættuspU sem getur endað með skelf-
ingu. Vinsældir hans eru afar iitlar og líkumar á
fylgisaukningu virðast hverfandi. Gorbatsjov skip-
ar öruggan sess í mannkynssögunni. Bjóði hann sig
fram eru likur á að hann verði niðurlægöur og um-
bótaþróun í Rússlandi taki skref aftur á bak. Erfitt
er að sjá af hverju hann ætti.að taka þá áhættu."
Úr forustugrein New York Times 5. mars.
Lýöræði til handa
Kúbverjum
„Það verða meiri háttar mistök ef lagafrumvarp
sem ætlaö er að þvinga önnur lönd tU að taka þátt
í viðskiptabanni Bandaríkjanna gegn Kúbu verður
samþykkt. Viðskiptabanniö er úrelt. Ekki hefur tek-
ist að koma Castro frá völdum þrátt fyrir 35 ára
bann. Yfirvöld á eynni óttast andstöðu frá eyjar-
skeggjum sjálfum sem aftur sækja hvatningu er-
lendis frá. Andóf heima fyrir er lykUl að pólitískum
breytingum. Stjómvöld ættu því að styrkja andstöð-
una á Kúbu með því að auka mannleg samskipti
eyjarskeggja við umheiminn í stað þess að tak-
marka þau.“
Úr forustugrein New York Times 4. mars.
Öfgaöflin mega ekki ráða
„Það eiga sér stað átök í ísrael. Átök mUli þeirra
sem með öUum ráðum vilja koma í veg fyrir frið við
Palestínumenn og hinna, mUljóna ísraela og araba,
sem lifa vilja hlið við hlið í sátt og samlyndi þar
sem velmegun og öryggi em í hásæti. Öfgaöflin
mega ekki ná yfirhöndinni í þessum átökum.“
Úr forustugrein New York Times 6. mars.