Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Side 31
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996
31
„Þessi ástarsena hefur poppað ákveðið fólk hér í bæ eins og poppkorn í
potti," segir Páll Óskar sem hér ber krem á rass meðleikara síns í mynd-
bandlnu.
því að fara í mál við sjónvarpsstöðv-
arnar sýni þær ekki myndbandið
undanbragðalaust.
„Það er létt tiiviijun að einmitt
núna liggur frumvarp til laga á Al-
þingi um misrétti og mismunun á
minnihlutahópum. Þetta frumvarp
gengur út á það að sá sem er uppvís
að því að mismuna einstaklingi
vegna kynhneigðar, litarháttar, trú-
ar eða stöðu í þjóðfélaginu á yfir
höfði sér tveggja ára fangelsi."
Fordómar vegna sam-
kynhneigðar
Páll Óskar segir að þessi sterku
viöbrögð við myndbandinu komi
sér ekkert á óvart.
„Ég gerði mér fullkomlega grein
fyrir því hvað ég var með í höndun-
um þegar ég dreifði þessari upp-
runalegu útgáfu. Það er ótrúlegt í
hvaða myndum fordómar gagnvart
samkynhneigðum skjóta upp koliin-
um. Þó að ég sé vinsæl poppstjarna
þá er líka fullt af fólki sem hreint og
beint finnst ég ekki hafa tilverurétt
vegna kynhneigðar minnar og lætur
mig heyra það. Ég er að upplifa
þetta misrétti á hverjum einasta
drottins degi sem ég er hérna á ís-
landi. Það er bara þegar ég fer í
stórborgir úti í heimi sem ég næ
einum og einum degi þar sem ég fæ
að vera fullkomlega óáreittur, Eins
og gefur að skilja þá eru þessar að-
stæður ákaflega lýjandi og pirra
mann. Ég er bara of stoltur af sjálf-
um mér og elska sjálfan mig alltof
mikið til að lúffa fýrir svona ein-
fóldum manneskjum sem láta for-
dóma sína í ljós,“ segir Páll Óskar
sem lítur á myndbandið sem nokk-
urs konar prófmál.
„Ég er hreinlega að fara fram á
það að fólk upplifi þessar tilfinning-
ar sem eru í gangi á milli tveggja
karlmanna þegar þeir verða ást-
fangnir og samþykki og meðtaki
mína kynhneigð jafn þegjandi og
hljóðalaust og ég hef meðtekið gagn-
kynhneigð frá því að ég var lítill. Ef
ég á virkilega að vera ógeðslega
hreinskilinn þá er þetta flóð af
gagnkynhneigðum upplýsingum og
fyrirmyndum farið að fara pínulítið
í taugarnar á mér. Ég opnaði Mann-
líf um daginn og fékk að vita í smá-
atriðum hvernig Dóra Takefusa og
Guðmundur Jónsson kynntust. Ef
ég myndi segja svipaða sögu af því
hvernig ég kynntist fyrstu ástinni
minni þá yrði fjandinn laus.“
Ekkert öfgakynlíf
„Ef einhver kvikmynd fjallar svo
um samkynhneigt samband þá er
hún oftar en ekki fram úr hófi
dramatisk - söguþráðurinn er um
samkynhneigt par sem annaðhvort
er með eyðni og drepst í lokin eða
annar aðilinn fremur sjálfsmorð í
endann eða foreldrarnir fríka út.
Svona samkynhneigðar fyrirmyndir
eru bara ekkert hluti af mínum
raunveruleika og þess vegna fann
ég mig knúinn til að gera myndband
sem er hluti af mínum veruleika.
Mér fmnst hreinlega vanta fleiri
góðar fyrirmyndir af samkyn-
hneigðum karlmönnum og konum
sem lifa venjulegu ástalífi, án nokk-
urra öfga. Ein aðalranghugmyndin
um samkynhneigða er að þeir lifi
einhverju öfgakynlífi, helst 15 sinn-
um á dag, og að þeirra líf gangi út á
kynlíf og kynmök."
Páll Óskar segir að þrátt fyrir að
viöbrögö fólks við myndbandinu
hans hafi ekki komiö honum á
óvart þá sé hann skúffaður yfir
þeim úlfaþyt og reiði sem brotist
hefur út manna á meðal og birst
meðal annars í símatímum útvarps-
stöðvanna.
„Hins vegar er líka aragrúi af
fólki, gagnkynhneigt og samkyn-
hneigt, sem filar þetta myndband í
botn. Ég trúi því að ef fólk horfir á
þetta myndband, óáreitt og í friði
frá fyrstu sekúndu til hinnar síð-
ustu, þá fái það smábank í hausinn
og verði aðeins vísara um það hvað
samlíf tveggja karlmanna getur
gengið út á. Ég vona að þetta fólk
hugsi sig síðan tvisvar um áður en
það hreytir út úr sér niðrandi yfir-
lýsingum eins og: „hommar eru
ógeðslegir".
Bara eldheitt
ástarsamband
„Fyrsta hugsunin sem kemur upp
í kollinn hjá mörgum þegár það
heyrir minnst á samkynhneigð eru
endaþarmssamfarir. Það er að
minnsta kosti það sem ég fæ að
heyra á hverjum einasta degi. Þetta
sama fólk verður örugglega svoldið
hissa þegar það sér þetta myndband
því það er bara ekkert svoleiðis á
seyði. Þvert á móti eru þarna bara
tveir karlmenn sem eiga augsýni-
lega í alveg eldheitu ástarsam-
bandi,“ segir Páll Óskar.
- Er þetta klám?
„Nei, og ég hreint og beint hata
að heyra orðin klám og ofbeldi
nefnd í sömu andrá og þetta mynd-
band mitt. Hvorki í upprunalegu út-
gáfu myndbandsins né í þessari
mjúku finnst neitt sem hægt er að
flokka sem ofbeldi eða klám. Ég veit
nákvæmlega hvað klám er þegar ég
sé það og ég er bara ekki nógu
heimsk manneskja til að gera klóm-
tónlistarmyndband. Hvað heldur
fólk eiginlega að ég sé?“
Páll Óskar segir að lagið sem
myndbandið er gert við sé uppá-
haldslagið hans af plötunni sem út
kom fyrir síðustu jól og hann hafi
alltaf verið ákveðinn í að gera við
það myndband. Tækifærið hafi síð-
an komið þegar hann var staddur í
París í janúar síðastliðnum.
Ekki kærastinn minn
„Ég hreifst mjög af París og und-
irbjó tökur og skrifaði handritið. Ég
kaus að skrifa handritið út frá einni
setningu í texta lagsins sem segir:
„there is more to love than making
love“ sem gæti útlagst svo: „ástin
sýnir sig á fleiri vegu en í því að
njóta ásta“. Ég settist niður og fór
að spá við hvað væri átt. Frá mín-
um bæjardyrum séð þá hlýtur það
að vera þegar maður er með
kærasta eða kærustu og er að gera
mjög hversdagslega hluti saman,
svo sem að bursta tennurnar, fara
út í búð, vaska upp, ryksuga og ríf-
ast yfir sjónvarpsstöðvunum - hluti
sem eru ekki teljandi merkilegir en
eru samt undirstöðuatriði ástarsam-
bands. Þetta þarf samt ekki að þýða
að það að njóta ásta ætti að vera
eitthvað undanskilið í þessu mynd-
bandi og í lokin vildi ég hafa ástar-
senu. Og nú hefur þessi ástarsena
poppað ákveðið fólk hér í bæ eins og
poppkom í potti.“
- Er þetta kærastinn þinn sem
leikur á móti þér?
„Nei, þetta er bara maður sem
var í vinnu hjá mér eins og aöstoð-
artökufólkið, ljósafólkið og allt það
fólk sem kom nálægt þessari mynd-
bandagerð. Því miður hef ég ekki
átt neinn almennilegan kærasta í
fimm ár. Ég held líka aö það þurfi
rosalegan kjark til að vera kærasti
einhverrar poppstjörnu. Þannig sit
ég héma enn þá og bíð,“ segir Páll
Óskar og hlær.
Kjaftasögurnar fljúga
Myndbandið er að öllu leyti af-
kvæmi Páls Óskars. Hann átti hug-
myndina, skrifaði handritið, fór
með leikstjórnina og klippti
filmumar sjálfur saman í höndun-
um heima hjá sér.
„Margir halda að ég hafi tekið
þarna myndir úr mínu einkafilmu-
safni, klesst tónlist saman við og
sent svo sjónvarpsstöðunum. Ég
virði hins vegar mitt einkalíf of
mikið til þess. Fólk er bara svo upp-
tekið af einkalífi samkynhneigðra
og veltir sér stöðugt upp úr því hver
sé samkynhneigður og hver ekki.
Þegar ég mætti á svæðið fyrir fimm
árum og sagðist vera samkyn-
hneigður þá fór fólk strax að fylla í
eyðurnar og ég fór að heyra kjafta-
sögur um að ég væri genginn út
með Bergþóri Páls, Hemma Gunn,
Felix Bergssyni, Magnúsi Scheving
og bla, bla, bla. Allt hreinasta rugl
og bull.“
Páll Óskar er um þessar mundir
að vinna við gerð nýrrar plötu sem
verður poppuð dansplata sem á að
koma samtímis út á íslandi og á
meginlandi Evrópu. En mega ís-
lendingar eiga von á einhverri
annarri bombu frá honum?
„Þú talar eins og ég sé eins og ein-
hver sprengjuflugvél. Ég sprengi
fólk ekkert í loft upp nema mér
finnist það eiga það skilið. í þessu
tilfelli var ég vissulega að varpa
smábombu á fólk sem lætur mig
hvort sem er heyra það alla daga.
Ég held þó ekki að þessi sprengja
hafi virkað á það fólk sem er fyrir
löngu búið að fatta út á hvað sam-
kynhneigð gengur.
„Emmanuelle Takes
fokyo"
- Heldurðu að þetta myndband
hafi áhrif og breyti einhverju?
„Ég ætla að vona að það veki upp
ákveðnar umræður um samkyn-
hneigða. Það eru alls konar spurn-
ingar sem vakna. Og af hverju tók
Sýn fyrri útgáfuna af myndbandinu
af dagskrá hjá sér á meðan hún er
að sýna kvikmyndir eins og Em-
manuelle Takes Tokyo?
Samkynhneigð smitast
ekki
„Svo er líka mjög margt fólk sem
vill að myndbandið verði bannað
vegna blessaðra barnanna. Alltaf
eru blessuð börnin skálkaskjólið
fyrir hommafóbíu fullorðna fólks-
ins. Heldur fólk virkilega að sam-
kynhneigð smiti út frá sér? Að böm-
in eigi eftir að verða samkynhneigð
eftir að hafa horft á myndband i
fjóra og hálfa mínútu? Hugmyndin
um að samkynhneigð smitist er
bara gjörsamlega fráleit. Ég get eng-
an veginn með einni snertingu labb-
að upp að einhverri manneskju og
sagt „klukk, þú ert samkynhneigð",
alveg eins og ég get ekki labbað að
einhverjum og sagt „klukk, þú ert í
Alþýðubandalaginu". Það er kom-
inn timi til að binda endahnútinn á
þessar fráleitu hugmyndir og ég
vildi sjá fleiri feta í mín fótspor. Ég
nenni hreint ekki að standa einn í
heilli mannréttindabaráttu."
-ból
Páll Óskar segir að meðleikarinn sé ekki kærasti sinn. „Því miður hef ég ekki
átt neinn almennilegan kærasta í fimm ár.“ DV-myndir GS
Blómatilboð
Bergflétta
kr. 295
Áralía Friðarlilja Nílarsef Drekatré Fíkus
40 cm kr. 295 50 cm kr. 440 60 cm kr. 440 40 cm kr. 295 50 cm kr. 195
Fíkus
90 cm kr. 990
Drekalilja, 40 cm, kr. 295 - kaktusar frá kr. 124 - hypocyrta, kr. 490
króton, kr. 390 - bergflétttubróðir, kr. 490 - alparós (stór) kr. 490
einir frá kr. 295
Opið
alla
daga
10-22
v/Fossvogskirkjugarð, sími 55 40 500
Opió
alla
daga
10-22
„Hvað ef þetta myndband hefði verið með karli og konu i aðalhlutverkunum?
Hefði fólk nokkuð fríkað út þá?“